Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 161. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
ÆÐRI MÁTTUR
HINN TAÍVANSKI LU YU LEIKUR Í STÓRA
PLANI ÓLAFS JÓHANNESSONAR >> 44
ÞRIÐJUNGI ÍSLANDS-
MÓTSINS LOKIÐ
KNATTSPYRNA
KR NEÐST >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
BÆJARRÁÐ Kópavogs sam-
þykkti í gær tillögu um að frá og
með næstu áramótum yrði gjald-
frjálst fyrir alla íbúa Kópavogs í
strætó.
Frá áramótum hafa ellilífeyr-
isþegar í Hafnarfirði getað fengið
strætófarmiða á bæjarskrifstofum
gegn framvísun vildarkorts en kort-
ið fá bæjarbúar eldri en 67 ára sent
til sín. Reykjavíkurborg tilkynnti
nýverið að allir námsmenn fengju
frítt í strætó. Borgin hefur átt í við-
ræðum við nemendafélög fram-
halds- og háskóla um hvernig fram-
kvæmdin gæti orðið en líklega
verður nægilegt að framvísa nem-
endaskírteini. Gísli Marteinn Bald-
ursson, formaður umhverfis- og
samgöngusviðs borgarinnar, reiknar
með að önnur sveitarfélög taki þátt
og því verði ekki nauðsynlegt að að-
greina nemendur úr Reykjavík sér-
staklega. Gunnar I. Birgisson, bæj-
arstjóri Kópavogs, segir
framkvæmdina ekki ákveðna en lík-
lega verði gefin út sérstök aðgangs-
kort fyrir Kópavogsbúa.
Gjaldtaka svarar ekki kostnaði
Samþykkt Kópavogsbæjar vekur
nokkra eftirtekt, enda gagnrýndi
Gunnar I. Birgisson að Reykjavík-
urborg lýsti því einhliða yfir að
námsmenn þar fengju frítt í strætó.
Gunnar segir það ljóst að önnur
sveitarfélög myndu fylgja í fótspor
Hafnarfjarðar og Reykjavíkur. Að-
gangseyrir annarra hópa en þeirra
sem þá fengju frítt væri um 300
milljónir og kostnaðurinn við gjald-
tökuna næmi um helmingi þeirrar
upphæðar. Því hefði einhliða ákvörð-
un Kópavogsbæjar nú verið svar við
ákvörðunum annarra sveitarfélaga.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg-
arstjóri Reykjavíkur, segir það hafa
verið skoðað að hafa algjörlega
gjaldfrjálst í strætó en borgin muni
fyrst um sinn hafa gjaldfrjálst fyrir
námsmenn. Engar aðrar ákvarðanir
hafi verið teknar. Málefni Strætó
séu til rækilegrar skoðunar, ekki síst
fjárhagsleg staða fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Eggert
Frítt í
strætó
fyrir alla
Sveitarfélögin
ganga mislangt
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
SÝSLUMAÐURINN á Selfossi hyggst gera það sem í
hans valdi stendur til þess að mótorhjól mannanna sem
óku á ofsahraða undan lögreglu frá Kambabrún þar til
þeir lentu í árekstri á Breiðholtsbraut aðfaranótt mánu-
dags sl. verði tekin af þeim fyrir fullt og allt. Hann hefur
þegar lagt hald á hjólin og mun krefjast þess fyrir dómi
að þau verði gerð upptæk til ríkissjóðs.
Sýslumanni er heimilt að gera þessa kröfu samkvæmt
lögum sem samþykkt voru á Alþingi í vetur.
Í lögunum segir m.a. að þegar um stórfelldan eða
ítrekaðan hraðakstur, eða akstur sem telst sérstaklega
vítaverður, sé að ræða megi gera vélknúið ökutæki sem
ökuskírteini þarf til að stjórna upptækt, nema það sé eign
manns sem ekkert er viðriðinn brotið.
