Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 9
FRÉTTIR
VIÐBRAGÐSAÐILAR á borð við
slökkvilið, lögreglu, björgunar-
sveitir og fleiri munu hafa tals-
verðan viðbúnað til að tryggja ör-
yggi fólks á Menningarnótt í
Reykjavík. Aðgerðastjórn al-
mannavarna á höfuðborgarsvæð-
inu annast samræmingu öryggis-
mála og viðbragðsaðilar verða með
sameiginlega stjórnstöð og út-
kallslið í Ingólfsstræti við Arnar-
hól. Gönguhópar lögreglu, Rauða
krossins og björgunarsveita verða
gerðir út þaðan en þeir munu
sinna eftirliti og veita aðstoð.
Sjúkraskýli verður á staðnum og
þar verður einnig aðstaða til að
annast týnd börn. Körfubifreið
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
verður einnig staðsett þar. Í neyð-
artilvikum ber fólki að hringja í
neyðarlínuna, 112, eða snúa sér
beint til viðbragðsaðilanna við
Arnarhól.
Fjölda gatna verður lokað
Áhersla verður lögð á að umferð
gangi eins greiðlega og unnt er,
þótt umferðartafir séu fyrirsjáan-
legar. Fjölda gatna verður lokað,
en mikilvægt er að neyðarbílar
komist leiðar sinnar.
Lögreglan mun kappkosta að sjá
til þess að fólk komist leiðar sinn-
ar úr miðborginni eftir hefð-
bundna dagskrá og verða um 20
lögreglumenn við umferðarlög-
gæslu.. Þó þykir ljóst að vegfar-
endur verði að búa sig undir ein-
hverjar umferðartafir. Ökutæki
sem lagt er þannig að hætta stafi
af verða fjarlægð. Íbúar í miðborg
Reykjavíkur eru vinsamlega beðn-
ir að takmarka notkun einkabif-
reiða eins og hægt er.
Umferðarljós á Sæbraut,
Hringbraut, Miklubraut og Bú-
staðavegi verða tekin úr sambandi
þegar formlegri dagskrá lýkur.
Fjölmörgum götum verður lokað,
annars vegar í tengslum við
Maraþonið og hins vegar Menn-
ingarnótt og stórtónleika á Mikla-
túni.
Athvarf fyrir týnd börn verður í
sjúkraskýli í Ingólfsstræti við
Arnarhól. Félagsráðgjafi og
starfsmaður frá ÍTR verða í at-
hvarfinu kl. 16 til 1. Símanúmer
athvarfsins er 411 1111 og verður
þar hægt að fá upplýsingar um
börn sem eru í athvarfinu og til-
kynna um týnd börn.
Lögreglan vill brýna það sér-
staklega fyrir foreldrum að skilja
börn sín ekki eftir í miðbænum
þegar dagskránni lýkur með flug-
eldasýningu. Lögreglan mun taka
mjög hart á drykkju unglinga og
vonast eftir góðri liðveislu foreldra
í því.
Miðbæjarathvörf í Foreldrahúsi,
Vonarstræti 4b og íþróttahúsi
Kennaraháskólans verða opin frá
miðnætti, eða fyrr ef þurfa þykir,
og fram eftir nóttu. Þjónustumið-
stöðvar í Reykjavík, lögregla höf-
uðborgarsvæðisins og Íþrótta- og
tómstundaráð Reykjavíkur standa
sameiginlega að rekstri athvarf-
anna. Lögreglan færir börn yngri
en 16 ára í athvarfið séu þau úti
eftir lögboðinn útivistartíma sam-
kvæmt barnaverndarlögum svo og
þau ungmenni yngri en 18 ára sem
eru undir áhrifum áfengis og/eða
annarra vímugjafa.
Viðbúnaður á Menningarnótt
SKEMMTUMOKKUR
ÍSUMAR!
VEL
ÁFENGIFYLGIRÁBYRGÐ
EKKI SPILLA GLEÐINNI
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
9
2
8
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Samkvæmisjakkar
Samkvæmiskjólar
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Anders Ingemann Jensen
farsími nr. +45 40 20 32 38
netfang: aj@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
DALÍUKLÚBBURINN
40 ÁRA!
allt í garðinn á einum stað!
www.gardheimar.is
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
Í tilefni af afmælinu stendur
klúbburinn fyrir HAUSTBLÓMA-
SÝNINGU í Garðheimum
um helgina.
Sýndar verða dalíur, blóm og
skreytingar úr görðum
félagsmanna og japanskar
“ikebana” blómaskreytingar
að hætti Yoko.
Flottir kjólar – Kjólar við buxur
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15 en lokað í Eddufelli.
Bæjarlind 6 • sími 554 7030
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Lokað
í dag og mánudaginn
20. ágúst vegna flutninga.
Opnum nýja, glæsilega
og stærri búð
að Bæjarlind 4,
þriðjudaginn 21. ágúst
kl. 13.00, opið til kl. 20.
20% afsláttur
af allri nýrri haustvöru
þennan dag.
Þann 11. ágúst sl. varð fimmtugur
Örn Johansen framkvæmdastjóri.
Af því tilefni langar okkur að bjóða
ættingjum og vinum að samgleðjast
okkur og þiggja léttar veitingar
í dag 18. ágúst frá kl. 20 til 23
í félagsaðstöðu Þróttar á
Sævarhöfða 12 í Reykjavík.
Örn Johansen og frú.