Morgunblaðið - 15.06.2007, Side 13

Morgunblaðið - 15.06.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 13 MORGUNBLAÐINU hafa borist eftirfarandi athugasemdir Ríkis- endurskoðunar vegna umræðu um skýrsluna „Kostnaður, skilvirkni og gæði háskólakennslu“. Millifyr- irsagnir eru blaðsins. „Skýrsla stofnunarinnar fjallar eins og heiti hennar gefur til kynna um kostnað, skilvirkni og gæði há- skólakennslu. Milli þessara þátta eru viss tengsl en því fer þó fjarri að stofnunin setji jafnaðarmerki milli þeirra eða geri einn rétthærri öðrum. Skýrslan er sú fyrsta sinnar teg- undar þar sem reynt er að meta ís- lenska háskóla út frá kostnaði, skil- virkni og gæðum kennslunnar. Í þessari úttekt er að hluta til tekið mið af alþjóðlegum mælikvörðum við mat á háskólastarfi og raunar naut stofnunin við undirbúning út- tektarinnar aðstoðar erlendrar rannsóknarstofnunar sem fæst við rannsóknir á háskólastiginu. Engu að síður má líta svo á að um þróun- arvinnu sé að ræða. Stofnunin þurfti t.d. víða að laga mælikvarða að íslenskum veruleika og taka mið af athugasemdum skólanna og þeim upplýsingum sem voru í senn fáanlegar og samanburðarhæfar. Þetta skýrir m.a. það að ýmsar breytingar urðu frá drögum skýrsl- unnar til endanlegrar gerðar henn- ar, t.d. að fallið var frá því að gera samkeppnisfé til rannsókna að eig- inlegum mælikvarða á akademíska stöðu háskóla. Það er því rangt að þær breytingar hafi verið gerðar til að hagræða niðurstöðum, enda eru upplýsingar um samkeppnisfé skól- anna birtar í skýrslunni. Skilvirkni metin út frá fjölda brautskráðra nemenda Í umræðu um skýrsluna hefur sömuleiðis verið fullyrt að brottfall nemenda frá námi sé ekki reiknað inn í heildarmat á skilvirkni náms- ins. Þetta er líka rangt. Í skýrsl- unni er skilvirkni ævinlega metin út frá fjölda brautskráðra nemenda en ekki út frá heildarfjölda innrit- aðra nemenda. Í skýrslunni er hvergi gefið í skyn að það sé mælikvarði á gæði háskólakennslu að skólar séu ódýr- ir, eins og fullyrt hefur verið. Þar er þvert á móti bent á að hár kostn- aður geti verið vísbending um hátt þjónustustig við nemendur. Það er hins vegar hlutverk Ríkisendur- skoðunar að kanna hvernig það skattfé almennings sem ríkið veitir til einstakra stofnana og verkefna er notað og hvort það sé gert á hagkvæman, skilvirkan og árang- ursríkan hátt, hvort sem verkefnin eru unnin af ríkisstofnunum eða einkaaðilum. Af þeim sökum leit- aðist stofnunin m.a. við að bera saman heildarkostnað einstakra skóla á hvern skráðan og braut- skráðan nemanda. Ekki endanlegur mælikvarði á ágæti íslenskra háskóla Ríkisendurskoðun tekur undir það sjónarmið að akademísk staða háskóla, þ.e. menntun kennara og rannsóknarvirkni, og gæði kennslu séu tveir aðskildir þættir. Akadem- ísk staða gefur þó til kynna hvort skólarnir hafi yfir að ráða vel- menntuðu starfsfólki sem fylgist með nýjungum á fræðasviði sínu og reynir að stuðla að framþróun þess. Að því leyti er hún viss for- senda gæða. Um það hljóta jafnt forstöðumenn háskóla sem yfirvöld menntamála að vera sammála. Ríkisendurskoðun leggur áherslu á að úttekt hennar er ekki endanlegur mælikvarði á ágæti ís- lenskra háskóla heldur einungis viðleitni til að opna umræðuna um það hvernig megi meta þá. Í skýrslunni eru enda víða settir fram fyrirvarar um túlkun ein- stakra atriða. Stofnunin ítrekar einnig það sjónarmið sem sett er fram í skýrslunni „að stjórnvöld eigi að vinna að því að þróa mæli- kvarða á kostnað, skilvirkni og gæði háskóla og láta gera úttektir með reglulegu millibili“. Að lokum hvetur Ríkisendur- skoðun jafnt skólafólk, stjórnmála- menn, fréttamenn og almenning til að kynna sér skýrslu stofnunarinn- ar og ræða um efni hennar á mál- efnalegan hátt. Skýrslan „Kostnaður, skilvirkni og gæði háskólakennslu“ í heild sinni: http://www.rikisend.is/files/ skyrslur_2007/haskola- kennsla_2007.pdf Athugasemdir Rík- isendurskoðunar í góðu tjaldi SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Tjaldaland Útilífs er við hliðina á TBR-höllinni The North Face Tadpole 2ja manna Göngutjald. Verð 32.990 kr. Troðfull flöt af uppsettum tjöldum! SUÐURLAN DSBRAUT SUÐURLAN DSBRAUT GNOÐAR VOGUR GLÆSIBÆ R T B R 1 T B R 2 Á L F H E IM A R G R E N S Á R S V E G U R Tjaldaland Taranto Plus 6 manna Fjölskyldu-braggatjald með tveimur svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk milli svefntjaldanna. Opnast á tvo vegu. Verð 29.990 kr. Como 4ra og 6 manna Fjölskyldutjald með tveimur svefntjöldum. Fortjald er á milli svefntjaldanna. Tveir inngangar. Verð 14.990/19.990 kr. Andros 6 manna Fjölskyldu-braggatjald með tveimur svefntjöldum. Stórt fortjald með dúk. Öflugar álsúlur. Verð 42.990 kr. Lindos 6 manna og 8 manna Fjölskyldu-braggatjald með mikilli lofthæð. Rúmgott fortjald. Öflugar álsúlur. Verð 44.990/49.990 kr. The North Face Rock 2ja manna Göngu-kúlutjald. Verð 22.990 kr. Njóttu sumarsins Nevada 3ja manna 3ja og 4ja manna sígilt kúlutjald. Verð 6.990kr. Kira 3ja og 4ra manna Kúlutjald með fortjaldi. Verð 8.990/10.990 kr. ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 37 74 6 05 /0 7 Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.