Morgunblaðið - 28.06.2007, Page 22
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
A
uglýsingar um „græna“
bíla hafa verið áber-
andi að undanförnu og
eru ýmis bílaumboð
farin að auglýsa sig
sem umhverfisvænan valkost. Sumir
hafa jafnvel gengið svo langt að tala
um „græna“ bílabyltingu í þessu
samhengi og því má spyrja sig hvort
Íslendingar muni næst keppast um
að vera á flottasta vistvæna bílnum.
Ljóst er að vitundarvakning í um-
hverfismálum er farin að gera vart
við sig í samfélaginu og án efa hefðu
margir áhuga á því að kaupa sér
umhverfisvænan bíl þegar horft er
til þess að samgöngur eru einn
stærsti umhverfisþátturinn í lífi sér-
hverrar fjölskyldu. En hvað er um-
hverfisvænn bíll? Er það sama og
grænn bíll? Hvaða bílar á mark-
aðnum geta talist umhverfisvænni
en aðrir?
Þrátt fyrir að margir kaupi þá
hugmynd að það sé góðra gjalda
vert að fjárfesta í „umhverfisvænu“
ökutæki þarf enginn að velkjast í
vafa um það að bílar hafa slæm áhrif
á umhverfið og geta því aldrei talist
umhverfisvænir, að mati Neytenda-
samtakanna.
„Þeir eru allir grænir“, segir bíla-
umboðið Hekla í nýlegri auglýsinga-
herferð sinni á Volkswagen-
bifreiðum. Neytendasamtökin telja
þessa fullyrðingu villandi og hafa
kvartað til Neytendastofu og óskað
eftir þeirra áliti. „Bílar eru langt frá
því að vera „grænir“ ef hugtakið
grænn er skilið sem „umhverf-
isvænn“, eins og berlega er gefið í
skyn í þessari auglýsingaherferð.
Neytendur fá þau skilaboð að
Volkswagen sé grænn bíll þar sem
Hekla ætlar að greiða til umhverf-
issjóðsins www.kolvidur.is svokall-
aða kolefnisjöfnun bílsins í eitt ár.
Neytendasamtökin geta engan veg-
inn tekið undir að það samsvari því
að bíllinn sé grænn eða umhverf-
isvænn. Það velkist enginn í vafa um
það að bílar hafa slæm áhrif á um-
hverfið og geta aldrei talist um-
hverfisvænir, segir m.a. í áliti Neyt-
endasamtakanna.
Flest fyrirtæki samstarfsfús
Neytendastofa hefur enn ekki
tekið afstöðu til þess hvort auglýs-
ingar Heklu brjóti í bága við gild-
andi reglur, að sögn Ernu Jóns-
dóttur, lögfræðings Neytendastofu,
en bílaumboðinu hefur verið gefinn
kostur á að tjá sig um málið áður en
frekari skref verða stigin. „Þegar
kvartað er yfir auglýsingum er það
yfirleitt með vísan í 6. eða 7. gr. laga
nr. 57/2005 um eftirlit með órétt-
mætum viðskiptaháttum og gagnsæi
markaðarins.
Málsmeðferðin er þá sú að Neyt-
endastofa sendir viðkomandi aug-
lýsanda bréf þar sem honum er gef-
inn kostur á að koma sínum
sjónarmiðum að og eftir það er met-
ið hvort auglýsingin brjóti gegn lög-
um um óréttmæta viðskiptahætti.
Komist stofnunin að þeirri nið-
urstöðu að auglýsingarnar brjóti
gegn lögunum er þeim bannað að
auglýsa með þessum hætti með vís-
an til 2. mgr. 16. gr. laga um órétt-
mæta viðskiptahætti. Stjórnvalds-
sektir eru ekki lagðar á nema
fyrirtæki fari ekki eftir fyrirmælum
Neytendastofu,“ segir Erna.
