Morgunblaðið - 18.08.2007, Page 14
14 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Í HNOTSKURN
» Skammt er síðan seðla-banki Bandaríkjanna
ákvað að lækka ekki stýrivexti
sína þrátt fyrir að ólgan væri
þá þegar hafin.
» Þá leið sem bankinn fernú túlka menn sem svo að
bankinn telji vandann liggja í
aðgengi að lánsfé, en ekki
lánskostnaði.
» Ekki er talið útilokað aðstýrivaxtalækkun fylgi.
VERÐ Á hlutabréfum hækkaði í Evr-
ópu og Bandaríkjunum eftir að Seðla-
banki Bandaríkjanna ákvað að lækka
vexti til fjármálastofnana um 0,5%.
Þetta þýðir að í stað þess að lána-
stofnanir greiði 6,25% í vexti af því fé
sem þær fá að láni hjá Seðlabankan-
um greiða þær nú 5,75% vexti. Stýri-
vextir bankans eru hins vegar
óbreyttir eða 5,25%.
Úrvalsvísitala kauphallar OMX á
Íslandi hækkaði um 2,94% og sam-
norræna OMXN40 vísitalan hækkaði
um 2,28%. Í upphafi viðskipta í gær
var upplitið á evrópskum hlutabréfa-
mörkuðum ekki bjart, einkum vegna
mjög mikillar lækkunar í Asíu. Má
sem dæmi nefna að japanska Nikkei-
vísitalan lækkaði um ein 5,42%.
Eftir að fréttir bárust af vaxta-
lækkuninni í Bandaríkjunum réttu
markaðirnir hins vegar úr kútnum.
Breska FTSE-vísitalan hækkaði um
3,5% og þýska DAX um 1,49%.
Vestanhafs hækkaði Dow Jones
um 1,8% og er nú 4,9% hærri en í árs-
byrjun. Nasdaq hækkaði um 2,2% og
S&P um 2,5%, sem er mesta hækkun
síðan í apríl 2003.
Fjallað var um vaxtalækkunina í
Vegvísi greiningardeildar Lands-
bankans og kemur þar fram að með
henni vilji seðlabankinn auðvelda
fjármálastofnunum aðgang að lánsfé
og létta þar með á þeirri miklu
spennu sem einkennt hefur markað-
inn síðustu vikur með lækkun dag-
lánavaxta.
Ný fjármögnunarleið
Í frétt Financial Times kemur fram
að seðlabankinn telji að aðstæður á
fjármálamarkaði hafi versnað svo
mikið undanfarið að frekari hagvexti
stafi af því ógn.
Undanfarna daga hafa seðlabankar
víða um heim veitt fjármagn inn á
fjármálamarkaði í von um að minnka
þá óvissu sem þar hefur ríkt, meðal
annars vegna vanskila á bandarískum
húsnæðislánum.
Í Vegvísinum segir að fremur fátítt
sé að gripið sé til aðgerða af þessu
tagi þar sem stjórn peningamála í
Bandaríkjunum byggist fyrst og
fremst á því að halda vöxtum á milli-
bankamarkaði sem næst stýrivöxtum.
Vöxtum á lánum til fjármálastofnana
sé haldið einu prósentustigi yfir stýri-
vöxtum, sem þýðir að þessi lán eru
sjaldan nýtt. Með því að lækka vexti á
lánunum sé seðlabankinn í raun að
opna tímabundið nýja fjármögnunar-
leið fyrir lánastofnanir.
Vaxtalækkun slær á
áhyggjur á markaði
Reuters
Hækkun Evrópskar vísitölur hækk-
uðu í gær þrátt fyrir að útlitið hefði
ekki verið bjart í gærmorgun.
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
2,94% í Kauphöll OMX á Íslandi í
gær, eftir miklar lækkanir daginn áð-
ur, og er lokagildi vísitölunnar
7.794,91 stig. Exista hækkaði um
4,97%, Landsbankinn um 3,33%, FL
Group um 3,31% og Kaupþing um
3,22%.
