Morgunblaðið - 28.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 174. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
KARLAHEIMUR
ER EIN KONA BETRI EN ENGIN VIÐ
STJÓRNUN FYRIRTÆKJA? >> VIÐSKIPTI
HANNAR TANGÓSKÓ
OG REKUR DANSHÚS
TANGÓ
Í ARGENTÍNU
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
MEÐ nýjum vinnubrögðum við heyskap eru
bændur að leita leiða til að lækka kostnað við
framleiðsluna og búa sig undir harðnandi
samkeppni. Þetta segir Finnbogi Magnús-
son, framkvæmdastjóri Jötunn véla á Sel-
fossi, en hann þekkir vel hverju bændur velta
fyrir sér í sambandi við vélvæðingu í hey-
skap.
Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá nýrri
heyskapartækni sem byggist á því að saxa
heyið mjög smátt og geyma það í útistæðum
undir plasti. Í dag eru fast að 90% af öllu heyi
bænda geymd í rúllum eða stórböggum sem
pakkað er í plast. Kostnaðurinn við plastið
hefur aukist ár frá ári og meðalstór kúabú
þurftu í fyrrasumar að kaupa plast fyrir 300-
400 þúsund krónur.
Runólfur Sigursveinsson, búfjárráðunaut-
ur á Suðurlandi, segir að kostnaður við hey-
skap sé sá liður í útgjöldum bænda sem þeir
geti náð mestri hagræðingu í. Raunar verði
þeir að spara í þessum lið ef þeir ætli að
standast samkeppni. Kostnaður við heyskap
sé t.d. miklu meiri hér á landi en í Danmörku.
Hann segir að danskir bændur hafi aldrei
farið út í rúlluheyskap í neinum verulegum
mæli vegna þess að þeir hafi hreinlega ekki
tímt því.
Verktakar sjá um heyskap fyrir Dani
En það er annar stór munur á því hvernig
íslenskir og danskir bændur stunda heyskap.
Í Danmörku sjá verktakar nær alfarið um
heyskap fyrir bændur. Danskir bændur telja
of dýrt að kaupa vélar sem þeir nota aðeins
nokkrar vikur á ári. Hér á landi hafa í nokkur
ár verið til verktakar sem fara á milli búa og
rúlla heyi. Það er ennfremur ljóst að fari
bændur hér á landi að geyma hey í útistæð-
um, líkt og gert er í Danmörku, verður það
aðeins gert með því að bændur taki saman
höndum eða verktakar sjái um heyskapinn.
Ástæðan er sú að vélarnar eru svo dýrar.
Magnús Eggertsson, bóndi í Ásgarði í
Reykholtsdal, er einn þeirra sem keypt hafa
vélar til að verka í útistæði. Hann hefur tvisv-
ar farið til Danmerkur til að kynna sér
hvernig þarlendir standa að heyskap. Hann
segir tilganginn með þessari nýju aðferð vera
að lækka kostnað og einnig séu menn að von-
ast til að fóðrið verði betra með því að saxa
grasið meira niður. Magnús er, eins og fleiri
viðmælendur blaðsins, sannfærður um að
heyskap eigi í auknum mæli eftir að verða
sinnt af verktökum.
Dæmi um kostnað við heyöflun á meðalbúi
er 25 kr. á fóðureiningu og ef bónda tekst að
lækka þennan kostnað um fimm kr. hefur
honum tekist að spara eina milljón.
Morgunblaðið/Sverrir
Plast Meðalbú kaupir rúlluplast fyrir 300-
400 þúsund kr. og verðið hækkar enn.
Herma eft-
ir Dönum
Bændur láta verktaka
sjá um heyskapinn
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SJÖ BÖRN hafa verið nálægt drukknun í sund-
laugum landsins undanfarin þrjú ár. Forstöðu-
maður Forvarnarhúss Sjóvár telur stefna í óefni
og grunar að víða sé pottur brotinn þegar kemur
að því að fylgja öryggisreglum – ekki síst á
landsbyggðinni. Dæmi eru um að einn starfs-
maður sinni öllum störfum á sundstað þrátt fyrir
að gestir séu á fimmta hundrað.
Í kjölfar þess að fjögur börn hafa verið nærri
drukknun á sundstöðum það sem af er ári hafa
vaknað umræður um öryggisatriði við laugarn-
ar. Á undanförnum dögum hafa nokkrir starfs-
menn sundstaða haft samband við Herdísi
Storgaard, forstöðumann Forvarnarhúss Sjó-
vár, vegna þessa og lýst aðstæðum.