Nú kynni einhver að halda að ökuníðingar gæti sloppið
við þessa refsingu með því að aka bara of hratt á lánsbíl
eða -hjóli. Svo er ekki, því í lögunum er girt fyrir þennan
möguleika, þar segir að við sömu aðstæður megi gera
ökutæki hins brotlega upptækt, jafnvel þótt það hafi ekki
verið notað þegar brotið var framið.
Notað með hættulegum hætti
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sagði
að full ástæða væri til að láta reyna á lögin. „Þarna er um
að ræða tæki sem hafa verið notuð með mjög hættulegum
hætti og það er þannig að ef maður væri að veifa byssu og
ógna fólki með henni þá er alveg klárt mál að krafist yrði
upptöku á byssunni. Og ég sé ekki mikinn mun á þessu.
Reyndar engan,“ sagði hann. Aðspurður kvaðst Ólafur
Helgi ekki vita til þess að þessu ákvæði, að gera ökutæki
upptæk vegna ofsaaksturs, hefði verið beitt áður.
Vill að mótorhjólin
verði gerð upptæk
Nýju ákvæði í umferðarlögum beitt í fyrsta skipti
NICHOLAS Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, telur ekki að ákvæði í stjórnarsáttmálanum þar
sem stríðsreksturinn í Írak er harmaður spilli samskipt-
um ríkjanna. Þessi ágreiningur sé ekki neitt stórmál.
„Ég tel ekki að þau fordæmi það sem við erum að gera
þar, satt að segja virðist yfirlýsingin snúast um það sem
við gerðum fyrir fjórum árum,“ segir Burns. „Eitt er að
greina á um það sem við gerðum 2003 og allt annað að
meta það sem við erum að gera núna. Um er að ræða ger-
ólíka hluti. Stjórn okkar taldi sig hafa rétt til að gera inn-
rás, það var afstaða okkar þá en núna erum við að að-
stoða írösku stjórnina við að lifa af við mjög erfiðar
aðstæður árið 2007.“ | Miðopna
Spillir ekki sam-
skiptum þjóðanna
Nicholas Burns
Í DÓMI sem kveðinn var upp í
fyrrahaust yfir mótorhjólamann-
inum sem slasaðist minna á
Breiðholtsbraut kemur fram að
10. júní sl. stóð lögregla hann að
því að aka bifhjóli sínu á 181 km
hraða á klukkustund suður Hafn-
arfjarðarveg. Hann var þó ekki
einn á hjólinu því aftan á var 13
ára farþegi, að því er segir í
dómnum en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins mun þetta
hafa verið sonur mannsins.
Líkt og maðurinn gerði á
Hellisheiði freistaði hann þess að
komast undan lögreglu og í
dómnum er því lýst hvernig hann
ók þvers og kruss um Ásahverfi í
Garðabæ, þar á meðal eftir gang-
stíg, áður en lögregla stöðvaði
hann.
Maðurinn játaði og var dæmd-
ur í 115.000 króna sekt og missti
ökuréttindi í fimm mánuði.
Með soninn á
181 km hraða
26
79
/
IG
13
Stanga
sett
tilbúin í veiðiferðina
Þú færð IG-veiðivörur
í næstu sportvöruverslun
MILDI þykir að ekki urðu alvarleg
slys á fólki þegar bíl var ekið fram af
kanti við bráðamóttöku Landspít-
alans við Hringbraut í gærkvöld.
Slysið varð um kl. 22:30. Svo virðist
sem ökumaður hafi ekið á talsverðri
ferð upp á járnboga og tekið þaðan
stökk í átt að húsi bráðamóttök-
unnar. Margir gangandi vegfar-
endur eiga þarna leið um, en bíllinn
lenti m.a. á reiðhjólum við húsið.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
hlaut ökumaðurinn, sem var einn í
bílnum, aðeins minniháttar meiðsl.
Tildrög óhappsins eru enn í rann-
sókn, en grunur leikur á að mað-
urinn hafi fengið aðsvif undir stýri.
Hann var til skoðunar á bráða-
móttöku þegar blaðið fór í prentun.Morgunblaðið/Kristinn
Ók fram
af kanti
við Land-
spítala