Morgunblaðið - 28.06.2007, Page 23
urlöndum hafa sett skýrar reglur til
að tryggja að upplýsingar um um-
hverfismál í auglýsingum séu ekki
villandi fyrir viðskiptavini og þar
eru í gildi skýrar reglur um hvað
megi kalla umhverfisvænt og grænt.
Með aukinni umhverfisvitund í
samfélaginu eru að opnast alveg ný
markaðstækifæri fyrir visthæfar
vörur og þjónustu. Um leið aukast
líka kröfur fólks um skýrar og gagn-
sæjar upplýsingar um þessi mál. Því
er mikilvægt að fyrirtæki og aðrir
noti hugtök rétt og styðjist við skil-
greiningar, sem löndin í kringum
okkur nota til að upplýsingarnar
misskiljist ekki, að sögn Birnu.
Hvaða bílar á íslenska mark-
aðnum eru þá visthæfir?
„Það væri auðvitað gott að geta
flett því upp á einfaldan hátt. Ég er
einmitt að leita að litlum fólksbíl fyr-
ir fjölskylduna mína núna og vil auð-
vitað að hann sé eins visthæfur og
mögulegt er. Það reyndist hinsvegar
frekar erfitt að finna þessar upplýs-
ingar hjá bílaumboðunum. Það end-
aði með því að ég setti fram skilyrði,
byggð á skilgreiningu Reykjavík-
urborgar á visthæfum bílum og
sendi fyrirspurn til bílaumboðanna.
Ég fékk mjög góð og skjót viðbrögð
og ég tel að flest bílaumboðin séu
tilbúin að koma til móts við auknar
kröfur fólks um visthæfa bíla. Ég
fann þrettán bíla á markaðnum sem
uppfylltu kröfurnar, níu litla dís-
ilbíla, tvo bensínbíla, einn tvinnbíl
og einn metanbíl. Því miður var lítið
um litla fólksbíla, sem nota rafmagn
eða vistvænt eldsneyti á borð við
metan og etanól. Við Íslendingar,
sem erum þekkt fyrir hreina orku,
ættum að taka forystuna í að bjóða
upp á slíka bíla hérlendis. Met-
angasframleiðslan á Álfsnesi nægir
t.d. til að knýja þrjú til fimm þúsund
bíla og við höfum nóg af góðu raf-
magni til að knýja bílana okkar,“
segir Birna.
Vistvænir bílar leggja ókeypis
Nú hafa stjórnvöld sett sér það
markmið að fyrir árslok 2012 verði
35% af bílum ráðuneyta og rík-
isstofnana knúin vistvænu eldsneyti.
Reykjavíkurborg hefur einnig
ákveðið að bráðlega verði ókeypis
fyrir visthæfa bíla að leggja í bíla-
stæði í miðborginni.
Í Svíþjóð hafa visthæfir bílar not-
ið ýmissa forréttinda svo sem lægri
álögur. Nýjasta útspilið í Svíþjóð er
100 þúsund króna styrkur til allra
sem kaupa bíl, sem telst vera vist-
hæfur. Þá hafa tryggingafélög einn-
ig boðið lægri iðgjöld fyrir visthæfa
bíla og sveitarfélög hafa lagt niður
þrengslagjöld og bílastæðagjöld fyr-
ir slíka bíla. Talið er að þessir hag-
rænu hvatar séu ástæða þess að nú
hefur orðið algjör sprenging í sölu
visthæfra bíla í Svíþjóð, að sögn
Birnu Helgadóttur.
til
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 23
Illa frágengið rafmagn ogröng notkun rafmagnstækjaer orsök um 3.000 bruna-tjóna á hverju ári í Dan-
mörku að sögn danska dagblaðsins
24 Timer. Vandamálið er það alvar-
legt að talið er að um sé að ræða
leynda galla í raflögnum í allt að
70% húsnæðis í einkaeigu. Vanda-
málið er alvarlegra eftir því sem
íbúðir eru eldri og verst er hús-
næðið þar sem eigendurnir hafa
unnið við að leggja raflagnir eða
hafa sjálfir haft með höndum end-
urbætur á húsnæðinu.
Ekki tengja of mikið í fjöltengi
Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri ör-
yggissviðs Neytendastofu, segir að
á Íslandi hafi Neytendastofa eftirlit
með rafverktökum og þeir séu með
gæðastjórnunarkerfi sem fylgst sé
mjög vel með.
„Þær athugasemdir sem við
sjáum eru meira tengdar merk-
ingum á töflubúnaði og við fáum
ekki athugasemdir um að illa sé
dregið í eða menn séu að misnota
mikið fjöltengi,“ segir Jóhann og
vísar þar í niðurstöðurnar frá Dan-
mörku en þar kemur fram að
hættulegt geti verið að tengja of
mörg tæki í fjöltengi sem svo er
tengt við eina innstungu. Þetta get-
ur verið sérstakt vandamál í eldri
húsum;
„Í barnaherbergi í dag geta verið
t.d. 20 rafmagnstæki en fyrir 20 ár-
um voru kannski 2-3 tæki. Ef inn-
stungan er ofhlaðin tækjum og fjöl-
tengjum er alltaf hætta á ofhitnun
og þar með brunahættu. Fyrir árið
2005 voru 78 rafmagnsbrunar
skráðir hjá okkur á Neytendastofu
og eru það bara alvarlegustu til-
fellin sem er áætlað að séu um 12%
allra rafmagnsbruna á landinu. Það
er því meiri hætta á að rafmagns-
tenglar séu misnotaðir í eldri hús-
um en nýjum þar sem mun færri
tenglar eru í hverju herbergi og er
mælt með því af Neytendastofu að
dregið sé fyrir nýjum tenglum í
eldra húsnæði fremur en að stóla á
fjöltengin.
Lagnirnar ekki aðalvandamálið
á Íslandi
Af orðum Jóhanns má álykta að
rafmagnsmál séu í nokkuð góðum
farvegi á Íslandi og tala tölurnar
sínu máli og eru talsvert frábrugðn-
ar dönsku tölunum. „Það er ekki
mikið um bruna í fastalögnum því
langstærsti hluti bruna er vegna
rafmagnstækjanna sjálfra eða rúm
70% og nærri helmingurinn af því
er tæki sem fólk er ekki að nota rétt
eins og t.d. eldavélar þegar fólk
gleymir að slökkva á þeim. Annars
eru fastalagnir um 16% af brunum.
Þetta er þvert á dönsku niðurstöð-
urnar þar sem meginvandamálið
virðist vera slæmar lagnir. Jóhann
segir að dregið hafi úr bruna vegna
sjónvarpstækja og það má kannski
þakka tilkomu LCD og plas-
maskjáa. Áfram eru smábrunar af
völdum brauðrista og álíka tækja
algengir þó að oftast sé tjón af þeim
sem betur fer lítið.
Jóhann telur að hluti vandamáls-
ins í Danmörku geti verið sá að þar-
lendum leyfist meira þegar kemur
að eigin vinnu í rafmagni og slíkt
geti hæglega komið niður á gæðum
raflagnanna þegar ekki er um að
ræða fagmenn sem vinna vinnuna.
Færri fjöltengi og
fleiri innstungur
Flókið Flækjur sem þessar eru sjaldgæfari á Íslandi en í Danmörku en aug-
ljóst er að frágangur sem þessi er ekki til eftirbreytni.
Ljósmynd/Neytendastofa
+ Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní–13. júlí.
Ferðatímabil: 17. júlí–10. desember.
Takmarkað sætaframboð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
66
61
0
6
/0
7
Fr
á 9
.90
0 k
r. a
ðr
a l
eið
ina