Morgunblaðið - 09.07.2007, Qupperneq 36
36 MÁNUDAGUR 9. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
Evan hjálpi okkur
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
FRÁ LEIKSTJÓRA
BRUCE
ALMIGHTY
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
H.J. - MBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL
CODE NAME: THE CLEANER kl. 6 B.i. 10 ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8:40 B.i. 10 ára DIGITAL
EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
EVAN ALMIGHTY VIP kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
ZODIAC kl. 9 B.i.16.ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i.7.ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5:30 B.i.10.ára
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
VERIÐ er að fínpússa nemendur á
Norður-Englandi, áður en þeir sækja
um inngöngu í menntastofnanir há-
skólaborganna. Þangað komast þeir
bestu og mikið í húfi fyrir námsmenn-
ina jafnt sem skólameistarann (Clive
Merrison), að sem flestir nái því eftir-
sótta marki. The History Boys segir
af viðskiptum nemendanna við kenn-
ara sína, einkum Hector (Griffiths), og
Irwin (Stephen Campbell Moore), sem er ungur, nútíma-
legur oflátungur sem á að hressa upp á ímyndina sem
hinn formfasta og hátíðlegi Hector hefur tamið þeim.
Myndin er gerð og leikin af sömu listamönnum og leik-
ritið sem það er byggt á, flutningurinn getur því tæpast
verið í öruggari höndum. Hytner og leikritaskáldið Alan
Bennett eru að auki gamlir samstarfsmenn (The Mad-
ness of King George), vandvirkir, fyndnir leikhúsmenn
báðir tveir og leikarahópurinn er unun á að horfa.
Tekist er í gamni og alvöru á andstæðum viðhorfum í
kennslu, uppeldisaðferðum og undirbúningi fyrir fram-
tíðina, þar sem aðalkennararnir eru á öndverðum meiði.
Einnig rótað upp í einkalífi viðkomandi, báðir eru þeir
Irwin og Hector hommar í skápnum og líkt og við má bú-
ast af höfundunum er The History Boys gagnrýni á hom-
mafóbíu jafnframt því sem hún herir grín að mennta-
snobbi breskra, með merkikertið, skólameistarann í
fararbroddi. Kvenfyrirlitning fær einnig á baukinn í per-
sónu sögukennarans Lintott (de la Tour), sem segir m.a.
eitthvað á þá leið að Mannkynssagan sé „saga af karl-
bjálfum og konum sem komi í humátt á eftir með skúr-
ingarfötuna – að þrífa upp eftir okkur skömmina.“
Skynsamlega skrifuð, óskammfeilin, kunnáttusamlega
leikin og vel heppnuð mynd í alla staði – þó að hún skilji
engin ósköp eftir sig.
Bekkjarfélagið að
breskum hætti
Sæbjörn Valdimarsson
MYNDDISKAR
Nýjar myndir
Gamandrama. England 2006. Sena 2007. 109 mín. Bönnuð
yngri en 12 ára. Leikstjóri: Nicholas Hytner. Aðalleikarar: Rich-
ard Griffiths, Frances de la Tour.
The History Boys HVERNIG lítur hún út, ein frægasta
ævintýramynd allra tíma, á öld tak-
markalausrar tölvutækni? Bara ljóm-
andi vel, takk fyrir, seinni tíma mynd-
ir standast henni ekki snúning.
Sögumennskan er í fyrirrúmi og þjóð-
sögunni fylgt samviskusamlega. Hrói
rænir þá ríku og gefur fátækum,
berst við Sir Guy og Jóhann kóng og
um hjarta lafði Marian. Hefur alls
staðar betur. Ósvikið ævintýri og ódrepandi afþreying,
með fjallhressan Flynn með hárkollu og hött. Óvenju-
forvitnilegt aukaefni fylgir.
Hrói í höndunum á Flynn
Sæbjörn Valdimarsson
MYNDDISKAR
Klassík
Ævintýramynd. Bandaríkin 1938. Sam myndir. 98 mín. Öllum
leyfð. Leikstjóri: Michael Curtiz. Aðalleikarar: Errol Flynn, Olivia
DeHavilland.
The Adventures of Robin Hood ÞÆR fréttir voru að berast að
Ridley Scott er að undirbúa tökur
á enn einni myndinni um ein-
hverjar lífseigustu hetjur hvíta
tjaldsins, Hróa hött og vini hans í
Skírisskógi. Hún mun heita Nott-
ingham, Russell Crowe fer með
hlutverk fógetans og munu þeir
Hrói berjast um ástir lafði Marion.
Annað er ekki vitað á þessu stigi
en myndin verður örugglega
barmafull af ofurbrellum og tölvu-
trikkum.
Hrói hefur verið kvikmyndaður í
meira en 30 skipti og hefur þessi
hartnær þúsund ára þjóðsaga
gengið í gegnum talsverðar breyt-
ingar, bæði í gegnum aldirnar og í
hundrað ára sögu kvikmyndanna.
Fyrsta bíómyndin um Hróa og
hans kátu sveina var gerð í Holly-
wood 1912. Englendingar komu
með sína útgáfu ári síðar. Fyrsta
umtalsverða kvikmyndagerðin er
frá 1922, fræg, dýr og vinsæl, með
Douglas Fairbanks í titilhlutverk-
inu og sígildum skylmingaratrið-
um. Þekktasta, og besta myndin að
flestra dómi, er frá 1938, og ný-
komin út í hátíðaútgáfu hérlendis
(sjá umfjöllun).
Kvikmyndagerðarmenn eru
óþreytandi að fást við heiðurs-
þrjótinn Hróa, er skemmst að
minnast tveggja mynda sem komu
út 1991; Robin Hood: Prince of
Thieves, með Kevin Costner, og
Robin Hood með Patrick Bergin í
tilhlutverkinu. Vondur er Costner
en Bergin er jafnvel ógæfulegasti
Hrói allra tíma.
