Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 45
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
16. júní kl. 12.00
Daniel Zaretsky, orgel
17. júní kl. 20.00
Hinn þekkti rússneski orgelleikari
Daniel Zaretsky leikur verk eftir
Buxtehude, Bach, Alain,
Hallgrím Helgason og Kohler.
www.listvinafelag.is
Sýningar haustsins komnar í sölu á
www.leikhusid.is
Afhending
Grímuverðlaunanna
í kvöld!
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
15/6 kl 18 uppselt, 20/6 kl 20,
29/6 kl 20, 1/7 kl 15, 1/7 kl 20, 5/7 kl 20,
13/7 kl. 20, 14/7 kl 15, 14/7 kl. 20,
11/8 kl. 20, 12/8 kl. 20, 18/8 kl. 20,
19/8 kl. 20, 30/8 kl. 20, 31/8 kl. 20
SVONA ERU MENN (KK og Einar)
Aukasýning 16. júní kl. 20
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í samstarfi við Vesturport
Í kvöld kl. 20 UPPS.
Síðasta sýning
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Mið 20/6 kl. 20 UPPS.
Fim 21/6 kl. 20 UPPS.
Fös 22/6 kl. 20 UPPS.
Lau 23/6 kl. 20
Sun 24/6 kl. 20 UPPS.
Fim 28/6 kl. 20
Síðustu sýningar
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
Gríman, íslensku sviðs-listaverðlaunin verða veitt íkvöld. Það er leiklist-
arsamband Íslands sem stendur að
baki verðlaununum og þar eru
sviðsverk og útvarpsverk verðlaun-
uð og listamönnum veittar við-
urkenningar fyrir framúrskarandi
árangur í hvers konar sviðslistum.
Fimm sýningar keppa um titilinn
sýning ársins: Dagur vonar eftir
Birgi Sigurðsson í sviðsetningu
Leikfélags Reykjavíkur; Killer Joe
eftir Tracy Letts í sviðsetningu
Leikhússins Skámána; Leg eftir
Hugleik Dagsson í sviðsetningu
Þjóðleikhússins; Mr. Skalla-
grímsson eftir Benedikt Erlingsson
í sviðsetningu Söguleikhúss Land-
námsseturs og Ófagra veröld eftir
Anthony Neilson í sviðsetningu
Leikfélags Reykjavíkur. Þegar að
stóru stundinni kemur er fróðlegt
að rýna í dóma leiklistargagnrýn-
enda Morgunblaðsins um sýning-
arnar.
Þorgeir Tryggvason sá Dag von-ar, og fann að ýmsu í hlut-
verkaskipan og persónusköpun
uppfærslunnar; og fannst það trufl-
andi að aldri persónanna, sem til-
greindur er í handriti, skyldi ekki
hlýtt við hlutverkaskipan. Engu að
síður var hann ákaflega ánægður
með sýninguna, og segir að þrátt
fyrir hnökra hafi hún lukkast á end-
anum. Og Þorgeir heldur áfram:
„Og það færir heim sanninn um það
að hér fer meistarastykki frá hendi
höfundar. Vogað leikrit þar sem
ástríðurnar ná frá sálum persón-
anna upp á yfirborðið, tjáðar á
kraftmiklu, skáldlegu máli. Ekkert
verður eins hlægilegt og svona verk
ef þau eru mislukkuð. Þeim mun
virðingarverðari ef þau heppnast.“
María Kristjánsdóttir fór á Kill-er Joe. Maríu þótti sagan sem
sögð er ekki illa smíðuð, þótt hún
teldi lausnina í verkinu snubbótta
og ekki sviðsvæna. María var þó
ánægð með leikstjórnarlega úr-
vinnslu verksins: „Stefán Bald-
ursson hefur valið skemmtilega leið
að verkinu, í stað kómískrar stíl-
færslu kýlir hann natúralismann í
botn. Leikstíllinn er framan af eins
og staðið sé fyrir framan sjónvarps-
vélar, lágstilltur. Djöfullegt plottið í
upphafi ósköp eðlilegt og smávægi-
legt. Andlit leikaranna afhjúpa ekki
hvað fer fram hið innra, viðbrögð,
gjörðir koma því á óvart, framvinda
atburðarásarinnar flettir ofan af
eymdinni inni fyrir. Allt er hér unn-
ið af mikilli nákvæmni og ofbeldið
sem skellur yfir í seinni hlutanum,
kynferðisleg niðurlæging með
kjúklingalæri, slagsmálasenur,
glettilega vel útfærðar.“
Martin Regal var gagnrýnandiLegs. Hann var ánægður og
kvaðst viss um að enginn færi dap-
ur út af sýningunni, en bætti svo
við: „Spurningin er hvað við gerum
eftir að við hættum að hlæja.“ Hann
sagði: „Ef það er einhverri dýpt fyr-
ir að fara í Legi liggur hún vænt-
anlega í þeirri lífsskoðun að öll er-
um við einhvern tíma fáránleg,
siðlaus, illa gefin og sjálfselsk – en
það vissum við öll fyrir, eða hvað?
