Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚR VERINU Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur sigrunrosa@mbl.is ÞAÐ er brýnt að efla rannsókn- arvinnu vegna efnahagsbrota hér á landi, stytta málsmeðferð m.a. með því að bæta við sérhæfðara starfsfólki, samræma betur hlut- verk eftirlitsaðila, hafa sérfræð- inga með í ráðum við lagasetn- ingar og gæta þess að refsivarslan fylgi með. Þetta sagði Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahags- brota hjá Ríkislögreglustjóra, á morgunverðarfundi sem embættið og Samtök atvinnulífsins héldu í gær um efnahagsbrot. Vantar fólk og fjármagn Helgi taldi eitt brýnasta verk- efnið vera að bæta við fólki til rannsóknarstarfa og þyrfti í raun að tvöfalda mannafla embættisins. Mál vildu dragast úr hófi vegna þess að ekki væri nokkur til að vinna þau. Einnig þyrfti að leggja áherslu á að fá inn fólk sem hefði bakgrunn og þekkingu á við- skiptum þar sem efnahagsbrot í dag væru oft mun flóknari en áður og teygðu sig jafnvel til annarra landa. Þá þyrfti meira fjármagn til að halda í starfsfólk þar sem starfsmannavelta væri of mikil og erfitt að halda í þekkingu sem yrði til innan embættisins. Hann benti á að m.a. mætti ná í fjármagn með því að leggja niður embætti skattrannsóknarstjóra enda væri hann óþarfur milliliður milli skattstofu og rannsóknarað- ila og í raun oft um tvíverknað að ræða þegar efnahagsbrotadeild tæki við málum frá þeim. Helgi taldi það áhyggjuefni að laga- hefðir hér væru að þróast í aðra átt en tíðkaðist á Norðurlöndunum og hér væri jafnvel verið að vísa frá málum sem hefðu farið í gegn- um réttarkerfið á Norðurlöndum. Hann sagði því svolítið vera til í því sem Sigurður Tómas Magn- ússon, settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu, sagði þegar hann gagnrýndi frávísun Héraðsdóms og talaði um „tískubólu í fræð- unum“ þegar kæmi að skýrleika refsiheimilda. Helgi taldi því mik- ilvægt að ákærandinn væri nálægt málinu þegar það væri rannsakað, einkum þar sem rannsóknir efna- hagsbrota væru oft erfiðar og flóknar. Þar gæti verið erfitt að færa sönnur á að brot hefðu verið framin þegar það félli ekki jafn klippt og skorið innan refsiramm- ans eins og t.d. manndráp. Embættið hefur nær ekkert svigrúm til að bjóða sektir, sem gætu oft á tíðum flýtt máls- meðferð, og tók Helgi sem dæmi um ósamræmi innan eftirlitskerf- isins að t.d. virðist Samkeppniseft- irlitið geta sektað eftir þörfum eins og í stóra olíumálinu. Óþarflega flókið kerfi Garðar G. Gíslason lögmaður, sem var áður forstöðumaður hjá skattrannsóknarstjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknarstjóra, var í meginatriðum sammála Helga og sagði réttargæslukerfið allt of flókið þegar kæmi að rann- sókn efnahagsbrota. Inn í það væri byggt flækjustig sem væri til þess fallið að draga alla málsferð á langinn og tók dæmi um mál þar sem Hæstiréttur hefði fellt niður refsingu þar sem mannréttindi höfðu verið brotin á sakborningum þegar mál töfðust úr hófi. Hann vísaði til 70 gr. stjórn- arskrárinnar um að öllum bæri réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi innan hæfilegs tíma. Garðar sagði menn þurfa að hanga árum saman í hálfgerðri snöru