Morgunblaðið - 28.06.2007, Side 29
kannski konur í hefðbundnum
kvennastörfum að taka málin í eig-
in hendur og auki verðmæti sitt.
Ný ríkisstjórn getur t.d. flýtt ferl-
inu með því að styðja rekstur
einkafyrirtækja í heilbrigðiskerf-
inu þar sem hugvit kvenna fengi
að njóta sín. Konur eru stærsti
hluti starfsmanna heilbrigðisstofn-
ana og kannski gætu þær komið á
annan og jafnvel hagkvæmari hátt
í framkvæmd verkefnum, væru
þær sjálfar við stjórnvölinn. Stofn-
un einkafyrirtækja í heilbrigð-
iskerfinu þýðir ekki að mismuna
eigi fólki varðandi aðgengi að
þjónustunni. Hins vegar gæti ríkið
gert samninga við einkafyrirtæki
um ákveðna verkþætti alveg eins
og það gerir samninga við LSH,
sem verið hefur í einokunar-
aðstöðu undanfarin ár bæði gagn-
vart skjólstæðingum sínum og
starfsfólki.
Ég hef starfað á Landspítalann í
25 ár. Kynjabundinn launamunur
er enn við lýði, og löngu ljóst að
erfitt er að ná árangri í baráttunni
gegn þessari mismunun þrátt fyrir
góðan ásetning stjórnmálamanna í
áratugi. Mín eigin launabarátta
hefur reynst mér dýr. Þar sem ég
gat engan veginn gengið að boði
LSH, hef ég verið á lægri launum
en næstu undirmenn mínir í 7 ár. Í
krafti stærðar og einokunar hefur
LSH ákveðið að leiðrétta þetta
ekki. Stéttarfélagið sem ég til-
heyri, BHM, virðist heldur ekki
geta gert neitt og verður að
kyngja ákvörðunum LSH. Und-
anfarið hafa jafnréttismál verið í
brennidepli en reynsla mín vekur
ekki bjartsýni.
Höfundur er forstöðuiðjuþjálfi á
geðsviði LSH og lektor við HA.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 29
Kristinn Pétursson | 28. júní
Blekkingar og
falsanir Hafrann-
sóknastofnunar
BESTI gagnrýnandi
Hafrannsóknastofn-
unar fyrr og síðar er án
efa Ásgeir heitinn Jak-
obsson rithöfundur.
Þeir sem hafa áhuga á
að kynna sér skrif hans
um reynslu af ráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar frá 1970-1995 ættu
að verða sér úti um bókina „Fiski-
leysisguðinn“ eftir son Ásgeirs, Jak-
ob Ásgeirsson.
Ásgeir heitinn var búinn að sjá að
ekki var allt með felldu í ráðgjöfinni
strax árið 1975, og að ekkert væri
hugað að fæðu í ráðgjöfinni.
Nýjustu blekkingar stofnunar-
innar eru enn „að ekki hafi verið far-
ið að tillögum stofnunarinnar“.
Meira: kristinnp.blog.is
ÞAÐ er átakanlegt að sjá
mynd af fyrrverandi ferming-
arbarni sínu í
dánartilkynningunum. Enn eitt
fallegt og hæfileikaríkt ung-
mennið er fallið í valinn. Sölu-
menn dauðans unna sér engrar
hvíldar.
Susie Rut fermdist í Grens-
áskirkju á pálmasunnudag vorið
1999. Hún var allt í senn glæsileg
og viðkvæm, fullorðinsleg og
eirðarlaus. Við henni blasti björt
og vonarrík framtíð. Sú framtíð
varð alltof stutt
og þyrnum stráð.
Sagan endurtekur sig. Í magn-
vana reiði sjáum við yndisleg
ungmenni ánetjast, falla, deyja.
Með falsi og fagurgala eru þau
ginnt til að
prófa fíkniefni. Í alltof mörg-
um tilvikum er það upphaf písl-
argöngu
þeirra og fjölskyldna þeirra,
helgöngu. Siðspilltir vesalingar
verða því miður alltaf til og þeim
er sama um líf í rúst, fjöl-
skylduharmleiki, ofbeldi og
ótímabær dauðsföll sem
fylgja neyslu fíkniefna. Efst í
píramídanum sitja þeir óhultir.