„Menn eru hreinlega að segja mér að þeir séu
jafnan einu starfsmennirnir á sundstöðum í sínu
sveitarfélagi. Í reglum um öryggi á sundstöðum
og við kennslulaugar segir hins vegar að þar eigi
jafnan að vera einn starfsmaður sem sinni laug-
argæslu, þ.e. þegar um er að ræða minni sund-
laug – það þýðir 100% eftirlit með gestum,“ seg-
ir Herdís sem telur það óhugsandi ef
starfsmaður þarf að ganga í öll störf. „Spurn-
ingar sem fylgja eru því oftast nær um hvar
ábyrgðin liggi ef eitthvað kemur fyrir.“
Herdís nefnir jafnframt dæmi um að liðna
helgi hafi einn starfsmaður verið við gæslu við
sundlaug þar sem komu um fimm hundruð gest-
ir. Það segir hún algjörlega ótækt og bendir á að
þó svo að oft geti heppnin bjargað sé hún ekki
alltaf með í för.
Reglurnar til endurskoðunar
Sveitarfélögin bera ábyrgð á sundlaugum sín-
um og ljóst er að gera þarf skurk í eftirliti með
sundstöðum. Herdís telur að ástandið sé tölu-
vert skárra á stór-höfuðborgarsvæðinu en á
landsbyggðinni þó svo að ekki sé hægt að alhæfa
um það. Hins vegar hefur miklu fjármagni verið
varið í öryggisþætti sundstaða á höfuðborgar-
svæðinu.
Öryggisreglurnar voru settar árið 1994, end-
urskoðaðar 1999 og eru aftur til endurskoðunar
um þessar mundir. Herdís sat í öryggisnefnd-
inni árið 1999 líkt og núna og segir ekki fara á
milli mála hvaða öryggiskröfur eru gerðar til
rekstraraðila sundlauga. Til að mynda skal alla
vega einn laugarvörður fylgjast með 25 m sund-
laug en alla vega tveir verðir ef um er að ræða
50 m laug eða stærri. | 4
Einn gætti 500 sundgesta
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Öryggi Stórherða þarf eftirlit á sundstöðum.
Í HNOTSKURN
»Í reglum um öryggi á sundstöðumkemur fram að þurfi laugarvörður
að víkja frá skuli hann fá hæfan ein-
stakling sem lokið hefur skyndihjálp-
arnámskeiði til að leysa sig af.
»Ef enginn með tilskilin réttindi er til-tækur til afleysinga, skal laugar-
vörðurinn kalla alla úr lauginni og loka
henni.
Forstöðumaður Forvarnarhúss telur ekki farið að reglum á sundstöðum
Ástandið verst á landsbyggðinni en viðunandi á höfuðborgarsvæðinu
LÍFLEGT uppboð var haldið í Loð-
mundarfirði í gær þar sem jörðin
Stakkahlíð var slegin hæstbjóðanda,
Þorsteini Hjaltested, á 60 milljónir.
„Þetta er einn af fáum eyðifjörðum
sem eftir eru og einstakur að því
leyti,“ segir Þorsteinn þegar hann er
inntur eftir því hvernig áhugi hans er
til kominn. „Jörðin er yfir 2.000 hekt-
arar og þarna í firðinum er silungs-
veiði, hreindýr og æðarvarp.“
Stakkahlíð hefur fram að þessu verið í eigu sömu ættar í 111 ár, en frá
því 1967 heSfur hún verið í eyði. Tilraun var gerð til þess að reka þar
ferðaþjónustu, en síðan var ákveðið að selja jörðina og skipta andvirðinu á
milli eigenda. Einn þeirra, Stefán Hlíðar Jóhannsson, segir að fjölskyldu-
meðlimir hafi boðið í en verið sífellt yfirboðnir. „Við verðum að kyngja því.
Það hafa allir rétt á því að bjóða,“ segir Stefán.
Ófært er til Loðmundarfjarðar mestan part ársins nema sjóleiðina, en
hægt er að komast þangað á fjórhjóladrifnum bíl yfir hásumarið.
Jörð í eyðifirði slegin
á sextíu milljónir
Morgunblaðið/Einar Falur
Seld Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
GORDON Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands og eiginkona
hans, Sarah, í Downing-stræti 10 í gær. Brown hét því að „hlusta
og læra“ og byggja upp traust á stjórnvöldum. | Miðopna
Reuters
Nýtt fólk í númer 10
Réttur dagsins
Engjaþykkni “crème de la crème”
borið fram með hnetu-, karamellu- og kornkúlu-mélange
Nýtt bragð