Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Vestfjarðablað
Land og saga
Vestf irðir
1. tbl . 2007
Land og saga ehf.
Morgunblaðinu í dag fylgir 32 síðna
sérblað um Vestfirði þar sem kynnt er
það helsta sem í boði er í ferða-
þjónustu og afþreyingu. Að auki er
stiklað á stóru í sögu svæðisins og
dregin fram mynd af þeirri stórbrotnu
náttúru og dýralífi sem þar þrífst.
Land og saga ehf. stendur fyrir út-
gáfunni og í kjölfarið hyggst Land og
saga gefa út fleiri landshlutablöð sem
fara í dreifingu með Morgunblaðinu
og í verslanir N1 um allt land.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
BÚAST má við að verulegar breytingar og
endurbætur á veikindarétti launafólks á al-
menna vinnumarkaðinum verði eitt af stærstu
málunum í komandi kjarasamningum. Fulltrú-
ar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hafa allt frá
seinustu áramótum verið í undirbúningsvið-
ræðum um breytingar á núverandi kerfi og er
stefnt að því að niðurstaða liggi fyrir með
haustinu.
Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, segir að
veikindarétturinn og aukið orlof félagsmanna
gætu orðið stóru mál kjarasamninganna, en
samningar á almenna vinnumarkaðinum renna
flestir út um næstu áramót. Að sögn hans hafa
viðræðurnar snúist um að samræma veikinda-
rétt allra, stytta þann tíma sem launþegi í veik-
indaorlofi fær laun beint frá vinnuveitanda en
við taki sérstakur tryggingasjóður, sem rekinn
yrði af aðilum vinnumarkaðarins. Greiðslurnar
yrðu hærri og yfir lengri tíma en gildir í dag.
Er við það miðað að sjóðurinn taki yfir hluta
greiðslna til einstaklinga úr sjúkrasjóðum
verkalýðsfélaga, greiðslna frá Tryggingastofn-
un og lífeyrissjóðum í allt að fimm ár. Ein-
staklingar sem ekki snúa aftur á vinnumark-
aðinn vegna veikinda fái því ekki
örorkuúrskurð fyrr en að allt að fimm árum
liðnum.
Beita virkari úrræðum
Þessar hugmyndir tengjast starfsemi nefnd-
ar sem forsætisráðherra skipaði um samræm-
ingu á viðmiðunum við örorkumat og endur-
hæfingu öryrkja. Ingimundur Sigurpálsson,
formaður SA, vék að þessum hugmyndum á að-
alfundi SA í vor og kom fram að gert er ráð
fyrir því, að þessi nýi sjóður muni fá til sín
hluta af núverandi sjúkrasjóðsgjaldi, hluta af
gjaldi, sem myndast vegna lækkunar iðgjalda
til lífeyrissjóða, og hlutdeild í tryggingagjaldi.
Markmiðið sé að gera sjóðfélaga sem fyrst
virka á vinnumarkaði.
Enn er mikil vinna eftir í viðræðunum, að
sögn Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra SA. Hann segir að veikindarétt-
urinn sé eina efnislega atriðið sem rætt hefur
verið enn sem komið er á milli samningsaðila.
Það ráðist svo í haust þegar eiginlegar við-
ræður hefjast við einstök félög hver afdrif
þessara hugmynda verði. Hannes segir að fyr-
irkomulag veikindaréttar hér á landi sé býsna
ólíkt því sem gildir í öðrum löndum. Sérstak-
lega sá langi tími sem einstaklingar fá
greiðslur beint frá fyrirtækjunum og síðan taki
sjúkrasjóðirnir við en þeir þekkist vart í ná-
lægum löndum. „Á þessu tímabili er ekki færi
fyrir úrræði, aðstoð eða inngrip til að snúa við
því ferli sem einstaklingarnir geta lent í. Ef
menn komast ekki aftur inn á vinnumarkaðinn
eftir svona ferli þá tekur örorkulífeyririnn við.
Það hefur orðið slík sprenging á fjölda örorku-
lífeyrisþega á undanförnum árum að menn
hljóta að staldra við og reyna að koma við ein-
hverjum aðgerðum,“ segir hann.
Undirbúningur að gerð kjarasamninga á vinnumarkaði að komast á fullt skrið
Rætt um róttækar end-
urbætur á veikindarétti
Í HNOTSKURN
»Undirbúningur kjaraviðræðna er kom-inn á fulla ferð á vettvangi VR. Þrír
málefnahópar fjalla um stærstu málin,
vinnutíma- og launamál.
»Formaður VR segir félagsmenn leggjamikla áherslu á aukið orlof og sveigj-
anlegri vinnutíma.
»SA og ASÍ stefna að því að ljúka kjara-samningum fyrir næstu áramót.