Íslensk skilgreining ekki til
En hvað er umhverfisvænn eða
grænn bíll? „Það er góð spurning,
sem margir eru eflaust að velta fyrir
sér þessa dagana. Ég kýs reyndar
helst að tala um „visthæfa bíla“
frekar en umhverfisvæna bíla enda
geta bílar aldrei verið vænir um-
hverfinu,“ segir Birna Helgadóttir,
umhverfisráðgjafi hjá Alta ehf.
Þegar talað er um græna eða vist-
hæfa bíla erlendis er oftast átt við
bíla, sem menga minna en aðrir
sambærilegir bílar. Visthæfir eða
grænir bílar hafa verið skilgreindir
af stjórnvöldum erlendis og í lögum
erlendis, t.d. í Bretlandi og í Svíþjóð,
en slík skilgreining er ekki til á Ís-
landi. Reykjavíkurborg hefur þó
sett fram skilgreiningu á visthæfum
bílum í anda sænsku skilgreining-
arinnar. Samkvæmt henni uppfyllir
visthæfur bíll þau skilyrði að losa að
hámarki 120 g CO2/km og eyðir í
blandaðri keyrslu ekki meira en 4,5
lítrum af dísel/100 km eða 5,0 lítrum
af bensíni/100 km.
Grænu bílarnir ekki visthæfir
En hvað um „grænu“ bílana í aug-
lýsingunum. Eru þeir til? „Ég vildi
óska að ég gæti svarað því játandi
því að það er mikið fagnaðarefni að
bílaumboðin séu farin að bjóða við-
skiptavinum sínum upp á visthæfari
bíla. En grænu bílarnir í auglýsing-
unum á Íslandi þessa dagana eru
ekki visthæfir, samkvæmt helstu
skilgreiningum um visthæfa bíla.
Þeir eru t.d. ekki endilega sparneyt-
nari en aðrir bílar og losa ekki
minna af gróðurhúsalofttegundum
en aðrir bílar. Grænu bílarnir í þess-
um auglýsingum eru bílar, sem eru
kolefnisjafnaðir fyrsta árið, sem
þýðir að gróðursetja þarf um 35 tré
á meðal bíl. Það tekur trén um 90 ár
að binda kolefnið og það kostar um
það bil jafnvirði eins bensíntanks að
kolefnisjafna bíl í eitt ár hjá Kolviði.
Það er að sjálfsögðu jákvætt að kol-
efnisjafna, en það skiptir samt enn
meira máli að ráðast á uppsprettu
vandans með því að nota í auknum
mæli bíla, sem eru sparneytnir og
losa sem minnst af gróðurhúsa-
lofttegundum,“ segir Birna.
Skýrar upplýsingar mik-
ilvægar
Ekki er alltaf auðvelt fyrir íslensk
fyrirtæki að fjalla um umhverfismál
í markaðssetningu á skýran hátt því
ýmis hugtök eru ný í umræðunni og
fólk skilur þau oft á mismunandi
hátt. Því er mikilvægt að upplýs-
ingar um umhverfismál séu skýrar
og að hugtök séu rétt notuð fyrir
trúverðugleikann. Yfirvöld á Norð-
Umhverfisvænir bílar eru ekki
Morgunblaðið/G. Rúnar
Bílar Þegar talað er um græna eða visthæfa bíla er oftast átt við bíla, sem menga minna en aðrir sambærilegir.
Í HNOTSKURN
» Við markaðssetningu á nýj-um bílum er nú farið að höfða
til umhverfisvitundar neytenda.
» Neytendasamtökin telja nýjaauglýsingaherferð Heklu
villandi og vilja að Neyt-
endastofa skeri úr um hvort
markaðurinn komist upp með að
staðhæfa að vara sé umhverf-
isvæn án þess að sýna fram á það
á vísindalegan hátt.
» Grænu bílarnir í auglýsing-unum eru kolefnisjafnaðir
sem þýðir að tré verða gróð-
ursett til að binda það kolefni,
sem bíllinn losar fyrsta árið.
