Morgunblaðið - 08.08.2007, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Allt til rafsuðu
Þú færð allt til rafsuðu hjá okkur
Tæki, vír og fylgihluti
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
"#$"
%"&'
!
!
! ! ! ! !
" #
$#
%&
'
!
! ! ! ! !
()
*
+,(
()
*
+,(
()
*
+,(
! "# $%&'(
-& (& ##
.#/ 0
. ! .!1(
* - -
!.)
!.*
!.
- -
23 !
!
! ! ! ! !
* "# % +, "(
-& (& .# 0 ,- .
% #-& (& # . !
&!(& # .
! (
0
"
1 "
%"&(
)
2- "
3
-
#"
FISKIFÉLAG Íslands í samvinnu við sjávarútvegsráðu-
neytið kynnti í gær umhverfisyfirlýsingu um íslenskar fisk-
veiðar. Sjávarútvegsráðherra, forstjóri Hafrannsóknastofn-
unar, Fiskistofustjóri og framkvæmdastjóri Fiskifélags
Íslands skrifuðu undir yfirlýsinguna og gerðu jafnframt
grein fyrir næstu skrefum sem tekin verða til að mæta kröf-
um markaðarins um sjálfbæra nýtingu fiskistofna.
Fiskifélag Íslands hefur í samstarfi við aðildarfélög sín og
sjávarútvegsráðuneytið unnið að því um nokkurt skeið að
bregðast við auknum kröfum á erlendum fiskmörkuðum um
staðfestingu þess að nýting íslenskra fiskistofna sé með
ábyrgum hætti og í samræmi við afrakstursgetu þeirra. Í
tengslum við þetta verkefni hefur starfað vinnuhópur sem í
sitja Kristján Þórarinsson frá LÍÚ, Guðbergur Rúnarsson
frá SF, Örn Pálsson frá LS, Kristinn Hugason frá sjáv-
arútvegsráðuneytinu og Pétur Bjarnason og Jón Skjöldur
Karlsson frá FÍ.
Tvö meginatriði
Áherslan hefur beinst að tveimur atriðum, sem í sjálfu
sér eru nátengd. Í fyrsta lagi að útbúa yfirlýsingu um ís-
lenskar fiskveiðar, þar sem ábyrgir aðilar innan sjávarút-
vegsins, sem fást við stjórnsýslu, rannsóknir og starfa innan
greinarinnar, gera grein fyrir hvernig íslensk fiskveiði-
stjórnun virkar. Í öðru lagi að koma á ferli, sem gerir fram-
leiðendum kleift að fá staðfestingu á því að sú vara sem þeir
bjóða upp á, sé unnin úr hráefni sem aflað var með veiðum
sem lúta íslenskri fiskveiðistjórnun. Þetta ferli verði vottað
af þriðja aðila sem til þess er hæfur og í tengslum við það
gætu framleiðendur fengið aðgang að því að nota sérstakt
merki á framleiðslu sína til staðfestingar að þeim skilyrðum
sé fullnægt.
„Þessi yfirlýsing er í raun undirbúningur fyrir það vott-
aða ferli sem vikið er að hér að framan og er stefnt að því að
fyrstu drög að því verði tilbúin á haustdögum í ár,“ sagði
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra meðal annars
við undirskriftina. „Þetta undirstrikar ásetning okkar að
sýna með afgerandi hætti að íslenskur sjávarútvegur sé
stundaður með ábyrgum hætti. Það hefur verið og er tals-
verður þrýstingur að taka upp einhvers konar umhverf-
ismerki í íslenskum sjávarútvegi. Við höfum þó ekki ljáð því
máls að verða aðilar að einhvers konar yfirþjóðlegum um-
hverfismerkingum. Yfirlýsing af þessu tagi sýnir hins vegar
einbeittan vilja til að vinna af ábyrgð að auðlindanýting-
unni.“
Útvegurinn stundaður
með ábyrgum hætti
Morgunblaðið/Sverrir
Undirritun Framkvæmdastjóri Fiskifélags Íslands, Pét-
ur Bjarnason, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Jóhann
Sigurjónsson, forstjóri Fiskistofu, Þórður Ásgeirsson, og
sjávarútvegsráðherra, Einar K. Guðfinnsson, undirrit-
uðu yfirlýsinguna á Fiskmarkaði Íslands.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
ÍGILDI 11.000 tonna af þorski er
nú tekið til hliðar í sértækar að-
gerðir áður en leyfilegum heildar-
afla er skipt niður. Þannig koma
122.622 tonn af þorski til úthlut-
unar innan aflamarkskerfanna
tveggja í stað 130.000 tonna. Tæp
4.400 tonn af þorski eru tekin frá
vegna línuívilnunar, en alls fara
tæp 6.000 tonn af þorski, ýsu og
steinbít til ívilnunarinnar. 6.542
tonn af þorski, ýsu, ufsa og stein-
bít eru tekin frá til stuðnings
byggðarlögum og ríflega 3.200
tonn eru tekin til hliðar vegna bóta
til skel- og rækjubáta.
