Morgunblaðið - 15.06.2007, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 51
ÞAÐ verður af nógu að taka fyrir
kvikmyndaáhugamenn með haust-
inu. Bíódagar Græna ljóssins verða
haldnir dagana 15. til 29. ágúst, en
Græna ljósið hefur staðið fyrir
reglulegum hlélausum sýningum
undanfarna mánuði. Þá verður
kvikmyndahátíð Reykjavíkur hald-
in um mánuði seinna, 27. sept-
ember til 7. október. Fyrrnefnda
hátíðin er aðeins farin að taka á sig
mynd. Væntanlega verða mynd-
irnar ekki nema um tuttugu enda
segir Ísleifur Þórhallsson, aðstand-
andi hátíðarinnar, að þeir vilji ekki
sprengja utan af sér og frekar
sýna hverja mynd oftar. Hátíðin
fer öll fram í Regnboganum og
þegar hafa þrjár myndir verið
staðfestar.
Opnunarmyndin er Sicko, nýj-
asta heimildarmynd Michaels Moo-
res. Myndin er gagnrýnin úttekt á
bandaríska heilbrigðiskerfinu, sem
Moore segir vera eitt hið versta á
Vesturlöndum. Varla þarf að taka
fram að myndin hefur verið afar
umdeild en hún fékk góðar við-
tökur á kvikmyndahátíðinni í Can-
nes nýverið.
Önnur heimildamynd, The
Bridge, gæti orðið ekki síður um-
deild. Hún fjallar um vinsælasta
sjálfsmorðsstað í veröldinni, Gol-
den Gate-brúna í San Francisco.
Þar nálægt kom leikstjórinn Eric
Steel sér fyrir ásamt tökuliði sínu
og kvikmyndaði nærri 30 sjálfs-
morð auk þess sem kvikmynda-
tökumennirnir náðu að koma í veg
fyrir nokkur þegar þess var kost-
ur. Þá eru tekin viðtöl við ættingja
og vini hinna látnu sem og ein-
hverja þeirra sem þeim tókst að
stöðva.
Þriðja myndin er svo No Body is
Perfect. Viðfangsefni myndarinnar
er mannslíkaminn og allt það
svakalegasta sem mönnum dettur í
hug að gera við hann, hvort sem
um er að ræða líkamsgatanir, kyn-
skiptiaðgerðir eða ýmsar kynlífs-
tilraunir. Áhugasamir geta fylgst
með hvaða myndir bætast við á
vefsíðu Græna ljóssins og þeir
áhugasömustu geta sent tillögur í
hugmyndakassann á síðunni.
Sicko á bíóhátíð
Reuters
Róttækur Leikstjórinn Michael Moore marserar með hjúkrunarkonum í Kaliforníu á sérstaka sýningu á Sicko.
http://www.graenaljosid.is/
FRAMLEIÐENDUR sjónvarpsþátt-
anna Lífsháska, Lost, segja hand-
ritshöfunda hafa komist að sam-
komulagi um hvernig eigi að enda
ævintýrið mikla. Haldnar voru rit-
höfundabúðir þar sem menn skegg-
ræddu og komust að niðurstöðu.
Síðasti þátturinn verður sýndur á
vordögum árið 2010.
Í Lífsháska segir af eftirlifendum
flugslyss sem þurfa að bjarga sér á
ókunnri eyju í marga mánuði og
komast þar í kynni við yfirnátt-
úruleg öfl og óþjóðalýð. Þrjár
þáttaraðir verða framleiddar til
viðbótar, og verða þær sýndar að
vetri til næstu þrjú árin. 48 þættir
eru eftir og ævintýrið því alls ekki
úti.
Damon Lindelof, annar tveggja
höfunda Lífsháska, segir að til
standi að svara spurningum í stað
þess að spyrja þeirra, eins og gert
hefur verið hingað til. Tökur á
næstu þáttaröð hefjast í ágúst en
sýningar á þáttunum hefjast ekki
fyrr en í janúar 2008.
