Morgunblaðið - 28.06.2007, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kópavogur | Miklar framkvæmdir
standa nú yfir í Kópavogi vegna
Landsmóts Ungmennafélags Ís-
lands, sem þar fer fram dagana 5.-8.
júlí næstkomandi. Ætla má að mikil
mannfjölgun
verði í bænum á
meðan mótið
stendur yfir, en
von er á 3-5 þús-
und keppendum
auk áhorfenda og
annarra óbeinna
þátttakenda og
má í því búast við
að heildarfjöldi
verði á bilinu 10
til 20 þúsund.
Í tilefni Landsmótsins gerðu bæj-
aryfirvöld átak í uppbyggingu
íþróttamannvirkja, og munu bæj-
arbúar uppskera stórbætta aðstöðu í
kjölfar mótsins. Að sögn Gunnars I.
Birgissonar, bæjarstjóra og forseta
landsmótsnefndar, er Landsmótið
mikil hvatning fyrir eflingu íþrótta-
starfsins. „Þetta er mikið til upp-
bygging sem lá fyrir að gera á næstu
2-4 árum, en henni var flýtt vegna
mótsins og lýkur núna í einni strik-
lotu í staðinn.“
Sigurðar Geirdals minnst
Meðal framkvæmda má nefna nýja
stúku við Kópavogsvöll, sem vígð
verður á setningarhátíð mótsins, en
bygging hennar var að hluta til rík-
isstyrkt enda mjög aðkallandi að
stækka þar við, að sögn Gunnars. Við
vígsluna verður landsmótseldurinn
tendraður og jafnframt afhjúpaður
minningarskjöldur með andlitsmynd
af Sigurði Geirdal, fyrrverandi bæj-
arstjóra Kópavogs og fram-
kvæmdastjóra UMFÍ. „Hann var nú
mikill keppnismaður sjálfur og hafði
mikið að segja bæði fyrir bæinn og
ungmennafélagið, svo það er mjög
viðeigandi að heiðra minningu hans
með þessum hætti,“ segir Gunnar.
Auk nýju stúkunnar er verið að
fjölga bílastæðum við íþróttavöllinn
auk þess sem búið er að fjölga sprett-
hlaupabrautum og gera fleiri brautir
fyrir langstökk og þrístökk. Ný tenn-
ishöll var svo vígð í maí síðastliðnum,
með þremur innivöllum sem uppfylla
öll skilyrði til að halda alþjóðleg mót í
tennis, en fyrir voru þrír tennisvellir
utandyra.
Einnig er verið að byggja við
Sundlaug Kópavogs, en þar er um að
ræða almennar betrumbætur sem
koma munu öllum bæjarbúum til
góða. Þar verður ný gufa og renni-
braut, auk barnalaugar og 25 metra
innilaugar.
Knatthöll sem hýsir
allan bæinn
Ein umfangsmesta framkvæmdin
er vafalaust nýja knatthöllin við
Vatnsenda sem verið er að leggja
lokahönd á, en til stendur að vígja
hana um miðjan júlí. Að sögn Gunn-
ars er þessi nýbygging með stærstu
íþróttavöllum á landinu, 1,5 hektarar
að stærð. „Þetta hús er svo stórt að
ef þess þyrfti gætum við haldið nán-
ast allt mótið innandyra,“ segir
Gunnar. Til þess mun þó eflaust ekki
koma, því landsmótsnefndin hefur að
sjálfsögðu lagt inn pöntun um rjóma-
blíðu á meðan Landsmótinu stendur.
Vel gengur að ljúka framkvæmd-
unum og segir Gunnar að allt ætti að
vera tilbúið á tilskildum tíma, fyrir
utan þakið á stúkunni. „Stálið er frá
Kína og átti að vera komið og upp-
sett, en við ljúkum því ekki fyrr en
eftir mótið.“
Í ár verður í fyrsta skipti boðið upp
á þá nýbreytni að keppa í strand-
blaki, en þess utan verða keppn-
isgreinarnar með hefðbundnu lands-
mótssniði, sem þó er nokkuð
óhefðbundið, því það spannar allt frá
körfubolta til pönnukökubaksturs.
