Morgunblaðið - 28.06.2007, Side 24
ferðalög
24 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason.
Útsýni Það er stórkostlegt að taka kláfinn upp á fjallið fyrir ofan bæinn og njóta þess er fyrir augu ber.Freistandi Sundlaug er miðsvæðis, nuddpottar, gufuböð og leiktæki fyrir börnin.
Ááratug hefur risiðskemmtilegur og fallegurbær sem minnir ummargt á bæi í Ölpunum
og þangað streymir fólk árið um
kring til að njóta þess sem þorpið
Tremblant og næsta nágrenni hafa
upp á að bjóða.
Mont Treblant-þjóðgarðurinn er
1.500 km² stór og náttúrufegurðin
er alveg ótrúleg, og sem umgjörð
fyrir fjölskyldufrí er þorpið Trem-
blant hreint frábær. Hér er allt
innan seilingar og sama hvað fólki
dettur í hug að prófa, flest er í
göngufæri. Gestirnir geta notið
lífsins í sundlaugargörðum við hót-
elin eða legið á ströndinni við vatn-
ið sem er aðgrunnt og því til-
tölulega öruggt.
Möguleikar á útivist að sumri til
eru endalausir. Það er gráupplagt
að fara í göngu- eða hjólreiðartúra
í einstakri náttúrunni eða njóta
útiverunnar í þessari náttúruperlu.
Göngustígar eru margir og mis-
erfiðir um fallegar slóðir á svæðinu
og hjólreiðastígar sömuleiðis. Það
er einfalt að leigja sér hjól og
kanna fallegt og fjölskrúðugt um-
hverfið. Í næsta nágrenni er einnig
hægt að komast í flúðasiglingu. Í
boði eru tveir möguleikar; fyrir þá
sem vilja taka það rólega og svo
hina sem vilja meira fjör og í hálf-
tíma fjarlægð er hægt að leigja sér
kanó og sigla á ánni.
Reyndar er alveg óþarfi að leita
langt yfir skammt, því allskyns
vatnasport stendur gestum til boða
á og við Tremblant-vatnið.
Að sjálfsögðu eru fjölmargir
miserfiðir golfvellir í nágrenninu.
Fyrir þá sem skemmra eru komnir
er skemmtilegur mini-golfvöllur í
miðbænum.
Hjólasleðarnir einstakir
Hjólasleða hafði ég ekki séð fyrr
en í Tremblant. Það hafa allir gam-
an, aldur skiptir þar engu máli, af
því að bruna niður þar til gerða
brekku á hjólasleða, aftur og aftur.
Tennisvellir eru margir á staðn-
um, einir 6 þeirra eru upplýstir.
Kennsla er í boði fyrir þá sem það
vilja.
Það er stórkostlegt fyrir fjöl-
skylduna að taka kláfinn upp á
fjallið fyrir ofan bæinn og njóta
stórkostlegs útsýnisins yfir svæðið,
fara í stuttar lautarferðir, eða leika
sér í klifurturninum eða á hjóla-
sleðabrautinni. Af mörgu er að
taka og óhætt að fullyrða að eng-
um þarf að leiðast. Svæðið er að
mínu mati sannkölluð fjölskyldu-
og útivistarparadís.
Veitingastaðir eru fjölmargir.
Hvort sem mann langar í safaríka
steik, fisk, pasta, eða eitthvað létt-
ara, þá er úr nógu að velja á fjölda
afbragðs veitingastaða í Tremblant
og hamborgararnir voru „djúsí“ og
pizzubotninn var eldbakaður og
stökkur.
Á kvöldin eru iðulega uppá-
komur á aðaltorgi bæjarins, sem
skapa skemmtilega stemningu.
Gistihúsin eru mörg og íbúðin
sem við gistum í er gífurlega vel
búin. Í stofunni er arinn, sjónvarp
og dvd, skápapláss er nóg og rúm-
ið gott. Þarna er einhver haganleg-
asta innréttaða og útbúna eldhús
sem ég hefi séð. Baðið vel útbúið
og lítil verönd.
