Morgunblaðið - 27.06.2007, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 27. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
I
ngibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra sagði
eitthvað í þá veruna um
daginn að hún og einhverjir
fleiri íslenskir ráðamenn
þyrftu að fara til Mið-Austurlanda
vegna ástandsins þar. Það var að
vísu óljóst af orðum Ingibjargar
hverju hún vonaðist til að fá áorkað í
slíkri för, en kannski er tilgangurinn
að kenna Ísraelum og Palest-
ínumönnum umræðustjórnmál,
þannig að þeir myndu hætta að
drepa hvorir aðra.
Að minnsta kosti má telja víst að
ef íslenskir ráðamenn fara til Palest-
ínu og láta til sín taka muni ástandið
þar skána; gott ef deilan mun ekki
áreiðanlega leysast við það eitt að
Íslendingar mæta á svæðið.
En alveg án gamans: Áður en
Ingibjörg heldur í Mið-Austur-
landaför þyrfti hún að minnsta kosti
að greina þjóðinni frá því til hvers
hún ætlar að fara slíka för, hverju
hún vonast til að fá áorkað, öðru en
því að kosta miklu til sem að sjálf-
sögðu greiðist úr vasa íslenskra
skattborgara.
Það verður í fljótu bragði ekki séð
að íslenskur utanríkisráðherra muni
verða til annars en trafala í Mið-
Austurlöndum, og slík för myndi
ekki skila öðru en vekja athygli á
umræddum utanríkisráðherra í
heimalandi hans sjálfs. Íslenskir
fjölmiðlar myndu að sjálfsögðu
verða uppfullir af fréttum af Ingi-
björgu í Palestínu, en hún myndi
áreiðanlega ekki komast í erlenda
miðla.
Ein ferð utanríkisráðherra ör-
þjóðar skiptir nákvæmlega engu í
svo stóru samhengi sem Palest-
ínudeilan er. Að halda eitthvað ann-
að er í besta falli barnaskapur, en í
versta falli stórmennskubrjálæði.
En Ingibjörg Sólrún er alls ekki
eini íslenski ráðamaðurinn sem virð-
ist telja að Ísland geti skipt sköpum
á alþjóðavettvangi. Alltaf öðru hvoru
má sjá í fjölmiðlum – nú síðast í
Morgunblaðinu fyrir viku eða tveim
– fréttir af framboði Íslands til ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Ég held að ég fylgist ágætlega
með fréttum, en það hefur alveg far-
ið framhjá mér hver tilgangurinn
með öryggisráðsframboðinu er, og
ekki hef ég heldur séð í þessum
fréttum stakt orð um hvernig þetta
framboð kom til. Hvernig kviknaði
þessi stórbrotna hugmynd?
Fregnir af framboði Íslands til
ráðsins eru meira eins og fréttir af
gengi íslensks íþróttaliðs á erlendu
stórmóti, eða í Evróvisjón. Hvaða
lönd eru helstu keppinautarnir og
hvernig er „strategían?“ Hvað þarf
að tryggja mörg atkvæði – duga
128? – og hvernig verður best farið
að því?
Það sem ég hef saknað úr umfjöll-
un fjölmiðla um þetta framboð eru
útlistanir á tilganginum með því,
ástæðunum fyrir því og upptök-
unum að því. En fjölmiðlar láta eins
og þessir þættir séu allir útræddir
og ekki lengur um þá deilt. Eins og
allir séu sammála um að það sé sjálf-
sagður hlutur að Ísland reyni að
komast í öryggisráðið.
En um öryggisráðsframboð ríkir
ekki sama eindrægnin meðal þjóð-
arinnar og þátttöku í Evróvisjón.
Þess vegna verða fjölmiðlar að
spyrja þessara spurninga og fá svör
ráðamanna við þeim í hvert sinn sem
fjallað er um málið. Einungis þannig
geta lesendur sjálfir fellt dóma um
það hvort þeir telji rétt að Ísland
standi í þessu framboði. Ef ekki er
fjallað um þessa þætti lítur helst út
fyrir að fjölmiðlar séu þátttakendur
í heldur ljótum leik ráðamanna, að
komast í ráðið hvað sem þjóðin taut-
ar og raular.
Ég vil taka það fram að ég er alls
ekki skilyrðislaust mótfallinn því að
Ísland bjóði fram til öryggisráðsins.
En þar sem ekki blasir beint við
hvaða erindi við getum átt á þann
vettvang – eins og aftur á móti blasir
við að við eigum erindi í til dæmis
heimsmeistarakeppnina í handbolta
– sakna ég nánari útskýringa. Ann-
aðhvort frá utanríkisráðuneytinu
eða fjölmiðlum.
Hver er tilgangurinn með fram-
boði til öryggisráðsins? Að hafa
áhrif á alþjóðavettvangi? Gæta
hagsmuna Íslands í ráðinu? Hverjir
eru þá þeir hagsmunir? Eða er til-
gangurinn kannski frekar að vekja
athygli á Íslandi á alþjóðavettvangi?
