Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 2

Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is EISTNESKUR karlmaður, fæddur 1981, var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í fjögurra mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Þá skal hann greiða Icelandair og verjanda sínum samtals ríflega 1,5 milljónir króna. Maðurinn sveik út farmiða hjá Icelandair í níu skipti, á tímabilinu frá 16. mars sl. til 6. ágúst sl., alls að andvirði rúmlega 800 þúsund krónur. Lét hann skuldfæra andvirði farmiðanna á greiðslu- kortareikninga annars fólks. Upplýsingar um nöfn og númer kortareikninganna tók hann af kvitt- unum á bar sem hann starfaði á í London í Eng- landi. Leiðir mannsins lágu m.a. milli London og Keflavíkur, en einnig flaug hann milli Íslands og Norðurlandanna með Icelandair. Hann var hand- tekinn þegar hann millilenti hér á landi 7. ágúst sl. Icelandair hafði samband við lögregluna og gerði viðvart um að von væri á þessum óprúttna við- skiptavini. Var hann handtekinn við komuna og hafður í gæsluvarðhaldi þar til dómur féll í máli hans í gær. Samkvæmt framlögðum gögnum, m.a. frá al- þjóðadeild ríkislögreglustjóra, hefur maður þessi hlotið dóma í Eistlandi fyrir þjófnaðartilraunir og skjalafals. Einnig hefur hann fengið dóma í öðrum Evrópuríkjum fyrir áþekk brot og hann var dæmdur fyrir í gær. Þessir dómar voru ekki lagðir fram í málinu og höfðu ekki áhrif á ákvörðun refs- ingar. Maðurinn virðist ekki hafa önnur tengsl við Ísland en dálæti sitt á hinu íslenska flugfélagi, að sögn lögreglu. Málið var þingfest í gær í Héraðsdómi Reykja- ness og dæmt í því samdægurs. Sem fyrr segir var hinn ákærði dæmdur í fangelsi í fjóra mánuði, frá því dregst tíu daga gæsluvarðhaldsvist. Þá skal hann greiða Icelandair 1,3 milljónir vegna farmið- anna og kostnaðar félagsins. Einnig þóknun verj- anda síns, Unnars Steins Bjarndahls hdl., 250 þús- und krónur. Finnbogi H. Alexandersson dómari kvað upp dóminn. Eistneskur karlmaður flaug níu sinnum með Icelandair á sex mánuðum Sveik út farmiða með stolnum kortaupplýsingumFRIÐRIK Ólafs-son, stórmeist- ari í skák, tap- aði fyrir Nonu Gaprindashvili, fyrrum heims- meistara kvenna, í fyrstu umferð al- þjóðlegs skák- móts í Arnheim í Hollandi sem haldið er í minn- ingu dr. Max Euwe, fyrrum heimsmeistara í skák og forseta Alþjóðaskáksambandsins. Friðrik sagði að hann hefði mis- stigið sig í byrjuninni og átt undir högg að sækja eftir það og ekki náð að jafna taflið fyllilega. Alls verða tefldar níu umferðir á mótinu, en þátttakendur eru alls staðar að úr heiminum og mikil áhersla lögð á sem breiðasta þátt- töku í anda dr. Euwe. Friðrik tefl- ir í dag við unga öfluga hollenska skákkonu, sem lagði argentínska skákmanninn Panno í fyrstu um- ferðinni í gær. Friðrik tapaði fyrir Gaprin- dashvili Friðrik Ólafsson RÍFLEGA tuttugu hælisleitendur bíða eftir því að skorið verði úr um það hvort þeir fái hæli hér á landi. Sandra Lyngdorf lögfræðingur sagði í samtali við Fréttavef Morg- unblaðsins í gær að það gleymdist oft að hér bíður fólk iðulega í marga mánuði og jafnvel á annað ár við bagalegar aðstæður í þröngu húsnæði í Ytri-Njarðvík þar sem fólk hefur ekkert við að vera. „Þetta fólk hefur sumt þurft að sæta pyntingum í heimalandi sínu,“ sagði Sandra og bætti við að hæl- isleitendurnir fengju endrum og eins íslenskukennslu. Í langflestum tilfellum væri hæl- isleitendum snúið aftur og einungis hefði einn maður sem kom á eigin vegum fengið stöðu flóttamanns svo vitað sé þannig að útlitið væri fremur dapurt. Það sem af er þessu ári hafa 24 sótt um hæli hér. Flestir voru hæl- isleitendur frá Rúmeníu og Rúss- landi en einnig kom hingað fólk frá Íran og Afganistan. Löng bið fyrir hælisleitendur Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is FULLTRÚAR Varmársamtakanna segja að þegar sé búið að leggja tengibraut úr Helga- fellslandi í Mosfellsbæ án þess að sú fram- kvæmd hafi verið samþykkt á deiliskipulagi. Samtökin hafa ítrekað kæru til lögreglu í kjölfar þess að talsverð umferð hefur verið um veginn að undanförnu. Bæjaryfirvöld segja aðeins um vinnuveg að ræða sem auð- velt sé að fjarlægja, verði hann ekki sam- þykktur