„Við getum augljóslega ekki beð-
ið fram að 48. þætti með að leysa úr
öllum ráðgátunum,“ sagði Lindelof
á blaðamannafundi í fyrradag. Að-
stoðarframleiðandi þáttanna, Carl-
ton Cuse, telur ólíklegt að hægt sé
að finna endi sem öllum þóknast.
„Von okkar er að endirinn verði
rökréttur miðað við söguna,“ segir
Cuse.
Vandi framleiðenda nú er að
halda fólki áhugasömu, því nú tek-
ur við átta mánaða bið eftir næsta
þætti. Síðasti þáttur þriðju þátta-
raðar var sýndur fyrir tæpum mán-
uði í Bandaríkjunum.
Örlög
stranda-
glópa ráðin
Til sölu tvær glæsilegar íbúðir, tveggja og þriggja herbergja,
á 4. hæð (efstu) í nýinnréttuðu húsi ofarlega við Hverfisgötu.
Sérsmíðaðar innréttingar í eldhúsi, baði og svefnherbergjum.
Svalir. Þvottahús inni í íbúðunum. Sameign nýendurnýjuð.
Verslanir og skrifstofur á neðstu tveimur hæðunum.
Næg bílastæði á baklóð, með inngangi inn í sameign.
Nánari upplýsingar í síma 588 7050.
Tvær nýinnréttaðar „penthouse“ íbúðir
í miðbæ Reykjavíkur
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Háihvammur - Hf. - Glæsilegt einbýli
Hraunhamar fasteignasala
hefur fengið í sölu glæsilegt
einbýlishús um 250 fm, vel
staðsett á frábærum útsýnis-
stað í Hvammahverfi í Hafn-
arfirði. Falleg lóð með u.þ.b.
80 fm. sólpall, frábæru útsýni
og möguleiki á auka íbúð á
neðri hæð. Húsið er skráð
234 fm. en að sögn eiganda
er 15 fm. ósamþykkt rými á neðri hæð. Eignin skiptist í forstofu,
hol, eldhús m. þvottahúsi inn af, stofu m. arni, borðstofu, sjón-
varpshol, gang, 3 barnaherb, baðherb, hjónaherb með fataherb
og baðherb inn af. Á neðri hæð er sér inngangur, þrjú herb, bað-
herb og geymsla. Verð 61,7 millj.
Uppl. gefur Þorbjörn Helgi 896-0058
Strandvegur - Gbæ.
3ja herb. m. bílageymslu
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einkasölu 97,7 fm íbúð á
efstu hæð í góðu, vel staðsettu lyftuhúsi í Sjálandshverfi í Garða-
bæ. Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, 2 herb.
baðh. þvottahús og geymslu. Fallegar innréttingar, suður svalir.
Stæði í bílageymslu. Frábær staðsetning. V. 30,9. millj.
Uppl. gefur Þorbjörn Helgi 896-0058
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401.
Sumarhús Hallkelshólum
Sýningarhelgi dagana 16. og 17. júní
á milli kl. 13-17
Mjög vandað 45,5 fm heilsárshús byggt 1992 með heitum potti og verk-
færahúsi. Góð verönd og skjólveggir. Bústaðurinn skiptist í hol, stofu, eld-
hús, 3 svefnherbergi og baðherbergi m. nýjum sturtuklefa. Keyrt er að bæj-
um Hallkelshólum og beygt inn fyrstu götuna til hægri sem heitir Heiðar-
lundur, síðan þriðji bústaður til vinstri. V. 15,9 millj. (7420)
Nánari leiðarlýsing í síma 821-7100, Ásgeir.
zÉÄyÅ™à ECA}ØÇFélag kvenna í atvinnurekstri
OPIÐ GOLFMÓT FKA...
...verður haldið að Hamarsvelli við
Borgarnes miðvikudaginn 20. júní
Spilaðar verða 12 holur í Greensome leik. Hentar bæði
vönum og óvönum. Að spili loknu verður kvöldverður á
Hótel Hamri og verðlaunaafhending.
Rúta verður frá Umferðamiðstöð kl.13:00 og aftur til
baka frá Hamarsvelli kl. 21:30.
Verð kr. 7.000. Allar konur velkomnar.
Skráning á fka@fka.is.
Nánari upplýsingar á www.fka.is