Veitingastaðir, kaffihús, barir og
hverskonar afþreying eru á hverju
götuhorni. Af nógu er að taka í
Tremblant. Um helgar er alltaf
eitthvað um að vera, tónlist-
armenn, leikhópar eða danshópar
mæta á staðinn og skapa hátíð-
arstemmningu.
Sundlaugarparadís
Ef veðrið er eitthvað að hrekkja,
þá er sundlaugarparadís miðsvæðis
í bænum, inni- og útilaugar og
leiktæki fyrir börn. Sólbaðsaðstaða
er úti og nuddpottar úti og inni,
einnig gufuböð og líkamsrækt-
arsalur.
Það er meira að segja hægt að
versla í Tremblant og bæjunum í
kring. Fjölbreytt úrval verslana er
af ýmsum stærðum og gerðum.
Mikið úrval er að sjálfsögðu af úti-
vistarfatnaði. Þarna eru líka fal-
legar sérverslanir og meira að
segja er þarna „jólabúð“ sem gam-
an er að kíkja í. Í Tremblant er lít-
il verslun sem selur það allra nauð-
synlegasta. Í næsta nágrenni er
einnig stór matvöruverslun með
ágætu vöruúrvali og hagstæðu
verðlagi.
Í Tremblant er allt sem þarf fyr-
ir ógleymanlegt og um leið öðruvísi
sumarleyfi og ég vona að ég hafi
betri tíma til að njóta dvalarinnar
þegar ég kem þangað næst.
esso@mbl.is
Fjölskylduvæn útivistarperla
Fallegt Hótelin speglast í Tremblant-vatninu.
Náttúran Mont Treblant-þjóðgarðurinn er
1.500 km² stór og vatnalífið fjölbreytt.
Tremblant er lítill og
vinalegur bær um
hundrað kílómetra frá
Montreal og stendur
við Tremblant-vatnið.
Stefán Ólafsson fór og
kannaði hvað staðurinn
hefur upp á að bjóða.
www.tremplant.ca
Útsýnisflug
Eitt ævintýrið til er að bregða sér í
er útsýnisflug með sjóflugvél.
Delco Aviation býður flug með
litlum sjóflugvélum af Tremblant-
vatninu. Á örskotsstundu fær
maður útsýni yfir þetta „milljón
vatna land“. Í boði eru allskyns
ferðir, útsýnisferðir, stangveiði,
skotveiði, náttúruskoðun og
hvalaskoðun. Flug til Montreal
tekur hálftíma.
www.delcoaviation.com
Uppskriftin að þessum graflax er
fengin hjá veitingamönnunum á
Les Copains d’abord, Rue de Saint-
Jovite í Mont Tremblant.
1,5 til 2 kg af laxi
125 gr af grófu salti
225 gr púðursykur
1 lime
3 tsk. rifinn engifer
1 msk. ólífuolía
250 ml vodki
6 kvistir af fersku dilli
½ rauðlaukur, þunnt sneiddur
2 shallot-laukar, smátt saxaðir
blandað salat
Undirbúningurinn tekur 24
klukkustundir.
Laxastykkin eru beinhreinsuð
með flísatöng – eða keypt bein-
hreinsuð. Stykkin eru sett í gott ílát
og roðið látið snúa niður. Blandið
saltinu og púðursykrinum saman
og dreifið vel yfir laxinn. Setjið
plastfilmu þétt yfir og látið liggja í
12 tíma.
Skolið púðursykurinn og saltið
vel af í köldu vatni. Setjið laxinn í
djúpt ílát, roðið á að snúa niður.
Hellið vodkanum jafnt yfir og síðan
safanum úr lime-inu, og dreifið dill-
inu, engiferinu og rauðlaukssneið-
unum yfir. Kælið í 12 tíma.
Laxinn er tekinn úr kryddleg-
inum.
Rétturinn þolir geymslu í viku.
Skerið laxinn í þunnar sneiðar og
raðið þeim á diska. Dreypið ólífu-
olíunni á sneiðarnar og dreifið shal-
lot-lauknum yfir. Skreytið með
lime-bátum og salatblöðum. Borið
fram með brauðteningum.
Graflax „Copains Style“
91, 105 og 130 hö.
ÓDÝRIR
OG GÓÐIR
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 568 6411
WWW.RAFVORUR.IS · RAFVORUR@RAFVORUR.IS