Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is TVEIR GSM-sendar voru teknir í notkun með viðhöfn í Norðurárdal í Skagafirði og á Öxnadalsheiði í gær, en uppsetning þeirra er hluti af fyrsta áfanga GSM-verkefnis Fjarskiptasjóðs, sem nú er unnið að af miklum krafti. Eitt af mark- miðum fjarskiptaáætlunar, sem Fjarskiptasjóður vinnur eftir, er að GSM-þjónusta verði aðgengileg á hringveginum, öðrum helstu stofn- vegum og helstu ferðamannastöð- um. Þegar þessum fyrsta áfanga lýkur, sem áætlað er að takist fyrir áramót, verður búið að setja upp 38 nýja GSM-senda í tæplega þrjá- tíu húsum og á fjórða tug mastra. Samtals komast um 450 kílómetrar af þjóðvegum í farsímanetið í áfanganum. Meðal nýrra svæða á hringveginum, sem komið hafa inn í sumar, eru Öxnadalsheiði, veg- kaflar í Húnavatnssýslu og kaflar á sunnanverðum Austfjörðum. Næsti áfangi boðinn út Að sögn Kristjáns L. Möller samgönguráðherra, sem Morgun- blaðið náði tali af í fullkomnu GSM-sambandi á Öxnadalsheiði í gær, er kostnaður við fyrsta áfanga tæpar 700 milljónir króna. Þá eru útboðsgögn fyrir annan áfanga átaksins að verða tilbúin og verður opnað fyrir tilboð í hann í byrjun októbermánaðar. Í þeim áfanga er gert ráð fyrir enn fleiri sendum og segir ráðherra að áhersla sé lögð á stór svæði á Vestfjörðum og Norðausturlandi sem ekki hafi verið í sambandi til þessa. Ætlunin sé að ljúka fram- kvæmdum á þeim svæðum á árinu 2008, en það sé liður í mótvæg- isaðgerðum ríkisstjórnarinnar fyrir byggðir sem standa höllum fæti vegna niðurskurðar í þorskkvóta og þar að auki í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála Sam- fylkingar og Sjálfstæðisflokks á bætt GSM-samband. Bæði þjónusta og öryggi Í öðrum áfanga verður sam- bandið bætt á fjölmörgum fjall- vegum og auk þess á ferðamanna- svæðum í þjóðgörðunum við Snæfellsjökul og Jökulsárgljúfur. „Fjölmargir aðilar í ferðaþjónustu hafa haft samband og lýst því yfir að viðskiptavinir séu ekki hrifnir af þeim sambandsskorti sem víða er,“ segir Kristján, aðspurður um helstu nauðsyn fyrir átakinu. „Þar að auki er GSM-síminn orðinn að mikilvægu öryggistæki þótt hann hafi ekki verið hugsaður sem slík- ur upphaflega. Þess vegna er mjög ánægjulegt að sjá hversu vel þetta verkefni gengur.“ Fjarskiptasjóður vinnur einnig að útboðsgögnum fyrir háhraða- tengingar á svæðum sem mark- aðsaðilar sjá sér ekki fært að þjónusta vegna fámennis. Háhraði fyrir alla Þau svæði hafa verið metin í samstarfi við símafyrirtækin og fá í kjölfarið styrk úr Fjar- skiptasjóði. Vinna við útboðs- gögnin er að sögn langt komin og snýst um að skilgreina þær kröf- ur sem gerðar verða til þjónust- unnar. „Mikið og gott starf hefur verið unnið til að undirbúa það verk- efni,“ segir Kristján: „Útbúinn hefur verið gagnagrunnur um öll þau lögbýli sem tengingarnar eiga að ná til. Það er bæði flókin og mikil vinna, þegar vandað er til verks, en nú í haust kemur að því að bjóða verkið út og við vonumst til að þeim verkþætti náist að ljúka á árinu 2008. Hámarksverð verður skilgreint í útboðsgögnum, markmiðið verður að sambærilegt verð greiðist fyrir þjónustuna í dreifbýli og þéttbýli.“ Farsímanetið breiðir úr sér Fyrsta áfanga GSM- verkefnis lokið, sá næsti í útboð í haust Ljósmynd/JT GSM Kristján L. Möller við nýjan sendi ofan Norðurárdals í Skagafirði í gær. Nýir sendar auka þjónustu og öryggi, að sögn samgönguráðherrans. Í HNOTSKURN »Kostnaður við fyrsta áfangaGSM-átaksins er tæpar 700 milljónir króna, sem skiptist í 565 milljónir vegna fjarskipta- mannvirkja, en um 130 milljónir vegna rafmagnslagna. » Í öðrum áfanga verða settirupp 42 sendar, reist 27 hús og 27 möstur. »Kerfið eflist á fjallvegum ogferðamannastöðum við þetta. »Fjarskiptasjóður vinnureinnig að því að koma há- hraðatengingum á svæði sem markaðsaðilar geta ekki sinnt.                         