Bíll hefur áhrif á umhverfið á ýmsum stigum lífsferils síns, við framleiðslu
hans, akstur og við förgun. Langstærsti hluti umhverfisáhrifanna verða þó
vegna aksturs og þar er losun gróðurhúsalofttegunda mikilvægust út frá
umhverfissjónarmiði. Við bruna eldsneytis losnar m.a. koltvísýringur (CO2)
sem veldur auknum gróðurhúsaáhrifum. Einnig myndast við brunann ýmis
mengandi efni, eins og kolmónoxíð (CO) og köfnunarefnissambönd (NOX)
sem geta verið heilsuspillandi. Í útblæstri bifreiða er einnig að finna sót og
auk þess rífa nagladekk upp malbik. Allt eykur þetta magn svifryks í and-
rúmslofti sem er heilsuspillandi og hefur slæm áhrif á öndunarfæri og
lungu.
Samkvæmt nýlegum útreikningum Reykjavíkurborgar er losun koldíox-
íðs frá fólksbílum í Reykjavík um 231.224 tonn á ári og hefur losun koltví-
sýrings vegna samgöngutækja aukist um 27% frá 1999 til 2005.
Ef helmingur bíla í Reykjavík væru visthæfir og losuðu
minna en 120 g CO2/km mætti áætla að heildarlosun koldíoxíðs frá fólks-
bílum í Reykjavík myndi minnka um 63.600 tonn á ári eða um 27%.
Til að minnka umhverfisáhrif fjölskyldubílsins er skilvirkast að minnka
eldsneytiseyðsluna. Það má gera m.a. með því að keyra minna, nota minni
og sparneytnari bíla, afla sér fræðslu um vistakstur og sinna vel viðhaldi
bílsins.
Aksturinn segir mest
neytendur
22 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Bónus
Gildir 28. júní-1. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Ungnautahamborgarar, frosnir, 10*120 g 998 1398 830 kr. kg
Ungnautalundir, frosnar ........................ 2.698 2.998 2.698 kr. kg
Lambafillet, frosið ................................ 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Ks frosin lambasvið.............................. 279 398 279 kr. kg
Bökunarkartöflur, forsoðnar, 510 g ........ 119 198 230 kr. kg
Prins póló kassi, 35*40 g .................... 895 1198 640 kr. kg
Bónus kóla, 2 l .................................... 59 79 30 kr. kg
Egils orka, 250 ml ............................... 69 95 276 kr. ltr
Bónus ferskar brauðbollur, 320 g .......... 159 198 497 kr. kg
Kf hrásalat, 350 gr............................... 98 159 280 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 28. júní-30. júní verð nú verð áður mælie. verð
Lambafille m/fitu úr kjötborði ............... 2.398 2.898 2.398 kr. kg
Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.598 1.878 1.598 kr. kg
Ali Speribs .......................................... 885 1.180 885 kr. kg
Ali mexico kótilettur.............................. 1.255 1.673 1.255 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.................... 1.198 1.898 1.198 kr. kg
Matfugl kjúklingabringur ....................... 1.685 2.515 1.685 kr. kg
Matfugl piripiri læri/legg....................... 398 569 398 kr. kg
4x80gr hamborgarar m/brauði, 2 l kók .. 498 627 498 kr. stk.
Fk hrásalat, 380 g ............................... 99 138 260 kr. kg
Sóma kaldar samlokur rækju/túnfisk..... 159 199 159 kr. stk.
Hagkaup
Gildir 28. júní-1. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri úr kjötborði ......................... 998 1.394 998 kr. kg
Lambalundir úr kjötborði ...................... 2.998 3.613 2.998 kr. kg
Kjúklingapylsur, 10 stk. ........................ 482 803 482 kr. pk.
SS nautakótilettur, Argentína ................ 1.499 1.998 1.499 kr. kg
SS Bratwurst pyslur.............................. 137 182 137 kr. pk.
SS ostapylsur ...................................... 193 257 193 kr. pk.