Sama magn til línuívilnunar
Nú er tekið til hliðar um þúsund
tonnum minna mælt í þorskígild-
um en í fyrra. Stafar það af minni
bótum vegna rækju- og skelbáta.
Þrátt fyrir að minna sé tekið til
hliðar fyrir úthlutun nú, er hlutfall
þess af leyfilegum heildarafla
hærra á næsta fiskveiðiári, en því,
sem nú er að líða. Sama magn er
nú tekið frá vegna línuívilnunar og
á þessu fiskveiðiári og tekið er um
200 tonnum meira frá til stuðnings
byggðarlögunum. Vegna hinnar
miklu skerðingar á þorskveiði-
heimildum vega hinar sértæku að-
gerðir þyngra en áður. Sé dæmi
tekið af þorskinum, þá hefur hlut-
fall línuívilnunar farið úr 1,65% af
leyfilegum heildarafla í 2,60% á
næsta fiskveiðiári.
Gefnar hafa verið út reglugerðir
um veiðar í atvinnuskyni fiskveiði-
árið 2007/2008 og reglugerð um
sérstaka úthlutun til skel- og
rækjubáta. Í reglugerð um veiðar í
atvinnuskyni á fiskveiðiárinu 2007/
2008 eru tilgreindar aflaheimildir í
einstökum tegundum, sem úthlut-
að verður á grundvelli aflahlut-
deildar eða krókaaflahlutdeildar.
Þúsund tonnum minna
en á þessu fiskveiðiári
Frá þessu er greint á heimasíðu
Fiskistofu og segir þar svo: „Kem-
ur fram í 2. gr. hennar hversu
mikið kemur til úthlutunar þegar
frá hafa verið dregnar þær afla-
heimildir sem ráðstafað verður
samkvæmt sérstökum heimildum í
lögum um stjórn fiskveiða til efl-
ingar sjávarbyggðum með úthlut-
un byggðakvóta, til stuðnings skel-
og rækjubátum sem orðið hafa fyr-
ir verulegri skerðingu aflaheimilda
og loks til línuívilnunar. Samtals
nema þær heimildir sem þannig
eru dregnar frá rétt um það bil 11
þús. þorskígildislestum eða þúsund
lestum minna en á síðasta ári og
felst skerðingin í minni bótum til
skel- og rækjubáta og er það í
samræmi við reglugerð þar að lút-
andi. Í reglugerð um veiðar í at-
vinnuskyni felast óverulegar
breytingar frá reglum yfirstand-
andi fiskveiðiárs en þó má nefna
að felld hafa verið niður sérákvæði
um rýmri tegundartilfærslur í til-
teknum fisktegundum. Í þessu
sambandi má jafnframt árétta að
samkvæmt ákvörðun frá því í vor
þá fellur hinn 1. september nk.
niður 10% álag á fisk sem fluttur
er óunninn á erlendan markað.
Þessi ákvörðun hafði áður verið
kynnt og ennfremur að sett hefur
verið á laggirnar nefnd sem at-
huga á með hvaða hætti innlendum
vinnsluaðilum verði gert kleift að
bjóða í fisk sem flytja á óunninn
út. Þá má minna á að 1. september
nk. tekur einnig gildi ný reglugerð
um vigtun sjávarafla.“
Ígildi 11.000 tonna af
þorski í sértækar aðgerðir
Vægi slíkra aðgerða eykst vegna niðurskurðar á þorskveiðiheimildum
Í HNOTSKURN
»Sama magn er nú tekið frávegna línuívilnunar og á
þessu fiskveiðiári og tekið er
um 200 tonnum meira frá til
stuðnings byggðarlögunum.
»Nú er tekið til hliðar umþúsund tonnum minna
mælt í þorskgildum en í fyrra.
Stafar það af minni bótum
vegna rækju- og skelbáta.
» Í reglugerð um veiðar í at-vinnuskyni felast óveru-
legar breytingar frá reglum
yfirstandandi fiskveiðiárs.
- # , ./.
!""(
45.- 1(-! . 6(
%&
'
$#
( 7,(
" #
8 .1
&
.9#1
&
%6-1
+ !1
"
+ !
/(
+6#!
2 #
:
997)(
;<&!
= 7=( >
: . ((
( !
76!! <
/!
:, <
,-
#2 (<
(
1(2 (
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
<
0
0
- ! ."
% 1 )
, " 1" 1, " " 2!""3
- <
.
+6#!
2 #
+, <
,-
4 (#
#2
?
?
45+@