ÍSLENSK 45 ára gömul kona, missti stjórn á Nissan Patrol-jeppa í lausamöl svo hann valt á Útnes- vegi milli Hellna og Arnarstapa í fyrrinótt. Neyðarlínunni barst tilkynning um slysið kl. 1.25 og fóru lögregla og sjúkralið á staðinn. Hraungrjót er utanvegar á slysstaðnum og þegar lögreglan kom þar að var konan föst undir bílnum, skorðuð milli hraungrjótsins og bílsins. Hún virtist ekki hafa notað bílbelti. Konan var með meðvitund og eftir að læknir hafði aðgætt ástand hennar var jeppanum velt ofan af henni. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og flutti þá slösuðu á slysadeild Landspítala – háskóla- sjúkrahús í Reykjavík. Lenti þyrl- an í Reykjavík um kl. 3.30. Konan reyndist töluvert mikið slösuð, meðal annars með mörg beinbrot. Meiðsl hennar eru þó ekki lífshættuleg að sögn lækna á LHS í gær. Hin slasaða er nú komin á al- menna deild sjúkrahússins. Festist undir jeppanum þeg- ar hann valt Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa- vogi, segir að talsmenn samtakanna Betri byggð á Kársnesi, sem séu reyndar samtök sem hafi aldrei verið formlega stofnuð, fari mjög frjálslega með tölur og sannleika í sam- bandi við málefni Kársnessins og er mjög óhress með ásakanir og fullyrðingar Örnu Harðardóttur í þessu efni. Eftir að kaupa tækin Framtíðarskipulag Kársnessins var rætt á fjölmennum fundi í fyrrakvöld. Gunnar I. Birgisson segir það mjög alvarlegt mál þegar fólk segi, að fyrir liggi mengunarmælingar á Kársnesbrautinni, og ástandið sé slæmt og ógurlegt, eins og fram hafi komið á fundinum. Staðreyndin sé sú að bærinn sé að fara að kaupa svona mælingartæki, sem kosti um 10 milljónir króna, og þá verði fyrst hægt að hefja mælingar. Í þessu efni sem öðru, til dæmis varðandi umferðartölur, hafi verið far- ið mjög frjálslega með sannleikann og það sé mjög alvarlegt mál. Fresturinn ekki liðinn Arna Harðardóttir hélt því fram í Morgun- blaðinu í gær að bæjarstjóri hefði komið illa undirbúinn á fundinn, verið óskýr í framsetn- ingu og ekki haft neitt nýtt fram að færa. Kópavogs- bær hafi auk þess staðið illa að kynningu og upplýs- ingagjöf um fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Gunn- ar I. Birgisson segist hafa reynt margt en þessar ásakanir toppi allt annað og slæmt sé að persónu- gera málið. Ekkert skipu- lag í Kópavogi hafi verið jafn vel kynnt og þetta. Fyrir liggi að athugasemdafrestur vegna skipulags á hafnarsvæðinu á Kársnesi sé ekki liðinn og tillögur verði ekki lagðar fram fyrr en að honum liðnum, eftir að farið hafi verið yfir ábendingar og athugasemdir. Þá verði væntanlega boðað til almenns fundar um breytta sýn. Íbúar utan fyrrnefndra „sam- taka“ hafi reyndar haft samband við sig og óskað eftir lengri fresti og í kjölfarið hafi hann lagt til að fresturinn yrði framlengdur til 3. september sem bæjarráð hafi samþykkt. Svæði fyrir alla Kópavogsbúa Bæjarstjórinn bendir á að hann hafi sagt að bæjaryfirvöld væru tilbúin að skoða að hætta við byggingu hafnarkantsins og taka til greina ýmsar aðrar ábendingar. Samkvæmt skoðanakönnun í vesturbæ Kópavogs teldu íbúar að verslanir vantaði á svæðið og tekið yrði tillit til þess. Allir vildu að tekið yrði til að vestanverðu við Kársnesbraut, drasl fjar- lægt og illa