ÍSLENSK erfðagrein-
ing tilkynnti í gær að fyr-
irtækið hefði náð sátt í
dómsmáli fyrir alríkis-
dómstóli Fíladelfíu sem
væri fyrirtækinu hag-
stæð. Í fréttatilkynningu
frá Íslenskri erfðagrein-
ingu kemur fram að fyr-
irtækið var aðili að
dómsmáli sem var höfðað gegn bandaríska
sjúkrahúsinu Children’s Hospital of Phila-
delphia (CHOP) og nokkrum fyrrverandi
starfsmönnum Íslenskrar erfðagreiningar
sem hófu þar störf.
Með dómsáttinni hafa allir aðilar dregið
kröfur sínar til baka og fellt málið niður.
Sáttin var gerð með samningi sem leggur
ákveðnar skyldur á herðar CHOP og þeim
fyrrverandi starfsmönnum Íslenskrar
erfðagreiningar sem hér um ræðir.
Í fréttatilkynningunni er haft eftir Kára
Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfða-
greiningar, að hann sé ánægður með að fyr-
irtækinu skuli hafa tekist að ná sátt í deilu-
málinu við Barnaspítala Fíladelfíuborgar,
sem eigi að baki langa, farsæla sögu og hafi
þjónað samfélagi sínu af myndarbrag.
deCODE
nær sátt í
dómsmáli
Sáttin felur í sér
samning við CHOP
HEILDARKOSTNAÐUR við mis-
læg gatnamót og stokkalausnir
Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar getur numið allt að tólf millj-
örðum króna, segir Dagur B. Egg-
ertsson, borgarfulltrúi Samfylking-
arinnar. Það sé allt að fjórum sinnum
hærri upphæð en ætluð var til mis-
lægu gatnamótanna á samgöngu-
áætlun sem samþykkt var á vor-
þingi.
Frumathugun á mislægum gatna-
mótum og stokkalausnum Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar var
kynnt á fundi borgarráðs í gær. Að
sögn Dags hefur formlegt samráð
við íbúa og hagsmunaaðila ekki haf-
ist en Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
segir það vera næsta skref. Þegar
hafi tillögur meirihlutans verið
kynntar fyrir Landssamtökum hjól-
reiðamanna, hverfissamtökum
Hlíðasvæðis og atvinnurekendum í
Kringlunni.
Gísli Marteinn segir framkvæmd-
ina hafa breyst frá upphaflegum
áætlunum. Horfið hafi verið frá mis-
lægum gatnamótum og ákveðið að
setja u.þ.b. helming umferðar um
svæðið í stokk með hringtorgi ofan-
jarðar. Sú framkvæmd sé umhverf-
isvænni en jafnframt dýrari. Dagur
segir skoðun Samfylkingarinnar
vera þá að kanna eigi stokkalausnir á
Miklubraut. Mislæg gatnamót geti
beðið en frekar eigi að ráðast í
Öskjuhlíðargöng og dreifa þannig
umferð og álagi betur.
Margfaldur kostnaður
Mislæg gatnamót og stokkalausnir á mörkum Kringlu-
mýrarbrautar og Miklubrautar eru dýrari en ætlað var
Framkvæmdastjóri
heildsölufyrirtækisins
Rolf Johansen & Co.
hefur verið dæmdur í
Hæstarétti til að greiða
hálfrar milljónar króna
sekt fyrir að standa
fyrir birtingu auglýs-
inga um áfengan bjór í
nokkrum íslenskum
fjölmiðlum. Á sama tíma var forsvars-
maður annars fyrirtækis sýknaður af
ákæru fyrir samskonar brot, þar sem
hvorki hann né fyrirtækið voru nafn-
greind í auglýsingunum.
Í niðurstöðum Hæstaréttar segir að
auglýsingar Rolf Johansen & Co hafi ver-
ið andstæðar áfengislögum. Hinsvegar
hafi hvorki fyrirtækið né framkvæmda-
stjórinn verið nafngreind í fjórum auglýs-
ingum af fimm og því beri hann ekki
refsiábyrgð á þeim. Fimmta auglýsingin
var hinsvegar auðkennd með heimasíðu
Rolf Johansen og Co. og því nægilega
tengd fyrirtækinu til að framkvæmda-
stjórinn teljist ábyrgur vegna birting-
arinnar.
Hæstiréttur féllst ekki á að ákvæði
áfengislaga um auglýsingabann bryti
gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar eða
skuldbindingum íslenska ríkisins sam-
kvæmt EES-samningnum.
Sektaður fyrir
að auglýsa bjór
♦♦♦
HURÐ skall nærri hælum þegar þessi voldugi
byggingarkrani valt af flutningabíl og skall á
götuna við mót Lönguhlíðar og Flókagötu í
sem umferðartafir urðu vegna óhappsins að
sögn lögreglunnar, sem leiðbeindi vegfar-
endum svo þeir kæmust leiðar sinnar.
gær. Sem betur fer féll hann hvorki á fólk né
bíla en einhverjar skemmdir urðu á umferð-
areyjunni, bæði steypu og gróðri, auk þess
Morgunblaðið/Júlíus
Festingin gaf sig og kraninn féll