Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 31 ✝ Ingunn Eiríks-dóttir fæddist í Kampholti í Flóa 13. maí 1923. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Eirík- ur Jónsson, f. 8.5. 1889, d. 14.10 1967, og Guðrún Stef- ánsdóttir, f. 30.7. 1892, d. 23.6. 1974. Systir Ingunnar var Stefanía Þóra, f. 28.3. 1920, d. 1.6. 1992. Ingunn giftist 1. desember 1942 Þorsteini Guðmundssyni, f. 8.9. 1917, d. 12.8. 1943. Dóttir þeirra er Steinunn, f. 2.2. 1943, gift Hreini Gunnarssyni, f. 3.2. 1944, þau eru búsett á Þórarinsstöðum. Ingunn og Þorsteinn bjuggu á Selfossi. Ingunn giftist 23. desember 1944 Jóni Guðmundssyni, f. 4.6. 1921. Börn þeirra eru: 1) Agnes, f. 26.6. 1945, gift Jóni Ólafssyni, f. 27.1. 1940, þau eru búsett í Grindavík og eiga tvö börn og fjögur barnabörn. 2) Eyrún, f. 24.7. 1948, gift Stefáni Stef- ánssyni, f. 5.6. 1941, þau eru bú- sett í Innri-Njarðvík og eiga þrjú börn og fimm barnabörn. 3) Guðmundur, f. 24.7. 1950, kvæntur Margréti Reyn- isdóttur, f. 28.9. 1949, d. 29.3. 2007, þau voru búsett í Grindavík og eiga þrjú börn og sjö barnabörn. Ingunn og Jón voru búsett í Grindavík, þau skildu. Ingunn giftist 31.12. 1980 Gunnari B. Valdi- marssyni Randrup, f. 7.11. 1941, þau voru lengst af búsett í Hafn- arfirði en fluttu á Skúlagötu 20 í Reykjavík 1998. Ingunn ólst upp í Kampholti og gekk þá hefðbundu skólagönu sem þá tíðkaðist. Hún fór í Hús- mæðraskóla í Hveragerði. Ingunn vann ýmis störf með heim- ilisstörfunum. Hún vann á sauma- stofu í Hveragerði, við fiskvinnslu í Grindavík, á barnaheimili í Hafnarfirði og síðustu starfsárin í Hátúni 12 í Reykjavík. Útför Ingunnar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Elsku Inga mín. Ég þakka þér fyrir góðu sam- verustundirnar sem við áttum sam- an. Minningarnar eru margar og mun ég varðveita þær í hjarta mínu. Þú varst dugleg í öllum þín- um veikindum, kvartaðir aldrei. Þú varst orðin þreytt og þráðir hvíld- ina. Ég mun sakna þín. Ég bið Guð að blessa þig, elskan mín. Ég kveð þig með þessu ljóði: Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt og ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfin úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þinn eiginmaður, Gunnar. Elsku Inga amma, takk fyrir all- ar góðu stundirnar okkar saman. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir.) Kveðja, Reynir, Ásrún, Margrét Rut og Arna Rún. Föstudaginn 8. júní lést amma mín og nafna, Ingunn Eiríksdóttir, á Landspítala – háskólasjúkrahúsi eftir langvarandi veikindi. Ég hugsa að hún amma mín hafi verið hvíldinni fegin, það var ekki henn- ar lund að láta bíða eftir sér. Amma mín var sterk, sjálfstæð, ákveðin og hafði sínar skoðanir á hlutunum, oft rökræddum við nöfn- urnar um álitamál. Ég lærði það fljótlega þegar ég komst í fullorð- inna manna tölu að ekki var hægt að snúa skoðunum hennar. Ég bjó hjá ömmu og Gunnari þegar ég var í menntaskóla, þá bjuggu þau á Álfaskeiðinu í Hafn- arfirði. Gunnar komst að því sam- komulagi við okkur nöfnurnar að hann segði Inga við ömmu en Ing- unn við mig til að forðast allan mis- skilning. Á þessum tíma vann amma á dagheimilinu á Hörðuvöll- um sem matráðskona. Eftir vinnu gengum við oft um næsta nágrenni eða tókum í spil. Ömmu fannst ákaflega gaman að spila og það mátti oft ekki á milli sjá hvor væri yngri ég eða hún, svo