útlítandi, gamalt atvinnuhúsnæði látið víkja fyrir nýju. Tillaga fólksins á fund- inum hafi verið að gera sem minnst og hafa nánast allt óbreytt. Það hafi verið niðurstaða fundarins. Þegar þetta fólk væri spurt hvað það vildi kæmi í ljós að það vildi hafa örfáar íbúðir á svæðinu, einbýlis- og tvíbýlishús. Fram hafi komið hjá því að það vildi bara selja mjög dýrar lóðir þarna. Samkvæmt því ætti bara ríkt fólk að búa á svæðinu en ekki hinn almenni íbúi Kópavogs. Þarna sé glæsi- legt bæjarstæði með frábæru útsýni og stefna bæjaryfirvalda sé að fara bil allra með ekki of mörgum íbúðum. Meðal annars sé stefnt að byggingu tveggja, þriggja og fjögurra hæða fjölbýlishúsa og ekki standi til að hefta út- sýni. Gunnar I. Birgisson segir að bæjaryfirvöld vilji taka til vestast á nesinu og breyta ásýnd- inni. Fyrirtæki í fyrrnefndum húsum hafi óskað eftir því að vera áfram í Kópavogi, fyll- ingin hafi verið hugsuð í þeim tilgangi og þessum fyrirtækjum hafi verið úthlutað lóð- um á henni. Bærinn vilji halda atvinnu í bæn- um en þessu fólki sé slétt sama. Bæjarstjóri segir að á fundinum hafi hann áréttað, að aukið samráð yrði haft við íbúa, en hugmyndirnar hafi verið kynntar fyrir íbúum og Íbúasamtökum Vesturbæjar og þær verði aftur kynntar að fengnum athugasemdum og ábendingum. Farið væri að lögum og ekki væri hægt að blaðra um óorðna hluti. At- hugasemdir yrðu að liggja fyrir áður en breytingar yrðu gerðar. Hagsmunir bæjarbúa í fyrirrúmi Gunnar I. Birgisson segir að kynnt hafi verið rammaskipulag, sem sé sýn til áratuga, en því hafi verið tekið eins og búið væri að byggja samkvæmt því í næsta mánuði. Komn- ir væru 18.000 bílar á Kársnesbrautina nú þegar og talað um skipulagsslys. Fram hafi komið að þetta fólk vildi enga höfn en nýlega hafi það dregið í land á vefsíðu sinni og sam- þykkt smábátahöfn. Málið væri kynnt þannig að bæjarstjórinn væri handbendi braskara, gróðrapunga og verktaka, honum líkt við mestu morðingja síðustu aldar fyrir það að vilja byggja og bæta og ekki væri gaman að sitja undir þessu. „Tillögur bæjarins eru ekki alltaf réttar og það er mjög gott að fólk sé vakandi yfir umhverfi sínu og komi með sínar skoðanir, því út úr fleiri sjónarmiðum kemur venjulega eitthvað gott. Hugsjón mín í þessu er að gera Kársnesið og Kópavog enn betri.“ Gunnar I. Birgisson bætir við að hann starfi með hagsmuni íbúanna í huga og margir hlut- ir gerðust ekki án frumkvæðis einkaframtaks- ins í mörgum málum. Bæjarstjóri Kópavogs segir mótmælendur breyttrar byggðar á Kársnesi fara frjálslega með sannleikann Vill gera Kársnesið enn betra Gunnar I. Birgisson VERKALÝÐSFÉLAG Akraness hefur ákveðið að kalla eftir úttekt frá Vinnueftirlitinu og trúnaðar- lækni starfsmanna Íslenska járn- blendifélagsins á nýjum öryggis- fatnaði sem tekinn var í notkun þar í byrjun maí á þessu ári. Hefur Þórði Magnússyni, framkvæmda- stjóra framleiðslusviðs, verið gerð grein fyrir þessari ákvörðun og mun hann hafa lýst sig sammála því að fá fagaðila til að skoða málið. Þetta kemur fram á fréttavef Verkalýðsfélagsins. Hinn nýi öryggisfatnaður hefur fallið í grýttan jarðveg hjá starfs- mönnum fyrirtækisins m.a. vegna þess hversu heitur hann er en einn starfsmaður mun hafa fallið í yfirlið sökum mikils hita frá því fatnaður- inn var tekinn í notkun. Starfsmannafundur hefur þegar verið haldinn um málið og var ákveðið að auka kælingu í kringum ofnana og að starfsmenn fengju að- gang að orkudrykkjum. Úttekt verði gerð á öryggis- fatnaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.