Morgunblaðið - 04.06.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚNÍ 2007 47
Iðnaðarhús Hveragerði
Fasteignasalan
BAKKIehf
Sími 482-4000
Heimasíða www.bakki.com
Netfang bakki@bakki.com
Sigtún 2 SelfossiÞröstur Árnason
lögg.fasteignasali
sími 899-5466
Fyrir fjárfesta: Eldra iðnaðarhúsnæði við Dynskóga í Hveragerði sem
býður upp á ýmsa möguleika. Burðarvirki hússins er steypt og
steypubitar í þaki einnig. Hlaðið er á milli bita með holsteini. Húsið er
byggt 1964 og var vel til þess vandað á sínum tíma. Lóðin er 6.634fm
afar vel staðsett. Húsnæðið gæti hentað undir ýmiskonar framleiðslu
eða jafnvel geymslu en geymsluhótel hefur verið rekið með góðum
leigutekjum í eigninni undanfarið. Mikill kostur er líka að fast
hitaveitugjald er til staðar um 6.000.kr.pr.mán og ótakmarkað vatn.
Hugmyndir hafa verið uppi um að byggja ný hús á lóðinni. Húsnæðið
er skráð 1.830fm en að auki er stórt milliloft. Íbúð/skrifstofa er einnig í
norðurenda hússins. Verð 125.000.000 kr.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
NEMENDUR í 9. E í Digranes-
skóla gerðu sér lítið fyrir og sigruðu
í öðrum lið af tveimur í stærð-
fræðikeppninni KappAbel sem fór
fram í Svíþjóð í lok síðustu viku. All-
ar Norðurlandaþjóðirnar sendu lið
til keppni, en þetta mun vera í fyrsta
skipti sem íslenskt lið ber sigur úr
býtum. Bekkurinn hlaut 5.000
sænskar krónur að launum, um
45.000 íslenskar krónur.
KappAbel er tvíþætt keppni, ann-
ars vegar skila bekkirnir faglegri
skýrslu og framvinduskýrslu um
sérstakt bekkjarverkefni, og hins
vegar er keppt í stærðfræðiþraut-
um. 9. E sigraði í fyrrnefndu keppn-
inni.
„Á hverju ári er þema og í ár var
það stærðfræðibyggingar. Við mátt-
um vinna frjálst með það og við
hönnuðum tvö íþróttahús, eitt hálf-
kúlulagað og eitt kassalagað, og bár-
um saman rúmmál, flatarmál og
fleira,“ segir Fríður Halldórsdóttir,
einn keppenda. Þá könnuðu þau sér-
staklega hversu mörg 80 ára gömul
og 23 metra há eikartré þyrfti að
fella til þess að búa til parket í
íþróttahús sem er 42 x 42 metrar að
flatarmáli. Niðurstaðan var 100 tré
og vakti sú niðurstaða mikla athygli í
keppninni.
Allir 23 nemendurnir í bekknum
tóku þátt, en að sögn Fríðar eru auð-
vitað ekki allir eins góðir í stærð-
fræði. „Þeir sem eru ekki góðir í
stærðfræði hjálpuðu til við að gera
líkanið og teikna veggspjöld þannig
að það fengu allir að gera eitthvað,“
segir hún. Fjórir bestu nemendurnir
tóku svo þátt í þrautakeppninni, en
þar hafnaði liðið í fjórða sæti.
Fríður segist alveg viss um hvers
vegna bekkurinn náði svo góðum ár-
angri. „Við erum með svo góðan
kennara,“ segir hún, en kennari
þeirra er Þórður St. Guðmundsson.
„En svo erum við góðir vinir og okk-
ur finnst þetta gaman,“ bætir Fríður
við.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stærðfræðingar Elín Björk Böðvarsdóttir, Þórður St. Guðmundsson, Fríð-
ur Halldórsdóttir, Arnar Þór Sveinsson og Emil Magnússon við líkanið.
Sigruðu í norrænni
stærðfræðikeppni
Einbeitt Íslenska liðið sem keppti í stærðfræðiþrautum.
Sigurvegarar Íslensku keppendurnir voru stoltir við verðlaunaafhendinguna í Gautaborg.