mikið var oft kappið. Hún hafði einnig gaman af að fara í bingó. Gunnar og amma stunduðu gömlu dansana og kynnt- ust þar öðru fólki sem varð kunn- ingjar þeirra. Hin síðari ár eftir að amma mín og Gunnar fluttu á Skúlagötuna kom ég yfirleitt tvisvar í viku í heimsókn til að spjalla, fá mér kaffi og leita frétta. Amma mín var ákaf- lega fróð um ætt sína Reykjaætt- ina og ræddum við oft um hana og skyldleika manna á milli. Einn leik- ur komst fljótt á okkar á milli eða þegar amma byrjaði að tala um einstaklinga sagði hún ekki nöfnin en sagði „hann er skyldur þér“, „þú átt að þekkja hann“, „mamma hans er“. Ég hugsaði og hugsaði og oft var ég fljót að koma með svarið, stundum rétt og stundum rangt. Þetta var leikurinn getið í eyðurn- ar og hafðu gaman af. Amma mín hafði góða reikni- hæfileika sem hún nýtti vel auk einstæðra skipulagshæfileika sem komu sér vel þegar þau Gunnar voru að ferðast. Stundum var hún tilbúin viku eða tveimur vikum fyrr en átti að fara af stað. Hún reikn- aði út vegalengdir, eyðslu á bens- íni, hvert skyldi halda og fleira. Amma mín skráði alla afmælisdaga barnabarna sinna og sendi þeim af- mælisgjafir. Hún var mjög stolt af þeim og sagði við mig að hún væri rík að eiga 4 börn, 7 barnabörn og 15 barnabarnabörn. Amma á einstakan eiginmann, hann Gunnar sem bar hana á hönd- um sér. Þau voru einstaklega sam- hent í lífinu og leið vel, voru lituð af gagnkvæmri væntumþykju hvort til annars alla sína hjúskap- artíð Elsku amma mín. Takk fyrir all- ar samverustundirnar sem við átt- um, ég mun minnast þeirra með hlýhug. Elsku Gunnar. Megi guð styrkja þig. Guð blessi minningu Ingunnar Eiríksdóttur. Ingunn Jónsdóttir. Ingunn Eiríksdóttir Samúðar og útfaraskreytingar Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300 Hafnarfirði ✝ Óskar Helgasonfæddist 11. mars 1916 á Saurbæ í Eyjafirði. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri 7. júní sl. Óskar var elstur 5 barna hjónanna Júlíönu Sigurð- ardóttur og Helga Ágústssonar. Systkini hans voru Brynjólfur, Ólöf, Anna og Þórdís. Í dag er Ólöf ein eft- irlifandi. Júlíana lést þegar Ósk- ar var á 12. ári. Var þá heimilið leyst upp og börnunum komið til vandalausra. Seinna giftist faðir þeirra Láru Einarsdóttur og með henni átti hann Einar, Skapta og Hebu. Milli hjónabanda eignaðist hann soninn Þormóð. Árið 1965 kvæntist Óskar Helgu Björns- dóttur, f. 13. nóvember 1919 á Grenivík. Helga er dóttir hjónanna Kristínar Baldvins- dóttur og Björns Ólafssonar. Helga var ekkja Jónasar Frímannssonar og áttu þau 4 upp- komin börn, Huldu, Ingu Hrönn, Haf- þór og Sigríði Kristínu. Ungur fór Óskar að vinna fyr- ir sér, mörg ár í vinnumennsku, síð- an lengi sem sjó- maður. Eftir að hann hætti á sjónum, vann hann hjá Slipp- félagi Akureyrar og síðan á Nið- ursuðuverksmiðju K. Jónssonar til loka starfsferils. Óskar var heiðursfélagi Sjómannafélags Eyjarfjarðar. Útför Óskars verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Í dag kveðjum við stjúpa okkar, Óskar Helgason. Honum kynntumst við fyrst þegar hann kvæntist móðir okkar Helgu Björnsdóttur, sem þá var ekkja með 4 uppkomin börn, þar af þrjú sem enn bjuggu í heimahús- um. Það hefur sjálfsagt ekki verið auðvelt fyrir mann sem alltaf hafði verið einn að detta inn í svona stóra fjölskyldu, en honum tókst það vel. Með sinni einstöku ljúfmennsku