Morgunblaðið - 15.06.2007, Side 36

Morgunblaðið - 15.06.2007, Side 36
36 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Ég minnist þín pabbi minn sem fyrir- myndar á mörgum sviðum. Ég minnist þess er ég var 5 ára gamall í Klausturseli og þú kenndir mér mannganginn. Ég minnist þess þegar er ég kom grátandi heim á Fossgötuna yfir því að eiga ekki jafnflott dót og vinir mínir. Þá kenndirðu mér að öfund er vond hugsun. Ég minnist þess þegar ég fór að geta eitthvað í íþróttum, þá varst þú mættur bak við tjöldin sem formað- ur Austra nánast um leið. Þar sýnd- irðu umhyggju og áhuga í verki. Ég minnist sumarhátíðanna á Eið- um þar sem metnaðurinn fyrir flott- um skrúðgöngum og framgöngu Austra var mikill. Þar kenndirðu mér að sýna stolt og metnað. Ég minnist þess að þú tókst alltaf Hrafnkell A. Jónsson ✝ Hrafnkell Aðal-steins Jónsson fæddist á Vað- brekku í Hrafnkels- dal 3. febrúar 1948. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Egils- stöðum 29. maí síð- astliðinn og var jarðsunginn frá Egilsstaðakirkju 8. júní. minn málstað, ef ein- hver hafði gert á minn hlut. Og varst tilbúinn að labba húsa á milli til að láta foreldra ann- arra barna vita að þeirra börn væru vond við mig. Jafnvel þó ég hefði bara sagt hálfan sannleikann í upphafi. Þarna kenndirðu mér að heiðarleiki er dyggð sem maður flimtar ekki með. Ég minnist þess þegar þú gafst mér 10 gíra hjólið með hrútastýrinu, úr málningarbúð Mansa málara. Ég minnist Fögruhlíðarinnar, þar sem þú byggðir fallegasta hús á Eskifirði. Ég minnist beljandi hávaðans í Wartburgnum, þegar þú þandir hann í öðrum gír í gegnum Eski- fjörðinn. Ég minnist þess hvernig þú tókst málstað vina minna, þegar mér fannst á þeim brotið. Ég minnist allra kosninganna, þar sem þú varst oftar en ekki í sigurliði. Ég minnist heimsóknanna í Fannafoldina, þegar ég var við nám í Reykjavík. Þar ræddum ég, þú og Helgi Hlynur eftirminnilega um pólitík, en þá sastu á Alþingi með lepp fyrir öðru auganu. Ég minnist þess þegar þú varst í löggunni, hvernig þú fylgdist með mér. Jafnvel þó þú vissir að ég væri að supla á öðru en gosdrykkjum. Ég minnist heimsóknanna í Hafn- arfjörðinn á ryðguðu Lödunni. Ég minnist skoðanaskipta okkar í póltíkinni, en skoðanir okkar fóru ótrúlega oft saman, þó við deildum um vettvanginn til að vinna úr þeim. Ég minnist pallasmíðanna í Dals- kógunum og Selásnum. Ég minnist opinberu persónunnar pabba, sem vann fyrir fólkið, var í blöðum og sjónvarpi og allir þekktu. Þar fylltirðu mig stolti af staðfestu þinni og kröftugri framgöngu. Ég minnist umhyggju þinnar í garð afabarnanna sem þú sýndir með því að fylgjast reglulega með högum þeirra. Ég minnist þess þegar við rædd- um trúmál, þegar þú varst sem veik- astur. Þú varst öruggur með þína barnatrú. „Guðs vilja verður ekki hnikað,“ sagðir þú æðrulaus, og þessa fleygu setningu: „Mennirnir álykta, en Guð ræður.“ Ég minnist allra tölvupóstskeyt- anna sem fóru okkar á milli. Ómet- anleg persónuleg minning, stundum harðar deilur sem voru leystar upp í sátt, en ekki síst vitnisburður um það sem þú hafðir að geyma, en þú lést ekki bera mikið á út á við. Ég minnist réttsýnasta manns sem ég hef kynnst. Ég minnist þín fyrir svo fjölda- margt, pabbi minn, og þær minning- ar eru ríkulega blessaðar. Nú ertu farinn heim til föðurins og drottins okkar Jesú Krists. Guð blessi þig, elsku pabbi minn. Tjörvi. Leiðir okkar Hrafnkels lágu sam- an þegar við settumst báðir í Bændaskólann á Hólum í Hjaltadal haustið 1964. Þar var ég, Húnvetn- ingurinn, settur