Morgunblaðið - 15.06.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 15.06.2007, Síða 22
|föstudagur|15. 6. 2007| mbl.is daglegtlíf Ég kýs auðvitað að verjahelgunum mestmegnismeð börnunum mínum.Ég á nefnilega þrjú börn á aldrinum fjórtán, sjö og sex ára og er fjórða krílið á leiðinni enda er ég á kafi í brjálaðri hreiðurgerð þessa dagana," segir Anna María Hjálm- arsdóttir, ein af starfskonum Aflsins á Akureyri, systursamtaka Stíga- móta á Norðurlandi. Aflið ætlar að efna til tónleikaveislu í kvöld á Ak- ureyri til styrktar eigin starfsemi. „Góð helgi hjá mér snýst um að vakna með börnunum, koma í þau morgunmat og kveikja svo á barna- efninu til að fá frið til að skríða að- eins upp í aftur. Síðan þarf nátt- úrulega að rúlla sér í morgunsturtuna stuttu síðar svo hægt sé að taka deginum með brosi á vör. Okkur finnst voða gaman að fá okkur bíltúr eitthvað út í buskann. Jólahúsið í Eyjafirði er til dæmis mjög vinsælt hjá fjölskyldunni allan ársins hring og svo er gjarnan ís- stopp inni í Vín eða í Brynju á Ak- ureyri, sem selur hinn eina sanna Brynju-ís, áður en haldið er í Bónus- leiðangurinn. Mér finnst líka gaman að fara á kaffihús eða í bíó í góðra vina hópi og svo er alltaf gaman að skreppa í sveitina til tengdaforeldra minna sem búa á Vaði í Reykjadal eða til foreldra minna á Húsavík,“ segir Anna María.. Aflið var stofnað árið 2002 upp úr tilraunaverkefni Stígamóta fyrir norðan. „Stígamótakonur komu norður og komu okkur af stað. Fyrst í stað vorum við húsreka, fengum síðan inni við Tryggvabraut 22 og fer starfsemin ört vaxandi.“ Ein kona í viku hverri „Við veitum þolendum heimilis- ofbeldis og kynferðisofbeldis ráðgjöf og rekum sjálfshjálparhópa. Að jafn- aði kom ein ný manneskja til okkar á viku hverri í fyrra sem þýðir 52 nýja einstaklinga. Sjálfshjálparhóparnir voru fjórir í fyrra, en okkur sýnist að þeir verði sjö í ár. Þörfin er greinilega að aukast. Okkur vantar því fé til að halda áfram enda er mikið af starfinu, sem hér fer fram, unnið í sjálfboða- vinnu,“ segir Anna María, en hún vaktar síma Afls allan sólarhringinn ásamt þeim Sæunni Guðmunds- dóttur og Viktoríu Jóhannsdóttur. „Starfsemi Aflsins er byggð upp á sömu hugmyndafræði og Stígamót. Þetta eru grasrótarsamtök, sem í eru mest sjálfboðaliðar, sem hafa mátt þola heimilisofbeldi í einhverri mynd. Hægt er að ná í okkur á öllum tím- um sólarhringsins auk þess sem við höfum verið með neyðarvakt allar verslunarmannahelgar með hjálp góðra manna,“ segir Anna og bætir við að búast megi við allt að fimm þúsund gestum til Akureyrar um helgina enda margt að gerast í bæn- um þessa þjóðhátíðarhelgi. Dagskrá styktartónleikana, sem fram fara á veitingastaðnum 1929, er hin glæsi- legasta, að sögn Önnu Maríu, enda koma fjölmargir listamenn fram. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Fram koma m.a.: Helgi og hljóðfæraleikararnir, Skátar, Bloodgroup, Eyþór Ingi og Unnur Birna, The Ones, Miri og Fíllinn verður með uppistand. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Aðgangseyrir er 1.500 krónur og er aldurstakmark 18 ár. Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Uppáhalds göngutúrinn: Inni í Kjarnaskógi. Besti tími dagsins: Kvöldin þegar klukkan er að skríða í miðnætti. Uppáhalds sundlaugin: Auðvitað er það Sundlaug Akureyrar. Besti maturinn: Lambahryggur með öllu. Besti matsölustaðurinn: Kínverski veitingastaðurinn Pengs. Fallegasti staðurinn á land- inu: Ljósavatn í Ljósavatns- skarði, sem mamma mín kallar Fögrusveit. Anna María mælir með... Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Á TÍSKUVIKUNNI í Rio de Janeiro í Brasilíu nýlega sýnduhönnuðir vor- og sumartískuna 2008. Brasilía er sífellt mikilvægari í tískuheiminum samhliða frægð sífellt fleiri brasilískra fyr- irsætna, sem margar njóta al- þjóðahylli. Engin er þó þekktari en Gi- sele Bundchen, sem meðal annars er fræg fyrir fyrirsætustörf sín fyrir bandaríska undirfatafyrirtækið Vic- toria’s Secret. Æsingurinn var því mikill þegar Gi- sele gekk sýningarpallinn fyrir tísku- húsið Colcci. Margir þurftu frá að hverfa og var Gisele vel fagnað enda er þetta eina sýningin sem hún kemur fram í í tískuvikunni. Gisele hélt blaðamannafund með nokkrum útvöldum blaðamönnum eftir sýninguna. Þar neitaði hún því að hún ætti von á barni með kærastanum sín- um, bandaríska fótboltamanninum Tom Brady, en sagðist þó hafa hug á því að stofna fjölskyldu síðar. „Ég ólst upp í sveitinni og mig langar til þess að mín eigin börn geti hlaupið frjáls um og elt kjúklinga og blandað geði við kýrnar.“ Gisele notar líka sviðsljósið til að vekja athygli á ýmsum málefnum. Hún er mikill andstæðingur smokkabanns og segir viðhorf kirkjunnar úrelt. „Að banna smokka er fáránlegt, ímyndið ykkur alla sjúkdómana sem fylgja því. Hvernig er það mögulegt að banna fólki að nota smokka og á sama tíma banna fóstureyðingar? Þetta er ekki hægt, því miður,“ sagði hún í samtali við brasilískt dagblað. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá upphafi tískuvikunnar en sundföt setja að sjálfsögðu svip sinn á hana. Sommer Frumlegur klæðnaður í óvenjulegri litasamsetningu. Colcci Gisele kann sannarlega að stilla sér upp fyrir ljósmyndarana. Lenny Brasilíska leikkonan og fyrir- sætan Leticia Birkheuer situr fyrir. TNG Fegurðardrottningarblár fyrir ungfrú Brasilíu Nataliu Guimaraes. Colcci Gisele Bundchen skínandi skær í stutt- um gullkjól. Reuters Gisele stjarnan í Ríó Anna María Hjálmarsdóttir er ein af starfskonum Aflsins sem stendur að tónleikaveislu í kvöld Börnin og bíltúrar út í buskann

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.