og hlýja húmor vann hann ást og virð- ingu okkar allra og væntumþykja okkar í hans garð fór bara vaxandi. Óskar fór ungur í vinnumennsku en seinna tók sjórinn við. Lengst var hann háseti á Akureyrartogurunum, en einnig á öðrum skipum. Hann var m.a. háseti á Súlunni EA þegar hún fórst í páskahretinu mikla 1963. Það var reynsla sem hann vildi aldrei tala um, en þar missti hann bæði vini og skipsfélaga. Óskar var alveg einstakt ljúfmenni, orðvar með afbrigðum og hallmælti aldrei nokkrum manni, gerði engar kröfur fyrir sjálfan sig, en var ávallt reiðubúinn til að lið- sinna öðrum. Hann var gerður heið- ursfélagi Sjómannafélags Eyjafjarð- ar og fannst honum hann nú hafa lítið til þess unnið. Fjölskyldan stækkaði, makar stjúpbarna bættust í hópinn og „afa- börnin“ urðu 9 og langaafabörnin 11. Öll dáðu þau hann og elskuðu. Þau eldri munu alltaf minnast heimsókn- anna til afa og ömmu í sumarbústað- inn á Illugastöðum, útileganna um verslunarmannahelgar, silungstitta- veiðanna í Ljósavatni og ekki síst þegar aflinn var svo grillaður í Vaglaskógi. Svona má lengi telja. Óskar var mikill áhugamaður um fótbolta og var tryggur stuðnings- maður íþróttafélagsins Þórs á Akur- eyri og fór á alla þess heimaleiki meðan heilsan leyfði. Síðar stytti boltinn í sjónvarpinu honum margar stundirnar. Síðari árin hefur heilsan verið lé- leg, heyrnin mikið skert, hjartað ekki gott og margt fleira. Aldrei var samt kvartað og spyrðum við hann um líðan hans var alltaf brosað og svarað „mér líður ágætlega“. Móður okkar sendum við samúð- arkveðjur, það er sárt að sjá á eftir svona manni. Elskulegan vin kveðjum við með orðum Valdimars Briem. Far þú í friði, Friður guðs þig blessi Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hulda, Inga Hrönn, Hafþór og Heiða, Sigríður Kristín (Sigga Stína) og Baldvin, afabörn og langafabörn. Þegar lífsins leiðir skilja læðist sorg að hugum manna en þá sálir alltaf finna yl frá geislum minninganna. (Helga frá Dagverðará) Þegar ég hugsa um hann afa minn koma upp minningar af einstaklega ljúfum afa sem var ósérhlífinn og alltaf tilbúinn að gleðja, hugga og hjálpa. Afi hafði afskaplega þægilega nærveru, hann gerði ekki kröfur og sagði aldrei styggðarorð um neinn. Afi var rólegur, hlédrægur en samt alltaf til staðar og fylgdist af áhuga með barnabörnum og barna- barnabörnum sínum. Þegar við fjöl- skyldan fórum norður í frí þótti krökkunum alltaf spennandi að koma við hjá langömmu og langafa á Lindasíðunni. Þrátt fyrir að langafi heyrði orðið illa og segði ekki margt laðaði hann börnin til sín með ljúfu viðmóti. Elís Þór spáði mikið í hend- urnar á langafa sínum því hann vant- aði framan á nokkra fingur og taldi Elís Þór að þannig ættu langafar að vera. Þeim systkinum þótti því ákveðin upphefð og virðing að fá að kveðja langafa sinn með handabandi. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, Hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi. Og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. ( Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku amma og langamma, við biðjum góðan Guð að styrkja þig og elsku afi og langafi, hjartans kveðjur og þakkir fyrir allt. Sif, Trausti, Elís Þór og Þórhildur Anna. Elsku afi. Okkar minningar um þig eru ljúf- ar, hversu góður maður þú varst, ekki margmáll heldur hógvær, æðru- laus