undir merkjum þessara mála og það væri einnig svo að menn gætu ekki verið vissir um réttarstöðu sína á þessum tíma. Miklar brotalamir væru innan kerfisins og oft annmarkar á lög- sókn og ákæruatriðum sem kæmu jafnvel í veg fyrir sakfellingu. Réttargæslukerfið talið allt of flókið og svifaseint Í HNOTSKURN »Efnahagsbrotadeild varstofnuð 1. júlí 1997. »Embætti saksóknara efna-hagsbrota var stofnað 1. janúar 2007. »Efnahagsbrot er samheitiyfir ýmis brot sem tengjast atvinnu- og viðskiptalífinu sem og annarri skipulagðri starfsemi í bæði opinbera og einkageiranum. Hér er átt við refsiverða háttsemi í hagn- aðarskyni sem fer fram í ann- ars löglegri atvinnustarfsemi. Embætti saksóknara efnahagsbrota og Samtök atvinnulífins stóðu í gær fyrir morg- unverðarfundi um efnahagsbrot á Íslandi, þolendur og afleiðingar brotanna. Morgunblaðið/Sverrir Mannekla Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, fyrir miðju, vill fjölga starfsfólki við embættið. Á FUNDI embættis saksóknara efnahagsbrota hjá Ríkislög- reglustjóra og Samtaka atvinnulífs- ins í gær kom fram að mannekla væri það sem helst stæði í vegi fyrir því að hægt væri að leiða mál til lykta á hæfilegum hraða. Í ársskýrslu Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2005 kemur fram að með- alfjöldi mála á hvern sautján starfs- manna efnahagsbrotadeildarinnar það árið var 21,5. Hér undir falla innkomin efnahagsbrotamál, rann- sóknaraðstoð og tilkynningar um peningaþvætti. Til samanburðar voru norsk starfssystkin þeirra með 10,6 mál á hvern starfsmann og í Svíþjóð var hver með 10,1 mál að jafnaði. Fjöldi efnahagsbrotamála fer ekki aðeins vaxandi heldur verða þau æ umfangsmeiri og flóknara að rannsaka þau en í skýrslunni er Baugsmálið sagt það flóknasta og umfangsmesta sem deildin hefur rannsakað. Í Noregi ræður efnahags- brotadeildin sjálf hvaða mál hún tekur til rannsóknar en á Íslandi og í Svíþjóð taka deildirnar að sér öll mál í ákveðnum brotaflokkum. Helmingi fleiri mál á hvern SARAH Jane Hughes, prófess- or í lögum við In- diana háskóla í Bandaríkjunum, sagði á morg- unverðarfundi Samtaka at- vinnulífsins og saksóknara efnahagsbrota að fjár- málamisferli innan orkurisans En- ron hefði vakið athygli hins al- menna Bandaríkjamanns á hvítflibbaglæpum og Bandaríkin væru eitt þeirra landa sem hefðu hvað flest lög og reglur tengdar efnahagsglæpum. Oft væri um gríð- armiklar upphæðir að ræða í þeim brotum sem þar kæmu upp og mik- ilvægt að fylgjast vel með til dæmis peningaþvætti vegna mögulegra tengsl við hryðjuverkastarfsemi. Flest lög og reglur Merki Enron FYRIR skömmu voru fyrirtækinu Siglufjarðar Seig ehf. veitt hvatning- arverðlaun Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV). Verð- launin eru veitt fyrirtækinu fyrir smíði á plastbátum. Það hefur nú af- hent þrjá báta sem það hefur byggt algerlega frá grunni og samið um af- hendingu á tveimur til viðbótar. Áður tók Siglufjarðar Seigur við skrokkum sem steyptir höfðu verið hjá fyrirtækinu Seiglu í Reykjavík og innréttaði þá og gekk algerlega frá þeim til afhendingar. Eigendur að Siglufjarðar Seig eru JE Vélaverkstæði, Seigla ehf. og Siglufjarðarkaupstaður. Adolf Berndsen formaður stjórn- ar