Morgunblaðið - 28.06.2007, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
BÚIÐ er að veiða rúmlega 17% kvót-
ans í íslenskri lögsögu af norsk-ís-
lensku síldinni eða hátt í 30.000 tonn
af 148.629 tonna kvóta en auk þess
má veiða 34.560 tonn í norskri lög-
sögu í ár og þar mega mest vera 15
skip að veiðum í einu. Síldveiðiskip-
unum fjölgar jafnt og þétt á miðun-
um og í gær voru fimm skip að veið-
um grunnt út af Héraðsflóa, tvö á
leiðinni á miðin og að minnsta kosti
tvö að landa.
Mest í bræðslu
Guðmundur VE landaði um 680
tonnum af frystri síld í Neskaupstað í
gær en daginn áður landaði skipið
sama magni af úrgangi til bræðslu á
Þórshöfn. Sigurður VE hefur veitt
rúmlega 7.000 tonn í nót og hefur all-
ur aflinn farið í bræðslu á Þórshöfn.
Þorsteinn VE, þriðja skip Ísfélags
Vestmannaeyja á síldveiðunum, fór í
fyrsta túrinn í lok liðinnar viku og var
aflinn orðinn um 300 tonn í gær.
Sigurður VE hefur verið á síld-
veiðum frá því fyrir sjómannadag og
Guðmundur VE var að koma úr
fyrsta túr.
Eskja hf. á Eskifirði gerir út eitt
skip á síldveiðarnar, vinnsluskipið
Aðalstein Jónsson SU. Veiðarnar
hófust seinni partinn í maí og hefur
skipið landað fjórum sinnum, alls um
2.000 tonnum af frystum afurðum og
öðru eins í bræðslu.
Þokkalegur markaður
Haukur Björnsson, framkvæmda-
stjóri Eskju, segir að veiðarnar hafi
gengið prýðilega. Síldin hafi veiðst á
stóru svæði innan íslensku lögsög-
unnar út af Austfjörðum, stundum
norður af Langanesi, stundum sunn-
ar og stundum út af Rauðatorgi, en
skipið sé næst væntanlegt inn til
löndunar um helgina.
Að sögn Hauks er góður markaður
fyrir sæmilega stór þök en heldur
þyngri með smærri flökin. Töluverð
áta er í síldinni en Haukur segir að
þegar hægt verði að heilfrysta stærri
þökin bíði þeirra góður markaður.
Þegar á heildina sé litið megi því
segja að markaðurinn sé þokkalegur.
Skinney-Þinganes hf. á Höfn er
með tvö skip á síldveiðum, Jónu Eð-
valds SF og Krossey SF. Hermann
Stefánsson framleiðslustjóri segir að
lítið hafi verið um að vera og veiðin
frekar döpur. Skipin hafi veitt á milli
7.000 og 8.000 tonn og hafi nær allur
aflinn farið í bræðslu.
Um fimmtungur
síldarkvótans veiddur
Misjafn gangur á veiðum úr norsk-íslenska stofninum
Ljósmynd/Kristín Ágústsdóttir
Löndun Ómar Sverrisson, löndunarstjóri hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, við löndun úr Þorsteini ÞH í gær.
FRIÐRIK J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir lítið nýtt
í skýrslu Hagfræðistofnunar.
„Hún byggist á því að það þurfi
að minnka veiðarnar skarpt til að
byggja stofninn sem hraðast
upp.“ Hann segir spurninguna
enn snúast um hversu hratt sé
hægt að byggja stofninn upp.
„Við höfum sagt að við sjáum
ekki forsendur til að skera þetta
jafn mikið niður og Hafrann-
sóknastofnun leggur til og það
þýðir náttúrlega að það mun taka
lengri tíma að byggja upp. Þetta
yrði einfaldlega svo rosalega mik-
ið högg.“
Vill hægari
uppbyggingu
þorskstofns
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Barmur
ehf. á Húsavík fékk nú í vikunni af-
hentan nýjan línubeitningavélbát frá
Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnar-
firði. Að útgerðinni stendur Ingólfur
Árnason.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið
Sigrún Hrönn ÞH 36 og leysir af
hólmi tvo minni Cleopatra-báta sem
báru sömu nöfn. Nýi báturinn er 15
brúttótonn og 11,9 brúttórúmlestir
og er í krókaaflamarkskerfinu.
Báturinn er með yfirbyggðu vinnu-
dekki. Línubeitingarvél og rekka-
kerfi af gerðinni Mustad frá Sjó-
vélum hf. Línu og færaspil eru frá
Sjóvélum. Aðalvél bátsins er af gerð-
inni Volvo Penta D12 715 hestöfl
tengd ZF gír.
Báturinn er útbúinn siglingatækj-
um af gerðinni Furuno frá Brimrún.
Báturinn er einnig útbúin með
hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýr-
ingu bátsins. Öryggisbúnaður báts-
ins kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12 660 lítra kör í
lest. Í bátnum er upphituð stakka-
geymsla. Borðsalur er í brúnni auk
stóla fyrir skipstjóra og tvo skip-
verja. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúk-
ar auk eldunaraðstöðu með eldavél,
örbylgjuofns og ísskáps.
