Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 17
A-Class – Ánægjunnar vegna
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Nýr A-Class sameinar skynsemi og þægindi með fullkomnum hætti. Hann er nettur
en einnig ótrúlega rúmgóður og glæsileikinn helst í hendur við stórkostleg þægindin.
A-Class er bíll sem þú velur ánægjunnar vegna – af því að það er skynsamlegt.
Verð frá 2.290.000 kr.
BRJÖMS-
NJUMS-
BRRÖMS-
BRÖMS-
SNJÖMM-
… AHHH!
Á kexmáli þýðir þetta: úrvalsgott súkkulaði,
hafrar, hveilhveiti og unaðslegt bragð.
Hob-Nobs er nefnilega
eina kexið sem talar!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
3
76
44
0
6/
07
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
AFRÍKURÍKI hafa náð málamiðl-
unarsamkomulagi um að heimila
fjórum löndum í sunnanverðri álf-
unni að selja birgðir sínar af beinum
sjálfdauðra fíla. Sala á fílabeini verð-
ur síðan bönnuð í níu ár með það að
markmiði að stöðva ólöglegar fíla-
veiðar sem hafa stóraukist síðustu
árin.
Samkomulagið náðist á fundi að-
ildarríkja CITES, sáttmála um við-
skipti með dýr í útrýmingarhættu.
Willem Wijnstekers, fram-
kvæmdastjóri CITES, sagði sam-
komulagið marka tímamót í barátt-
unni gegn fílaveiðum. „Þessi afríska
lausn á afrísku vandamáli er stórt
skref fram á við í náttúruvernd,“
sagði hann. „Þetta eru góðar fréttir
fyrir fílana og fólkið sem býr við
hliðina á þeim.“
Viðbrögð fulltrúa helstu umhverf-
isverndarsamtaka heims voru þó
blendin. Þeir fögnuðu banninu en
sögðu að heimildin til að selja birgð-
irnar gæti ýtt undir fílaveiðar og
ólöglega sölu á fílabeini.
Vildu 20 ára bann
Sala á fílabeini hefur verið bönnuð
frá 1989 en CITES hefur tvisvar
sinnum áður veitt undanþágu frá
banninu í löndum í sunnanverðri
Afríku.
Fjögur Afríkulönd – Botsvana,
Namibía, Suður-Afríka og Zimbabve
– höfðu beitt sér fyrir því að tak-
mörkuð sala á fílabeini yrði heimiluð
og að þeim yrði úthlutaður kvóti ár-
lega. Um 20 önnur Afríkulönd, undir
forystu Kenýa og Malí, lögðu hins
vegar til að sala á fílabeini milli
landa yrði algerlega bönnuð í 20 ár.
Fulltrúar landanna sögðu að tak-
mörkuð sala á fílabeini ýtti undir
fílaveiðar og bentu á að ólöglegu við-
skiptin stórjukust eftir að undan-
þágurnar voru veittar.
Samkvæmt málamiðlunarsam-
komulaginu geta Afríkulöndin fjög-
ur selt birgðir sínar af beinum sjálf-
dauðra fíla eins og þær voru skráðar
31. janúar síðastliðinn.
Wijnstekers sagði að deilt væri
um hversu miklar birgðirnar væru
nákvæmlega en taldi að þær væru
samtals um 150-200 tonn í löndunum
fjórum. Náttúruverndarsamtök telja
að birgðirnar séu miklu minni.
Arðinn af sölu fílabeinsins á að
nota til að vernda fíla og fjármagna
uppbyggingarverkefni sem miðast
að því að stöðva fílaveiðar.
CITES heimilar aðeins að fíla-
beinið sé selt til Japans og bannað er
að selja það þaðan til annarra landa.
CITES synjaði beiðni Kínverja um
heimild til að kaupa fílabein en hugs-
anlegt er að beiðnin verði samþykkt
síðar. Peter Pueschel, talsmaður Al-
þjóðadýraverndunarsjóðsins
(IFAW), sagði samkomulagið marka
tímamót í baráttunni gegn fílaveið-
um. „Þetta er augljóslega sigur fyrir
fílana og verndunarstarfið á öllum
svæðum fílanna.“
„Þetta ýtir undir eftirspurn sem
verður aldrei hægt að mæta með
löglegum hætti,“ sagði þó Michael
Wamithi, sérfræðingur IFAW í fíla-
vernd í Kenýa. „Þetta stuðlar að
ólöglegum viðskiptum og það eru
þau sem ganga af fílunum dauðum.“
Susan Lieberman, talskona World
Wide Fund for Nature (WWF),
fagnaði samkomulaginu en sagði að
því þyrfti að fylgja nákvæm áætlun
um hvernig stöðva ætti ólögleg við-
skipti með fílabein.
Fílum hefur fækkað úr milljónum
í um hálfa milljón í Afríku og veið-
arnar hafa stóraukist á síðustu sex
árum. Sérfræðingar áætla að árlega
séu um 12.000 til 20.000 fílar drepnir
vegna mikillar ásóknar í fílabein sem
einkum er selt til Austur-Asíu.
Málamiðlun um
viðskipti með fílabein
Sala á birgðum heimiluð en síðan tekur við níu ára bann
AP
Í hættu Fílafjölskylda í Etosha-þjóðgarðinum í Namibíu. Fílaveiðar hafa
stóraukist í Afríku síðustu ár þrátt fyrir 18 ára bann við sölu á fílabeini.
» Áætlað er að árlega
séu um 12.000-20.000
fílar drepnir vegna mik-
illar ásóknar í fílabein
sem einkum er selt til
Austur-Asíu.