Morgunblaðið - 28.06.2007, Síða 32
32 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ HólmfríðurIndriðadóttir
fæddist Ytra-Fjalli í
Aðaldal í Suður-
Þingeyjarsýslu 3.
júlí 1906. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Eiri laugardaginn
23. júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Indriði Þór-
kelsson bóndi, skáld
og ættfræðingur á
Ytra-Fjalli, f. 1869,
d. 1943, og Kristín
Sigurlaug Frið-
laugsdóttir kona hans, f. 1875, d.
1955. Þau Indriði og Kristín eign-
uðust 11 börn en misstu tvö þeirra
í frumbernsku. Þau sem upp kom-
ust voru, auk Hólmfríðar: Ketill, f.
1896, d. 1971, Þrándur, f. 1897, d.
1978, Ólöf, f. 1900, d. 1996, Högni,
f. 1903, d. 1989, Úlfur, f. 1904, d.
1996, Indriði, f. 1908, Sólveig, f.
1910, d. 2000 og Óttar, f. 1920, d.
1994.
Vorið 1940 réðist Hólmfríður
sem kaupakona vestur að Skjald-
fönn við Ísafjarðardjúp. Ári síðar,
eða 3. maí 1941, giftist hún Að-
alsteini Jóhannssyni, f. 16. maí
1909, d. 1. desember 1993. For-
eldrar Aðalsteins voru: Jóhann
Jens Matthías Ásgeirsson, bóndi á
harður Kristjánsson og Aðalstein,
kona hans er Oddfreyja Odd-
freysdóttir. Langömmubörnin eru
fimm. Hólmfríður ólst upp á Ytra-
Fjalli. Auk venjubundinnar barna-
fræðslu var hún í unglingaskóla á
Breiðumýri 1922-23 og í Hús-
mæðraskólanum á Laugum 1929-
30. Hún vann við ýmis störf í sveit
og bæ fram að giftingu. Hólm-
fríður og Aðalsteinn tóku við búi á
Skjaldfönn af foreldrum Að-
alsteins og bjuggu þar í nær 50 ár.
Haustið 1990 var Aðalsteinn orð-
inn heilsutæpur og þá fluttust þau
Hólmfríður í þjónustuíbúð á Dval-
arheimilinu Hlíf á Ísafirði. Eftir
lát Aðalsteins var Hólmfríður bú-
sett á Hlíf í nokkur ár, varði sumr-
unum þó að mestu leyti við bú-
skapinn inni á Skjaldfönn en
dvaldi miðpartinn úr vetrinum hjá
Kristínu, dóttur sinni. Haustið
1998 fluttist hún síðan alfarin til
Kristínar og bjó á heimili hennar í
Reykjavík þar til hún fluttist á
hjúkrunarheimilið Eiri í febrúar
2005 og lést þar laugardaginn 23.
júní.
Hólmfríður verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 13.
Jarðsett verður í kirkjugarð-
inum á Ísafirði á morgun, föstu-
daginn 29. júní, klukkan 17.
Skjaldfönn, f. 1885,
d. 1956, og kona
hans, Jóna Sigríður
Jónsdóttir ljósmóðir,
f. 1882, d. 1963.
Hólmfríður og Að-
alsteinn eignuðust
þrjú börn: 1) Indriða,
f. 10. júlí 1941. Kona
Indriða er Kristbjörg
Lóa Árnadóttir, f. 7.
ágúst 1954, og búa
þau á Skjaldfönn.
Indriði á Janus Örn
og Tibor Snæ með
fyrri sambýliskonu,
Alexöndru Schwenkler og Lóa á
Sigurbjörgu, Árna Svein, Þórdísi
og Hrafnkel af fyrra hjónabandi.
2) Kristín, f. 29. mars 1945, búsett
í Reykjavík. Maður hennar er
Ólafur Magnús Håkansson, f. 20.
júlí 1949. Synir þeirra eru: Þránd-
ur Sigurjón, sambýliskona Signý
Ólafsdóttir; Vilhelm Grétar, unn-
usta Hildigunnur Ólafsdóttir og
Aðalsteinn Már. 3) Jóhann, f. 21.
