Morgunblaðið - 28.06.2007, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 28. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ VAR árið1993 að Björn Thor-
oddsen gaf út disk með vinsælum
íslenskum lögum: Við göngum svo
léttir … og var Andrea Gylfadóttir
ein af mörgum söngvurum á þeirri
skífu. Titillag þeirrar skífu er eitt
margra vinsælla laga við íslensk
ljóð er finna má á Vorvísum, sem
er í sama stíl og Vorvindar með
sömu listamönnum er út kom í
fyrra; auk Björns og Andreu þeir
Jón Rafnsson
bassaleikari og
Jóhann Hjör-
leifsson
trommari. Að
vísu hefur stíll-
inn breyst eilít-
ið frá fyrri
plötunni. Hún var að mestu létt-
djössuð, en hér er rokkskotið raf-
magn plássfrekara og meira að
segja kántríblær á „Heiðlóarkvæði“
Jónasar, sem mér þykir varla við
hæfi; aftur á móti er blústilfinn-
ingin í „Kvölda tekur sest er sól“
frábær og að mínu viti er það best
heppnaða lag skífunnar. Sveiflan er
á fullu í „Vér göngum“ og Jói fimur
með burstana en heldur hefði ég
kosið að Jón hefði sveiflað kontr-
anum. Bæði Dalakofi Davíðs og
írska þjóðvísan, sem Jónas Árnason
samdi við „Bíum, bíum bambaló“,
eru smekklega flutt, en lögin falla
misvel að ryþmískri túlkun. Eitt af
aðalsmerkjum skífunnar er hinn
skýri textaframburður Andreu og
því er skífa þessi kjörin eign hverr-
ar barnafjölskyldu landsins, ekki
síður en leik- og grunnskóla. Það
má þakka Birni framlag hans til
varðveislu menningaarfsins – sem
allir nefndir diskar eru.
Fjárlögin endursköpuð
Tónlist
Geisladiskur
Tríó Björns Thoroddsens og Andrea Gylfa-
dóttir
Vorvísur Vernharður Linnet
ÞAÐ VAR vel við hæfi að hljóm-
sveiting Rapture skyldi marka end-
ann á jafnfögrum degi og síðast-
liðnum þriðjudegi. Sólin hafði skinið
allan daginn, krökkt var af fólki víð-
ast hvar um bæinn og það lá beinast
við að kvöldinu myndi ljúka í brjál-
uðu partíi eins og Rapture lofuðu
lesendum Morgunblaðsins í viðtali
fyrir nokkrum dögum. Sem betur
fer stóðu þessir bandarísku herra-
menn við orð sín og þeir sem vildu á
annað borð láta skemmta sér kom-
ust ekki hæglega hjá því þegar
sveitin hóf leik sinn í Nasa á þriðju-
dagskvöld.
Motion Boys sáu um upphitun, en
lagið „Hold Me Closer to Your He-
art“ hefur notið nokkurra vinsælda í
útvarpi upp á síðkastið. Önnur lög
eru í svipuðum dúr, þetta er hljóð-
gervlapopp sem sækir sterklega í
áttatíuogeitthvað-sveitir eins og
Human League. Söngvarinn Birgir
Ísleifur er með hljómfagra og kraft-
mikla rödd og lögin eru virkilega
skemmtileg. Það mætti finna að
óþarfa nostalgíu og „retro“-
tilhneigingu hjá sveitinni – en lögin
standa einfaldlega margfalt undir
því sem er á herðar þeirra lagt.
Þetta voru aðrir tónleikar sveit-
arinnar (í raun þeir fyrstu, þar sem
frumraunin í lok maí fór út um þúf-
ur vegna rafmagnsvandræða) og lof-
uðu góðu. Ég hlakka mjög til að
heyra meira með þessari áhuga-
verðu sveit.
Það var nokkur bið eftir Rapture,
en þegar þeir stigu loks á svið gladdi
blaðamann mjög að heyra lagið „Out
of the Races and Onto the Tracks“
af samnefndri stuttskífu frá 2001.
Þrátt fyrir heimsókn Rapture á
klakann árið 2002 myndu tónleik-
arnir greinilega spanna ferilinn all-
an. Stórir hlutar af Echoes og Pie-
ces of the People We Love voru
leiknir og hljómsveitinni tókst smám
saman að byggja upp stemmningu
sem ég hefði jafnvel talið fyrirfram
að væri ómögulegt að skapa á
þriðjudagskvöldi. Sólskinið hefur
væntanlega hjálpað eitthvað til.
Sveitin var í roknastuði, skók sig
og hristi, þó á afslappaðan og svalan
máta, og gítarleikarinn Luke Jenner
sýndi gítarhetjutakta annað slagið.
Að lokum fór hann að fordæmi
nokkurra tónleikagesta þegar hann
steypti sér fram af sviðinu og ofan í
ólgandi mannhafið – í tvígang. Það
fór allt saman vel, hann flaut um í fá
augnablik þar til honum var skilað
aftur á sviðið skælbrosandi. Spila-
gleðin smitaði út frá sér og þótt það
væri ofsögum sagt að Nasa hafi öll
hoppað og skoppað eins og stærstur
hluti gólfsins framan við sviðið, þá
kinkuðu þeir allra fúlustu í það
minnsta kolli í takt við æsilegt dans-
pönkið.