Mjög miklar sveiflur voru á gengi
krónunnar í gær og nam velta á
markaði 64,3 milljörðum króna. Svo
fór að krónan styrktist um 0,79%.
Viðsnúningur á
hlutabréfamarkaði
● GLITNIR hef-
ur fengið heim-
ild fjármálaeft-
irlits Finnlands
til að eignast
FIM Group Cor-
poration og
hefur Glitnir
banki eignast
100% hlutafjár
í FIM.
Ekki hefur verið ákveðið það verð
sem þeir hluthafar í FIM sem eru í
innlausnarferlinu fá en þeir munu
eingöngu eiga rétt á ákveðnu inn-
lausnarverði og vöxtum skv. því
verði. FIM verður í kjölfarið skráð af
aðallista finnsku kauphallarinnar.
Glitnir fær að
eignast FIM að fullu
● FJÖLDI þinglýstra kaupsamninga
á höfuðborgarsvæðinu frá 10. ágúst
til og með 16. ágúst 2007 var 199.
Þar af voru 167 samningar um eignir
í fjölbýli, 25 samningar um sérbýli og
7 samningar um annars konar eignir.
Heildarveltan var 5.739 milljónir
króna og meðalupphæð á samning
28,8 milljónir króna.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborg-
arsvæðinu hækkaði um 1,4% frá
fyrra mánuði. Undanfarið ár hefur
hún hækkað um 12,7%.
Þinglýstir kaupsamn-
ingar 199 talsins
● EIMSKIP steig
nýtt skref á Asíu-
markaði í gær er
félagið opnaði
skrifstofu í Japan.
Skrifstofan er
staðsett í Tókýó
og er sú fimmta í
Asíu og sú fyrsta
utan Kína, en um-
svif Eimskips í
Asíu og á Kyrra-
hafssvæðinu eru nú ört vaxandi. Hin
nýja starfsstöð mun bjóða upp á al-
hliða flutningaþjónustu til fyrirtækja í
Japan, má þar nefna umboðsþjón-
ustu í skipaflutningum, innflutnings-
og útflutningsþjónustu, auk frysti- og
kæligeymslu. Þá hefur Eimskip Jap-
an þegar hafið rekstur á einu stór-
flutningaskipi.
Framkvæmdastjóri Eimskip Japan
er Yoshito Oyanagi, en hann hefur
mikla reynslu af flutningastarfsemi í
Japan.
Eimskip opnar
skrifstofu í Japan
Yokohama-höfn,
sunnan við Tókýó.
FØROYA Banki ætlar að opna
útibú í Danmörku á fyrsta ársfjórð-
ungi 2008 undir nafni Føroya
Banka. Í tilkynningu kemur fram
að tveir danskir bankamenn muni
stýra starfseminni í Danmörku,
Carlo Chow, sem verður forstjóri
og Kim Linnemann, sem verður
framkvæmdastjóri Føroya Banka í
Danmörku. Kemur þetta fram í til-
kynningu.
Eigið fé danska bankans, Føroya
Bank A/S, verður 300 milljónir
danskra króna, jafngildi um 3,7
milljarða íslenskra króna. Mun
þetta vera til þess að honum sé
kleift að þjónusta stærri við-
skiptavini. Føroya Banki í Fær-
eyjum mun eiga 92% hlutafjár í
danska bankanum og afgangurinn
verður í eigu stjórnenda og lykil-
starfsmanna hans.
Auka vöruúrvalið
Føroya Bank A/S mun verða opn-
aður á fyrri hluta næsta árs og er
gert ráð fyrir að starfsmenn verði
um 20 talsins.
Er ætlunin að danski bankinn
leggi áherslu á fjárfestingabanka-
starfsemi og eignastýringu og
þannig auka vöruúrval Føroya
Banka almennt.
Þá mun útrás Føroya Banka til
Danmerkur gera það að verkum að
hann verður ekki eins háður fær-
eysku efnahagslífi og viðkvæmur
fyrir sveiflum í því.
