Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 48
48 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ CODE NAME: THE CLEANER kl. 3:30 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 7:20 - 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ DIGITAL 3D / KRINGLUNNI OCEAN'S 13 kl. 6 - 8 - 9 - 10:40 B.i.7.ára OCEAN'S 13 VIP kl. 8 - 10:40 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 8 - 10 B.i.10.ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 VIP kl. 4 ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára BLADES OF GLORY kl. 6 B.i.12.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ MR. BEAN´S HOLIDAY kl. 4 B.i.7.ára / ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á eeeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee H.J. MBL. eeee F.G.G. FBL. WWW.SAMBIO.IS VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFNDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM ERTU KLÁR FYRIR EINA SKEMMTILEGUSTU MYND SUMARSINS? eeee KVIKMYNDIR.IS eee H.J. - MBL eee L.I.B. - TOPP5.IS Lýstu eigin útliti. Dökk yfirlitum, meðalhá og íþróttamannslega vaxin. Brosmild. Hvað finnst þér um ríkisstjórnina? (Spurt af síðasta að- alsmanni, Agli Helgasyni fjölmiðlamanni.) Ég er svo hrikalega ópólitísk að það hálfa væri nóg. Hvaða auglýsingar þolirðu ekki? Ég verð að segja Elísabet.is-auglýsingin þar sem þulan kemur. Það bregst ekki að ég skipti um stöð þá. Hvaða bók lastu síðast? Skólabækurnar. Ég er í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík uppi á Höfðabakka (gamli THÍ). Á hvaða plötu ertu að hlusta? Er með nokkra góða playlista á iPodnum, annars hlusta ég aðallega á tónlist í bílnum og syng auðvitað með. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig? Að ég er nokkuð ákveðin þegar ég vil. Líka það að ég er ekki langrækin og er fljót að fyrirgefa. Hvert er átrúnaðargoðið? Mér finnst alltaf gaman að fylgj- ast með fólki sem stendur sig vel og er að gera góða hluti. Annars hefur afi Jónsson, Rík- harður Jónsson, alltaf verið í uppáhaldi hjá mér. Hann er einn af flottustu íþróttamönnum sem ég hef nokkurn tíma vitað af, inni á vellinum sem utan. Foreldrar mínir eru líka fyr- irmyndir mínar, sem og systir mín sem hefur leiðbeint mér mikið. Hefurðu reynt að hætta að drekka? Nei, hef aldrei þurft þess. Hefurðu þóst vera veik til að sleppa við að mæta í vinnu eða skóla? Ég hef þóst vera veik til þess að sleppa við skóla, ekki vinnu. Það gekk ekki vel þegar mamma reif mann upp á rassinum þegar maður var yngri en ég verð að viðurkenna að það hefur alveg gengið eftir að ég varð eldri. Uppáhaldsíþrótt fyrir utan sundið? Ætli það sé ekki handbolti og körfubolti. Ég get alveg misst mig yfir leikjum og sver mig í ættina með hávær- um öskrum. Ég uppgötvaði líka Formúluna nýlega, rölt- um einmitt nokkrum sinnum hjá pit-stoppunum í Móna- kó. Hver er uppáhaldssundlaugin þín? Jaðarsbakkalaug uppi á Skaga verður alltaf laug nr. 1. Ég synti og æfði þar í rúm 10 ár. Annars eru nokkrar laugar í uppáhaldi hjá mér. Laugin í Sydney var mjög flott og auðvitað var það bara upplifun að synda fyrir framan 18 þúsund manns þar. Laugin í Cannes í Suður-Frakklandi er líka ein af uppáhalds. Svo laugin í Barcelona. Uppáhaldssmáþjóð fyrir