Morgunblaðið - 15.06.2007, Page 41

Morgunblaðið - 15.06.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 41 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30. Bingó kl. 14. Árskógar 4 | Kl. 8.15-16 baðþjónusta. Kl. 9-12 opin handavinnustofa. Kl. 9-16.30 opin smíðastofa. Bingó fellur niður í júní og júlí. Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl. 10.50. Handa- vinnustofan opin og heitt á könnunni til kl. 16. Fé- lagsvist kl. 20.30. Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður hátíðardagskrá í Gjábakka kl. 15-16. Á dag- skrá ýmis tónlistaratriði t.d. revíusöngur. Hátíð- arhlaðborð. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9. vefnaður, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður. Aðstaða til að taka í spil. Kaffi og meðlæti alla virka daga. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Garðaberg opið kl. 12.30-15. Síðasti dagur fyrir sumarfrí. FEG og FEBG óska öllum eldri borgurum í Garðabæ ánægjulegs sumars. Félagsstarfið verður nánar auglýst í ágúst. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10 Bragakaffi, að því loknu létt ganga um nágrennið. Frá hádegi spilasal- ur opinn. Þriðjud. 19. júní kl. 13 verður púttvöllur við Breiðholtslaug tekinn í notkun, með áherslu á þjón- ustu við eldri borgara, í samstarfi við Vinnuskóla Reykjavíkur. Jónsmessufagnaður í Básnum 20. júní. S. 575 7720. Furugerði 1, félagsstarf | Kl. 14 bingó. Kaffiveit- ingar kl. 15. Allir velkomnir. Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall, dagblöðin, opin vinnustofa. Kl. 9 baðþjónusta. Kl. 10-16 pútt. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 15 kaffi. Kl. 14.45-15.30 bókabíll. Hraunbær 105 | 20. júní Jónsmessukaffi að Bás- um í Ölfusi undir stjórn Ólafs B. Ólafssonar hljóð- færaleikara. Á leiðinni austur verður ekið um nýju hverfin í Grafar- og Norðlingaholti. Verð kr. 2.500. Brottför kl. 13 frá Hraunbæ. Skráning á skrifstofu eða í síma 587 2888. Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Hársnyrting 517 3005. Blöðin liggja frammi. Hæðargarður 31 | Gönguferðir alla morgna kl. 9, á laugardögum kl. 10. Listasmiðjan opin. Tölvusveitin hittist á þriðjud. og miðvikud. kl. 13-15. Púttvöll- urinn opnaður 20. júní. Kennsla í pútti alla miðviku- daga í sumar kl. 17-18. Hádegismatur, síðdegiskaffi. Kíkið við og fáið alla dagskrána. S. 568 3132. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaðaklúbbur og um- ræður kl. 10. Leikfimi í salnum. „Opið hús“ spilað á spil kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-14.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádeg- isverður. Kl. 13.30-14.30 sungið v/flygilinn. Kl. 14.30-14.45 Kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í að- alsal. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa opnar frá kl. 9, bingó kl. 13.30. Allir velkomnir. Uppl. í síma 411 9450. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17- 22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni. Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir. Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með stólaleikfimi og slökunarbæn á Dalbraut 27, kl. 10.15 í dag. Hlutavelta | Þeir félagar Guðmundur, Friðrik og Einar komu og færðu Rauða kross- inum 3.445 krónur, sem var ágóði af tombólu sem þeir héldu ásamt Bjarti Loga og Birtu Júlíu fyrir utan Hag- kaup á Akureyri. Hlutavelta | Fjórar ungar stúlkur í Breiðholtinu, þær María Orradóttir, Sigrún Amina Wone, Herdís Mjöll Guðmundsdóttir og Lilja Gunnarsdóttir, héldu tombólu við 10-11 búðina við Arn- arbakka og söfnuðu 3.552 kr. til styrktar Rauða krossi Ís- lands. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir og munu peningarnir koma að góðum notum. Á myndina vantar Lilju Gunnarsdóttur. Hlutavelta | Þessar stúlkur héldu tombólu í Hveragerði og söfnuðu fyrir Rauða krossinn. Alls söfnuðust 6.734 kr. Stúlk- urnar heita Júlía Óladóttir, sjö ára, og Tara Líf Friðgeirs- dóttir, níu ára. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir og mun peningurinn koma að góðum notum. dagbók Í dag er föstudagur 15. júní, 166. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jóh. 14, 20.) Háskólasetur Vestfjarða ogSafn Jóns Sigurðssonarefna til Þjóðhátíðarþings áHrafnseyri 16. og 17. júní. Yfirskrift þingsins er Þjóð og hnatt- væðing og er Sigríður Ólöf Kristjáns- stjóri einn af umsjónarmönnum dag- skrárinnar: „Þetta er í annað sinn sem Háskólasetrið og Jónssafn efna til við- burðar í tengslum við hátíðahöldin 17. júní, og fáum við að þessu sinni til samstarfs Evrópufræðistofnun Há- skólans á Bifröst, Alþjóðamálastofnun HÍ og hugvísindadeild HÍ,“ segir Sig- ríður. „Hrafnseyri er fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar og á vel við að ræða þar um þau málefni sem nú brenna á, um sjálfsmynd þjóðarinnar í alþjóðasamfélaginu og hvar þjóðern- ishyggjan stendur á tímum hnattvæð- ingar.“ Skopmyndir og framtíðarótti Dagskráin hefst kl. 9 á laugardags- morgni með erindi Valdimars Hall- dórssonar safnvarðar: „Meðal fyrirles- ara má nefna Lene Hansen frá Danmörku sem fjallar um skopmyndir fyrr og síðar og árekstra menningar- heima, umfjöllun Ole Wæver um fram- tíðarótta, hryðjuverk og hnattrænt óöryggi, og Eirík Bergmann Ein- arsson sem fjallar um EES-samning- inn og ESB,“ segir Sigríður. Fyr- irlestrum lýkur kl. 15.30 og verður þá haldin grillveisla og skemmtun fram á kvöld. Hátíð á Hrafnseyri „Á sunnudag mun Auðunn Arn- órsson blaðamaður fjalla um Evrópu- samrunann og hnattvæðinguna og bandaríski fyrirlesarinn Liah Green- feld ræðir um hnattvæðingu þjóðern- ishyggjunnar. Formlegri dagskrá lýk- ur á hádegi en kl. 14 hefst þjóðhátíðardagskrá á Hrafnseyri þar sem Þorsteinn Pálsson flytur hátíð- arræðu.“ Finna má nánari upplýsingar á slóð- inni www.hsvest.is. Ekki þarf að skrá þátttöku og er aðgangur ókeypis að þinginu. Málþingið fer fram á ensku. Boðið er upp á rútuferðir frá Ísa- firði og er æskilegt að þeir sem vilja nýta þann möguleika láti skipuleggj- endur vita. Fræði | Alþjóðlegt málþing á Hrafnseyri þjóðhátíðarhelgina 16. og 17. júní Þjóð og hnattvæðing  Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir fæddist á Ísafirði 1967. Hún lauk stúdentsprófi frá Samvinnuskól- anum 1988, hlaut diplómanám í hót- elþjónustu frá IHTTI í Sviss 1992, lauk námi í iðnrekstrarfræði frá Tækniskólanum 1995, og BS í við- skiptafræði frá Viðskiptahásk. á Bif- röst. Sigríður var framkvæmdastjóri Vesturferða í áratug, vann síðar sjálf- stætt að markaðssetningu og heima- síðugerð. Hún hefur frá ársbyrjun 2007 verið verkefnisstjóri hjá Há- skólasetri Vestfjarða. Sigríður er í sambúð og á eina dóttur. Tónlist Angelo | Biggo kl. 23 föstudag og laug- ardag. Café Paris | DJ Lucky kl. 22. Hótel Djúpavík | Laugardaginn 16. júní, kl. 21, verða Hellvar (Heiða í Unun og Elvar) gestir okkar, þau munu spila óraf- magnað, tónleikarnir hefjast stundvís- lega. Aðgangseyrir kr. 1.000. Kaffi Hljómalind | Kl. 20: Gavin Port- land og I adapt. 500 kr. inn og allur ágóði rennur til náttúruverndarsamtak- anna Saving Iceland (www.savingicel- and.org). Ekkert aldurstakmark. Ráðhús Reykjavíkur | Tónleikar í Ráð- húsi Reykjavíkur kl. 17. Hópur fiðlunem- enda frá Washington D.C. leikur ásamt hópi fiðlunemenda úr Allegro Suzuki- tónlistarskólanum fjölbreytta efnisskrá. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Reykjavíkurborg | DJ Páll Óskar spilar á Lækjargötu 17. júní kl. 21. Aðgangur ókeypis. Tónlistarhátíð Babalú, Hljómalindar og S.L.Á.T.U.R. | Á Kaffi Hljómalind kl. 14-18 leika Margrét Guðrúnardóttir, Sím- on Birgisson, Jazzsveitin Dúi og Bryn- dís Jakobsdóttir. Á Babalú kl. 18-22 leika Siobhán og Joanne Kearney, Jón- as Hara & Mariona og Konni. Í S.L.Á.T- .U.R. viðhefur Kokteilsósa alspuna kl. 20-23. Myndlist Listasafn ASÍ | „Af þessum heimi“ Katrín Elvarsdóttir sýnir ljósmyndir í Ásmundarsal. Í Gryfju sýnir Hye Joung innsetninguna „Stungur“. Í Arinstofu eru verk eftir Guðrúnu Gunnarsdóttur. Opið frá 13-17 alla daga nema mánu- daga. Aðgangur ókeypis. Skemmtanir Gaukur á Stöng | Á Móti Sól föstudags- kvöldið 15. júní. Frítt inn til miðnættis og 1.000 krónur inn eftir það. Mannfagnaður AFS | Málþing á Hótel Nordica kl. 14 og hátíðarkvöldverður kl. 19.30 í tilefni 50 ára afmælis AFS. Hvet sérstaklega ár- ganginn 1986-1987 til að mæta. Nánari upplýsingar á www.afs.is. RÚNA Gísladóttir, myndlistarmaður og kennari, heldur nú brúðusýningu á Látra- strönd 7 á Seltjarnarnesi sem lýkur 19. júní. Sýningin var hluti af Menningarhátíð á Seltjarnarnesi. Rúna sýnir handgerðar postulínsbrúður sínar og brúðufatnað og auk þess fjölmargar annars konar brúður úr safni sínu. Rúna sýndi brúður á Bókasafni Seltjarnarness fyrir tveimur árum einnig. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. Opnunartími er á milli kl. 15 og 19. Rúna Gísladóttir sýnir handgerðar brúður Býr til postulínsbrúður og brúðufatnað MORGUNBLAÐIÐ birtir til- kynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostn-aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Sam-þykki afmælisbarns þarf að fylgja af-mælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgð- armanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100 eða sent á netfangið ritstjorn- @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2110 Reykjavík. FRÉTTIR EKIÐ var á hjólreiðamann við gatnamót Klukkurima/Langarima í Reykjavík fimmtudaginn 31. maí sl., á tímabilinu milli kl. 13.30 og 14. Um var að ræða gráa fólksbifreið af óþekktri tegund. Ökumaður, karl- maður milli fertugs og fimmtugs ræddi við hjólreiðamanninn á vett- vangi og ók honum á heilsugæslu. Í ljós er komið að hjólreiðamað- urinn varð fyrir verulegum áverkum og er því mikilvægt að ná tali af öku- manni bifreiðarinnar. Ökumaður, eða þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir um að hafa sam- band við lögreglu í síma 444 1000. Vitni vantar UNDANFARIN sumur hefur bær- inn Krókur á Garðaholti í Garðabæ verið opinn almenningi til sýnis. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Í Króki eru varðveitt gömul húsgögn og munir sem voru í eigu hjónanna Þor- bjargar Stefaníu Guðjónsdóttur og Vilmundar Gíslasonar. Þorbjörg flutti í Krók vorið 1934 og bjó í Króki til ársins 1985. Afkom- endur Þorbjargar og Vilmundar í Króki gáfu Garðabæ bæjarhúsin í Króki ásamt útihúsum og innbúi árið 1998. Í Króki er einnig herbergi sem hefur verið nýtt sem vinnuaðstaða fyrir listamenn og sífellt fleiri lista- menn hafa sóst eftir að fá þar að- stöðu. Í sumar verður opið hús á sunnudögum í Króki á Garðaholti kl. 13-17. Bílastæði eru við hliðina á Samkomuhúsinu á Garðaholti og Krókur er staðsettur á ská á móti. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Smábýlið Krókur á Garðaholti. Opið hús í Króki á Garðaholti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.