ágúst 1946, kona hans er Helga
Þorvaldsdóttir, f. 29. nóvember
1957. Dóttir þeirra er Rúna. Jó-
hann á þrjú börn með fyrri konu
sinni, Hafdísi Hallgrímsdóttur,
Hólmfríði Jónu, maður hennar er
Arnar Þór Gíslason, Ingibjörgu
Steinunni, maður hennar er Rík-
Sjaldan hefur verið fegurra veður
við Djúp en þessa sólstöðudaga sem
nú eru að baki og einn þennan ynd-
islega dag kvaddi blessuð frænka mín
hún Fríða á Skjaldfönn. Það skorti
aðeins fáa daga á að hún yrði hundrað
og eins árs. Ótrúlega lengi hélt hún
líkams- og sálarkröftum en nú var
komið að leiðarlokum og andi hennar
náði því ferðafrelsi sem þreyttur og
slitinn líkami leyfði ekki.
Á kveðjustund hennar hefði ég vilj-
að skrifa langt og ýtarlegt mál – af
nógu er að taka – en blaðagreinum er
þröngur stakkur skorinn og svo var
frænka mín algjörlega frábitin lof-
gjörðarræðum, ég tala nú ekki um
sjálfa sig og sína. Hún var föðursystir
mín, báðar vorum við fæddar og ald-
ar upp á sama bæ, Ytrafjalli í Aðaldal,
m.a.s. í sama gamla bænum þó 30 ár
skildu okkur að. Báðar höfðum við
sterkar taugar til heimasveitar og
seinna til Skjaldfannardalsins en ör-
lögin höguðu því svo til að við urðum
þar nágrannar um langt árabil.
Kaupavinna eitt sumar varð til þess
að hún settist að á Skjaldfönn, mér
nægðu nokkrar vikur að vetrarlagi til
að flytjast að Laugalandi.
Hvað sem frænku hefði fundist þá
vil ég segja það að hún var einstak-
lega vel af guði gerð, bæði til munns
og handa. Sinnti húsmóðurstörfum af
mikilli alúð og myndarskap, heimilið
löngu mannmargt og gestkvæmt þó
ekki væri það í þjóðbraut eftir að Við-
arleiðin yfir Drangajökul lagðist af.
Arfinn frá bernskuheimilinu, bóklest-
ur og fróðleiksfýsn, ávaxtaði hún vel
fram á síðustu ár. Útivist og náttúru-
skoðun var henni mikið áhugamál og
trjá- og blómagarðurinn sem hún kom
upp við bæinn var hennar Paradís.
Var samt erfitt á fyrstu árunum að
nálgast plöntur og mörg ljón í veg-
inum. Á fyrstu árum Fríðu hér vestra
voru ferðalög norður í Þingeyjarsýslu
mjög erfið og ekki hægt að komast
nema með skipi og því liðu nokkur ár
án þess að hún kæmi norður í átthag-
ana. En í þá daga kunni fólk að halda á
penna og þau voru mörg bréfin sem
fóru milli systkinanna, föður míns og
Fríðu. Eftir að við Birna systir mín
fórum að draga til stafs var okkur
uppálagt að skrifa frænkum okkar,
annarri á Vestfjörðum, hinni á Langa-
nesi. Þannig mynduðust tengsl sem
urðu til þess að þegar ég kom hingað
fyrst vestur þá fannst mér ég þekkja
Fríðu og hennar fólk eins og ég hefði
alist upp með því. Aðalsteinn maður
hennar dó 1993. Hans minnist ég með
hlýju og þakka þeim báðum af öllu
hjarta árin sem við áttum saman sitt
hvorum megin við Selá.
Með Fríðu hverfur fulltrúi alls hins
besta er íslensk sveitamenning stend-
ur fyrir og þó að aðstæður séu aðrar
en þegar faðir hennar kvaddi hana
21.október 1935, þá eru þessar vísur
samt táknrænar:
Aldrei hörfa orkumenn
undan éli stríðu.
En bæði að missa er sárt í senn
sumarið og Fríðu.
– – –
Ei skal hörfað andartak
undan éli stríðu.
En sárt er í einu að sjá á bak
sumrinu og Fríðu.
Ég og börn mín kveðjum og þökk-
um okkar góðu frænku og vottum að-
standendum samúð.
Ása Ketilsdóttir, Laugalandi.