Chicago Town wraps fajita ..................... 399 506 399 kr. pk.
Chicago Town wraps chili ...................... 399 519 399 kr. pk.
Myllan grillbrauð, tómat og salsa........... 199 365 199 kr. stk.
Myllu hindberjavínarbrauð .................... 99 139 99 kr. stk.
Krónan
Gildir 28. júní-1. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Lamba Rib Eye .................................... 1.997 2.998 1.997 kr. kg
Krónu kryddaðar grísakótilettur ............. 1.189 1.698 1.189 kr. kg
Krónu lambagrillsneiðar, læri ................ 1.399 1.898 1.399 kr. kg
Gourmet hunangsgrís, léttreyktur........... 1.259 1.682 1.259 kr. kg
Móa kjúklingur, ferskur, heill ................. 350 699 350 kr. kg
SS hangiálegg, 2x8 sneiðar .................. 2.364 3.377 2.364 kr. kg
Krónu kartöflusalat, 350 g.................... 159 186 454 kr. kg
Krónubrauð, stórt og gróft, 770 g .......... 99 121 129 kr. kg
Freyju Smádraumur, 360 g ................... 359 399 359 kr. pk.
Shop Rite eldhúsrúllur, 3 stk. ................ 399 489 399 kr. pk.
Nóatún
Gildir 28. júní-1. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Lambainnralæri, spjót, Toscana............. 498 649 498 kr. stk.
Lamba Rib Eye, villikryddað .................. 2.398 3.198 2.398 kr. kg
Grísakótilettur, úrbeinaðar Oriental ........ 1.498 1.998 1.498 kr. kg
Lambafille m/kryddostasósu ................ 2.798 3.498 2.798 kr. kg
Grillkartöflur m/mozzarella/beikon........ 798 939 798 kr. kg
Laxasteik m/hvítlauk............................ 998 1.498 998 kr. kg
Nóatúns ungnautahamborgarar, 4x90 g. 298 559 298 kr. pk.
Nóatúns skinka, 200 g ......................... 298 374 1.490 kr. kg
Happy Day Safar 1 l ............................. 149 188 149 kr. ltr
Pepsi 2 l ............................................. 99 173 50 kr. ltr
Samkaup/Úrval
Gildir 28. júní-1. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Kjötborð, nautahakk............................. 899 1.294 899 kr. kg
Kjötborð, lambalærissneiðar ................. 1.399 1.875 1.399 kr. kg
Borgarnes, víkinga lambalæri................ 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Matfugl, kjúklingaleggir, magnkaup ....... 395 609 395 kr. kg
Ísfugl, vængir, buffaló........................... 216 360 216 kr. kg
Kelloggs Coca pops, 600 g................... 339 450 565 kr. kg
Sun lolly orange 10*62 g ..................... 189 259 189 kr. stk.
Coca cola 4*2 lítrar ............................. 529 769 66 kr. ltr
Jarðarber, 200 g .................................. 199 289 995 kr. kg
Iceberg ............................................... 269 399 269 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 28. júní-4. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Bk lambalærisgrillsn., þurrkr. ................ 1.498 1.998 1.498 kr. kg
Bk lambagrillk., þurrkr. ......................... 1.575 2.100 1.575 kr. kg
Bk ostapylsur ...................................... 797 1.063 797 kr. kg
Bk spánskar pylsur............................... 852 1.136 852 kr. kg
BK skinka, 165 g ................................. 227 284 1376 kr. kg
Maryland kex, 150 g ............................ 59 85 393 kr. kg
Swiss Miss kakóbréf, pakki, 284 g ........ 209 279 736 kr. kg
Toppur, 0,5 l........................................ 79 110 158 kr. kg
Fazer Dumle Original, 220 g.................. 199 359 905 kr. kg
helgartilboðin
Kótilettur og kartöflusalat í útileguna
Morgunblaðið/ÞÖK
Ráðgjafinn Birna Helgadóttir