á deiliskipulagi. „Friðsæld horfin úr kvosinni“ „Það titrar allt og skelfur þegar þessir þungu vörubílar keyra þarna með sín þungu hlöss. Öll friðsæld er horfin úr kvosinni með þessum látum,“ segir Sigrún Pálsdóttir í Varmársamtökunum. Sigrún segir að viðvarandi umferð hafi verið um veginn frá byrjun júlí. Hinn 15. júlí hafi lóðir verið auglýstar í Helgafellslandi og þá hafi umferð tilvonandi kaupenda verið beint um þennan veg. „Vinnuvegur er ekkert annað en vegur og það er ekkert til í skipulagslögum eða skipu- lagsreglugerð sem heitir vinnuvegur. Allar framkvæmdir á hverfisverndarsvæðum eru skipulagsskyldar. Þessi vegur var gerður áð- ur en búið var að setja deiliskipulagið í svo- kallað athugasemdaferli. Eini möguleiki íbúa til þess að hafa einhver áhrif er að gera at- hugasemdir við deiliskipulagstillögur. Með þessu er búið að taka af fólki þann rétt,“ seg- ir Sigrún. Ekkert óeðlilegt við framkvæmdina „Þetta er ekki vegur, þetta eru lagnafram- kvæmdir og kringum þær er lagður vinnu- vegur,“ segir Haraldur Sverrisson, formaður bæjarráðs og formaður skipulags- og bygg- inganefndar, en hann tekur við starfi bæj- arstjóra í Mosfellsbæ 1. september nk. Hann segir ekkert óeðlilegt við framkvæmdina. Skipulags- og bygginganefnd fer nú yfir þær athugasemdir sem bárust varðandi til- lögu að deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir að vegurinn verði þarna til frambúðar. Nefndin mun funda í næstu viku og taka af- stöðu til málsins og í framhaldinu fjallar bæj- arstjórnin um tillöguna. Haraldur segir að þær framkvæmdir sem átt hafi sér stað nú þegar séu fullkomlega afturkræfar ef ekki verður samþykkt að vegurinn verði þarna til frambúðar. „Þá verður bara mokað yfir þetta og sáð í og trén sett í sama horf og var.“ „Þetta er ekki vegur, þetta eru lagnaframkvæmdir“ Morgunblaðið/Frikki Vegur? Bæjaryfirvöld segja að aðeins hafi verið lagður vinnuvegur vegna lagnaframkvæmda.  Lagning vegar að Helgafellslandi í Mosfellsbæ lögbrot að mati Varmársamtakanna ÞYRLUR Landhelgisgæslunnar þurftu að sinna þremur útköllum á stuttum tíma í gærkvöldi. Ein þyrl- an sótti tvo sjúklinga á haf út og önnur sótti konu sem fallið hafði af hestbaki á Kjalvegi og slasast. Óskað var aðstoðar vegna sjó- manns um borð í þýska togaranum Sebastes M. en talið var að hann væri með einkenni frá botnlanga. Einnig óskaði skemmtiferðaskipið Saga Rose eftir aðstoð vegna konu sem talið var að hefði fengið hjarta- áfall. TF GNÁ fór í loftið kl. 17.15. Bæði skipin voru á svipuðum slóð- um u.þ.b. 215 sjómílur suðvestur af landinu. Lenti þyrlan með sjúk- lingana á Reykjavíkurflugvelli kl. 21.24. Þriðja útkallið barst kl. 19.07 gegnum Neyðarlínuna vegna konu sem hafði fallið af hestbaki á Kjal- vegi. TF EIR fór í loftið kl. 19.48. Lent var með hina slösuðu við Landspítalann kl. 21.18. Konan er þar til rannsóknar, en ekki var vit- að hversu alvarleg meiðsl hennar eru. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Útkall TF GNÁ sótti sjómann í togara og konu af skemmtiferðaskipi í sömu ferðinni. Þrjú útköll á stuttum tíma VIÐSKIPTARÁÐHERRA hefur fal- ið Neytendastofu að vinna fram- kvæmdaáætlun um rafrænar verðkannanir. Vinnunni skal lokið fyrir 1. júní næstkomandi. Vandaðar og fjölbreyttar verð- kannanir stuðla að gagnsæi mark- aða og virkri samkeppni, almenn- ingi til hagsbóta, segir m.a. í fréttatilkynningu. Því er áríðandi að sátt sé um aðferðir, túlkun og framsetningu þeirra og að fleiri stoðum sé skotið undir verðkann- anir. Að undanförnu hefur við- skiptaráðherra átt fundi með helstu aðilum sem tengjast framkvæmd og túlkun verðkannana. . „Ljóst er að skoðanir eru skiptar um heppileg- asta fyrirkomulag verðkannana,“ segir í tilkynningunni. Við endurskoðun á gildandi reglum beinir viðskiptaráðherra þeim tilmælum til Neytendastofu að haft sé víðtækt samráð við alla hagsmunaaðila, í því skyni að stuðla að sátt um verðkannanir. Brýnt er að mati ráðherrans að hefja markvissa vinnu nú þegar við að þróa lagalegar og tæknilegar leiðir til að tryggja skilvirka miðlun á upplýsingum á milli söluaðila og neytenda til framtíðar. Rafrænar verðkannanir gerðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.