Það síðarnefnda flokkast undir
svonefndar starfsíþróttir sem eiga
sér fastan sess á Landsmótinu og
fellur til dæmis dráttarvélaakstur,
gróðursetning og réttritun í þann
flokk, auk þess sem keppt verður í að
leggja á borð. „Þrátt fyrir ung-
mennafélagsandann er ekkert kyn-
slóðabil enda brids og línubeitingar
jafnmikilvægar keppnisgreinar og
hlaupin,“ segir Gunnar sem leggur
áherslu á að allir geti tekið þátt í
Landsmótinu.
Allur bærinn
einn íþróttavöllur
Óhætt er að segja að Kópavogur
verði allur undirlagður ungmenna-
félagsandanum þessa fjóra daga í
júlí, enda verður keppt um allan bæ
en ekki bara í íþróttahúsunum. Með-
al annars er stefnt að því að halda
stærstu sparkvallakeppni frá upphafi
á átta völlum. Keppt verður í golfi á
Vífilsstaðavelli og hestaíþróttum auk
þess sem götur bæjarins verða nýtt-
ar undir allsherjar götuhlaup með
þremur vegalengdum.
Samhliða Landsmótinu verður svo
haldin menningar- og fjölskylduhátíð
sem fram fer bæði í Salnum, á Háls-
atorgi og í Kópavogsdal, þar sem
haldnir verða stórtónleikar á laug-
ardagskvöldinu. Kópavogur verður
því fullur af lífi í byrjun júlí og ættu
allir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Kópavogur verður íþróttabær í júlí
Morgunblaðið/ÞÖK
Sundkappar Þessir strákar sem léku sér í sólinni í Sundlaug Kópavogs munu eins og aðrir bæjarbúar njóta góðs
af framkvæmdagleði bæjarstjórnar. Öll íþróttaaðstaða í bænum verður stórbætt eftir að Landsmóti UMFÍ lýkur.
Landsmótið hefur
hvetjandi áhrif
Í HNOTSKURN
»Framkvæmdirnar í Kópa-vogi eru ekki einsdæmi,
því Landsmótum UMFÍ fylgir
iðulega mikil uppbygging á
þeim stöðum sem mótin eru
haldin.
»Landsmót UMFÍ eru meðfjölmennustu íþróttamót-
um á Íslandi og er mótið í
Kópavogi það 24. í röðinni.
»UMFÍ á 100 ára afmæli í árog verður því m.a. fagnað
á Landsmótinu, sem vonast er
til að verði það stærsta frá
upphafi.
»Skráning er enn opin áheimasíðu Landsmótsins:
www.landsmot.kopavogur.is.
Gunnar I. Birgis-
son bæjarstjóri.
ODDA, Una, Björg og Nanna Björk taka
allar þátt í lestrarnámskeiðinu. „Við ger-
um frekar mikið,“ segir Odda. „Við til
dæmis lesum bækur heima hjá okkur og
svo gerum við eitthvað skemmtilegt sam-
an,“ segir Nanna og bætir við: „til dæmis
fórum við á Iðnaðarsafnið og svo fórum
við í leikhúsið. „Og við fengum að fara á
bakvið í leikhúsinu,“ segir Björg, „það var
mjög gaman.“
Þátttakendurnir ráða sjálfir hvað þeir
lesa mikið og hvaða efni þau lesa. „Ég er
til dæmis búin að vera að lesa Ottó Nas-
hyrning,“ segir Nanna. „Ég er núna að
lesa Syrpuna,“ segir Björg. „Og ég hef
verið að lesa Njálu heima,“ segir Odda.
Aðspurðar hversu mikið þær hafi lesið,
stendur ekki á svörunum: „Ég er að verða
búin með fimmtu bókina á lestrarvik-
unni,“ segir Nanna og tekur fram að þær
hafi allar verið yfir 100 blaðsíður. „Ég
veit ekki hvað ég er búin að lesa margar á
árinu,“ segir Odda, „en ég er nýbúin að
flytja og á eftir að lesa mikið þegar bæk-
urnar mínar eru komnar upp úr kössum.“
Stelpurnar taka vel í það að koma aftur
á námskeiðið að ári: „Þetta er skemmti-
legt námskeið og við mælum með því.“
Morgunblaðið/Hjálmar
Gaman Björg, Una, Nanna Björk og Odda
Júlía láta vel af sumarlestrarnámskeiðinu.