og alltaf sáttur. Þótt heilsan væri þrotin fannst þér það ekkert óeðlilegt, aldur væri orðinn hár og ekki við öðru að búast. Við kveðjum þig með söknuði og innilegu þakklæti. Ég sendi þér kæra kveðju Nú komin er lífsins nótt Þig umvefji blessun og bænir Ég bið að þú sofir rótt Þótt svíði sorg mitt hjarta Þá sælt er að vita af því. Þú laus ert úr veikinda viðjum Þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti Þá auðnu að hafa þig hér og þar er svo margs að minnast svo margt sem um hugann fer. Þó þú sért horfinn úr heimi Ég hitti þig ekki um hríð Þín minning er ljós sem lifir Og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Jónas, Thelma, Óskar og þeirra fjölskyldur. Elsku afi minn. Mikið er sárt að eiga ekki eftir að hitta þig framar og að geta ekki fylgt þér síðasta spölinn, þar sem ég er stödd erlendis. Ég náði þó að kveðja þig áður en ég fór og ég hugga mig við að ég á svo margar yndislegar minningar um allar okkar samveru- stundir. Þær eiga eftir að ylja mér um hjartarætur alla tíð. Lagið okkar um:" Fríðu litlu lipurtá" sem dansaði fyrir hann afa sinn, Lindor krókant súkkulaðið sem þú áttir alltaf handa mér af því að þú vissir hvað mér þótti það gott. Elsku afi, þær eru óteljandi minn- ingarnar. Þú vast alltaf svo hlýr og yndislegur, fallegasti afinn. Með þakklæti fyrir að hafa átt þig svona lengi og með sárum söknuði kveð ég þig elsku besti afi minn. Þín Helga Helga - barnabarn. Óskar Helgason Ekki grunaði okkur að elsku amma færi svona fljótt á stefnu- mót við hann afa. Við hefðum viljað fá að eyða aðeins meiri tíma með ömmu áður en hún kvaddi þetta líf enda var hún nýkomin heim eftir átta mánaða dvöl í Bandaríkjunum. Við vorum búnar að hlakka til að fá ömmu heim, fara með langömmu- börnin í Reynihvamminn og spjalla um hvað hefði á daga okkar drifið síðustu mánuði. En eftir standa ✝ Jensína ÞóraGuðmundsdóttir fæddist á Skarðsbúð í Akranessókn 9. nóvember 1925. Hún lést á heimili sínu aðfaranótt 20. maí síðastliðins og var útför hennar gerð frá Kópavogs- kirkju 29. maí. hugljúfar minningar um skemmtilega tíma hjá ömmu og afa í Reynihvammi. Amma var skemmtileg kona og stutt var í hláturinn. Hún var ung í anda og aðlagaðist nútím- anum vel. Einnig var hún mikill félagi og ekki fundum við fyrir kynslóðamun þegar við ræddum hin ýmsu mál hvort sem það var um fjölskylduna, Idolið, Rockstar, útlínurnar eða þjóðmálin. Amma fylgdist vel með öllu sem gerðist í fjölskyldunni af miklum áhuga og var dugleg að færa okkur fréttir af öðrum fjöl- skyldumeðlimum. Hún hafði mjög gaman af börnum og ræddum við oft um börnin okkar og bumbu- búana sem við biðum spenntar eft- ir. Það var því sárt að hún fékk ekki tækifæri til að hitta litla Jakob Felix. Amma og afi voru einstak- lega samrýnd hjón og eyddu ekki miklum tíma hvort frá öðru. Við huggum okkur því við það að þau skuli nú vera sameinuð á ný og vit- um að afi mun taka vel á móti ömmu og ekki kæmi okkur á óvart að afi væri búinn að veiða vænan bleikan fisk í soðið handa þeim. Við munum sakna ömmu mikið en okk- ur þykir vænt um að hún komst heim til Íslands og náði að eyða síð- ustu dögunum sínum heima í Reynihvammi. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Guð geymi þig, elsku amma. Hildur Brynja og Linda Mjöll. Jensína Þóra Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.