Morgunblaðið - 09.07.2007, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT
unga fólksins flytur í kvöld
píanókonsert eftir armenska
tónskáldið John Sarkissian í
Neskirkju. Verkið var frum-
flutt hér á landi í gær á Þjóð-
lagahátíðinni á Siglufirði í gær.
Einleikari með hljómsveitinni
er landi tónskáldsins, Armen
Babakhanian, einn fremsti
píanisti heims. Auk konserts-
ins verða svíturnar tvær úr
Pétri Gaut eftir Edvard Grieg leiknar í tilefni af
100 ára ártíð tónskáldsins. Verður sagan af Pétri
sögð á milli laga.
Hljómleikarnir hefjast klukkan 20.
Tónlist
Ungfónían í
Neskirkju í kvöld
Ungfónían Flytur
armenskt verk.
ÞÁTTARÖÐIN „Á sumarvegi“
hefur göngu sína í dag en hún
var fyrst á dagskrá í fyrra og
hlaut góðar viðtökur. Tuttugu
þáttastjórnendur munu stjórna
jafnmörgum þáttum og segja
frá áhrifavöldum í lífi sínu. Þeir
leika sína eftirlætismúsík og
deila helstu hugðarefnum sín-
um með hlustendum. Þátta-
stjórnendur koma úr ýmsum
áttum í íslensku þjóðlífi.
Umsjónarmaður þáttanna er Sigríður Péturs-
dóttir. Fyrsti þátturinn verður, líkt og síðari þætt-
ir, frumfluttur í dag kl. 13:15 og síðan endurfluttur
klukkan 19.
Útvarp
Rás 1 heldur áfram
með „Á sumarvegi“
Sól Sumarið ræður
ríkjum á Rás 1.
HLJÓMSVEIT Hafdísar
Bjarnadóttur, rafgítarleikara
og tónskálds, er á leið í upptök-
ustúdíó að hljóðrita aðra sóló-
plötu með frumsömdum verk-
um eftir Hafdísi. Til að koma
sér í upptökugírinn heldur
hljómsveitin konsert í kvöld á
Kaffi Kúltúra, en tónlist Haf-
dísar er blanda af djassi, rokki,
klassík og þjóðlögum.
Á undan hljómsveit Hafdísar
leikur grúppan Moskvitsj nokkur frumsamin lög
eftir liðsmenn þeirrar sveitar.
Hljómleikarnir hefjast klukkan 21. Miðaverð er
800 kr., en 500 kr. fyrir námsmenn.
Tónlist
Hljómleikar á Kaffi
Kúltúr í kvöld
Hafdís Leikur fjöl-
breytilega tónlist.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
TALSVERÐAR breytingar verða á
mannahaldi á skrifstofu Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á næstunni, en
þar starfa nú ellefu manns.
Hæst ber að Helga Hauksdóttir
fiðluleikari, sem gegnt hefur stöðu
tónleikastjóra hljómsveitarinnar um
árabil lætur af störfum um áramót. Í
starfi tónleikastjóra hefur falist
margvísleg vinna, allt frá því að
skipuleggja tónleikana sjálfa, ráða
einleikara og einsöngvara, til þess að
vera stjórnanda og verkefnavals-
nefnd til ráðgjafar og aðstoðar um
verkaval, auk ýmissa almennra
starfa.
Þá lætur Pavel Manasek af störf-
um nótnavarðar um tíma, og tekur
sér ársleyfi til að vitja heimaslóð-
anna í Tékklandi.
Sváfnir Sigurðarsson sem hefur
verið kynningar- og markaðsstjóri
hljómsveitarinnar síðustu ár, lætur
af störfum 1. september.
