Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í TILEFNI 75 ára ártíðar Sylviu
Plath verða myndir og skissur eftir
skáldkonuna gefnar út í bókinni
Eye Rhymes:
Sylvia Plath’s
Art of the Visual,
sem kemur út í
október. Þar má
finna mynd-
skreytt bréf sem
hún skrifaði sjö
ára gömul en
einnig fjölda mál-
verka og ljós-
mynda frá dögum Plath sem lista-
nema í Smith College í
Massachusetts. Öll verkin gerði
listakonan áður en hún varð tvítug,
en þá ákvað hún að helga sig ritlist-
inni.
Kathleen Connors, ritstjóri bók-
arinnar, segir að þó að fáir muni
deila á starfsval Plath þá sé vissu-
lega synd að hún hafi hætt að
teikna rétt þegar hún var farin að
takast á við þau yrkisefni sem urðu
henni hugleiknust í skáldskapnum.
„Takmarkaðir möguleikar kvenna
og sameining hernaðarmenningar
og kapítalismans, svo eitthvað sé
nefnt, kemur fram á heillandi hátt í
síðustu myndum hennar.“
Fleira mun verða gert í haust í
tilefni 75 ára ártíðarinnar, en Plath
var aðeins þrítug að aldri þegar
hún framdi sjálfsmorð árið 1963.
Upplestur er fyrirhugaður á verk-
um skáldkonunnar í Royal Festival
Hall í London, en söngkonur eins
Patti Smith og Alanis Morrisette og
leikararnir Alan Rickman og Julia
Stiles hafa öll verið orðuð við upp-
lesturinn, en Stiles mun á næstunni
leika aðalhutverkið í The Bell Jar
eftir samnefndri sögu Platt, sem
kom út á íslensku undir nafninu
Glerhjálmur í þýðingu Fríðu Bjark-
ar Ingvarsdóttur.
List af
háalofti
Æskumynd
listakonunnar
Sylvia Plath
15.00 – 21.00 – Sálmafoss
sálmaveisla í Hallgríms-
kirkju
Frumfluttir fjórir nýir ís-
lenskir sálmar sérstaklega
samdir fyrir Kirkjulistahátíð.
Samfelld dagskrá þar sem
fluttir verða sálmar frá ýmsum
stíltímabilum af fjölbreyttum
hópi tónlistarfólks
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
11. – 19. ÁGÚST 2007
Laugardagur 18. ágúst
Allir viðburðir fara fram í
Hallgrímskirkju nema annað
sé tekið fram. Nánari upplýs-
ingar á www.kirkjul-
istahatid.is
SÖGUSETRIÐ á Hvolsvelli
hefur staðið fyrir Njáluer-
indum á laugardögum í sumar,
og fjölbreyttur hópur fyrirles-
ara lagt leið sína í setrið.
Í dag er komið að Matthíasi
Johannessen, fyrrverandi rit-
stjóra, að flytja erindið „Á
Njálsbúð“. Hyggst Matthías
fara yfir umhverfi Njálu og það
sem skapast hefur í kringum
söguna, að því er segir í til-
kynningu. Erindið hefst klukkan 17, er öllum opið
og því tilvalið fyrir þá sem ekki hafa lesið söguna
nýlega að rifja hana upp með því að fara í gegnum
Njálusýninguna áður en erindið byrjar.
Bókmenntir
Matthías Johann-
essen um Njálu
Matthías
Johannessen
DARRI Lorenzen myndlist-
armaður sýnir leikfimisal
Austurbæjarskóla í nýju ljósi,
eða ljósleysi. Hann býr til inn-
setningu í salnum til að villast
um í á Menningarnótt. Verk
hans, Mið, er opið öllum sem
eiga leið hjá skólanum á milli
16 og 22.30 í dag. Gengið er inn
í leikfimisalinn frá Bergþóru-
götunni og út úr honum aftur í
annarri vídd, ef að líkum lætur.
Með hljóðum og ljósi gerir Darri rýmið sem er
kunnuglegt en strokar um leið út kennileiti þess. Í
fjarveru viðmiðanna, þegar leikfimisalurinn er að
hverfa, er innra leikrými okkar ögrað.
Myndlist
Austurbæjarskóli
í nýju ljósleysi
Darri
Lorenzen
SÖNGSKÓLINN bíður söng-
elska gesti Menningarnætur
velkomna á sönghátíð þar sem
gömul og vel þekkt lög verða
sungin auk þess sem boðið
verður upp á fjölbreyttan kór-
söng. Fram koma Óperukórinn
í Reykjavík undir stjórn Garð-
ars Cortes, Kammerkór Lang-
holtskirkju, Skagfirska söng-
sveitin, Samkór Kópavogs,
Þrestir frá Hafnarfirði, Söng-
flokkur Ingveldar Ýrar, Kórar úr Domus Vox og
Havnarkornið frá Þórshöfn í Færeyjum undir
stjórn Ólavs Hátún. Dagskráin stendur frá kl. 15
til 18 við Söngskólann á Snorrabraut 54.