Jonathan Swift sagði einu sinni
að satíra væri spegill þar sem við
sæjum öll andlit nema okkar eigin.
Hér, ef til vill, fáum við tækifæri til
að sjá einmitt okkur sjálf þar sem
enginn sleppur við það að vera fá-
ránlegur, hræsnisfullur, tilgerð-
arlegur og heltekinn af yfirborðs-
mennsku í daglegu lífi sínu.“
María fór á Mr. Skallagrímsson,og sagði erfitt að lýsa sýning-
unni eftir að hafa séð hana aðeins
einu sinni. María bætti svo við: „Að
baki [sýningunni] liggur mikill und-
irbúningur og vinna höfundar og
leikstjóra. En uppbygging verks-
ins, framvinda sýningarinnar, ólík
sjónarhorn, leikur að andstæðum,
líkingum, allt flögrar það hjá, það
sem eftir stendur er kynngimáttur
sögumannsins. Hann hefur okkur
áhorfendur í hendi sér; heldur okk-
ur við frásögnina, við engjumst um
af hlátri, grípum andann á lofti,
dáumst að honum; hvílir okkur með
því að tefja frásögnina með út-
úrdúrum. Haukfránn, eldsnöggur –
og áreynslulaust – virðist hann
þegar upp er staðið hafa spunnið
áfram eða skáldað upp þessa fornu
sögu úr nærveru okkar, tilvist okk-
ar.“
María fór einnig að sjá Ófögruveröld. Hún kvaðst telja að
ýmislegt í verkinu og það hve texti
barst illa myndi áreiðanlega fæla
eldra fólk frá sýningunni. Hún var
hins vegar ánægð með verkið og
sagði: „Form þessa verks Anthonys
Neilsons er snjallt og sú aðferð
hans að leiða áhorfandann fyrst inn
í litríkan, heillandi og hræðilegan
ævintýraheim maníunnar, síðan
niður á kaldranalega jörðina í þeim
tilgangi að auka skilning á því af
hverju maníu-sjúklingar vilja ekki
taka lyfin sín.“ María lofaði líka
leik, búninga og gervi og segir að
leikstíllinn hafi verið eins og í kvik-
mynd eða sjónvarpsseríu, „…lág-
stemmdur leikur sem fjarlægir,
nánast andleikhúsleikur og gerir
atburði skemmtilega undarlega…“
sagði María og hnykkir á því í loka-
orðum sínum: „…en framandgerðu
hugmyndaríku myndirnar, og húm-
orinn í þeim, rennandi fram líkt og
í bíói sem Benedikt Erlingsson
leggur áherslu á í leikstjórn sinni,
ættu að laða að sér ungt fólk.
Sömuleiðis einnig alla þá sem
skáldið ávarpaði: „Ef þér finnst
gaman að Lísu í Undralandi en
finnst ekki nóg af kynlífi og ofbeldi
í henni þá er Ófagra veröld leikritið
fyrir þig“. Og að auki ætti sýningin
að vera áhugaverð fyrir flesta í
landi þar sem svo margir eiga við
geðræn vandamál að stríða.“
Það er ljóst að allar sýningarnar
eru vel að tilnefningu komnar, og
því er það bara spurningin nú hver
þeirra hreppir hnossið.
Hvað sögðu gagnrýnendurnir?
Morgunblaðið/Ómar
Gríman Þær Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Selma Björnsdóttir eru kynnar hátíðarinnar í kvöld.
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
» Það er ljóst að allarsýningarnar eru vel
að tilnefningu komnar,
og því er það bara
spurningin nú hver
þeirra hreppir hnossið
begga@mbl.is
JÓNÍNA Leósdóttir hlaut fyrstu
verðlaun í smásagnakeppni Nýs
Lífs fyrir söguna Leiðarlok. Önn-
ur verðlaun hlaut Sigurlín Bjarn-
ey Gísladóttir fyrir Skollaleik og
Sirrý Sig. (Sigríður Sigurð-
ardóttir) hlaut þriðju verðlaun
fyrir söguna Skuggann.
Um 40 sögur voru sendar í
keppnina og eru 12 þeirra birtar
í sérstöku fylgiriti Nýs Lífs og
eru eftir 8 mismunandi höfunda.
Auk verðlaunahafanna eru það
Arndís Þórarinsdóttir, Hilmar
Örn Óskarsson, Kristján Atli
Ragnarsson, Margrét Valgerður
Helgadóttir og Þorsteinn Mar
Gunnlaugsson. Guðrún Eva Mín-
ervudóttir rithöfundur valdi verð-
launasögurnar. Þetta var í fjórða
sinn sem blaðið heldur slíka
keppni en í fyrsta skipti eru veitt
sérstök verðlaun – í fyrstu tvö
skiptin voru nokkrar sögur birtar
í blaðinu og í fyrra í fylgiriti eins
og núna.
Morgunblaðið/Eyþór
Afhending Guðrún Eva Mínervudóttir dómari, Sigurlín Bjarney Gísladótt-
ir, Sirrý Sig., Guðrún Halla Tuliníus sem tók við verðlaunum Jónínu og
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir ritstjóri.
„Leiðarlok“
besta smásagan