Réttvísin nær þeim sjaldnast.
Með margvíslegu forvarna-
starfi er reynt að minnka eft-
irspurn eftir
fíkniefnum. Það er ekki nóg.
Við verðum að sjá til þess að
framboðið
sé takmarkað eins og unnt er.
Ísland er eyja. Við höfum ein-
staka aðstöðu til að fylgjast með
því
sem flutt er til landsins. Það er
áreiðanlega bæði dýrt og tíma-
frekt
en hvert mannslíf er ómet-
anlega verðmætt og við höfum
nógan tíma - ef við viljum.
Ágætu samlandar, þetta er
okkar mál. Eigum við ekki að
horfast í augu við ógnina og gera
okkar besta? Okkur má ekki
standa á sama.
Er ekki kominn tími til að við
rekum af okkur slyðruorðið og
berjumst
af fullri einurð við fíkniefna-
djöfulinn?
Eða - er eitt og eitt ungmenni,
sem fellur í valinn, óhjá-
kvæmilegur
fórnarkostnaður „frelsisins“?
Það finnst mér ekki!
Ólafur Jóhannsson
Dauðans alvara
Höfundur er sóknarprestur.
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
ÍSLANDS MÁLNING
Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli.
Afsláttur af málningarvörum
20%
Sætúni 4 Sími 517 1500
Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður
Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus
Jafnréttissjóður
Auglýsing
Starfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður,
Jafnréttissjóður, og er tilgangur hans að efla
kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna
og karla og framgangi jafnréttis.
Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki úr
Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða
veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.
Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til
ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki
færri en þrír og ekki fleiri en fimm.
Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til
umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem
þegar er lokið.
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum
eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu forsætisráðuneytis
(www.forsaetisraduneyti.is, Jafnréttissjóður). Enn fremur
má nálgast eyðublöð á skrifstofu ráðuneytisins,
Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg (sími 545 8400,
netfang postur@for.stjr.is).
Umsóknarfrestur er til 1. september 2007 og verður
úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna,
24. október 2007. Umsóknir til Jafnréttissjóðs skal senda
forsætisráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg,
150 Reykjavík.
Jafnréttissjóður starfar samkvæmt reglum nr. 513/2006,
um úthlutun styrkja Jafnréttissjóðs.
Reykjavík, 28. júní 2007.
Hluthafafundur Marel hf.
Haldinn verður hluthafafundur hjá Marel
hf. fimmtudaginn 5. júlí 2007 kl.16:00.
Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum
félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Setning fundar.
Kosning fundarstjóra.
Kosning fundarritara.
Tillaga um breytingu á nafni félagsins úr Marel hf. í
Marel Food Systems hf.
Tillaga um breytingu á tilgangi félagsins. Tillagan felur í sér
að tilgangur félagsins verði aukinn þannig að undir hann
falli rekstur fasteigna, kaup og sala verðbréfa og eignarhald á
dóttturfélögum .
Tillaga um heimild til stjórnar félagsins til að hækka hlutafé þess
um allt að 100.000.000 í 18 mánuði frá samþykkt hennar. Heimilt
skal að ráðstafa þessum hlutum sem greiðslu fyrir hluti í öðrum
félögum eða til að fjármagna ytri vöxt Marel hf.
Kynning á skipulagsbreytingum Marel samstæðunnar.
Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og fylgigögn eru til sýnis fyrir hluthafa á
skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9 í Garðabæ.
Atvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við upphaf fundar.
Garðabæ, 27. júní 2007
Stjórn Marel hf.
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Kirkjuvellir 9 – Hf. 2ja og 3ja
Fullbúnar með gólfefnum
* 3 íbúðir 3ja herb. eftir
* 1 íbúðir 2ja herb. eftir
* Sérmerkt stæði í bílageymslu
* Verð frá 20,1 millj.
* Einkasala
* Vandaðar innréttingar
* Hiti í gólfum
* Afhentar vor 2007
* Byggingaraðili J&S byggingaverk-
takar ehf.