Ása Ketilsdóttir
Hólmfríður Indriðadóttir fyrrum
húsfreyja á Skjaldfönn er látin í hárri
elli. Ég er einn af þeim fjölmörgu
börnum og unglingum, sem áttu kost
á sumardvöl hjá þeim hjónum Hólm-
fríði og Aðalsteini. Á Skjaldfönn
kynntumst við sveitamenningu og
vinnubrögðum í sinni bestu mynd og
lærðum að bera virðingu fyrir ís-
lensku máli og umgengni við náttúr-
una. Hafði Hólmfríður flutt með sér
vinnubrögð og menningu úr heima-
sveit sinni í Aðaldal og fékk maður að
kynnast mismunandi blæbrigðum
málsins, þar sem hlutirnir höfðu mis-
munandi nöfn eftir því hvort bóndinn
eða húsfreyjan átti hlut að máli.
Ég var fyrst sendur í sveit að
Skjaldfönn 10 ára gamall, einn með
póstbátnum til ókunnugra. Það var
strax tekið vel á móti mér og líkaði
mér vistin ekki verr en það að næstu
sumur var ég jafnan mættur í sauð-
burðinn um leið og skóla lauk. Fór
meira að segja nokkrum sinnum í
heimsókn að vetri til. Vélaöld var rétt
að hefjast, þannig að ég fékk að kynn-
ast jöfnum höndum gömlum vinnu-
brögðum og nýjum. Athygli vakti
dugnaður og elja Hólmfríðar, en auk
inniverka, sem voru ærin á fjölmennu
heimili, tók hún jafnan þátt í útiverk-
um til jafns við piltana eins og hún
nefndi þá feðga, Aðalstein og synina.
Hún gekk ævinlega síðust til náða á
kvöldin og var fyrst á fætur á morgn-
ana. Við héldum stundum að hún
svæfi ekki neitt, enda fór hún létt með
að vaka yfir fénu um sauðburðinn. Ef
stund gafst milli stríða tyllti hún sér
niður með blað eða bók, enda var hún
vel lesin og fróð um marga hluti.
Snyrtimennska var höfð í fyrirrúmi
á Skjaldfönn innan stokks sem utan
og hlutu þau hjón viðurkenningu fyr-
ir. Aðdáunarvert var að sjá umhyggju
Hólmfríðar fyrir garðinum sínum þar
sem hún ræktaði ýmsar suðrænar
tegundir þrátt fyrir fannfergi og
langa vetur við sporð Drangajökuls.
Að leiðarlokum vil ég þakka Hólm-
fríði fyrir mig og bið henni guðs bless-
unar. Ég sendi Indriða, Kristínu, Jó-
hanni og fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur.
Guðmundur Kr. Eydal.
Hún Fríða á Skjaldfönn er dáin,
hún lést á hjúkrunarheimilinu Eiri 23.
júní sl., þegar sólin var hæst á lofti og
Jónsmessunótt fór í hönd. Það er fal-
legur tími til að hafa vistaskipti.
Hólmfríður Indriðadóttir var fædd á
Fjalli í Aðaldal 3. júlí 1906 og átti því
fáa daga í að verða 101 árs. Hún er
þriðji Djúpmaðurinn í minni tíð sem
náð hefur svo háum aldri, hin eru
móðir mín og séra Þorsteinn í Vatns-
firði. Að lifa heila öld er langur tími og
margt og miklar breytingar sem þetta
fólk hefur upplifað, já meira en nokk-
ur önnur kynslóð hefur gert.
Fríða kom að Skjaldfönn árið 1940
þegar undirritaður var 7 ára gamall
og giftist Aðalsteini Jóhannssyni,
Steina á Skjaldfönn eins og hann var
ávallt kallaður. Það eru því orðin
mörg árin sem við höfum átt samleið.
Skjaldfönn er fögur jörð, hvort heldur
er á Jónsmessu þegar sólin hellir
geislum sínum yfir skógi vaxnar hlíð-
ar Skjaldfannardals og Seláin liðast í
ótal bugðum frá jökli að sjó, eða á
vetrum þegar snjórinn breiðir sína
hvítu kápu yfir allt, stjörnur tindra á
heiðum himni og tungl í fyllingu og
Drangajökull stendur vörð í botni
dalsins.