Tvö ráðin í stað Helgu
Það dugir ekki minna en að ráða
tvær manneskjur í starf Helgu, og
verður stöðunni skipt í tvennt, ann-
ars vegar stöðu tónlistarstjóra, sem
sér um að móta stefnu, dagskrá og
efnisval til lengri og skemmtri tíma
með listrænum stjórnanda, sem nú
er aðalhljómsveitarstjórinn Rumon
Gamba, og verkefnavalsnefnd; en
hins vegar í starf tónleikastjóra, sem
sér um að hrinda í framkvæmd því
sem tónlistarstjóri, listrænn stjórn-
andi og verkefnavalsnefnd hafa
ákveðið - búa tónleikana til. „Við
bjuggumst nú alltaf við að það þyrfti
tvo í starf Helgu, hennar starf hafði
þróast þannig, og hún er slík ham-
hleypa til verka,“ segir Þröstur
Ólafsson framkvæmdastjóri að-
spurður um starfsmannabreyting-
arnar.
Arna Kristín Einarsdóttir flautu-
leikari hefur verið ráðin í starf tón-
leikastjóra, og Árni Heimir Ingólfs-
son dósent við Listaháskóla Íslands í
starf tónlistarstjóra, en bæði hafa
þau mikla menntun í tónlist.
Breytt skipan
verkefnavalsnefndar
Skipan verkefnavalsnefndar verð-
ur breytt, og í stað þess að sveit-
arfélögin sem greiða til hljómsveit-
arinnar og Ríkisútvarpið skipi
fulltrúa sína í hana, skipar hljóm-
sveitin sjálf nefndarfólk.
Í starf kynningar- og markaðs-
stjóra hefur verið ráðinn Þorgeir
Tryggvason, sem starfað hefur á
auglýsingastofum og er mikill
músíkunnandi að sögn Þrastar. Þor-
geir hefur störf í ágúst.
Ekki er búið að ráða í starf nótna-
varðar, en í því felst öll umsýsla
nótna hljómsveitarinnar, pantanir á
nótum til flutnings, utanumhald og
fleira.
Sinfóníuhljómsveit Íslands ræður nýtt fólk og endurskipuleggur listræn störf
Staða tónlistar-
stjóra tekin upp
FASTAGESTIR Sinfóníuhljómsveitarinnar eiga vafalaust eftir að sakna
Helgu Hauksdóttur, sem hefur að öðrum ólöstuðum verið andlit hljóm-
sveitarinnar, staðið vaktina innávið og útávið, spjallað við gesti á tón-
leikum, reddað málunum á augabragði þegar sólistar hafa forfallast og séð
til þess að tónleikar hljómsveitarinnar hafi gengið snuðrulaust.
Morgunblaðið/Sverrir
Helga Hauks hættir
HÓMER Simpson hefur verið
nefndur „hinn sanni nútímamað-
ur“, enda fangar heimspeki þessa
lata, feita, treggáfaða, vingjarn-
lega og góðhjartaða iðjuleysinga
vestrænan hugsunarhátt á óþægi-
lega skýran og hnitmiðaðan hátt.
Nú er jafnvel svo komið að fitu-
bollan brjóstgóða er orðin að stað-
alímynd hins ameríska heim-
ilisföður, fígúra úr strikum og
bleki sem er raunverulegri en
menn af holdi og blóði. Þá er
skammt að minnast þess að í til-
efni frumsýningar á væntanlegri
Simpsons-bíómynd voru opnaðar
Kvik-E-Mart-búðir hér og þar í
Bandaríkjunum en slíkir stór-
markaðir hafa hingað til einungis
verið til í gerviveröld The Simp-
sons og félaga.
Og skilin á milli raunveruleik-
ans og sýndarheimsins verða sí-
fellt ógleggri. Nú stendur yfir
keppni á milli bæja í fjórtán ríkj-
um í Bandaríkjunum, bæja sem
allir kallast Springfield og gera
tilkall til þess að teljast hinn eini
og sanni heimabær hinna gulu
sjónvarpskaraktera. Eftir 18 ára
sýningartíma, 400 þætti og ýmsar
vísbendingar, hefur leyndarmálinu
aldrei verið ljóstrað upp.
Sigurbærinn mun halda „hina
opinberu forsýningu The Simp-
sons-kvikmyndarinnar á gula
teppinu“, eins og það er kallað.
Hvar er
Springfield?
