Morgunblaðið - 28.06.2007, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það þýðir ekkert að kalla á Hafró, skipper, „may day, may day“ er eina vonin.
VEÐUR
Á nýrri öld fer stjórnmála-umræðan að drjúgum hluta
fram á blogginu. Og úrslit kosninga
geta ráðist þar.
Um leið og auðveldara verður fyr-ir almenning að taka virkan
þátt í umræðu um stjórnmál verður
áhuginn meiri. Slík skoðanaskipti
eru grunnurinn sem lýðræðið bygg-
ir á. Og stjórnmálamenn sem ná að
fóta sig á þessum
vettvangi hafa
forskot á aðra.
Það kom fram íviðtali við
Össur Skarphéð-
insson í Morg-
unblaðinu að
hann þakkaði
blogginu að hann
hefði náð aftur styrk á hinum póli-
tíska vettvangi eftir tapið fyrir
Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í
formannskjöri Samfylkingarinnar.
Eftir á að hyggja held ég aðbloggið hafi skapað mér miklu
sterkari stöðu en ég hefði náð með
því að ráfa einn míns liðs utan
bloggheima. Ég held að ég hafi náð
gríðarlegum ósýnilegum tengslum
við fólk; það hafi kynnst mér með
öðrum hætti og séð í því birtast
mann sem var ekki beygður. Það er
mikilvægt fyrir mann sem hefur
beðið mikið tap að bogna ekki og
halda sjálfsvirðingu. Bloggið sýndi
að ég var sprelllifandi og lífsglaður.
Enginn lifir af tap nema vera lífs-
glaður. Og ég hélt lífsgleðinni.“
Kannski felst styrkur Össurar íþví að hann er óhræddur við að
deila með öðrum tilfinningum sín-
um – stíga fram með „innvolsið“
úti.
En það er athyglisvert að aðeinstæpur helmingur þingmanna er
með heimasíðu og einungis fjórð-
ungur hefur skrifað færslu í júní.
Á meðan þeir þegja talar þjóðin um
stjórnmál.
STAKSTEINAR
Össur
Skarphéðinsson
Bloggið og stjórnmálamenn
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!"
:
*$;<
!
"
# !
$
% & '
'
"
*!
$$; *!
# !$ %
$
& '" ('
=2
=! =2
=! =2
# &% ) *+',
<2>
62
-
' !
$%' ' ! './',
("'$ 0
*
;
1% '%
,2 !0
3
, $
$ 4
4
.
("'
! 05" "' 0
=7
1%$
"
.
'
/'"$
''4
( 0
1 . .
/'" 62!'77 '"!3
'"')
3'45 ?4
?*=5@ AB
*C./B=5@ AB
,5D0C ).B
0
.
.
0
0
0
0
0
0 0
0 0
4
4
0
4
4
0
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Guðfinnur Sveinsson | 27. júní 2007
Meiri viðbjóðurinn
Aðeins fyrir 30 árum
ætlaði leyniþjónusta
Bandaríkjanna að ráða
þjóðarleiðtoga af dög-
um.
Meiri viðbjóðurinn.
Auðvitað geri ég
mér grein fyrir því að við verðum að
reyna að eiga góð samskipti við öll
ríki, og sérstaklega nágranna okkar,
en þegar ég les svona fréttir þá fæ
ég alveg uppí kok af nágrönnum
okkar í vestri.
Meira: gudfinnur.blog.is
Anna K. Kristjánsdóttir | 27. júní 2007
27. júní er
góður dagur!
27. júní 1996 fengu
samkynhneigðir ýmis
réttindi sem þeir höfðu
ekki haft áður og tíu
árum síðar voru rétt-
indi þeirra færð enn
nær réttindum annarra þjóðfélags-
hópa. Því er 27. júní einnig góður
dagur fyrir samkynhneigða.
27. júní 2007 hætti Tony Blair sem
forsætisráðherra Englands.
Meira: velstyran.blog.is
Breki Logason | 27. júní 2007
Takk, Herra Örlygur!
Fór á Nasa í gær og sá
tónleika sveitarinnar
The Raptures. Verð nú
að viðurkenna að ég
þekkti bandið sama og
ekki neitt. En nóg til
þess að drífa mig á
Nasa.