utan Ísland? Liechtenstein. Ég keppti þar á smáþjóðaleikunum 1999 og hef sjaldan skemmt mér eins vel. Lítið land sem er eiginlega bara dalur. Myndarlegasti karlmað- urinn? Ég hef ekki fundið hinn eina rétta ennþá, bíð bara róleg. En það er alltaf gaman að sjá myndarlegan karlmann og þeir eru alveg nokkrir, eins og Björgólfur Thor. Annars eru íþróttamennirnir alltaf flottir, t.d. fótboltamaðurinn Grétar Rafn, körfuboltamað- urinn Helgi Már og hand- knattleiksmaðurinn Ásgeir Örn. Einnig er mikið til af myndarlegum sundmönnum. Hvaða kvikmynd eða sjón- varpsefni hefur haft mest áhrif á þig? Ég er forfallinn Friends-fan. Hef verið að safna seríunum hægt og rólega og vantar að- eins tvær til að eiga þær allar. Annars hef ég líka fylgst með Nágrönnum í allt of mörg ár. Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hvar myndir þú byggja draumahúsið þitt? KOLBRÚN ÝR KRISTJÁNSDÓTTIR AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER SUNDKONA SEM VANN TIL FIMM VERÐLAUNA Á SMÁÞJÓÐALEIKUNUM Í MÓNAKÓ SEM LAUK UM SÍÐUSTU HELGI. Í SUMAR VINNUR HÚN SEM ÞJÓNUSTU- FULLTRÚI Í LANDSBANKANUM. Liechtenstein Kolbrún á ekki í vandræðum með að velja uppáhalds smáþjóð aðra en Ísland. Morgunblaðið/Eyþór Eftir Sverri Norland sverrirn@mbl.is „Þetta verður hressandi og skemmtilegt,“ segir Heiðar Arnar Kristjánsson, en hann og Haraldur Freyr Gíslason munu sjá um út- varpsþáttinn Pollapönk á föstudög- um klukkan 19:40 í sumar. Þeir fé- lagar eru sennilega þekktastir sem Halli og Heiðar í hljómsveitinni Botnleðju, en þeir sendu einmitt frá sér barnaplötu í fyrra sem einnig kallaðist Pollapönk. Sú plata hlaut góðar viðtökur og útvarpsþátt- urinn er því næsta skref. Kunna sitt fag „Þátturinn er hugsaður fyrir börn á aldrinum 5-12 ára, en svo er þetta náttúrlega líka bara fyrir börn á öllum aldri,“ segir Heiðar. „Við munum spila tónlist sem okkur þykir skemmtileg, til dæmis af dæmigerðum íslenskum barnaplöt- um einsog Hrekkjusvínum og En- inga meninga, en svo verðum við líka með lið sem kallast óskalög pollanna. Krakkarnir geta því beð- ið um að fá að hlusta á það sem þeim dettur í hug.“ Heiðar og Halli eru allsjóaðir í barnabransanum, enda báðir leik- skólakennarar. Þá var fyrrnefnd plata þeirra, Pollapönk, lokaverk- efni þeirra við Kennaraháskóla Ís- lands. Þáttunum skipta þeir uppí nokkra dagskrárliði; til að mynda má nefna brandarahornið og ljóða- hornið, auk tvennunnar, en í henni seilast þeir eftir kassagíturunum eða öðrum tilfallandi hljóðfærum, og leika ýmis þekkt lög. Þegar flutningi þeirra er svo lokið spila þeir upprunalegu upptökuna af við- komandi lagi svo að hlustendur geti borið útgáfurnar saman. Hestamaður Búast má við hressilegum og spennandi þætti, enda yfirleitt mik- ið fjör í kringum tvíeykið. Til að mynda náðist Halli ekki í mynda- töku fyrir Morgunblaðið þar sem hann var að keppa á hesti. „Hann er ótrúlegur,“ sagði Heiðar um knap- ann Halla, og virtist þykja mikið til reiðhæfileika vinar síns koma. Morgunblaðið/Golli Pollar Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur Freyr Gíslason með félaga sínum úr Botnleðju Ragnari Páli Steinssyni. Óskalög hinna ungu Nýr útvarpsþáttur fyrir polla á Rás 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.