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Eigendur Húsvíkingarnir Ingólfur Árnason, Freyja Eysteinsdóttir og
Sigmar Ingólfsson, sonur þeirra, sem starfar við útgerðina.
Ný yfirbyggð
Cleopatra 38
til Húsavíkur
Nýtt skip Línubeitningavélbátur-
inn Sigrún Hrönn ÞH.
SJÁVARÚTVEGRÁÐUNEYTIÐ
hefur samþykkt sérstök skilyrði
vegna úthlutunar aflaheimilda í
Grundarfjarðarbæ, Fjarðabyggð,
Strandabyggð, Norðurþing, Gríms-
eyjarhreppi, Seyðisfirði og Vopna-
fjarðarhreppi.
Í Grundarfjarðarbæ fara þrír
fjórðu byggðakvótans, 102,75
þorskígildistonn, í að bæta þeim,
sem höfðu aflahlutdeild í skelfiski í
Breiðafirði, upp samdrátt vegna
banns við skelfiskveiðum á Breiða-
firði.
Sérstök úthlut-
unarskilyrði
♦♦♦
ATVINNUHÚSNÆÐI - TIL SÖLU
ÓSKAST KEYPT
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Ingólfsstræti - glæsilegt skrifstofuhúsnæði
• Á 2. hæð á besta stað í miðbænum.
• Húsnæðinu fylgir stór þakgarður.
• Eignin skiptist í:
2 stórar skrifstofur, opið vinnurými, fundarherbergi, starfsmannaaðstöðu,
salerni, skjalaherbergi og í kjallara er stórt herbergi.
• Heildarstærð er 180 fm.
Bæjarflöt - tæplega 1.900 fm atvinnuhúsnæði
• Þar af eru 400 fm á millilofti.
• Húsið skilast fullbúið að utan á 3.600 fm lóð og tilbúið til innréttinga
að innan.
• Húsið er stálgrindahús frá Atlas Ward.
Hamraborg - glæsilegt verslunar- og skrifstofuhúsnæði
• Húsnæðið er á mjög eftirsóttum stað í Hamraborg, Kópavogi.
• Húsnæðið skiptist á tvær hæðir.
• Annars vegar er um að ræða 140 fm á götuhæð og 170 fm efri hæð.
Selhella í Hafnarfirði - um 4.800 fm nýbygging
• Er á um 8.974 fm lóð við fyrirhugaða stofnleið inn í Vallahverfið í Hafnarfirði.
• Grunnflötur hússins er 2.400 fm og verður húsið tvílyft.
• Skipta má húsinu á fjölbreytilegan hátt.
• Gert er ráð fyrir rúmlega 10 þúsund manna byggð í Vallahverfinu og er
húsið mjög áberandi þegar keyrt er inn í hverfið.
Dalshraun - mikið endurnýjað iðnaðarbil
• Skiptist í mjög rúmgóðan bílskúr og skrifstofurými sem í dag er nýtt sem
íbúð.
• Húsnæðið er mjög snyrtilegt og hentar vel fyrir litla heildsölu eða sem
geymsluhúsnæði.
• Stærð er 108,1 fm.
Garðabær - leigusamningur í 20 ár
• Til sölu 7.200 fm iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á 17.600 fm lóð.
• Leigusamningur til 20 ára.
Urðarhvarf - Kópavogi
• Hafin er bygging á verslunar- og skrifstofuhúsi í Urðarhvarfi.
• Byggingin verður um 15.000 fm að stærð og verður boðin til
leigu eða sölu.
• Frábær staðsetning og glæsilegt útsýni.
300-500 fm húsnæði í miðbæ Reykjavíkur
• Viðskiptavinur okkar hefur óskað eftir því að við útvegum honum 300-500
fm húsnæði í miðbæ Reykjavíkur til kaups.
• Kostur væri ef góð bílastæði væru við húsið.
• Rýmingartími er samkomulag.
• Góðar greiðslur í boði fyrir réttu eignina.
1.500-2.000 fm skrifstofuhúsnæði
• Traust opinber stofnun leitar að 1.500-2.000 fm húsnæði undir
skrifstofurekstur.
• Helst kaup en leiga kemur til greina.
• Afhending þarf að helst vera eigi síðar en í lok árs 2008.
1.500-2.000 fm verslunar-/ 2.000-3.000 skrifstofuhúsnæði
•Traust fyrirtæki óskar eftir 1.500-2.500 fm verslunarhúsnæði
auk þess leitar sama fyrirtæki að 2.000-3.000 fm skrifstofuhúsnæði
sem þarf ekki að vera í sömu byggingu.
•Til greina kemur einnig leiga til lengri eða skemmri tíma.
Mikið er um að til okkar sé leitað um leigu á
skrifstofu og iðnaðarhúsnæði.
Okkur vantar því allar gerðir af slíku húsnæði
á skrá.
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Jónsson lögg. fasteignasali og
Geir Sigurðsson lögg. fasteignasali