Mæla með
námskeiðinu
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is
SÍÐUSTU þrjár vikur hefur
yngsta kynslóð Akureyringa lesið
sínar uppáhaldsbækur, eða alla-
vega sá hluti hennar sem nú stend-
ur í ströngu við að ná tökum á
lestri. Þó standa skólarnir auðir.
Þannig er að Amtsbókasafnið og
Héraðsskjalasafnið á Akureyri
hafa staðið fyrir sérstöku nám-
skeiði sem nefnist Sumarlestur,
fyrir nemendur 1.-4. bekkjar
grunnskólanna. Haraldur Þór Eg-
ilsson og Ingibjörg Margrét Magn-
úsdóttir bera hitann og þungann af
námskeiðinu: „Við breyttum nám-
skeiðinu í ár,“ segir Haraldur.
„Upphaflega var það þannig að
krakkarnir komu einu sinni í viku í
fjórar vikur, en nú er það orðið að
vikunámskeiði,“ segir Ingibjörg.
„Við höfum semsagt nú orðið fleiri
daga, og höfum lengt dagana, en
samt eru ekki nógu margir klukku-
tónleikar,“ segir Haraldur og hlær.
Fá að skyggnast á bak við
menningartjöldin
Börnin hafa það ekki eingöngu
fyrir stafni að lesa sem mest á
námskeiðinu. Dagarnir hafa farið í
að skoða menningarstofnanir bæj-
arins, til dæmis Leikhúsið, Lista-
gilið og auðvitað Amtsbókasafnið
og Héraðsskjalasafnið.
„Þetta er í raun tvenns konar
lestur sem verið er að þjálfa; ann-
ars vegar að lesa bókmenntir og
hins vegar að lesa menningu og
umhverfi,“ segir Haraldur. „Börn-
unum hefur þótt mjög skemmtilegt
að fara í heimsóknir og fá að sjá
hluti sem aðrir fá venjulega ekki að
sjá, eins og til dæmis geymslurnar
í kjallara bókasafnsins,“ segir Ingi-
björg.
Námskeiðin hafa vakið mikla at-
hygli og jafnvel út fyrir nánasta
umhverfi. Þannig er meðal annars
þátttakandi frá Finnlandi í einum
hópanna. Þátttakan á námskeið-
unum fer sívaxandi en í ár hefur 80
börnum verið skipt upp í þrjá hópa,
þannig að hver hópur tekur þátt í
vikunámskeiði. „Þetta er til dæmis
í fyrsta skipti sem við höfum verið
með krakka úr 3. og 4. bekk af því
þau báðu um að fá að koma aftur,“
segir Haraldur.
Nokkrum börnum hefur þurft að
vísa frá. En hvernig stendur á
þessari miklu þátttöku?
„Ég hef heyrt það frá skólunum
að námskeiðin skili ótrúlegum ár-
angri,“ segir Haraldur. „Já, því
þau missa síður niður lestrarhrað-
ann,“ bætir Ingibjörg við.
Haraldur og Ingibjörg eru sam-
mála um að námskeiðið haldi áfram
og sé komið til að vera. „Það er líka
nauðsynlegt að geta boðið upp á
fjölbreytt námskeið á sumrin, ekki
bara íþróttanámskeið,“ segir Har-
aldur og bætir við að bæjaryfirvöld
mættu huga að því að styðja við
bakið á fleiri námskeiðum fyrir
börn, t.d. tónlistarnámskeið.
Lestrarnámskeiðin slá í gegn
Mikil þátttaka á Sumarlestri Héraðsskjalasafnsins og Amtsbókasafnsins
Börnum kennt að lesa bókmenntir en einnig að lesa menningu og umhverfi
Ljósmynd/Haraldur
Lestrarhestar Börnin hafa ekki bara legið í bókum, heldur líka heimsótt söfn og menningarstofnanir. Á
morgun fer fram sérstök lokahátíð klukkan 14. Þar verða afhentar viðurkenningar og farið í leiki.
Í HNOTSKURN
»Þetta er sjöunda árið semSumarlestur, lestr-
arnámskeið fyrir yngstu
bekki grunnskólanna, er
haldið.
»Krakkarnir velja sjálfirbækur og lesa þær
heima, en á daginn eru
menningarstofnanir bæj-
arins heimsóttar.
Þátttakan eykst á hverju ári,
og ekki komust allir að sem
vildu að þessu sinni. Lokahá-
tíð verður á morgun.
AKUREYRI