Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÍSLAND, BANDARÍKIN OG NATÓ Heimsókn Nicholas Burns, að-stoðarutanríkisráðherraBandaríkjanna, hingað til lands í gær og viðræður hans við ís- lenzka ráðamenn hafa litla þýðingu. Viðræðurnar snerust um eftirhreyt- ur af samskiptum þessara tveggja þjóða í hálfa öld. Það er lítið eftir um að tala í samskiptum þessara tveggja þjóða. Þótt varnarsamningurinn sé til staðar er ekki líklegt að á hann reyni á nokkurn hátt í fyrirsjáanlegri framtíð. Bandaríkin hafa haldið hér uppi fjölmennu sendiráði allt frá lýðveld- isstofnun. Þeir hljóta að fara að fækka starfsmönnum sendiráðsins enda engin sérstök verkefni fyrir hendi. Tilraunir Nicholas Burns til þess að gera gott úr samskiptum þessara tveggja þjóða síðustu árin eru bara orð, sem engu skipta. Hins vegar stöndum við Íslending- ar frammi fyrir annarri og stærri spurningu en þeirri, sem snýr að samskiptum okkar við Bandaríkin, og þá er átt við aðild okkar að Atl- antshafsbandalaginu. Við erum einn af stofnaðilum bandalagsins. Áratug- um saman var helzta framlag okkar til sameiginlegra varna bandalags- þjóðanna að veita Bandaríkjamönn- um aðstöðu hér á landi. Það var þeg- ar Ísland hafði mikla hernaðarlega þýðingu. Sú staða okkar hvarf með lokum kalda stríðsins og nú er ljóst að önnur aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins spyrja hvert framlag okkar sé nú. Við getum ekki lifað á fornri frægð og nú sé kominn tími til að við leggjum eitthvað af mörkum eins og aðrir. Aðild að bandalaginu kosti sitt og engin aðildarþjóð þess geti búizt við að fá ókeypis far. Sennilega er þessi krafa á hendur okkur skýringin á því, að stjórnvöld hafa haft tilhneigingu til að senda Ís- lendinga til starfa, þar sem banda- lagið kemur við sögu, en það á ekki sízt við um Afganistan nú. Þetta grundvallaratriði hefur nán- ast ekkert verið rætt í umræðum hér heima fyrir en það er nauðsynlegt að það verði tekið til almennrar og op- innar umræðu. Hvers konar að- gangseyri að Atlantshafsbandalag- inu erum við tilbúnir til að greiða, þegar aðstaða Bandaríkjamanna hér er ekki lengur sá aðgangseyrir? Þetta þarf að ræða hér á heimavíg- stöðvum og þetta þarf að ræða við bandalagsþjóðir okkar. Um þennan þátt málsins hefði verið æskilegt að ráðherrar hefðu rætt við Nicholas Burns, sem er fyrrverandi fasta- fulltrúi Bandaríkjanna hjá Atlants- hafsbandalaginu, og vel má vera að þeir hafi gert það þótt það hafi ekki komið beinlínis fram eftir fundi þeirra í gær. Erum við Íslendingar tilbúnir til að taka með einum eða öðrum hætti þátt í aðgerðum Atlantshafsbanda- lagsins á ófriðarsvæðum eða teljum við það annarra mál? Og hver er þá staða okkar innan bandalagsins? EFTIRLIT OG EINKALÍF Samvinna innan Evrópusambands-ins um varnir gegn glæpum og eftirlit með glæpamönnum verður stöðugt víðtækari. Fyrr í þessari viku samþykktu innanríkisráðherrar að- ildarríkja Evrópusambandsins að koma upp nýju kerfi, sem ætlað er að tryggja að lögregla deili erfðaupplýs- ingum, fingraförum og bifreiðaskrán- ingum manna, sem grunaðir eru um glæpi. Samkvæmt því mun lögreglan í einu landi geta flett upp í tölvu og athugað hvort gögn hennar eigi sam- an við gögn lögreglu í öðru landi. Til að vernda upplýsingar mun hins veg- ar aðeins koma fram hvort gögnin eigi saman, en síðan þurfa yfirvöld að fara fram á frekari upplýsingar. Tilgangurinn með þessari ákvörð- un er að auðvelda aðgerðir gegn hryðjuverkum og glæpastarfsemi, sem nær milli landa. Hið fyrirhugaða samstarf er framlenging á Prüm- samkomulaginu, sem Austurríki, Belgía, Frakkland, Þýskaland, Lúx- emborg, Holland og Spánn gerðu með sér 2005 