Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 223. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is TÍSKUHEIMUR ÍSLENDINGAR ÞEKKJA VEL ÞEKKTUSTU DÖNSKU MERKIN >> 26 AF HVERJU LES FÓLK ÞESSAR BÆKUR? POTTEREIMEIR UPPGJÖR Í LESBÓK FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is FJÁRSKORTUR og aðstöðuleysi hefur lengi staðið starfsemi BUGL, Barna- og unglingageðdeildar Land- spítala Íslands, fyrir þrifum og gert starfsfólki erfitt fyrir að berjast við biðlistana. Heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra hefur nú sagt að ríkisstjórnin hyggist leggja áherslu á geðheilbrigðismál barna og ung- linga og var fyrsta skrefið tekið í gær þegar tilkynnt var um 150 millj- óna króna framlag til eflingar þjón- ustu BUGL næstu 18 mánuði. Mannekla háir BUGL einna helst, enda hefur deildin misst margt af sínu reyndasta fagfólki undanfarin ár og ekki tekist að ráða nýtt. Linda Kristmundsdóttir deildarstjóri segir þetta vandamál sem verði að horfast í augu við. „Við þurfum að ná að halda starfsfólki hjá okkur og vera samkeppnishæf, sérstaklega á svona sérhæfðri stofnun.“ Samkvæmt nýrri áætlun ráðherra verður ráðist í mannaráðningar á næstu mán- uðum, en enn hefur ekki verið rætt hversu mörg stöðugildi verða fyllt. Linda segir í raun vanta fólk úr öll- um starfshópum en brýnust sé nauð- synin fyrir að fjölga þeim sem sinni nýjum málum á göngudeild. Þyrfti átak á fleiri sviðum Tilvísunum á BUGL fer sífellt fjölgandi svo deildin annar ekki eft- irspurn. Að mati ríkisstjórnar mun styrkurinn sem nú verður veittur duga til að ná niður biðlistum, en að mati Lindu ríður einnig á að líta til annarra stofnana til að ná jafnvægi í geðheilbrigðismálum. „BUGL er ekki eyland, þetta snýst líka um hvaða úrræði eru til í félagsþjón- ustu, barnaverndarstofu og skóla- kerfinu. Þessar hliðar eru ekki síður áhrifamikill og meðvirkandi þáttur. Ef það tækist til dæmis að auka geð- heilbrigðisþjónustu á heilsugæslu- stöðvum og í skólum þá væri mun færri málum vísað á BUGL.“ Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Rými Fyrsti hluti nýs húsnæðis Bugl verður opnaður í maí 2008. Hvað er nóg fyrir BUGL? Efla þarf aðra þjónustu samhliða FJÖLDI fólks sótti tónleika á Laugardalsvelli í gærkvöldi í tilefni af 25 ára afmæli Kaupþings. Páll Óskar var kynnir á tónleikunum og sagði hann að 40.000 manns væru þar saman komin. Sigríður Dögg Arnardóttir, gestur á tónleik- unum, sagði þá hafa heppnast vel. „Það var mikil fjölskyldustemning og mikið af fólki með ung börn. Þetta var góð upphitun fyrir Menning- arnótt.“ Morgunblaðið/Kristinn „Góð upphitun fyrir Menningarnótt“ HEIL 50 ár eru síðan Hilmar Þorbjörnsson úr Ármanni setti Íslandsmet í 100 m hlaupi karla þegar hann hljóp vegalengdina á 10,3 sekúndum. Margir hafa ætlað sér að bæta þetta met en enn hefur engum tekist það. Met Hilm- ars er því enn í fullu gildi, en tveir Íslendingar hafa náð að jafna það, Vilmundur Vilhjálmsson úr KR á Selfossi árið 1977 og Jón Arnar Magnússon 1996. Metin sem sett voru meðan notast var við handtíma- tökur standa enn, en 0,24 sekúndum var bætt við tímana til að þeir stæðust samanburð við seinni tíma rafmagns- tímatökur. 53 einstaklingar hafa hlaupið 100 metrana undir 10 sekúndum en athygli vekur að enn hefur enginn hvítur hlaupari náð þeim árangri. | Íþróttir Hálfrar aldar met ennþá í fullu gildi Hilmar Þorbjörnsson Eftir Gunnar Pál Baldvinsson í Arnarfirði ANNAÐ kuml fannst í gær í fornleifauppgreftrinum í Hringsdal í Arnarfirði. Ekki er vitað hversu margar beinagrindur eru í kumlinu en talið er að beinin séu frá 9. eða 10. öld. Óvíst er hvort beinin verða öll grafin upp áður en uppgreftrinum lýkur í sumar en til stóð að ljúka honum í gærkvöldi. Þetta er annað sumarið sem fornleifafræðingar, undir forystu Adolfs Friðrikssonar, grafa í Hringsdal en í fyrra fannst þar heillegt kuml með beinum manns og munum sem lagðir höfðu verið honum við hlið. Var verið að kanna svæðið í kringum kumlið sem fannst í fyrra þegar fornleifafræðingarnir grófu sig niður á manna- bein. Í gærkvöldi var ekki búið að grafa mikinn jarðveg of- an af kumlinu en þó höfðu tvö brot úr höfuðkúpu eða höf- uðkúpum verið greind. Ljóst er að þetta kuml er ekki jafn heillegt og það sem fannst í fyrra þar sem beinin lágu ekki í greftrunarstellingu. Til stóð að ljúka upp- greftrinum í gær en að sögn Adolfs verður líklega reynt að vinna sem mesta vinnu við kumlið í dag áður en geng- ið verður frá því fyrir veturinn. Í vikunni fundust jafn- framt rústir steinhlaðins mannvirkis undir sandinum en Adolf segir að líkur séu til að það hafi komið mun síðar til en kumlin tvö sem nú hafa fundist í Hringsdal. Kuml fannst í Arnarfirði  Talið að beinin séu frá níundu eða tíundu öld  Einnig fundust rústir steinhlaðins mannvirkis í uppgreftrinum Morgunblaðið/Gunnar Páll Mannabein Fornleifafræðingar ráku upp stór augu þegar þeir grófu niður á mannabein í Hringsdal í gær. AFMÆLISVEISLA! OPIÐ 10– 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.