Morgunblaðið - 27.06.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 23
M
argt hefur breyst á
tiltölulega stuttum
tíma varðandi það
hvernig lögreglan
tekur á kynferðis-
brotamálum. Þetta segir Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri höf-
uðborgarsvæðisins. Í samtali við
Morgunblaðið í gær gagnrýndi er-
lend kona, fórnarlamb íslensks
nauðgara, lögregluna fyrir að taka
ekki á máli hennar af festu eftir að
hún leitaði fyrst til lögreglu.
Stefán segir erfitt fyrir sig að tjá
sig um mál sem hafi komið upp árið
2005, enda hafi lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu tekið til starfa 1.
janúar 2007. Kærur vegna kynferð-
isbrota séu teknar alvarlega af lög-
reglu. „Það er best hægt að undir-
strika með því að benda á að um
leið og embættið tók til starfa var
sett á laggirnar sérstök rannsókn-
ardeild sem ber ábyrgð á rannsókn
kynferðisbrota. Það hafði ekki áður
verið hjá íslensku lögreglunni sér-
stök deild sem eingöngu annaðist
slíkar rannsóknir. Við töldum það
afar mikilvægt að setja slíka deild á
laggirnar til þess að byggja upp
enn betur sérhæfingu á þessu sviði
og undirstrika um leið hversu al-
varlegum augum við lítum kynferð-
isbrot og hversu framarlega í röð-
inni þau mál eru á okkar forgangs-
lista,“ segir Stefán.
Spurður um hvort hann telji að
framfarir hafi átt sér stað frá því
mál konunnar var tilkynnt lögreglu
fyrir tæpum tveimur árum, kveðst
Stefán telja að „mikið vatn hafi
runnið til sjávar. Bara ef við lítum
hálft ár aftur í tímann, hvað þá ef
við lítum tvö til þrjú ár aftur í tím-
ann. Það hefur orðið breyting sem
hægt er að sjá og merkja hjá lög-
reglu og það hefur líka orðið breyt-
ing sem hægt er að sjá og merkja
hjá dómstólum þegar kemur að
refsingum.“ Þá hafi lagaumhverfið
vegna kynferðisbrota líka breyst á
þessum tíma, en sú breyting hafi
dóttir, lögfræð-
ingur Alþjóða-
húss, segir
Alþjóðahús
hafa gagnrýnt
það fyrirkomu-
lag að atvinnu-
rekandinn fái
atvinnuleyfið
og telji að bet-
ur fari á því að
einstakling-
urinn fái slíkt leyfi sjálfur, þótt
leyfið kunni að vera bundið við
ákveðna tegund atvinnurekstrar.
„Við sjáum þetta eins og hið gamla
samband milli húsbænda og hjúa
og teljum að fólk sé að ákveðnu
leyti ofurselt vinnuveitanda. Það
tilvik sem konan lýsir [í Morgun-
blaðinu í gær] er einmitt það sem
við óttuðumst að gæti gerst,“ segir
hún. „Það hefur komið til mín fólk
sem hefur líka verið hótað því að
verða sent úr landi nema það vinni
á öllum mögulegum og ómögu-
legum vinnutímum,“ bætir Mar-
grét við. Margir leiti til Alþjóða-
húss vegna mála sem þessara og
Alþjóðahús sé ekki eitt um að hafa
gagnrýnt fyrirkomulagið. Benda
megi á að þetta hafi verið gagnrýnt
af mannréttindafulltrúa Evrópu-
ráðsins, sem kom hingað til lands,
sem og ECRI-nefndinni, sérfræð-
inganefnd Evrópuráðsins sem fylg-
ist með brotum sem teljast framin
á grundvelli uppruna eða kynþátt-
ar.
Leita til Vinnumálastofnunar
Gissur Pétursson, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir þetta
fyrirkomulag hafa það í för með sér
að atvinnurekandi undirgangist
þær skyldur að halda viðkomandi
útlendingi í vinnu hjá sér þann tíma
sem leyfið gildi. „Þá nýtur ein-
staklingurinn ekki atvinnuleys-
isbótaréttar vegna þess að það að
hann verði atvinnulaus á ekki að
koma fyrir vegna þess að hann er á
ábyrgð vinnuveitandans,“ segir
Gissur. Þá tryggi þetta fyrirkomu-
lag að fólk geti ekki komið til lands-
ins nema vinna liggi fyrir hjá til-
teknum vinnuveitanda. Gissur
segir að raunar hafi lítið verið gefið
út af atvinnuleyfum til fólks utan
EES-ríkjanna eftir að borgarar
þeirra ríkja fengu forgang á vinnu-
markaði haustið 2005.