og mun það nú ná til allra 27 aðildarríkja ESB og vænt- anlega einnig Evrópska efnahags- svæðisins. Ráðamenn hafa fagnað samkomu- laginu. Wolfgang Schäuble, innanrík- isráðherra Þýskalands, sagði það mikilvægt og vísaði til þess að Aust- urríkismenn hefðu náð „stórkostleg- um árangri“ eftir að þeir fóru að nota kerfið og í einu tilviki fundið rúmlega þúsund tilvik þar sem upplýsingar áttu saman á sex dögum. Það er mikilvægt að berjast gegn glæpum og hryðjuverkum. En réttur einstaklingsins og friðhelgi einkalífs- ins eru ekki síður mikilvægir hlutir. Á Bretlandi hefur þetta samkomulag verið gagnrýnt, meðal annars vegna þess að ekki séu til neinar reglur um það hvaða upplýsingar eigi að geyma og um hverja. Hefur verið bent á að á Bretlandi séu ekki aðeins geymdar erfðaupplýsingar um dæmda glæpa- menn, heldur einnig eina milljón borgara, sem aldrei hafi verið dæmd- ir fyrir einn einasta glæp, og 25 þús- und börn, sem aldrei hafi verið sökuð um afbrot. Þar á meðal eru meira að segja 100 börn undir tíu ára aldri. Tilhneigingin til að rýmka heimild- ir lögreglu hefur verið mjög sterk á undanförnum árum. En því má ekki gleyma að nú þegar eru fyrir hendi víðtækar heimildir til að afla upplýs- inga, sem oft eru ekki notaðar sem skyldi. Nú þegar hafa verið teknar ákvarðanir um að rýmka heimildir, sem orka tvímælis. Ákvarðanir um samstarf á borð við þetta þarf að taka með lýðræðislegum hætti að undan- genginni rækilegri athugun á því að það verði ekki á kostnað upplýsinga- og persónuverndar. Það verður at- hyglisvert að sjá hvernig þessu máli mun reiða af hér á landi. En kannski er athyglisverðast við þetta mál hversu lítið hefur farið fyrir því. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Stjórnvöld í Washington lítaekki svo á að um mikilvægastefnubreytingu sé að ræðahjá Íslendingum þótt í sátt- mála nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæð- isflokksins og Samfylkingarinnar sé stríðsreksturinn í Írak harmaður, að sögn Nicholas Burns, aðstoðarutan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sem ræddi við íslenska ráðamenn í gær. „Ég tel ekki að Íslendingar séu að segja að þeir vilji ekki aðstoða stjórnvöld í Írak,“ sagði Burns á rabbfundi með nokkrum íslenskum stjórnmálamönnum, fræðimönnum og fréttamönnum að loknum viðræð- um sínum við ráðherrana tvo. „Ég tel ekki að þeir fordæmi það sem við erum að gera þar, satt að segja virð- ist yfirlýsingin snúist um það sem við gerðum fyrir fjórum árum. Eitt er að greina á um það sem við gerð- um 2003 og allt annað að meta það sem við erum að gera núna. Um er að ræða gerólíka hluti. Stjórn okkar taldi sig hafa rétt til að gera innrás, það var afstaða okkar þá en núna er- um við að aðstoða írösku stjórnina við að lifa af við mjög erfiðar aðstæð- ur árið 2007. Það er of mikill trúnaður milli þjóða okkar, of margt jákvætt í sam- skiptum okkar til að þetta verði gert að stórmáli.“ Nóg að eining ríki um 90% mála Burns sagði mjög fáar þjóðir ráð- leggja Bandaríkjamönnum að yfir- gefa Írak eins og ástandið væri núna. Margar ríkisstjórnir í Evrópu og arabalöndum segðu að þá væri hætt við að alger ringulreið yrði í landinu. Hann sagði að bandamenn þyrftu ekki að vera sammála um allt, stjórnvöld í Washington gæfu ekki ráðamönnum í Reykjavík skipanir eða öfugt. Eining væri um 90% þess sem rætt væri um. Burns var m.a. spurður um sögu- legt símtal sitt við Geir H. Haarde, þáverandi utanríkisráðherra, í fyrra er Bandaríkjamenn skýrðu frá því að þeir hygðust draga herlið sitt á brott frá Íslandi um haustið. Hann sagði að sér væri vel ljóst að sumir Íslendingar teldu að Bandaríkja- menn hefðu sýnt