Eða að gefa íslenskum ráða- og
embættismönnum tækifæri til að
sitja alþjóðafundi þar sem teknar
eru ákvarðanir um heimsmál á borð
við kjarnorkudeiluna við Íran?
Hver er ástæðan fyrir þessu
framboði? Er talið að fulltrúar Ís-
lands gætu haft áhrif á ákvarðanir
öryggisráðsins? Er talið einsýnt að
ráðið hafi ekki verið eins skilvirkt og
það gæti verið og þyrfti að vera, og
að þörf sé á íslenskri athafnagleði og
skipulagshæfni til að breyta því?
Eða er ástæðan fyrir framboðinu sú,
að íslenska utanríkisþjónustan vill
vekja á sér athygli hér innanlands
og sýna og sanna fyrir þjóðinni að
utanríkisþjónusta skipti máli – því
að það er jú augljóst að þjóðin hefur
alvarlegar efasemdir um það.
Hvað er langt síðan farið var að
ræða um framboð Íslands til örygg-
isráðsins? Hver voru upphaflega
rökin fyrir því að fara í slíkt fram-
boð? Hvenær fór málið af umræðu-
stigi og á framkvæmdastig? Er enn
hægt að hætta við framboðið?
Það gertur varla verið að sæti í ör-
yggisráðinu sé nauðsynlegt til að
tryggja utanríkishagsmuni Íslands.
Þeir hagsmunir eru í raun og veru
fólgnir í því einu að falla ekki í ónáð
hjá Bandaríkjamönnum. Tryggja
þarf að við séum í náðinni hjá þeim,
þá er utanríkishagsmunum okkar
borgið. Þetta hafa ráðstafanir ís-
lenskra stjórnvalda margoft sýnt og
sannað, nú síðast þegar við vorum
sett í hóp hinna staðföstu.
Enda sagði Nicholas Burns, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, fyrir skömmu er hann var
inntur álits á öryggisráðsframboði
Íslands, að honum litist vel á það. Úr
frekari orðum hans mátti lesa að
hann gerði ráð fyrir að fengju Ís-
lendingar sæti í ráðinu yrðu þeir þar
þægir og góðir, og hlýðnir við
Bandaríkamenn. Það er að segja,
sæti Íslands í öryggisráðinu myndi í
rauninni ekki vera annað en auka-
atkvæði fyrir Bandaríkin þar.
Hlýðnir
Íslendingar
»Úr frekari orðum hans mátti lesa að hanngerði ráð fyrir því að fengju Íslendingar sæti í
ráðinu yrðu þeir þar þægir og góðir, og hlýðnir við
Bandaríkjamenn. Það er að segja, sæti Íslands í
öryggisráðinu myndi í rauninni ekki vera annað
en aukaatkvæði fyrir Bandaríkin þar.
BLOGG: kga.blog.is
Kristján G. Arngrímsson
NÝLEGA hafa borist fregnir af
einhverjum víðtækustu aðgerðum
gegn barnaníðingum á Netinu sem
sögur fara af. Eftir að hafa fengið
ábendingu frá kanadísku lögregl-
unni handtók sú
breska í sept-
embermánuði sl. mann
sem starfrækti vefmiðil
er bauð upp á beina út-
sendingu af kynferð-
islegu ofbeldi á börn-
um. Undanfarna 10
mánuði hafa svo lög-
regludeildir í 35 ríkjum
samræmt aðgerðir sín-
ar gegn öllum þeim
700 einstaklingum sem
náðist að tengja við
umrædda vefsíðu, með
þeim árangri að tekist
hefur að frelsa 31 barn
undan kvölurum sínum.
Lögregludeildin sem sér um
þessa aðgerð í Bretlandi heitir
Child Exploitation and Online Pro-
tection Centre (CEOP) eða Mið-
stöð gegn barnaníði og fyrir
öruggri netnotkun. Til hennar var
stofnað fyrir rúmu ári og vinnur
hún í nánu samstarfi við barna-
verndar- og íþróttasamtök, tölvu-
og fjarskiptafyrirtæki og viðeig-
andi ráðuneyti. Einnig vinnur hún
náið með „netlöggum“ í öðrum
löndum undir hattinum Virtual
Global Taskforce (VGT). Helstu
aðilar í því samstarfi eru:
The National Child Exploita-
tion Coordination Centre
(NCECC) sem þýða má laus-
lega sem kanadísku samræm-
ingarmiðstöðina gegn barna-
níði.
The Australian Federal Po-
lice Online Child Sex Exp-
loitation Team (OCSET),
deild áströlsku alríkislögregl-
unnar gegn kynferðislegu of-
beldi barna með aðstoð Nets-
ins.