Hér er fátt eitt talið af bíómynd-
um, auk fjölmargra sjónvarps-
mynda og -þáttaraða um goðsögn-
ina, en það er útilokað að enda
þessa umfjöllun án þess að minn-
ast grínmyndar Mels Brooks, Rob-
in Hood: Men in Tights (’93),
(nafnið var fyndnast), og hinnar
raunsærri Robin and Marian (’76),
gerð af Richard Lester með Sean
Conney og Audrey Hepburn í aðal-
hlutverkunum. Robert Shaw fór á
kostum sem fógetinn. Svo var það
bastarðurinn The Ribald Tales of
Robin Hood (’69), sem skaut upp
kollinum í Hafnarbíói á sínum
tíma, en það var allt annar Hrói,
ekki einu sinni á sokkabuxum.
Heiðursþrjóturinn
Hrói höttur
Sæbjörn Valdimarsson
Nýjasti Hróinn Í þáttaröð á Skjá-
Einum er Hrói með gel í hárinu.
ÞRJÁR myndir byggðar á áþekkum
morðmálum hafa verið sýndar að
undanförnu: The Black Dahlia, hin
magnaða Lonely Hearts Killlers og
nú Hollywwodland, sem rekur dauða
Georges Reeves (Affleck), sem er
kunnastur fyrir að túlka Súperman í
sjónvarpsþáttum um miðja síðustu
öld og halda við Toni Mannix (Lane),
eiginkonu eins stjórnanda MGM.
Reeves fannst látinn á besta aldri og töldu dómstólar
að hann hefði fallið fyrir eigin hendi, en það hefur
löngum verið vefengt. Kvikmyndagerðarmennirnir leika
sér að ýmsum möguleikum með augum einkaspæjarans
Simos (Brody), sem finnur fjölmarga galla í málatilbún-
aðinum og hefur nokkra grunaða. Myndin er tvískipt,
segir af draumum, frama og dapurlegum endalokum
Reeves, sem Affleck leikur af óþekktum innblæstri síðan
í Chasing Amy. Lane skiptir sköpum, hún er stórkostleg
sem óhamingjusöm eiginkona sem á allt annað en mann-
inn sem hún elskar. Lane á besta augnablik myndar-
innar þegar hún snýr sér að eiginmanninum (Hoskins),
þreytt og vonsvikin, miðaldra kona.
Brody er lipur spæjari en manngerðin passar illa í
hlutverkið. Mörg aukahlutverkin eru áberandi vel mönn-
uð, sömuleiðis er útlit myndarinnar óaðfinnanlegt og yfir
höfuð er Hollywoodland þétt afþreying.
Dauði Súpermans
MYNDDISKAR
Nýjar myndir
Spennumynd. Bandaríkin 2006. Sam myndir. 121 mín. Bönnuð
yngri en 12 ára. Leikstjóri: Allen Coulter. Aðalleikarar: Adrian
Brody, Diane Lane.
Hollywoodland Sæbjörn Valdimarsson
MYNDDISKAR »
STYÐST við glæpaferil Alans Conway
(Malkovich), óvenjubíræfins svika-
hrapps sem þóttist vera kvikmynda-
leikstjórinn frægi og komst fyrir vikið
jafnvel í íslensku pressuna. Color Me
Kubrick gerir góðlátlegt grín að trú-
girni og botnlausri óskhyggju með-
aljóna sem eru tilbúnir að skella
skollaeyrum við skynseminni ef þeir
telja sig fá snert af frægðarljóma.
Conway heillar peð og smástirni í leiklistar-, hönnunar-
og tónlistargeiranum upp úr skónum (o.fl.), undir sínu
ótrúverðuga, falska flaggi. Þessi mislita hjörð, mestmegn-
is samkynhneigð, er reiðubúin til að færa fórnir fyrir
mannskrípið sem þeir álíta meistara Kubrick. Það gengur
ekki að eilífu en furðu langt.
Fín háðsádeila á grúppíuna í mannssálinni sem lætur
leiða sig með opin augun út í kviksyndið. Missir smám
saman flugið þó að Davidson lífgi upp á seinni hlutann
sem hæfileikalítill slagarasöngvari með Vegasdrauma.
Malkovich fær tækifæri til að túlka ótrúlegt viðundur og
heldur sýningunni gangandi ásamt nokkrum snotrum til-
þrifum, einkum í notkun tónlistar úr myndum meistarans.
Betri eru tálvonir en engar
MYNDDISKAR
Nýjar myndir
Gamandrama. England/Frakkland 2005. Myndform. 83 mín.
Bönnuð yngri en 12 ára. Leikstjóri: Brian W. Cook. Aðalleikarar:
John Malkovich, Jim Davidson.
Color Me Kubrick Sæbjörn Valdimarsson
NELLY Furtado er trúlofuð hljóð-
manninum sínum, Demacio „Demo“
Castellon. Þau byrjuðu að vera
saman eftir að hann vann að gerð
plötu söngkonunnar, „Loose“, á
síðasta ári. Nelly skartar nú risa-
stórum demantshring, en ekki er
langt síðan Demacio bar fram stóru
spurninguna.
Nelly Furtado hefur ævinlega
verið treg til að tala um einkahagi
sína. Þegar upp kom að hún ætti
leynilegan kærasta á síðasta ári
sagði hún: „Ég tala bara hreinlega
ekkert um þetta. Kærastinn er
ekkert frægur eða eitthvað
þannig.“
Nelly
Furtado
trúlofuð
Hógvær Nelly Furtado þykir hreint
ekki mikið til sviðsljóssins koma.