Morgunblaðið - 28.06.2007, Síða 20
Ljósmynd:Eduardo Sarapura
Tangó Helen Halldórsdóttir á
tangóstaðnum sínum Bien Pulenta.
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
35stiga hiti, 97% loftraki,sól, kampavín og suð-ræn menning hljómarekki sem lýsing á stað
þar sem íslensk hönnun gæti átt sér-
stakt erindi, þaðan af síður ef hönn-
unin snertir eitt helsta hugðarefni
innfæddra – tangóinn. Þannig er það
nú samt í þetta skiptið enda kannski
viðeigandi því nú fara í hönd köld-
ustu mánuðirnir í höfuðborg Argent-
ínu og getur hitastigið verið svipað
og á Íslandi á þessum tíma árs.
Í Argentínu hefur Íslendingur
einn hreiðrað um sig og heillað inn-
fædda tangóunnendur með tangó-
kennslu sinni og skóhönnun.
Tangóinn togaði
Helen Halldórsdóttir flutti til
Buenos Aires fyrir um tveimur árum
eftir að hafa búið í Svíþjóð í 17 ár en
hún flutti frá Íslandi 1989.
„Upphaflega fór ég til Argentínu
vegna áhuga á landinu og Buenos Ai-
res en ég var búin að ákveða fyrir sjö
til átta árum að flytja til Buenos Ai-
res þó að ég hefði aldrei komið þang-
að áður. Allt sem ég hafði lesið, séð
og heyrt sagði mér að þetta væri mín
borg og það mjög skemmtileg borg
sem hefur upp á allt að bjóða. Tangó-
inn gerði líka sitt í að styrkja mig í að
fara.“
Helen er tangókennari og kennir
Argentínubúum tangó og hefur verið
tekið sérlega vel á móti henni. „Mér
finnst eiginlega meira skrítið en
Argentínubúunum að ég skuli kenna
tangó. Ég rek hér danshús eða
skemmtistaði þar sem fólk hittist til
að dansa tangó og er ég núna með
tvo staði, La Vikinga og Bien Pu-
lenta“ en skólína Helen hefur ein-
mitt fengið heitið La Vikinga. Það er
nafnið sem Helen var gefið strax af
innfæddum og festist það einfaldlega
við hana þar sem það passaði vel.
Hannar skóna sjálf
Helen sem er mannfræðingur að
mennt hannar skóna sjálf. „Í raun
voru það tveir strákar sem eru vinir
mínir, báðir dansarar og þriðji vinur
þeirra sem er skósmiður, sem byrj-
uðu með fyrirtækið Fabioshoes og
hófu að framleiða íþróttaskó fyrir
dans. Ég lét gera skó þar fyrir mig
og var alltaf að koma hugmyndir og
það endaði með því að þeir stungu
upp á því að ég hannaði mína eigin
línu hjá þeim og þannig varð La Vik-
inga til. Síðan þróaðist þetta fyrir
hálfu ári í það að þá langaði til að
framleiða kvenskó og ég hafði verið
að hugsa um það líka og því buðu
þeir mér að gerast meðeigandi og ég
ákvað að slá til. Sú skólína verður
líklega tilbúin í byrjum september.
Núna er ég er með unga franska
stúlku í vinnu sem hefur numið skó-
hönnun og hún hannaði fyrir mig 15
módel eftir mínum hugmyndum og
sú lína mun verða markaðssett undir
nafninu Fabioshoes.“
Argentína hentar vel til skófram-
leiðslu enda gott hráefni á boðstólum
og mikil hefð fyrir leðurvinnslu. Inn-
anlands hefur fatahönnun og tengd-
ur iðnaður verið að aukast og að auki
er handverk mikils metið. „Buenos
Aires er mjög þægileg því íbúarnir
eru svo opnir. Það er ekkert mál að
koma þarna og opna tangóstað t.d.
þó að maður sé kona eða útlendingur
og finnst þeim það frekar jákvætt en
neikvætt,“ segir Helen sem ber
heimamönnum augljóslega vel sög-
una.
Skórnir í La Vikinga-skólínunni
frá Fabioshoes eru handsmíðaðir í
Argentínu og fást í mörgum gerðum,
ýmist háir eða lágir og bæði fyrir
konur og karla. Skórnir kosta 8.590
og 9.490 krónur og henta að sögn
Helen í nánast hvað sem er, hvort
sem það er í dans, veislur eða göngu-
túra.
Hannar tangóskó
og rekur danshús
Úrval Það er mikið úrval af skóm til hjá La Vikinga, fyrir konur og karla.
Heitir Háir hælar fyrir tangódansara skilar sér óvenjulegum skóm sem sóma
sér ekki bara á dansgólfinu, heldur líka við gallabuxur á göngutúr í bænum.
Handsaumað Skórnir í vörulínunni eru allir handsaumaðir í Argentínu.
Flottur Skórnir eru líka til á lægri hæl, fyrir bæði konur og karla.
http://www.svanak.com/isl/
http://fabioshoes.com/
Óvenjulegt Efnis notkun
getur verið nokkuð
óhefðbundin enda úrval-
ið af gæðahráefni í Arg-
entínu mikið.
|fimmtudagur|28. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Hvað er umhverfisvænn bíll? Er
það sama og grænn bíll? Hvaða
bílar geta talist umhverf-
isvænni en aðrir? »22
neytendur
Tremblant er vinalegur bær
ekki langt frá Montreal í Kan-
ada. Þar geta flestir fundið af-
þreyingu við hæfi. »24
ferðalög
Á góðgerðarsamkomu sem formúlukappinn Eddie Jordan og
konan hans Marie McCarthy héldu nýlega til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum var boðinn upp Le Baron hringur hann-
aður af Hendrikku Waage. Hringinn hafði hún gefið til styrktar
málefninu.
Það var Eddie Jordan sjálfur sem keypti hringinn á uppboð-
inu handa konu sinni og reiddi fram sjö þúsund pund sem er
tæplega ein milljón íslenskra króna.
Hringurinn er úr 18 karata hvítagulli með 20 fíngerðum dem-
öntum og stórum ametyst. Hendrikka Waage segir að innblást-
urinn að þessari skartgripalínu sem hún kallar Le Baron hafi komið frá kar-
öflu sem eitt sinn var í eigu
barónsins á Hvítárvöllum, Charles
Gauldr’ee Boileau.
Fallegur Hringurinn er úr 18
karata hvítagulli með demönt-
um og stórum ametyst.
Hringurinn fór á milljón
Eddie Jordan
www.hendrikkawaage.com