Operation Predator sem er
hluti af bandaríska heima-
varnaráðuneytinu og vinnur á
sama sviði og hinar fyrr-
greindu.
Alþjóðalögreglan Interpol.
Eitt af samstarfsverkefnum
þessara stofnana er svonefnd PIN-
aðgerð sem felst í
því að leggja gildru
fyrir notendur
barnakláms. (Í flest-
um tilfellum er auð-
vitað réttara að tala
um ofbeldi en notkun
í þessu sambandi.)
Ætli maður inn á
slíka vefsíðu birtist
honum tilkynning á
tölvuskjánum um að
hann hafi gerst sek-
ur við lög og að þeim
gögnum sem hægt sé
að afla um hann
verði komið áleiðis
rétta boðleið. Gildi slíkra aðgerða
er þó umfram allt að letja fólk í að
skoða myndir og myndskeið af
kynferðislegu ofbeldi á börnum og
tryggja að enginn geti talið sig
vera í öruggu skjóli við þá iðju
sína.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Svonefnd Pin-aðgerð hefur því
umfram allt fyrirbyggjandi áhrif
en þau geta ekki talist vera síður
mikilvæg en aðgerðir til þess að
stöðva brot sem þegar viðgangast.
Það er einkum á spjallrásum á
Netinu sem barnaníðingar reyna
að komast í kynni við börn og ung-
menni og vinna trúnað þeirra.
CEOP skipuleggur námskeið í
breskum skólum sem nefnist Thin-
kUKnow þar sem nemendum er
kennt hvernig þeir geta notað Net-
ið með öruggum hætti og brugðist
við skilaboðum frá ókunnugum á
þroskaðan og ábyrgan hátt. Enn
fremur er nemendum leiðbeint um
hvers konar tilvik sem þeir kunna
að lenda í eða verða vitni að sem
rétt er að tilkynna og hvert þeir
geti leitað með slík erindi.
Það er einlæg von undirritaðs að
sem fyrst verði farið að uppfræða
nemendur í íslenskum skólum um
viðbrögð af þessum toga. Þess
verður vonandi ekki langt að bíða
enda virðast yfirvöld hér á landi í
vaxandi mæli vera að gera sér
grein fyrir alvöru málsins. Lög-
reglustjóri höfuðborgarsvæðisins
hefur þannig úttalað sig um málið
nýlega og einnig má nefna að
dómsmálaráðherra sótti nýverið
fund norrænna kollega þar sem
vernd barna var helsta umræðu-
efnið. Þar var sérstaklega rætt um
leiðir til að koma í veg fyrir að
Netið væri notað sem vettvangur
til að lokka börn til kynferðislegs
sambands og hvaða refsireglur
dygðu til þess að sporna við því.
Framhald verður á málinu því ætl-
unin er að ríkislögreglustjórar á
Norðurlöndum ræði á næsta fundi
sínum sameiginlegar aðgerðir gegn
ofbeldi á börnum á Netinu. Dóms-
málaráðherrar Norðurlanda munu
svo aftur funda um málið í desem-
ber í Ósló.
Allt er þetta fagnaðarefni og til
marks um að stjórnvöld eru loks
að vakna af dvala og gera sér
skyldur sínar í þessum efnum ljós-
ar. Sama gera vonandi fjölmiðlar,
fræðsluyfirvöld og aðrir sem málið
varðar. Hvað verður svo um eft-
irlegukindurnar, bæði einstaklinga
og samtök sem ætluðu að hrökkva
af hjörunum þegar undirritaður
hreyfði þessu máli fyrr á árinu, má
einu gilda.
Netlögregla hindrar kynferð-
islegt ofbeldi gegn börnum
Steingrímur J. Sigfússon skrif-
ar um varnir gegn barnaklámi » Það er einlæg vonundirritaðs að sem
fyrst verði farið að upp-
fræða nemendur í ís-
lenskum skólum um við-
brögð af þessum toga.
Steingrímur J.
Sigfússon
Höfundur er formaður Vinstrihreyf-
ingarinnar – græns framboðs
ÞÓR HF | REYKJAVÍK : Ármúla 11 | Sími 568-1500 | AKUREYRI: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Nú er rétti tíminn til að kaupa SENTINEL garðtraktor
Á BETRA VERÐI!
12,5 ha Briggs & Stratton mótor
102 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
5 hraða skipting.
169.000,-
15,5 ha Briggs & Stratton mótor
102 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
vökvaskipting.
209.000,-
17 ha Briggs & Stratton mótor,
107 cm sláttubreidd, hliðarfrákast.
vökvaskipting
239.000,-
12,5 ha Briggs & Stratton mótor
76 cm sláttubreidd, afturkast
5 hraða skipting, grassafnari.
199.000,-
18 ha Briggs & Stratton mótor
107 cm sláttubreidd, hliðarfrákast
vökvaskipting.
279.000,-
18 ha garðtraktorinn
er með stýri á öllum
hjólum.