Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 15
NOVATOR, eignarhaldsfélag í eigu
Björgólfs Thors Björgólfssonar, hef-
ur gengið frá sölu á 90% hlut í búlg-
arska símafyrirtækinu BTC (Bulg-
arian Telecommunications Comp-
any) til AIG Investments. Andvirði
hlutarins er 1,4 milljarðar evra, jafn-
gildi um 130 milljarða króna, og hef-
ur kaupverðið þegar verið greitt.
BTC er skráð í kauphöllina í Sofíu en
í fréttatilkynningu frá AIG og Nova-
tor segir að fyrrnefnda félagið muni
gera tilboð í útistandandi hlutafé.
Novator gerði á sínum tíma samn-
ing við bandaríska fasteignafélagið
Advent International um kauprétt á
65% hlut bandaríska félagsins í
BTC. Sá kaupréttur rann út í júní-
mánuði og eignaðist Novator þá
hlutinn. Þá þegar hafði félagið gert
samning um sölu á hlutnum til AIG.
Ennfremur hafði félagið, ásamt
tengdum aðilum, byggt upp 25% hlut
til viðbótar í BTC og selur það því
allan hlut sinn til AIG. Greint var frá
því í Morgunblaðinu hinn 3. maí sl.
að áætlaður söluhagnaður Novator
af hlut sínum í BTC væri 60 millj-
arðar króna, á gengi þess tíma.
Hagnaður annarra íslenskra fjár-
festa af sölunni var 6 milljarðar
króna á gengi þess tíma.
Sala Novator á
BTC frágengin
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Novator Björgólfur Thor Björg-
ólfsson, aðaleigandi félagsins.
● GRUNUR leikur á að verðbólga í
Kína sé í raun töluvert hærri en þau
5,6% sem opinberar tölur fyrir júlí
gefa til kynna. Ástæðan er sú að yfir-
völd ýmissa héraða í landinu gætu
vísvitandi hafa gefið hagstofunni
rangar upplýsingar um verðlag í hér-
uðunum, en það er á ábyrgð héraðs-
stjórnanna að safna verðupplýs-
ingum.
Ástæðan fyrir þessum „verðlags-
lækkunum“ ku að sögn Financial
Times vera sú að í héruðunum óttast
menn að sé verðlag of hátt muni það
leiða til kröftugra umbóta til þess að
lækka matvælaverð. Slíkt myndi
koma héruðum sem háð eru land-
búnaði illa og því reyna þau að halda
verðlaginu lágu á þennan óvenju-
lega máta.
Óttast umbætur
● VAFASÖM dómgreind ráðamanna
hollenska bankans NIBC, sem nú er
í eigu Kaupþings, gefur ástæðu til
hafa áhyggjur af hvort fleira óhreint
leynist í ársreikningum bankans.
Þetta kemur fram í Lex-dálki Fin-
ancial Times á fimmtudag, og vísar
til óheppilegra fjárfestinga NIBC í
annars flokks húsnæðislánabréfum
(e. subprime). Kaupþing hafi þó
reynslu af samningum sem þessum
og hafi vafalaust kannað áreið-
anleika hollenska bankans. Báðir
séu þó nokkuð skuldsettir.
Spurning greinarhöfundar er því, í
hvaða gæðaflokki eru eignir NIBC.
Fyrrverandi eigendur, með J.C. Flow-
ers í fararbroddi, munu halda eftir
400 milljóna evra húsnæð-
isbréfasjóði af fyrrnefndu tagi, en
Kaupþing mun þó láta í té 173 millj-
ónir evra, sjóðnum til stuðnings.
Vegna sundurliggjandi við-
skiptasvæða bankanna tveggja verð-
ur líklega lítið um samlegðaráhrif, en
kaupverðið virðist þó viðunandi. Er
það í takt við kaupin á breska Singer
& Friedlander árið 2005 og Dansk
FIH árið 2004. Þar hafi þó verið
meira rúm fyrir umbætur.
Viðskipti NIBC eru helst í Benelúx-
löndunum og Þýskalandi.
Efasemdir um NIBC
STRAUMUR-Burðarás tilkynnti í
gær sölu á 5,31% hlut í bankanum á
genginu 18,6 og er heildarverðmæti
viðskiptanna því ríflega 10,2 millj-
arðar króna. Enn hefur ekki komið í
fréttakerfi kauphallarinnar flöggun
frá kaupanda en þar sem stærð hlut-
arins er yfir flöggunarmörkum má
reikna með að tilkynning sé á leið-
inni.
Athygli vekur að viðskiptagengið
er 18,6 en í næstu tveimur færslum á
undan og á eftir var viðskiptagengið
19,0. Munar þarna 2,1%. Samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins skýr-
ist þessi munur af því að um utan-
þingsviðskipti var að ræða. Þau fóru
fram í fyrradag, á tímapunkti þegar
gengi félagsins var 18,6, en voru ekki
skráð í viðskiptakerfi kauphallarinn-
ar fyrr en í gærmorgun.
Straumur seldi
5,31% hlut í Straumi
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Fuerteventura
4.-18. september
Ótrúlegt sértilboð á Oasis Village
frá kr. 64.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 64.990
Netverð á mann , m.v. 2-3 fullorðna í íbúð
með öllu inniföldu í 2 vikur.
2 vikur - Allt innifalið
Bjóðum nú frábært sértilboð í 2 vikur á Oasis Village í Corralejo á Fu-
erteventura. Njóttu lífsins við góðan aðbúnað og með allt innifalið á
þessum vinsæla áfangastað Heimsferða, sem svo sannarlega sló í
gegn í fyrra. Takmarkaður fjöldi íbúða í boði á þessu frábæra verði.
Framkvæmdanefnd Fiskidagsins mikla Ljómyndari Finnbogi Marinósson www.dagsljós.is
Þið eruð frábær
Fiskidagurinn mikli þakkar frábærum gestum fyrir komuna og
einstaka umgengni, styrktaraðilum fyrir gott og jákvætt samstarf
og íbúum og sjálfboðaliðum fyrir þátttökuna og gríðargott starf.
„Án ykkar væri enginn Fiskidagurinn mikli þið eruð best.“
TAKK – Framkvæmdanefnd Fiskidagsins mikla í Dalvíkurbyggð.
Þátttakendur Fiskidagsins mikla í Dalvíkurbyggð
Minnum á að það er
hægt að skila inn
myndum í
Ljósmyndasamkeppni
Fiskidagsins mikla,
Canon og Pedromynda
til þriðjudagsins
21. ágúst
Sjáið innsendar myndir á
www.fiskidagur.muna.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn