Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 33
an af. Þá er kominn háttatími og amma strýkur á mér bakið þar til ég sofna. Þetta er dæmigerð minning um ömmu frá því ég var lítill. Hún hugsaði fyrst og síðast um að dekra við mig og systkini mín þegar við komum í heimsókn. Einnig eru matarboðin hjá henni minnisstæð þar sem við fjölskyldan lágum afvelta eftir allan matinn sem var á boðstólum. Það var einfaldlega vegna þess að maturinn var það góð- ur að erfitt var að stoppa og svo fylgdi oftar en ekki ís með í eftirrétt. Eftir að heilsan versnaði síðustu árin á Selvogsgötunni og amma átti erf- iðara með að elda fyrir mann hætti hún þó ekki að bjóða manni í mat. Þá fórum við og keyptum tilbúin mat og borðuðum heima hjá ömmu. Þá þótti henni sérlega gott að fá mat frá Ken- tucky. Amma gerði allt sem hún gat fyrir sína nánustu og krafðist ekki neins í staðinn. Það skipti hana ávallt miklu máli að við hefðum það gott og hún gerði það sem hún gat til að svo væri. Eftir að hafa eytt síðustu árum ævinnar á Sólvangi undir góðu eft- irliti og umönnun starfsfólksins þar er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að kominn var tími á að amma fengi almennilega hvíld. Eftir situr minningin um elsku- lega, viljuga og nægjusama ömmu. Þinn Jóhann Gunnar Jónsson. Þegar ég kveð þig elsku amma mín streyma fram minningarnar og sökn- uðurinn. Minningarnar um ömmu sem allt fyrir okkur systkinin var tilbúin að gera og svo síðar barnabörnin. Er ég hugsa til baka er mér svo minnis- stætt þegar við vorum send í pössun til þín, þá var rúmið dregið frá veggn- um og raðað kollum á milli svo við gætum sofið uppí, einnig man ég eftir Royal karamellubúðingnum sem þú gerðir alltaf fyrir mig og var í miklu uppáhaldi hjá mér. Í seinni tíð þegar ég kom til þín að skreyta jólatréð komst ég að því hvaðan ég hafði það að kíkja í alla jólapakkana. Þá hafðir þú litla þolinmæði eins og ég að bíða eftir jólunum. Svo kom sá tími að þú veiktist og eyddir síðustu fjórum árum þínum á Sólvangi og er ekki laust við það að maður væri farinn að fá samviskubit yfir því hvað heimsóknunum var far- ið að fækka. Situr hvað fastast í mér þegar við eyddum síðasta kvöldi þínu, aðfaranótt 22. maí, saman að ekki náði ég að heimsækja þig á okk- ar sameiginlega afmælisdegi, 20. maí, en ég veit að þú fyrirgefur mér það. Nú þegar ég kveð þig með söknuði mun ég hugsa um allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Einar. Elsku amma, takk fyrir góðu stundirnar sem við áttum saman, minningin um þig mun ávallt lifa í hjörtum okkar. Ó, vef mig vængjum þínum til verndar, Jesús hér, og ljúfa hvíld mér ljáðu, þótt lánið breyti sér. Vert þú mér allt í öllu, mín æðsta speki’ og ráð, og lát um lífs míns daga mig lifa’ af hreinni náð. Tak burtu brot og syndir með blóði, Jesús minn, og hreint mér gefðu hjarta og helgan vilja þinn. Mig geym í gæslu þinni. Mín gæti náð þín blíð, að frið og hvíld mér færi hin fagra næturtíð. (Magnús Runólfsson) Þórey og Jón Karl. Í dag kveð ég Guðnýju ömmu. Ömmu sem ég var svo lánsöm að eignast þegar ég kynntist manninum mínum. Góðhjarta konu sem ávallt hugsaði um aðra hvernig þeir höfðu það og hvort hún gæti gert eitthvað til að þeim liði betur, sama hversu veik hún var sjálf. Gjafmildi hennar var með ein- dæmum, sem allir í kringum hana fengu að njóta, og alltaf þurfti hún að eiga eitthvað gott handa litlum ömmubörnum sem komu í heimsókn. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, first sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Vald. Briem) Elsku Guðný mín, ég veit þú ert komin á betri stað, laus við veikindin. Mig langar að þakka þér fyrir sam- fylgdina og hlýjuna sem þú sýndir mér og börnunum mínum, sem munu sárt sakna langömmu sinnar, þótt þú verðir aldrei langt undan því þú verð- ur ávallt í hjörtum okkar og minn- ingu. Eygló Elsku Guðný mín, mig langar að þakka þér fyrir góða vináttu og sam- starf í Flensborg. Nokkur ár eru síðan leiðir okkar skildu en minningin um góða vinkonu sem gaman var að spjalla við og bauð upp á frábærar kleinur þegar ég kom í heimsókn lifir. Ég óska þér velfarnaðar í nýjum heimkynnum. Þín vinkona, Helga Herberts. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 33 Afi var alltaf góður og hugsaði frekar um aðra en sjálfan sig, það verður skrýtið að hafa hann ekki hjá okkur og ég mun ávallt sakna hans. Kveðja, Ingibjartur Bjarni Davíðsson. Kær bróðir okkar er látinn. Við systur minnumst hans með söknuði og hlýju. Minnumst áhyggjulausrar æsku í litla húsinu á Framnesveginum í faðmi yndis- legra og umhyggjusamra foreldra. Móður sem alltaf var til staðar fyrir okkur. Sá um heimilið meðan pabbi var á sjónum. Eftirvæntingarinnar þegar mamma klæddi okkur systk- inin í sparifötin og haldið var gang- andi niður á bryggju. Taka á móti pabba. Hvað skyldi vera í sjópok- anum? Leikföng, framandi sælgæti, suðrænir ávextir. Allt þetta var svo spennandi á tímum þegar lítið fékkst í verslunum í Reykjavík. Ekki síst að sjá pabba aftur, stund- um eftir langa fjarveru. Við systur hálfsjóveikar og hræddar að ganga um borð. En Jonni bróðir ávallt á heimavelli. Þetta var hans heimur. Vissulega stolt foreldra okkar. Svo fallegur, góður, vel gerður, ljúfur og lítillátur. Minnumst hve gott var að fá aðstoð við heimalærdóminn. Hann kunni allt. Var alla tíð frábær námsmaður. Hjá honum kom aldrei neitt annað starf til greina en sjó- mannsstarfið. Föðurbræður hans, Jón og Kolbeinn, voru sjómenn sem og margir frændur í föðurætt. 16 ára hélt hann út í heim. Kort bárust frá fjarlægum heimsálfum. Fór meðal annars á norskt skólaskip. Aflaði sér siglingaréttinda og fór í Stýrimannaskólann í Reykjavík 18 ára. Lauk þaðan prófi með hæstu einkunn og verðlaunum, sem hann minntist reyndar aldrei á. Það var ekki hans stíll. Hann vann lengst af hjá Eim- skipafélagi Íslands. Síðustu árin sem skipstjóri á Brúarfossi. Jón varð 67 ára 1. mars síðastliðinn. Þar með lauk farsælum og löngum sjó- mannsferli. Í síðustu ferðinni var hann orðinn veikur. Greindist með krabbamein er í land kom. Von um frítíma með fjölskyldu og vinum rættist því miður ekki. Sjaldan höf- um við systur orðið vitni að annarri eins umhyggju, ást og virðingu sem Páll, stjúpsonur Jóns, og hans fjöl- skylda sýndu honum í erfiðum veik- indum síðustu vikur. Snorri, sonur Jóns, á erfitt með að skilja hvers vegna pabbi hans kemur ekki leng- ur og styttir honum stundir. Stella, stóra systir, og við munum reyna að fylla það skarð í framtíðinni. Blessuð sé minning Jóns Ólafs- sonar. Systurnar Viktoría og Jóhanna. Mig langar í örfáum orðum að minnast samstarfsmanns míns, Jóns Ólafssonar. Reyndar fóru allar okkar samverustundir fram til sjós. Þitt fjölskyldulíf þekkti ég lítið en hins vegar vissi ég af gulldrengnum honum Palla og fjölskyldu hans í Danmörku, sem þú dáðir á þinn ein- læga hátt. Einnig áhuga þínum á stjúpafabörnunum sem nutu þín sem afa og félaga. Þau vildu ár eftir ár koma með þér í siglingu og vera félagar þínir og vinir. Þá kom oft til okkar kasta í áhöfninni að hafa ofan af fyrir börnunum. Við vorum mjög móttækilegir fyrir uppátækjum þeirra. Stundum vorum við beðnir um að nefna uppátækin ekki við afa. En það var vissulega brot af okkar hálfu. Við tókum saman við Brúarfossi árið 2001 og sigldum síðan saman. Aldrei bar skugga á samstarf okk- ar. Þú hlakkaðir til starfslokanna enda hafðir þú skilað þínum 40 ár- um til sjós og gott betur. Nú skildir þú fara að njóta erfiðis áranna. En enginn ræður sinni för, í lok síðasta túrs þíns með Brúarfossi kenndir þú þér þess meins sem nú hefur sigrað þig. Skipi þínu sigldir þú farsællega í höfn en dagsverki þínu lauk langt fyrir aldur fram. Hafðu þökk fyrir allt og blessuð sé minning þín. Valdimar Jóhannsson, yfirvélstjóri á Brúarfossi. ✝ Eiríkur Júl-íusson fæddist í Kambahrauni í Lóni 13. ágúst 1923. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu á Höfn hinn 6. júní síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guðný Kristjana Magn- úsdóttir og Júlíus Sigfússon. Eiríkur var þriðji í röðinni af sjö systkinum. Þau fluttu á Höfn þegar hann var á unglings- aldri. Eiríkur var kvæntur Ingu Hálfdanardóttur sem lést 23. maí 1998. Þau eignuðust tvö börn; Guðnýju Sig- rúnu og Magnús Ástvald. Barna- börnin eru átta og barnabarnabörnin átta. Eiríkur vann ýmis störf en frá því um 1950 hjá KASK, lengst af á olíubíl. Hann hafði mikinn áhuga á skógrækt og var alla tíð mjög hjálp- samur og greiðvikinn. Útför Eiríks fer fram frá Hafnarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. „Góður granni er gulli betri.“ Í dag fer fram útför Eiríks Júl- íussonar frá Hafnarkirkju. Eirík- ur, eða Eiki eins og hann var al- mennt kallaður, var einn af eldri Hornfirðingunum og sjálfsagður hluti af lífi okkar sem ólumst upp hér á Hornafirði. Á sínum tíma fluttu foreldrar hans, þau Guðný og Júlíus, með sín sjö börn úr Lóninu hingað til Hafnar og settust að í Grafarholti (síðar Kirkjubraut 10). Í næsta húsi, Haga, bjuggu afi og amma með sín tíu börn. Strax tengdust þessar fjölskyld- ur miklum vináttuböndum sem hafa haldist til þessa dags og börn- in sautján voru eins og einn systk- inahópur. Eiki og mamma voru jafnaldra og fermingarsystkin og kallaði Eiki hana alltaf ferming- arsystur sína. Afi dó á besta aldri, en Júlíus faðir Eika hélt afahlut- verkinu áfram til dauðadags, alltaf hress og glaður. Hann fylgdist með okkur öllum og var ekki feim- inn að segja okkur sitt álit á hlut- unum. Þegar Eiki og Inga giftust byggðu þau sér hús, Víðihlíð (Kirkjubraut 12), við hliðina á Grafarholti. Þar bjuggu þau allan sinn búskap, ásamt foreldrum Eika, og ólu þar upp börnin sín tvö, Magnús og Guðnýju. Hún Inga var „lífslánið“ hans Eika. Hún var einstaklega blíð og ljúf manneskja, skipti aldrei skapi og gleymist seint þeim sem til þekkja hvernig hún barðist við krabbamein síðustu árin og sagði gjarnan: „Mér er ekki vorkunn, ég hef átt svo góða daga og verið svo heppin í lífinu og allir hafa verið svo góðir við mig.“ Eftirminnilegt er hve Eiki stóð vel við hlið hennar þegar hún þurfti mest á því að halda, fór með hana í allar meðferðir til Reykja- víkur og hjúkraði henni hér heima í Víðihlíð á milli. Fyrir um þrjátíu árum fengum við Guðbjartur lóðina við hliðina á Víðihlíð þar sem Grafarholt stóð. Þau Inga og Eiki vissu hvað til stóð, en við fórum strax og sögðum þeim tíðindin þegar þetta var ákveðið og þau ásamt, Júlíusi og Guðnýju, glöddust innilega með okkur og fylgdust af áhuga með húsbyggingunni. Það var ekki kvörtunum fyrir að fara þegar jörðin nötraði af sprengingum í húsgrunninum og kranar og þungavinnuvélar gnæfðu yfir hús- unum. Nú þegar leiðir skilur um sinn ylja minningarnar, minningar um fólk sem ljúfmennskan og velvildin umlukti. Það voru mikil fríðindi að eiga þau að samferðamönnum og fá að alast upp með þeim. Ómetanlegasta minningin er samt sú að aldrei hefur borið skugga á samskipti þessara fjöl- skyldna, þrátt fyrir fjórar kynslóð- ir sem nú eru komnar. Við Guðbjartur og mamma send- um Guðnýju, Magnúsi og fjöl- skyldum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og þökkum ómetan- lega tryggð og vináttu í gegnum árin. Blessuð sé minning Eiríks Júl- íussonar. Agnes Ingvarsdóttir. Eiríkur Júlíusson ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUNNARS HJARTAR HALLDÓRSSONAR, Hlíðarvegi 19, Bolungarvík. Helga Guðmundsdóttir, Agnar H. Gunnarsson, Dalla Þórðardóttir, Kristín Gunnarsdóttir, Benedikt K. Kristjánsson, Ósk Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, NJÁLL HALLDÓRSSON útgerðarmaður, Vík, Bakkafirði, lést í Sundabúð 11. júní. Útför hans fer fram frá Skeggjastaðakirkju mánudaginn 18. júní kl. 14.00. Guðrún Margrét Árnadóttir, Reynir Njálsson, Sigþrúður Rögnvaldsdóttir, Halldór Njálsson, Brynhildur Óladóttir, Hilma Hrönn Njálsdóttir, Áki Guðmundsson, Árni Bragi Njálsson, börn og barnabörn. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð við fráfall eigin- manns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS JÓNSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki St. Jóseps- spítala og hjúkrunarfræðingum í Karítas fyrir mjög góða umönnun. Guðrún Anna Ingimundardóttir, Bára Friðriksdóttir, Guðmundur Ásmundsson, Jón Leví Friðriksson, Elín Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.