Raunveruleikinn
teygður og togaður
Í NETKOSNINGU skipulagðri af
lítt þekktum svissneskum kvik-
myndagerðar- og viðskiptamanni
voru kosin sjö undur veraldar. Þau
hundrað milljón atkvæði sem bár-
ust ættu að hafa eitthvað til síns
máls en samkvæmt þeim eru hin
nýju undur veraldar Kínamúrinn,
hin forna steinborg Petra í Jórd-
aníu, brasilíska styttan af frels-
aranum Jesú Kristi, fjallaborg
Machu Picchu í Perú, Chichen Itza-
pýramídarnir í Mexíkó, Kólosseum
í Róm og Taj Mahal á Indlandi.
Að auki var hinn mikli pýramídi í
Ghiza, hið eina hinna upprunalegu
sjö undra veralda að mati gríska
fræðimannsins Antipater frá Sidon,
gert að „heiðursundri“.
Þessi netkosning er sennilega hin
stærsta sem farið hefur fram síðan
saga veraldarvefjarins hófst.
Hin nýju sjö
undur veraldar
KARLOVY Vary-kvikmyndahátíðin
sem haldin er í Tékklandi er einhver
áhrifamesta alþjóðlega kvik-
myndahátíðin í Mið- og Austur-
Evrópu. Á nýafstaðinni verðlauna-
afhendingu lenti verk Baltasars
Kormáks, Mýrin, í fyrsta sæti hátíð-
arinnar í ár. Önnur íslensk mynd,
Vesturportsmyndin Börn eftir
Ragnar Bragason, átti þó ekki síður
velgengni að fagna; hún lenti í 12.
sæti af 215 myndum í kosningu
áhorfenda um bestu mynd hátíð-
arinnar. Mýrin endaði aftur á móti í
78. sæti í áhorfendakosningunni.
„Það er ófrávíkjanleg regla svona
hátíða að þær myndir sem sýndar
eru í aðalkeppnunum mega hvergi
annars staðar hafa verið sýndar,“
segir Ragnar Bragason. „Þess
vegna eru oft ekki nema átta til tíu
myndir í aðalkeppninni.“
Kvikmynd Ragnars tók því ekki
þátt í aðalkeppninni enda hefur hún
flakkað um fjölmargar hátíðir að
undanförnu. „En hún hefur greini-
lega fallið áhorfendum í geð,“ segir
Ragnar.
Eftir mikið flakk og þeyting um
hinar og þessar kvikmyndahátíðir að
undanförnu kveðst Ragnar svo loks
hafa ákveðið að taka sér kærkomið
frí. En myndir hans halda áfram að
ferðast.
Önnum kafið Vesturport
Vesturportshópurinn hefur í nógu
að snúast þessa dagana. Hann kem-
ur, svo dæmi sé tekið, til greina við
úthlutun verðlaunanna Europe
Prize New Theatrical Realities, sem
veitt verða í ellefta skipti í ár.
„Þetta eru peningaverðlaun,“ seg-
ir Rakel Garðarsdóttir, kynning-
arstjóri Vesturports. „Það getur
verið gott fyrir sjálfstæða leikhópa
að fá peninga,“ bætir hún svo við í
glettilegum tón. „Annars veit ég
ekki mikið um þetta; málin skýrast
betur eftir helgi.“
„Þá sýnir Vesturport fjögur ný
verk á árinu,“ segir Rakel. „Gísli
Örn Garðarsson leikstýrir Faust og
Tilsammans, verki byggðu á sam-
nefndri sænskri mynd, en Björn
Hlynur Haraldsson leikstýrir Jesus
Christ Superstar og frumsömdu
verki eftir sig, Dubbeldusch – það
heitir eftir hárnæringunni og
sjampóinu.“
Þá má geta þess að Vesturports-
hópurinn er á leið á ýmsar hátíðir, í
Kóreu, Kólumbíu og Ástralíu.
Fjölmargt á döfinni hjá Vesturporti
Börn og Foreldrar á
stanslausum þeytingi
Foreldrar Annað verk eftir Ragnar Bragason, sem einnig er sýnt á ýmsum
kvikmyndahátíðum.
♦♦♦