Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Í DANMÖRKU starfa samtök þeirra sem eiga erfitt með að vakna á morgnana. B-samtökin berjast fyrir sveigjanlegum vinnutíma því að hefðbundinn skrifstofutími sé morgunhönum augljóslega í hag. Á fyrstu starfsmánuðum samtakanna gengu þúsundir Dana í þau. Á vorum dögum þurfa fæstir að vakna við fyrsta hanagal til þess að gefa hænsnunum og líta eftir kún- um. Því er það mat samtakanna að það sé bara af gömlum vana, en ekki af neinni nauðsyn, sem obbi vinnandi fólks er látinn að rífa sig upp fyrir allar aldir. Það er bæði í þágu starfsmanns og vinnuveitanda að starfsmaðurinn geti mætt í vinn- una á þeim tímum sólarhringsins þegar hann er hressastur. Nokkur B- fyrirtæki hafa tekið til starfa í Danmörku, og samtökin reka m.a.s. B- vinnumiðlun. En það er ekki bara verkalýð- urinn sem sam- tökin ætla að frelsa úr viðjum vekj- araklukkunnar, heldur einnig skólabörn. Árangri hefur þegar verið náð. Haustið 2008 munu nokkrir skólar í Danmörku gefa kost á því að hefja störf ýmist klukkan 8 eða 10. B-samtökin í Danmörku berj- ast fyrir rétti morgunsvæfra SJÍTAR hafa, þvert á hvatningar trúarleiðtoga sinna, hefnt spreng- ingarinnar í Samarra í síðustu viku sem Al-Qaeda liðar voru grunaðir um aðild að. Ein helgasta moska sjíta stórskaðaðist. Þrjár moskur súnníta voru sprengdar í gær, að því er talið er í hefndarskyni. Útgöngubann var strax sett í bæði Bagdad og Sam- arra af ótta við að bardagar brytust út. Reiðir sjítar mótmæltu í Kut. „Við krefjumst þess að stjórnin verndi helgistaði og komi í veg fyr- ir trúarleg átök,“ hrópaði mótmæl- andinn Dhiya Abdul Amir. „Við krefjumst þess að blóði Íraka verði ekki úthellt.“ Moskur sprengdar á víxl Rústir Ein helgasta moska Sjíta eftir sprenginguna á miðvikudag. Reuters ÞÆR GLEÐIFRÉTTIR bárust í gær frá Alþjóðabankanum að stór- sigrar hefðu orðið í baráttunni gegn alnæmi á nokkrum svæðum í Afríku. Sérstaklega var nefndur góður árangur í Rúanda, Sambíu og Eþíópíu, en í Rúanda hefur hlut- fall smitaðra farið úr 11% niður í 3% á sjö árum, í kjölfar fyrirbyggj- andi aðgerða. „Kröftugt starf grasrót- arsamtaka auk dreifingar smokka og lyfja er byrjað að hægja á út- breiðslu faraldursins,“ sagði í skýrslu bankans. Alnæmisfar- aldur í rénun Reuters Hjálparstarf Sambísk alnæmis- hjúkrunarkona skoðar sjúkling. Gazaborg. AFP, AP. | Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ákvað í gær að leysa upp palestínsku þjóðstjórn- ina og lýsa yfir neyðarástandi á svæðum Palestínumanna vegna blóðsúthellinganna þar síðustu daga. Fyrr um daginn höfðu liðsmenn ísl- ömsku hreyfingarinnar Hamas náð mestum hluta Gaza-svæðisins á sitt vald og lagt undir sig höfuðvígi ör- yggissveita Fatah-hreyfingarinnar eftir harða skotbardaga. Abbas ákvað að verða við áskorun framkvæmdastjórnar Frelsissam- taka Palestínumanna (PLO) um að víkja palestínsku þjóðstjórninni frá þegar í stað og lýsa yfir neyðar- ástandi á Gaza-svæðinu og Vestur- bakkanum. Að minnsta kosti 108 manns hafa beðið bana í átökunum á einni viku. Abbas hefur lýst blóðsúthelling- unum sem „vitfirringu“ og varað við algerri upplausn og borgarastyrjöld á svæðum Palestínumanna. Fregnir um aftökur Vopnaðir hópar Hamas-liða réð- ust inn í höfuðstöðvar öryggissveita