í herbergi með tveimur Austfirðingum, Einari frá Norðfirði og Hrafnkatli af Jökul- dalnum, þar sem menn áttu ekki klukku eftir því sem hann sagði okk- ur. Dagatalið var látið nægja í þeirri sveit og var gaman að heyra Hrafn- kel lýsa sínum sveitungum og þjóð- félagsháttum þar eystra. Ekki vor- um við grunlausir um að oft fylgdi þeim sögum verulegt krydd, enda var þar á ferð góður fræðaþulur og listamaður á sagnasviði, þótt ungur væri. Einar var okkar skólafélaga elstur, en Hrafnkell yngstur en það hallaði eigi á. Ekkert lét Hrafnkell eiga hjá sér hvort sem var í glímu eða orðræðu. Forn fróðleikur var honum hugleikinn og rökvís var hann í umræðu um þjóðfélagsmál eins og þjóðþekkt var þegar fram liðu stundir. Næsta vetur þegar ég dvaldi erlendis fékk ég nokkrum sin- um bréf frá Hrafnkatli fullt af fróð- leik um ástand þjóðmála eins og þau gerðust þá um stundir og skemmti- legir palladómar fylgdu með um þá sem mest voru áberandi í þjóðmál- um þess tíma. Gaman þótti mér að fá þessi bréf, enda erfitt að fylgjast með fyrir daga nets og tölvuteng- ingar og treysta varð á dugnað félag- anna að skrifa sendibréf að heiman. Ætíð vildi Hrafnkell huga vel að og hjálpa þeim sem minna máttu sín og rétta þeirra hlut. Fann ég það á honum þegar við skólafélagar hitt- umst á útskriftarafmæli að hann var ekki sáttur við hvernig við allmargir ungir ærslafullir strákar veittumst margir saman að einum skólafélaga þá fjörutíu árum fyr. Það braut enn á hans réttlætiskennd og var hann ósáttur við sjálfan sig að hafa tekið þátt í þessum ljóta leik. Með Hrafn- katli er genginn einstakur maður, skýr í hugsun og rökfastur. Hann kom víða við á sinni lífsgöngu, sem var allt of stutt. Ég veit að ég mæli fyrir munn okkar allra skólafélag- anna frá Hólum að það var gott að kynnast þessum góða dreng af Jök- uldalnum. Minning um hann lifir. Eftirlifandi konu, börnum og öðrum aðstandendum eru sendar dýpstu samúðarkveðjur. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Við andlátsfregn verður allt svo undarlega hljótt og sálin hnýtur um minningabrot sem hvelfast yfir og kalla fram tár en jafnframt bros. Góður drengur er genginn alltof snemma. Hrafnkell A. Jónsson hefur kvatt þennan heim eftir hetjulega baráttu við banvænan sjúkdóm. Hans verður sárt saknað enda fáir hans líkar í atorku og ósérhlífni. Öll Elsku pabbi minn. Ég sakna þín sárt, og mér finnst að þinn tími hafi ekki verið kominn. Þú barðist eins og hetja og ætl- aðir ekki að fara frá okkur. Þú ert besti pabbi sem til er, og það var alltaf gaman að horfa á leiki með þér þegar okkar lið voru að spila gegn hvort öðru. Þá var hlegið og grátið yfir fót- boltaleikjum sem var okkur allt. Mamma horfði nú líka á leikina með okkur, en það var nú oftast til að róa okkur tvo niður. Mig langaði alltaf á leik með þér, en því miður kom sá tími aldrei. Mér fannst líka gaman að vinna með þér í Bílanausti og fá hjá þér klink fyrir kóki, það var góður tími. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn til þín í vinnuna og sjá þig á Bílanausts-bílnum í umferðinni. Þegar ég fór sjálfur að keyra sendibíl varstu þú mjög ánægður með mig, og líka með að ég væri að feta í fótspor þín. Svo þegar ég tók meiraprófið þá varst þú mjög stoltur af mér og hjálpaðir mér að læra undir það. Þú beiðst líka eftir símtalinu frá mér þegar ég hringdi í þig og sagði þér að ég hafði náð prófinu. Þá sagðir þú velkominn í stétt- ina. Þú varst ekkert smá ánægður með strákinn þinn. Elsku pabbi minn, í dag er ég byrjaður að keyra vörubíl og var það alltaf draumur minn að taka þig með mér smá hring, og nú veit ég að þú ert alltaf með mér þegar ég er að keyra og hjálpar mér að bakka og sturta. Þér fannst líka voðalega gaman að stríða mér þegar þú varst orðinn svona mikið veikur, með að segja „ Stebbi; bakka, sturta, tissss tisss,“ og hlógum við saman að því. Elsku pabbi, ég þakka þér fyrir allar stundirnar sem við áttum saman, ég á eftir að varðveita þær vel og lengi. Aðalbjörn Stefánsson ✝ Aðalbjörn Stef-ánsson fæddist í Reykjavík 22. júní 1955. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 31. maí síðastlið- inn og var jarð- sunginn frá Ár- bæjarkirkju 11. júní. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar. Aldrei var neinn svo ástúðlegur eins og þú. Ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt. Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið barn. Brosandi blítt, þú breyttir sorg í gleði. Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund. Leikandi kátt, þú lékst þér á þinn hátt. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var. Æskunnar ómar ylja mér í dag. (Þorsteinn Sveinsson) Ég elska þig, Þinn sonur að eilífu Stefán Aðalbjörnsson. Elsku tengdapabbi minn. Mér þykir voðalega sárt að þú sért farinn frá okkur. Þú varst mér alltaf mjög góður og tilbúinn að hjálpa mér með hvað sem er. Þó að ég hafi einungis þekkt þig í tæp tvö ár þá tókstu mig strax inn í fjölskylduna, og kallaðir mig alltaf Helgu þína. Þér þótti mjög vænt um það, hvað mér þykir vænt um litla strákinn okkar hann Viktor Ísar, og að við Unnur náðum vel saman. Ég á svo góðar minningar um þig elsku Alli minn. Við tókum nú nokkra sunnudaga í þrif heima og hjálpuðumst að við þau. Jólin og áramótin sem ég átti með ykkur voru yndisleg. Mér fannst líka mjög gaman að hlusta á sögurnar þínar með Stebba þegar hann var lítill. Þér fannst mjög gaman að lýsa þeim sögum fyrir mér og hlógum við oft að þeim. Sú stærsta minning í mínu hjarta er sú að þú komst í útskriftina mína. Ég var alltaf svo hrædd um að þú kæmist ekki, því þú varst byrjaður að vera veikur, þú varst svo stoltur af mér þá og kallaðir mig Perluna þína. Þú varst alltaf svo stoltur af mér eins og ég væri dóttir þín og hrós- aðir mér óspart. Ekki þótti þér nú leiðinlegt að fá fót- og handsnyrt- ingu hjá mér og einn kaldan með. Mér þykir mjög skrýtið að skrifa minningarorð um þig elsku Alli minn. Ég sem var nýorðin og heppin að fá að vera tengdadóttir þín, en svona er lífið óréttlát. Ég geri mér ekki grein fyrir því að ég sé þig ekki aftur hjá henni Björgu þinni og Moza okkar. Ferðin ykkar til Lond- on var þinn stóri draumur og er ég svo ánægð með að þið fóruð í þessa ferð. Þú varst mjög ánægður með íbúðina okkar í Melbæ og sérstak- lega að við héldum okkur í gamla hverfinu þínu. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Minning þín lifir í hjarta mínu að eilífu. Þín Helga Irma. Hæ hæ, elsku afi minn. Mér þykir svo vænt um þig og það er leiðinlegt að þú skyldir deyja. En þú ert samt í hjarta mínu og allra hinna krakk- ana, þú ert langlangbesti afi í öllum heimi og þú ert besti engillinn uppi á himnum. Ég sé hann ennþá í huga mér. Brosandi andlit, grátt hár. Ég vildi hann væri ennþá hér, ég vildi hann gæti þurrkað þessi tár. Góður maður var tekinn þann dag inni á eldhúsborði. Sá maður kunni svo sannarlega lag sá sunnudagur er allt var hljótt. Ég kem ekki að honum orði. Brosinu mun ég aldrei gleyma og í hjarta mínu ávallt geyma. Í huganum mínum sé ég mynd en bara eina og tárunum er erfitt