Føroya Banki er skráður í Kaup-
höll OMX á Íslandi og Danmörku.
Opnar í Danmörku
!
! " !
""
$% '
!!
"
"
()
*+
!!"
!" #$$
!
"
#$ "%&!
'
, -
. /0
,,
1
-
. /0
&2 /0
$ -
. /0
-
3, /0
40 & ,. 67
-
. /0
.8 3, /0
3, 5 /0
7 $/ /0
$9
030 /0
%: /0
;
/0
'
$
$(
%&
<=) /0
'7
-
. /0
'7 /0
' 7 >
>?$
&, ,
$ -
. /0
$@
: 677 -
. /0
/0
"A/
9 /0
%
: 1 /0
B 1 /0
%$&
)$&*
+
%
C
: ' C0
4 -
/0
4 .9 /0
,% -%.& $
"
"
"
"
""
!"
!"
"
"
"
""
!
!
"
"
"
"
"
B,. %3 D , .
F*0GH<0+G=
))*0**=0(+*
(0=(*0+H=0(I<
GH+0H(G0G+F
F0+*H0+I=0)*(
(GI0FFH0F+=
(<+0(IG0=*(
)0<<*0(IF0(IF
(0H+<0I=*0(*(
FH0FFG0<H)
(F0)HI0F)G0))F
(**0FFH0((G
I0GF*0(GF
<H=0=++
F+0H*G0F+<
G0**(0<(H
*=0+<)0=+F
*F0+I=0)I<
H)=0G++
*)<0F(<0H**
(FH0)F<0(++
GJG+
=*JI+
<+J*)
F*JH+
F=J=)
<HJ+)
F)J=)
(+H+J++
<GJ)+
(HJ<+
)JFI
(+<J)+
FJG(
)JHF
(+()J++
=I+J++
(JI(
FFGJ++
)JH+
HFJ)+
<HJG+
FGI*J++
GJG*
=)J*+
<+J=)
F)J+)
F=JG+
<HJ()
F)JG)
(+H(J++
<GJI)
(HJ*+
)J<+
(+*J)+
FJG)
)JH=
(+FGJ++
=I)J++
(JIF
F<FJ++
)JHG
H<J++
F(J)+
*+JF+
FH++J++
((J)+
=JI)
$91
,. (F
*=
F<=
I*
(<+
F(
FH
*+H
()I
()
(FG
<I
(+
F
I
(H
F*
FH
(
(=
()
,0
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
F+0I0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
H0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
(I0G0F++I
H0G0F++I
(=0G0F++I
F)0I0F++I
(I0G0F++I
(G0I0F++I
F+0=0F++I
● TESSERA Holding ehf., sem gerði
yfirtökutilboð í Mosaic Fashions fyrr
á árinu, hefur ákveðið að innkalla úti-
standandi hlutafé í Mosaic. Þetta er
hægt í krafti eignarhlutar sem er
stærri en 90% en Tessera hafði við
lok viðskipta í fyrradag eignast
99,8% hlut í Mosaic.
Í tilkynningu til kauphallar OMX á
Íslandi kemur fram að þegar inn-
lausnarferlinu er lokið verði óskað
eftir afskráningu Mosaic úr kauphöll-
inni enda uppfyllir félagið ekki lengur
skilyrði um skráningu.
Innlausn beitt
Eftir Halldóru Þórsdóttur
halldorath@mbl.is
KAUPHÖLLIN í Dubai hefur boðið
27,7 milljarða sænskra króna til yf-
irtöku á norrænu kauphöllinni
OMX. Tilboðið hljóðar upp á 230
sænskar krónur á hlut, samanborið
við 198 krónu tilboð bandarísku
kauphallarinnar Nasdaq í maí.
Samkvæmt yfirlýsingu frá ráða-
mönnum í Dubai hefur kauphöllin
vilyrði fjárfesta fyrir 28,4% hlut í
OMX, en fyrr í mánuðinum voru
fest kaup á 4,9% hlut.