Og tónleikarnir voru líka svona
svakalega fínir. The Raptures eru
frá New York og spila tónlist sem er
í raun mjög frumleg. Trommari,
bassaleikari, hress gítarleikari og
síðan svona „Jens Hansson“ týpa
sem spilaði á allt. Tónlistinni má lýsa
sem danstónlist með flottu gítar/
rokk ívafi. Það er erfitt að lýsa
þessu. En ég var að fíla þetta.
Það var nú ekkert troðið en þó var
svona 15 manna vinahópur fremst
upp við sviðið sem hélt uppi stuðinu.
Söngvarinn tók nokkur „crowd-surf“
og virtist liðsmönnum sveitarinnar
líka móttökurnar.
Meira: brelog.blog.is
Auður H. Ingólfsdóttir | 27. júní 2007
Samviskan friðuð –
eða hvað?
Jæja, þá er ég búin að kolefnisjafna
bílinn minn fyrir þetta ár. Komin
með sérstaka kvittun upp á það.
Samviskan friðuð í bili
– eða hvað? Er lausnin
fundin með töfraorðinu
„kolefnisjöfnun“?
Til að kolefnisjafna
bílinn minn þurfti ég
að borga 6.916 krónur
til að vega upp á móti 4,9 tonna losun
koldíoxíðs. Ég á fremur sparneytinn
bíl, Susuki Ignis, sem fær ein-
kunnina C í eyðslueinkunn á vef
Orkusetursins. Á móti kemur að ég
keyri frekar mikið. Fyrir nokkrum
árum flutti ég út á land. Nátt-
úruunnandinn í mér vildi komast úr
þéttbýlinu. Um leið breyttust akst-
ursvenjur úr um 8.000 km á ári upp í
24.000 km á ári. Svona er maður
fljótur að komast í mótsögn við
sjálfa sig – þessi sama ást á nátt-
úrunni og dregur mig úr borginni er
þess nú valdandi að ég ber ábyrgð á
þrisvar sinnum meiri losun gróð-
urhúsalofttegunda en áður!
En aftur að kolefnisjöfnuninni. Er
ég núna kvitt? Er ég búin að bæta
fyrir allar mínar syndir með afláts-
bréfinu? Einn góður umhverfisvinur
hafði samband við mig vegna nýlegr-
ar færslu um kolefnisbindingu og
fannst ég gera þessari lausn fullhátt
undir höfði. Ég tók reyndar fram að
þetta væri umdeild leið og aðeins ein
af mörgum til að takast á við það
verkefni að draga úr styrk gróð-
urhúsalofttegunda í andrúmslofti.
En það er fyllsta ástæða til að nefna
það hvers vegna kolefnisbinding er
umdeild leið:
1. Kolefnisbinding tekur ekki á
meginorsök vandans, sem er bruni
jarðefnaeldsneytis, heldur reynir að
bæta fyrir eftir á. Eins og að setja
plástur á sárið. Aðaláherslan þarf
eftir sem áður að vera á leiðir sem
miða að því að draga úr losun.
2. Mjög flókið er að reikna út
hversu mikil binding á sér stað í
raun og veru. Þetta eru gífurlega
flókin vísindi sem ég fer ekki nánar
út í hér en get þó nefnt hluti eins og
bindistuðla, núvirðingu, plöntuteg-
undir og jarðvegsgerð.
3. Það vantar tryggingu fyrir að
hinn nýi gróður lifi af og haldi áfram
að binda kolefni næstu áratugi.
Hvað ef plönturnar deyja í slæmu
árferði? Hvað ef kemur eldgos með
tilheyrandi öskufalli og kæfir ungar
plöntur?
4. Landeyðing er vandamál á Ís-
landi og mikill gróður hefur tapast í
gegn um aldirnar. Landgræðsla og
skógrækt geta því verið jákvæð
vegna ástæðna sem koma kolefn-
isbindingu ekkert við. En allt er gott
í hófi – líka skógrækt.
Meira: aingolfs.blog.is
BLOG.IS
Taktu þátt og safnaðu
stimplum hjá Olís.
Glæsilegir vinningar í boði!
Við höldum með þér!