að leyna. Ég vil þig aftur afi minn ég verð alltaf afastrákurinn þinn. Ég skal hjálpa konunni þinni, ég skal vera hjá ömmu minni og gera allt sem ég get svo sársaukanum linni, ég skal gera allt svo Björg finni að ég sé líka ömmustrákurinn hennar. (Snæbjörn Valur Lilliendahl.) Þú ert engillinn minn, ég elska þig. Þinn afastrákur, Theodór Bjarki. Þú ert einstakur „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez) Þínar systur Fanney, Laufey og Eygló. Elsku Alli minn. Ég held að þú hafir aðeins eignast einn óvin um ævina, ,,manninn með ljáinn“, hann læddist aftan að þér svo harkalega og hreiðraði um sig í höfði þínu. Þrátt fyrir öll læknavísindi gekk ekki að stoppa þetta óargadýr, hann kláraði verkið á fjórum mánuðum. Foreldrar okkar voru meðal frum- byggja Árbæjarhverfis, fluttu í Vorsabæ 7 árið 1952. Við vorum svo heppin að alast þarna upp í þessari óspilltu náttúru sem Árbærinn var. Við ána var okk- ar leiksvæði, m.a. óðum við í ánni, veiddum síli, klömbruðum saman flekum, sigldum út í tanga og rennd- um okkur á skautum niður við stíflu á veturna. Síðan byggðist hverfið upp, þá var þetta leiksvæði orðið hættulegt. Alli fór í dúfnarækt, og stóð ég stundum vaktina fyrir hann með misgóðum árangri! Alli átti alltaf flottustu hjól- in, DBS með öllum græjum og vel pússuð. Við Alli áttum marga sam- eiginlega vini, svo komu unglings- árin sem áttu að vera mjög góð, en þá veiktist móðir okkar. Við studd- um hvert annað í gleði og sorg, en hún lést aðeins 49 ára. Ég var ung er ég eignaðist Eygló Sif, en hún bjó á okkar æskuheimili fyrstu fjögur árin, og reyndust Alli og öll systkini mín henni mjög vel. Eftir að við Alli stofnuðum fjöl- skyldur fórum við oft í útilegur og aðrar skemmtanir, og var Alli alltaf hrókur alls fagnaðar. Alli var ekki bara góður bróðir, hann var góður eiginmaður, góður faðir og yndisleg- ur afi. Fótbolti var hans líf og yndi, hann sá helst alla leiki með Fylki innanlands og einnig fórum við sam- an á leik þegar Fylkir spilaði í Pól- landi. Hann var mikill aðdáandi Ars- enal. Í byrjun maí fór hann veikur með Björgu í boði Agga og Viggu að sjá Arsenal og Chelsea. Var sú ferð honum mjög dýrmæt og ógleyman- leg og með góðri hjálp frænda okkar Kjartans rakara á Selfossi og vil ég þakka honum. Það fór ekki framhjá starfsfólki 11E á Landspítalanum að hann átti stóra fjölskyldu og vini. Skipst var á að vera hjá honum daga og nætur. Alli minn, takk fyrir að hafa verið bróðir minn, þú varst traustur og góður maður sem öllum þótti vænt um. Elsku Björg mín og fjölskylda, höldum áfram að styrkja hvert annað, það hjálpar okkur í gegnum þessa óbærulegu sorg. Með þessu erindi úr Svefnljóði vil ég kveðja þig Alli minn. Lífið hefur hendur kaldar, hjartaljúfur minn. Allir bera sorg í sefa, sárin blæða inn. Tárin falla heit í hljóði, heimur ei þau sér. Sofna vinur, svefnljóð meðan syng ég yfir þér. (Kristján frá Djúpalæk) Þín systir, Anna Björg. Mig tekur sárt að þurfa að kveðja mág minn hann Alla, ljúfmennið eina. Ég vil þakka honum fyrir allar Elsku afi, þú ert besti afi á hnettinum, það er mjög gaman að vera með þér, það er leiðinlegt að þú skul- ir vera dáinn og ég sakna þín mjög, mjög mikið. Það er ekki neitt gaman að þú sért dáinn. Þú ert lang- fallegasti engillinn á himn- inum. Ég hugsa mikið til þín. Viktor Ísar. Elsku afi minn. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þín litla Tinna Björg. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Marteinn. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.