Morgunblaðið - 28.06.2007, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
REKTOR Háskólans á Bifröst, dr.
Ágúst Einarsson veitti sl. miðvikudag
viðtöku styrk til skólans að upphæð
20 milljónir króna.
Styrkurinn kemur frá Eignar-
haldsfélagi Samvinnutrygginga. Þór-
ólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Skagfirðinga og formað-
ur stjórnar eignarhaldsfélagsins, af-
henti styrkinn og flutti kveðju stjórn-
ar. Í máli hans kom fram að á meðal
markmiða stjórnarinnar er að styrkja
og efla menningar- og félagslega
starfsemi í landinu. Eignarhaldsfélag
Samvinnutrygginga hafi viljað sýna
stórhug í verki með því að styrkja
Háskólann á Bifröst með svo mynd-
arlegu fjárframlagi og vænti þess að
það verði öðrum fyrirtækjum hvatn-
ing til þess að sýna menntastofn-
unum stuðning með svipuðum hætti.
Dr. Ágúst Einarsson flutti þakkir
fyrir hönd Háskólans á Bifröst og tók
undir þá ósk Þórólfs að gjöfin mætti
verða öðrum fyrirtækjum hvatning til
þess að styrkja menntun í landinu.
Andrés Magnússon, varaformaður
stjórnar Háskólans á Bifröst, flutti
þakkir stjórnar og kvaðst líta á styrk-
veitinguna sem viðurkenningu fyrir
það góða starf sem nú er unnið í Há-
skólanum á Bifröst.
Styrkur Þórólfur Gíslason afhendir Ágústi Einarssyni styrkinn.
20 milljóna króna styrkur
til Háskólans á Bifröst
HÓPUR ungra
Amnesty-félaga
stendur fyrir
uppákomu á
Austurvelli laug-
ardaginn 30. júní
kl. 13-17 þar sem
vakin verður at-
hygli á þeim
pyntingar-
aðferðum sem beitt er í „stríðinu
gegn hryðjuverkum“ en teljast,
samkvæmt endurskilgreiningum
ýmissa ríkja á hugtakinu, yfir-
heyrsla.
Í fréttatilkynningu segir að gest-
ir og gangandi geti kynnt sér að-
ferðirnar og þann skaða sem þær
valda og gripið til aðgerða gegn
pyntingum og illri meðferð.
Arnar Grant einkaþjálfari, Ás-
geir Kolbeinsson sjónvarpsmaður
og Lóa Fatumata Touray fyrirsæta
hafa gengið til liðs við hópinn til að
vekja athygli á pyntingum og hlut-
skipti þolenda. Þau sitja fyrir í sár-
um á plakötum sem nú prýða
strætóskýli víða um bæinn.
Ein þeirra áskorana sem mann-
réttindasamtök standa nú frammi
fyrir eru tilraunir sumra ríkja til að
grafa undan skilyrðislausu banni
gegn pyntingum og annarri illri
meðferð, t.d. með þeirri rökfærslu
að slík meðferð sé nauðsynlegt
vopn í „stríðinu gegn hryðjuverk-
um“. Þessar staðhæfingar hafa
mætt mikilli andstöðu en þá hafa
ríkisstjórnir gripið til orðaleikja og
reynt að túlka og skilgreina hugtök
upp á nýtt, segir m.a. í frétta-
tilkynningu.
Til varnar
fórnarlömbum
pyntinga
ALLS brautskráðust 35 nemendur með MPM-gráðu, 25
konur og 10 karlar, þegar fyrstu brautskráningu MPM-
náms við Háskóla Íslands var fagnað laugardaginn 23.
júní.
Í fréttatilkynningu segir að Sigurður Brynjólfsson, for-
seti verkfræðideildar, hafi afhent kandídötum skírteinin.
Tveir nemendur hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir
framúrskarandi námsárangur, þær Arnhildur Ásdís Kol-
beins og Hildur Helgadóttir. Þær hlutu báðar 9,0 í með-
aleinkunn.
Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor og forstjóri Ný-
sköpunarmiðstöðvar Íslands, flutti hvatningarræðu til
hópsins í tilefni dagsins. Í ræðu sinni sagði hann m.a. „að
MPM-námið væri með bestu nýsköpunaráföngum í
seinni ára sögu skólans því að verkefnastjórnun er svo
mikilvægur hlekkur í að koma kenningum, teoríum og
áætlunum frá pappír að mannvirki, vöru eða þjónustu“.
Ennfremur að „þegar tækni og orku þrýtur þá má með
verkefnastjórnun flytja fjöll. Og þegar tækni og orku nýt-
ur þá má með verkefnastjórnun framkvæma stórvirki“.
Háskóli Íslands Alls brautskráðust 35 nemendur með MPM-gráðu, 25 konur og 10 karlar.
Fyrsta brautskráning MPM-náms við HÍ
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Rauðamýri 1 Mosfellsbæ íbúð 106
Glæsileg 143 fm 4ra herbergja íbúð á
1 hæð með stæði í bílskýli í fjölbýli á
einstökum útsýnisstað í Mosfellsbæ.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðher-
bergi með baðkari,sturtu,flísalagt í hólf
og gólf. Eldhús með vandaðri eikarinn-
réttingu Rúmgóð stofa með útgengi á
afgirta verönd. Þvottahús innan íbúðar.
Geymsla í sameign, ásamt
bílastæði. Glæsilegt útsýni.
Verð 30,9 millj.
Nánari upplýsingar veita
Svenni í síma 866-0160.
Í MARSMÁNUÐI voru liðin 150 ár
frá mannskaðanum á Mosfellsheiði
þegar sex vermenn úr Árnessýslu
urðu þar úti en átta björguðust við
illan leik. Vermennirnir voru á leið
frá Þingvöllum yfir heiðina þegar
blindbylur skall á með þessum
skelfilegu afleiðingum.
Séra Magnús Grímsson jarðsöng
sexmenningana á Mosfelli í Mos-
fellsdal og hvíla þeir þar í kirkju-
garðinum. Næstkomandi laugar-
dag, 30. júní, verður afhjúpaður
bautasteinn um þá á Mosfelli en af-
komendur og venslafólk vermann-
anna áttu frumkvæðið að uppsetn-
ingu steinsins í samvinnu við
Sögufélag Kjalarnesþings.
Athöfnin á Mosfelli hefst kl. 14.
Séra Jón Þorsteinsson sóknar-
prestur sér um helgistund og
Magnús Guðmundsson sagnfræð-
ingur mun segja frá mannskaðan-
um 1857. Öllum er velkomið að
vera viðstaddir athöfnina á Mos-
felli.
150 ár frá
mannskaðanum
á Mosfellsheiði