Ég spurði vinkonu mínu að tón-
leikunum loknum hvernig henni
hefði þótt. „Mér fannst þetta ekkert
svo frábært. Mér fannst eins og
þetta væri einhvern veginn… búið,“
svaraði hún. En hvernig getur eitt-
hvað sem höfðar með svona sterkum
hætti til frumstæðustu hvata
mannsins verið „búið“? Rapture
höfðu vit á að skilja ballöðurnar sín-
ar eftir í New York og þeirra í stað
buðu þeir upp á taktfasta dansveislu
sem stigmagnaðist eftir því sem á
leið og snerti einhverja ætt-
bálkataug. Sífelldur slátturinn var í
algjöru lykilhlutverki á þessum tón-
leikum; hann var kjarninn, ekki síð-
ur en taktfast hjartað er kjarni
mannsins. Við taktinn bættist fátt
annað; söng Luke Jenners væri nær
að kalla öskur eða væl, hvorutveggja
mjög frumstæðar leiðir til tjáningar,
og einn eða tveir hljómar eru oft
látnir duga. Þegar hraði tónlistar-
innar eykst er eins og hjartað fari að
slá hraðar, eins og þegar við elsk-
umst, óttumst eða gleðjumst. Sigur
Rós kann kannski á tilfinningaskal-
ann, en Rapture skipa útlærðir
djassistar í skölum líkamans. Á
þriðjudagskvöld sló hjartað í stórum
hluta Nösugesta í sameiningu eins
og einn risavaxinn vöðvi sem barðist
við að pumpa blóði þegar gleðin
færðist yfir. Orð duga skammt á
slíkum stundum og það eina sem
ryðst upp í gegnum hálsinn er
„Whoo! Alright - Yeah… Uh huh.“
Hjartað er ekki tískubóla
Atli Bollason
TÓNLIST
Nasa
Þriðjudagurinn 25. júní.
Rapture ásamt Motion Boys
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Alþjóðlegt
orgelsumar í
Hallgrímskirkju
28. júní kl. 12.00
Guðmundur Sigurðsson, orgel
30. júní kl. 12.00
Harri Viitanen, orgel
1.júlí kl. 20.00
Harri Viitanen, dómorganisti í
Helsinki, leikur verk eftir Bach, Pál
Ísólfsson, Dubois og sjálfan sig.
www.listvinafelag.is
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
LADDI 6-TUGUR
Í kvöld kl. 20 UPPS. Síðasta sýning
LJÓTU HÁLFVITARNIR ÚTGÁFUTÓNLEIKAR LAU 30/6 KL. 21 MIÐAVERÐ KR. 1.800
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
OG DÚNDURFRÉTTIRUP
PS
EL
T!
AU
KA
TÓ
NL
EIK
AR
STÓRTÓNLEIKAR Í LAUGARDALSHÖLL
Í KVÖLD, FIMMTUDAGSKVÖLD KL.19.30
LAUS SÆTI
FÖSTUDAGINN 29. JÚNÍ KL.19.30
UPPSELT
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA SEM ALLRA
FYRST Á WWW.SINFONIA.IS
miðaverð ::: 5.000 / 4.500 kr.
Roger Waters (Pink Floyd) ::: The Wall
Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson
Útsetningar ::: Haraldur Vignir Sveinbjörnsson
Miða skal sækja í miðasölu SÍ í Háskólabíói á milli 9 og 17
fimmtudag og föstudag. Eftir klukkan 18 verður hægt að
sækja miða í Laugardalshöll.
Útsala
Kjólar fyrir
brúðkaupið
Áður 7.990 kr.
Nú 4.990 kr.
Laugavegi 54
sími 552 5201
H
im
in
n
o
g
h
af
/
S
ÍA
Aukaferðir hjá Herjólfi
Herjólfur fer næturferð á mikilvægum ferðadögum í sumar og fer þá alls 3 ferðir á milli lands og eyja.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 23.00 og frá Þorlákshöfn kl. 2.00 eftir miðnætti.
Fimmtudaginn 28. júní
Sunnudaginn 1. júlí
Fimmtudaginn 5. júlí
Föstudaginn 6. júlí
Næstu aukaferðir verða eftirtalda daga:
Bókun og ítarlegar upplýsingar á www.herjolfur.is. Einnig í síma 481-2800 og 525-7700.
SÝNINGAR Á
SÖGULOFTI
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
29/6 kl 20 uppselt, 1/7 kl 15 uppselt,
1/7 kl 20 uppselt, 5/7 kl 20 uppselt,
13/7 kl. 20 uppselt, 14/7 kl 15 laus sæti,
14/7 kl. 20 uppselt, 11/8 kl. 20 laus sæti,
12/8 kl. 20 laus sæti, 18/8 kl. 20 laus sæti,
19/8 kl. 20 laus sæti, 25/8 kl. 20 laus sæti,
26/8 kl. 20, 30/8 kl. 20 laus sæti,
31/8 kl. 20 laus sæti
Miðaverð kr. 2900 - ATH! Staðfesta þarf
miða með greiðslu viku fyrir sýningu
Leikhústilboð í mat:
Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600
Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200
Miða- og borðapantanir í síma 437 1600
Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is