Hann segir að það komi fyrir að
fólk hafi leitað til Vinnumálastofn-
unar vegna þess að það hefur ekki
verið sátt við vinnuveitanda sinn.
„En þá höfum við leitast við að
leysa það með þeim hætti að fólk
fái vinnu hjá öðrum vinnuveitanda
sem undirgangist sömu skyldur,“
segir hann. Eflaust reyni einhverjir
atvinnurekendur að færa sér það í
nyt að þeir hafi atvinnuleyfið. „En
þetta fyrirkomulag er víðar við
lýði,“ segir Gissur og nefnir Hol-
land og Belgíu sem dæmi.
Stefnubreyting
á stuttum tíma
Kona sem beitt var
grófu ofbeldi af hálfu
sambýlismanns síns
gagnrýndi lögregluna,
dómskerfið og reglur
um atvinnuréttindi út-
lendinga. Elva Björk
Sverrisdóttir komst
m.a. að því að dómarar
hafa rætt þyngd kyn-
ferðisbrotadóma sín á
milli.
Stefán
Eiríksson
Margrét
Steinarsdóttir
Morgunblaðið/Kristinn
Dómar Formaður Dómarafélagsins segir að sjálfsagt sé rétt að fjalla um dóma í kynferðisbrotamálum.
átt sér stað að frumkvæði dóms-
málaráðherra.
Ekki bið í margar vikur
Fram kom í Morgunblaðinu í
gær að konan þurfti að bíða í marg-
ar vikur eftir því að geta lagt fram
kæru hjá lögreglu. Stefán segir
slíka stöðu ekki vera uppi í dag.
„Það þarf enginn að bíða í ein-
hverjar vikur eftir að koma sínum
kærum á framfæri. Þessi mál eru
fremst í forgangsröðinni hjá okk-
ur,“ segir hann.
„Sem dæmi má nefna að nú er í
gæsluvarðhaldi maður sem hefur
verið ákærður fyrir nauðgun á Hót-
el Sögu. Hann er í gæsluvarðhaldi
á grundvelli almannahagsmuna.
Það hefur ekki tíðkast áður þegar
um kynferðisbrot er að ræða.
Þannig að það er stefnumörkum af
hálfu lögreglunnar og af hálfu dóm-
stóla líka má segja.“ Eitt af því sem
gagnrýnt hafi verið í því máli sem
var til umfjöllunar í Morgunblaðinu
í gær hafi verið að maðurinn skyldi
ekki vera látinn sæta gæsluvarð-
haldi á grunni almannahagsmuna.
Rætt meðal dómara
Konan gagnrýndi í samtali við
Morgunblaðið í gær fimm ára fang-
elsisdóm sem maðurinn hlaut
vegna brota gegn henni og annarri
konu og kvaðst telja dóminn of
vægan. Eggert Óskarsson, formað-
ur Dómarafélagsins, segir dómara
yfirleitt ekki fjalla um einstök
dómsmál. Dómurinn í umræddu
máli virðist þó vera með þeim
þyngri sem kveðinn hefur verið
upp, séu dómar í sambærilegum
málum skoðaðir.
Hann segir þyngd dóma í kyn-
ferðisbrotamálum hafa verið til
umræðu meðal dómara en þó ekki
rædda sérstaklega á fundum fé-
lagsins nýverið. „Hins vegar eru
þetta hlutir sem menn eru að ræða
og þetta er mikið í umræðunni og
tengist sjónarmiðum og viðhorfum
almennings til dómstóla,“ segir
Eggert. Sjálfsagt sé rétt að fjalla
um þessi mál hjá Dómarafélaginu,
en málið varði einnig Dómstólaráð.
Skoða megi það í tengslum við um-
ræðu um þyngd refsinga og þróun í
þeim málum og hugsanlegar breyt-
ingar á hegningarlögum.
Konan gagnrýndi einnig reglur
um atvinnuleyfi útlendinga sem
veitt eru vinnuveitendum en ekki
fólkinu sjálfu. Margrét Steinars-
Gissur
Pétursson
gegn
inni
Morgunblaðið/Sverrir
a – háskólasjúkrahúsi efndu til fjöldagöngu milli tveggja sjúkrahúsa í Reykjavík til að
mhug og samstöðu með þeim sem slasast hafa alvarlega. Markmiðið var að vekja þjóð-
turs og þess að aka bíl undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
ð gegn umferðarslysum á Akureyri Gengið var frá þyrlupallinum við Fjórðungs-
húsið, niður Þórunnarstræti, suður Glerárgötu og inn á Ráðhústorg.