bandamanni hranaskap í málinu öllu og hunsað samráð og sér þætti það afar leitt. „Ef fólki hér finnst þetta harma ég það mjög vegna þess að Íslend- ingar eru of góðir vinir okkar til að við megum nokkurn tíma fá þá til að hugsa þannig um okkur. En ég vona að Íslendingar sýni útskýringum okkar skilning og viti að við viljum áfram rækta við ykkur góða vináttu og sýna ykkur fulla virðingu,“ sagði Burns. Umræddar breytingar á varnar- samstarfinu hefðu valdið miklum vanda í samskiptunum en nú horfðu báðar þjóðirnar fram á við. Sagðist Burns telja að nú væru samskipti þjóðanna betri en nokkru sinni, þau væru þroskaðri en fyrr og meira jafnræði ríkti. En hvernig hyggjast Bandaríkja- menn standa við skuldbindingar sín- ar um að tryggja varnir Íslands? „Við hétum íslenskum stjórnvöld- um að við myndum sýna með áþreif- anlegum hætti að við sæjum áfram um varnir Íslands. Við munum efna þau fyrirheit okkar með margvísleg- um hætti. Sem stendur eru hér her- skip frá Bandaríkjunum, Spáni og Þýskalandi í heimsókn. Nú í ágúst munum við senda hingað orrustu- þotur sem munu taka þátt í NATO- æfingum með liðsmönnum flugherja Noregs og Litháens. Einnig munu verða haldnar hér miklar æfingar næsta ár. Við erum auk þess að semja við NATO um eftirlit með loft- helginni hér, styðjum á þeim vett- vangi óskir Íslendinga um að banda- lagið annist eftirlitið og vonum að niðurstaða fáist í málið í næstu viku. Íslenskir ráðamenn spur dag hvort við myndum ve aðstoð við að gera áætlani tímalegar varnir þjóðarin langtímasjónarmið í huga munum við að sjálfsögðu g ræður mínar við forsætis og utanríkisráðherra sn miklu leyti um framtíðina.“ Samið verði um ratsjárs Hann var spurður um stöðvarnar sem Bandar reistu en Íslendingar t rekstri þeirra í ágúst. Rá sagðist telja að einhugur það meðal bandarískra og Aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna, Nicholas Burns átti í gærmorgun fund í Reykjavík með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ut- anríkisráðherra en Burns kom hingað í boði hennar og er heim- sóknin liður í samráði þjóðanna í tengslum við varnarsamninginn frá 1951. Síðan snæddi Burns há- degisverð með Ingibjörgu og Geir H. Haarde forsætisráðherra. Fram kom á blaðamannafundi ráðherranna þriggja og banda- ríska sendiherrans, Carol van Vo- orst, að fjallað hefði verið um ýmis alþjóðamál, einnig umhverfis- og orkumál. Varðandi framboð Íslands til ör- yggisráðs SÞ sagði Burns að Bandaríkin hefðu ávallt þá að gefa aldrei upp fyrirfra ríki þau styddu til trúnaða hjá samtökunum. En þeir f því að traust lýðræðisríki á við Ísland byði sig fram til ráðinu. Ingibjörg Sólrún Gíslad ur lýst yfir áhuga á að fara austurlanda til að kynna sé stæður af eigin raun og lýs gesturinn ánægju með þá h mynd. „Við þurfum að fá ö heiminum til að vinna að fr hefur ekki ríkt friður í Mið urlöndum í 59 ár. Því fögn því að íslenska ríkisstjórni vilja leggja hönd á plóginn hann. Samskiptin þro og meira jafnræ Aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, harmar að Bandaríkjamenn séu taldir hafa sýnt tillits- leysi er þeir skýrðu frá brottför varnarliðsins. Kristján Jónsson segir frá fundi með Burns. Kæti Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna anna, á rabbfundinum í bústað sendiherrans í gær. Burns, sem er æðsti maður ráðuneytisins í Washington og var áður fastafulltrú Fagna framboði í öryggisráð SÞ Morgunbl Samráð Nicholas Burns aðstoðarutanríkisráðherra í Ráðherrabú ásamt Geir H. Haarde forsætisráðherra, Ingibjörgu Sólrúnu Gísla utanríkisráðherra og Carol van Voorst, sendiherra Bandaríkjanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.