Það var þessum stað sem Fríða
kaus að helga sitt ævistarf. Á þessum
tímamótum er mér efst í huga vænt-
umþykja og þakklæti til Fríðu og
fólksins á Skjaldfönn. Ekki vil ég
gleyma að nefna hennar góðu tengda-
foreldra, Jónu og Jóhann. Jóna var
ljósmóðir og tók á móti mér þá ég
fyrst leit þennan heim í norðaustan
stórhríð í febrúar 1933. Ljósmæður
létu ekkert aftra sér þegar þeirra var
þörf og til þeirra var leitað, hvorki
veður né færð.
Tryggð, hjálpsemi og vinátta milli
fólksins á Skjaldfönn, Laugalandi og
Laugarási var einstök og féll þar aldr-
ei skuggi á. Fyrir það vil ég þakka.
Það voru margar ferðirnar sem við
Laugalandssystkinin og við í Laug-
arási áttum að Skjaldfönn og ætíð
mættum við sömu hlýjunni, dreng-
skapnum og gestrisninni. Oftar en
ekki var maður leystur út með gjöfum
við brottför í formi góðmetis úr
skemmunni.
Snyrtimennskan á Skjaldfönn var
Hólmfríður Indriðadóttir
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, fósturfaðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
RAGNAR ÞÓR KJARTANSSON,
áður til heimilis á
Garðarsbraut 35b,
Húsavík,
verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 30. júní kl. 14.00.
Hrafnhildur Jónasdóttir,
Kolbrún Ragnarsdóttir, Haukur H. Logason,
Emil Ragnarsson, Elín Jónasdóttir,
Jónas Már Ragnarsson, Sigríður Pétursdóttir,
María Axfjörð, Pálmi Þorsteinsson
Steinunn Friðgeirsdóttir,
Arnaldur F. Axfjörð, Kolbrún Eggertsdóttir,
Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir, Jóhann Gunnar Elísson,
barnabörn og þeirra fjölskyldur.
✝
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og einstakan hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa
og bróður,
KOLBEINS SKAGFJÖRÐ PÁLSSONAR,
Aðalgötu 1,
Keflavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki gjörgæslu-
deildar landspítalans við Hringbraut fyrir góða
umönnun og hlýtt viðmót.
Kolbrún Sigurðardóttir,
Margrét Kolbeinsdóttir,
Sigrún María Kolbeinsdóttir, Jósteinn Guðmundsson,
Sigurður Kolbeinsson, Dýrleif Rúnarsdóttir,
Anna Ósk Kolbeinsdóttir, Helgi S. Skúlason,
barnabörn og systkini hins látna.
✝
Elskuleg móðir okkar, amma og systir,
GUÐRÚN GEORGSDÓTTIR,
Sambyggð 8,
Þorlákshöfn,
lést á landspítalanum í Fossvogi, miðvikudaginn
20. júní.
Útförin fer fram frá Þorlákskirkju, föstudaginn
29. júní kl. 14.00.
Magnús Georg Hrafnsson,
Baldvin Agnar Hrafnsson,
Kolbrún Ósk Hrafnsdóttir,
Tanja Mjöll Magnúsdóttir,
Emelía Karen Baldvinsdóttir
og systkini hinnar látnu.
✝
Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SKÚLA BREIÐFJÖRÐ JÓNASSONAR
fyrrverandi kaupfélagsstjóra,
Mýrarvegi 117,
Akureyri.
Guðrún Guðríður Guðmundsdóttir,
Elín Skúladóttir,
Oddfríður Skúladóttir,
Kristinn Skúlason, Anna Pétursdóttir,
Jóhann Skúlason, Margrét Guðmundsdóttir,
Skúli Jónas Skúlason, Þórhildur Höskuldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
KONRÁÐ GUÐMUNDSSON,
Holtagerði 42,
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 19. júní.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
hjúkrunardeildar elliheimilisins Grundar fyrir einstaka umönnun, Magnúsi
Tryggvasyni og Eiríki Magnússyni í ORA og öðrum vinum og vanda-
mönnum fyrir veittan hlýhug.
Laufey Sigríður Karlsdóttir
Auður Konráðsdóttir, Sigurður Stefánsson,
Heimir Konráðsson Eyrún Ingibjartsdóttir,
Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir,
Áslaug Kolbrún Jónsdóttir, Gunnar Harðarson,
Kolbrún Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.