SSNV lét þess getið þegar hann afhenti viðurkenninguna að þetta framtak Siglfirðinga hefði vakið verðskuldaða athygli og væri gott dæmi um starfsemi sem hægt væri að flytja út á land. Þá hefðu bátar sem fyrirtækið hefði smíðað þótt vandaðir og frágangur þeirra til mikillar fyrirmyndar. Óskaði hann starfsmönnum til hamingju með góðan árangur til þessa og lét í ljósi þá ósk að fyrirtækið muni vaxa og dafna áfram eigendum þess, starfs- mönnum og samfélaginu öllu til heilla. Guðni Sigtryggsson fram- kvæmdastjóri veitti viðurkenning- unni viðtöku. Hann sagði við það tækifæri að smíði bátanna væri sam- vinnuverkefni, auk Siglufjarðar Seigs kæmu JE Vélaverkstæði og Rafbær hf. að smíðinni. Menn hefðu verið að fikra sig áfram í framleiðsl- unni og talsverður áhugi virtist hjá útgerðarmönnum á þessum bátum. Fyrsti báturinn sem að öllu leyti var smíðaður í Siglufirði var afhent- ur kaupanda í byrjun nóvember á síðasta ári. Næsti bátur fór til Nor- egs í febrúar sl. og sá nýjasti sem fór til Hnífsdals var afhentur fyrir nokkrum dögum. Siglufjarðar Seigur fékk hvatningarverðlaun SSNV Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Bátar Adolf Berndsen SSNV veitti Guðna Sigtryggssyni viðurkenningu. íslenskum og færeyskum sjávarút- vegsfyrirtækjum, þar sem umfjöll- unarefnið eru þau sóknarfæri sem felast í sjálfbærri þróun fyrir ís- lenskan sjávarútveg. Sjálfbær þróun mikilvæg fyrir íslenskan matvælaiðnað „Seljendur og neytendur gera kröfu um að hægt sé að sýna fram á að framleiðsla sjávarafurða sé með þeim hætti að ekki sé gengið á fiski- stofna eða að mikil losun koldíoxíðs (CO2) fylgi framleiðslunni. Áætlun Tesco er einfaldlega eitt dæmi af mörgum sem sýnir hver þróunin er í þessum málum. Það er mín skoðun að sjálfbær þróun verði eitt af lyk- ilmálunum fyrir íslenskan matvæla- iðnað í framtíðinni, enda eru fleiri verkefni á þessu sviði í burðarliðnum hjá okkur.“ Sveinn segir að í þessu sambandi skipti miklu máli að geta sýnt fram á hvernig varan hefur far- ið í gegnum virðiskeðjuna því annars sé ekki hægt að segja til um hversu mikið „lífsferill“ vörunnar hafi aukið magn koldíoxíðs í andrúmslofti. MATÍS (Matvælarannsóknir Ís- lands) vinnur að verkefni sem munu nýtast íslenskum útflytjendum við að koma til móts við kröfur Tesco um koldíoxíðmerkingar matvæla. Tesco, sem er ein stærsta versl- anakeðja Bretlands, hyggst koldíox- íðmerkja allar vörur sem seldar eru í verslunum keðjunnar í þeim tilgangi að gera neytendum kleift að afla sér upplýsinga um hversu mikil koldíox- íðlosun hafi fylgt framleiðslu vör- unnar, flutningi hennar í verslunina og sölu. Um er að ræða áætlun Tesco er miðar að því að bregðast við lofts- lagsbreytingum. Sveinn Margeirsson, deildarstjóri hjá Matís, segir umræðu um koldíox- íðmerkingu matvæla vera hluta af umræðu um sjálfbæra þróun. ,,Matís stýrir vestnorrænu verkefni sem nefnist „Sustainable Food Inform- ation“ sem hefur það að markmiði að auðvelda fyrirtækjum í matvælaiðn- aði, svo sem sjávarútvegsfyrirtækj- um, að sýna fram á sjálfbærni í veið- um, vinnslu og sölu. Þátttakendur í verkefninu funda nú hér á landi með Matís svarar kalli Tesco

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.