Nasdaq segist enn hafa mikinn
áhuga á OMX og hvetur hluthafa til
að styðja tilboð þeirra, sem þeir
telja heppilegra þó fjárupphæðin sé
lægri. Forsvarsmenn Nasdaq segja
samlegðaráhrifin af sameiningu við
OMX muni nema í það minnsta 150
milljónum dollara á ári.
Sambærileg tala liggur ekki fyrir
hjá Kauphöll Dubai. Haft er eftir
ráðamönnum hennar að viðskiptin
myndu styrkja tengsl Stokkhólms
sem fjármálamiðstöðvar við Mið-
austurlönd og Asíu. Víst má ætla að
leiðandi tækni OMX kitli eigendur
Kauphallarinnar í Dubai.
Meiri samleið með Nasdaq
Ekki er öll von úti hjá Nasdaq um
stuðning núverandi hluthafa. Inve-
stor AB, sem er stærsti hluthafinn í
OMX með 10,7% hlut, segir að boð
Dubai sé ekki endilega betra þótt
krónutalan sé hærri.
Helsta ástæðan eru samlegð-
aráhrif, eða skortur á þeim. Í sam-
tali við sænska fréttavefinn Dagens
Industri segir upplýsingafulltrúi
Investor að félagið sjái þýðing-
armikla samleið með Nasdaq og
OMX og markaðssvæðum þeirra.
Slík áhrif séu ekki eins ljós þegar
litið er til mögulegrar sameiningar
við Dubai, þetta kunni að vega upp
á móti fjárhæðunum til lengri tíma
litið. Bæði tilboðin verði þó skoðuð.
Sænska ríkið á 6,6% hlut í OMX,
og kvaðst munu skoða bæði tilboðin
einnig. Þá mun fjármálaeftirlitið í
Svíþjóð kanna hvort heimildir séu
fyrir sameiningunum.
Athygli vekur að forstjóri Kaup-
hallarinnar í Dubai er Per Larsson,
fyrrum forstjóri OMX.
Dubai býð-
ur í OMX
Reuters
Fjárfestar Kauphöllin í Dubai.
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
SAMSON Properties, fasteigna-
félag í eigu Samson eignarhalds-
félags, eignaðist í gær að fullu
verslunarmiðstöð í Vantaa-hverfinu
í Helsinki, höfuðborg Finnlands.
Með kaupunum er Samson Proper-
ties orðið stærsti erlendi fasteigna-
eigandinn í Þúsund vatna landinu.
Heildarvirði fasteigna Samson Pro-
perties í landinu er um 635 millj-
ónir evra, jafngildi um 59,1 millj-
arðs króna, og er samanlagður
fermetrafjöldi tæplega 230 þúsund.
Því til viðbótar á Samson Pro-
perties fasteignir í Danmörku,
Króatíu, Búlgaríu og Tyrklandi
auk Íslands og hefur umsjón með
fasteignum á Spáni. Heildarverð-
mæti eignasafns félagsins er um
1,7 milljarðar evra, jafngildi um
155 milljarða króna.
Af þessu má sjá að meira en 37%
eigna félagsins eru í Finnlandi, en
að sögn Sveins Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra Samson Properties,
hafa verið mjög góð tækifæri á
finnskum fasteignamarkaði. Verð á
skrifstofu- og verslunarhúsnæði
hefur verið lægra þar en á hinum
Norðurlöndunum auk þess sem
efnahagsástandið í landinu er mjög
gott.
Sveinn segir Samson Properties
hafa byrjað að fjárfesta í Finnlandi
upp úr síðustu áramótum en félag-
ið hefur einbeitt sér að því að
kaupa skrifstofu- og verslunarhús-
næði á besta stað í Helsinki og í
Vantaa og Espoo, sem er útborg
Helsinki. Viðskiptin þar í landi eru
gerð í samstarfi við Royal Bank of
Scotland og finnskt fyrirtæki er
nefnist Ajanta.
Stærsti erlendi fast-
eignaeigandi Finnlands
Morgunblaðið/Eggert
Helsinki Stærstur hluti eigna Samson Properties er í borginni.