Fatah, hreyfingar Abbas, í Gaza- borg í gær. Þeir settu upp fána Ham- as á þaki byggingarinnar eftir nokk- urra klukkustunda bardaga og tugir Fatah-manna voru dregnir út úr henni. Að minnsta kosti fjórtán manns lágu í valnum og 70 særðust. Vopnaðir hópar Hamas sögðust einnig hafa lagt undir sig byggingar Fatah í borginni Rafah og bænum Beit Lahiya á norðanverðu Gaza- svæðinu. Hamas-liðar sögðust enn- fremur hafa líflátið leiðtoga Al Aqsa- herdeildanna, sem tengjast Fatah. Óstaðfestar fregnir hermdu að nokkrir Fatah-menn hefðu einnig verið teknir af lífi. Mikil spenna hefur verið milli pal- estínsku fylkinganna frá því að Hamas sigraði Fatah í þingkosning- um Palestínumanna í janúar 2006. Hamas sakar Fatah um þjónkun við Ísraela en Fatah segir íslömsku hreyfinguna starfa fyrir klerka- stjórnina í Íran. Abbas forseti leysir þjóðstjórnina upp Lýsir yfir neyðarástandi á svæðum Palestínumanna Í HNOTSKURN » Arababandalagið hvatti ígær Hamas og Fatah til að semja um vopnahlé og banda- lagið efnir til neyðarfundar um átökin í dag. » Ban Ki-moon, fram-kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hóf viðræður um hvort senda ætti alþjóðlegt friðargæslulið á Gaza-svæðið. Leiðtogar Hamas hafna þeirri tillögu og segja að litið yrði á allar erlendar hersveitir á svæðinu sem hernámslið. AP „Vitfirring“ Palestínumenn hlaupa að byggingu öryggissveita Fatah eftir sprengjuárás Hamas-liða í borginni Rafah á sunnanverðu Gaza-svæðinu. ELÍSABET Englandsdrottning verður tæpast sögð mikill herkonungur, en það verður ekki af henni skafið að Falklandseyjastríðið vannst undir hennar gunnfána. Þess var minnst í gær að aldarfjórðungur var liðinn frá stríðslokum og var drottningin kampakát þar sem hún ræddi við þegna sína að lokinni messu í Pangbourne. AP Brosandi drottning Breta Vín. AFP. | Kurt Waldheim, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og forseti Austurríkis, lést í gær, 88 ára að aldri. Waldheim var framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna 1972-1982 og forseti Austurríkis 1986-1992. Hann beið álitshnekki eftir að birtar voru upplýsingar um að hann hefði gengið í SA-sveitir nasista- flokksins 1938, árið sem Austurríki var innlimað í Þýskaland, og barist í her nasista á Balkanskaga í síðari heimsstyrjöldinni. Var hann einkum gagnrýndur fyrir að hafa haldið þessum upplýsingum leyndum. Upp- lýsingarnar voru birtar þegar Waldheim bauð sig fram í forseta- kosningunum í Austurríki 1986, þegar hann var 68 ára. Hann sigraði í kosningunum en málið varð til þess að stjórn Ísraels kallaði sendi- herra sinn í Austurríki heim þegar Waldheim tók við forsetaembættinu. Stjórnin í Washington setti Wald- heim á lista yfir menn sem voru óæskilegir í Bandaríkjunum og stjórnvöld í tugum annarra landa sniðgengu hann. Í æviminningum sínum, sem komu út árið 1996, viðurkennir Waldheim að honum hafi orðið á mistök með því að gera ekki ítarlega grein fyrir fortíð sinni í her nasista. „Líkt og svo oft áður þá var sann- leikurinn sá að ég hafði ekkert að fela. Það gilti um hermennsku mína og þann tíma sem ég dvaldist á Balk- anskaga.“ Waldheim fékk hjartaáfall í síð- asta mánuði og náði sér ekki af veik- indunum. Kurt Waldheim látinn Kurt Waldheim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.