Tónlist
Sönghátíð við
Söngskólann
Garðar
Cortes
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
REYFI – menningargnægð er haldin
í Norræna húsinu og í nýreistum
glerskála fyrir framan húsið. Hátíðin
hefst í dag og stendur yfir í níu daga
þar sem fram koma tónlistarmenn,
rithöfundar, dansarar, arkitektar,
myndlistarmenn, sirkusfólk og fleiri
sem sýna gestum list sína.
Myndbandagjörningar
Á hátíðinni verður sýnd mynd-
bandalist og gjörningar verða framd-
ir á sama stað. „Útgangspunkturinn
eru nokkur verk eftir Dieter Roth
þar sem hann er að rispa filmuna og
annað slíkt og er ekki að taka mynd
með hefðbundnum hætti heldur að
nota efnið,“ segir Harpa Björns-
dóttir, myndlistarmaður og einn að-
standenda hátíðarinnar. „Anna Hall-
in sýnir okkur draumkenndan
teiknimyndaheim og Arna Valsdóttir
notar eigin líkama og umbreytir í
gegnum vídeótæknina þannig að úr
verður mjög skrýtið hreyfimunstur.“
Einnig eiga verk á sýningunni Ásta
Ólafsdóttir, Magnús Pálsson, Rúrí,
Chooc Ly Tan og Icelandic Love Cor-
poration auk þeirra Söru Björns-
dóttur og Hannesar Lárussonar sem
einnig sýna gjörning líkt og Snorri
Ásmundsson fyrrum frambjóðandi.
En hvernig tengjast gjörningar vide-
ólist? „Bæði eru lítið notuð listform
en okkur í myndlistargeiranum finnst
mjög spennandi þegar gjörningar eru
fluttir en þetta er mjög erfitt listform,
bæði fyrir þann sem flytur og þann
sem horfir. Stundum er óskiljanlegt
fyrir áhorfendur hvernig þetta geti
kallast myndlist. En þetta snýst um
það að líkami listamannsins er tekinn
inn í verkið. Mörg fyrstu videóverkin
voru skrásetningar á gjörningum og
þau hafa síðan skipst í tvö horn, í hinu
horninu er kvikmyndamiðillinn not-
aður sem kvik mynd.“
Dimmalimm, nornir og skrímsli
Elfar Logi Hannesson, leikari á
Ísafirði, hefur einbeitt sér af ein-
leikjum undanfarin ár. Klukkan 14 á
morgun, sunnudag, sýnir hann ein-
leik byggðan á ævintýri Muggs um
Dimmalimm, enda Dimmalimm vest-
firsk eins og leikarinn. „Muggur er
frá Bíldudal og þar fæddist ég ein-
mitt.“ Dimmalimm, Pétur og Svan-
urinn eru brúður en svo fær nornin
Bauja uppreisn æru. „Hún er bara
rétt nefnd í bókinni en hér treður hún
sér í aðalhlutverkið í sýningunni og
hefur allveruleg áhrif á framgang
sögunnar.“
Eftir Dimmalimm koma skrímslin.
„Ég frumsýndi í vor verk sem heitir
Skrímsli, sem fjallar um skrímsli í sjó
og vötnum á Íslandi og er samið í til-
efni þess að það er verið að undirbúa
opnun Skrímslaseturs í Bíldudal við
Arnarfjörð. Skrímslafræðingar henn-
ar hátignar segja að Arnarfjörðurinn
sé mekka skrímslanna, þar finnast
allar tegundir. Leikurinn verður á
flakki um landið og svo verður hann
sýndur á Skrímslasetrinu í Bíldudal
sem verður vonandi opnað næsta
sumar.“
Gnægð menningar
Norræna listahátíðin Reyfi hefst í Norræna húsinu í dag
Morgunblaðið/G.Rúnar
Glerskálinn Vegna listahátíðarinnar Reyfis hefur stór glerskáli verið settur fyrir framan Norræna húsið. Á
myndinni má sjá horn glerskálans framan við Norræna húsið en atburðir Reyfis fara fram á báðum stöðum.
Í HNOTSKURN
»Norræna húsið verður 40ára á næsta ári, þegar áætl-
að er að breytingum verði lokið
á húsinu sem Alvar Aalto teikn-
aði á sínum tíma.
»Meðal tónlistarmanna semfram koma á hátíðinni eru
Megas, KK, Ólöf Arnalds, Elín
Eyþórsdóttir, Hjaltalín, Nar-
odna Musika og sænsk-suður-
afríska djasssveitin Democracy
of Jazz.
»Alla dagskrána má sjá áreyfi.is.
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
MÁLÞING um stöðu og gildi ís-
lenskrar hönnunar fer fram á Kjar-
valsstöðum á milli kl. 13 og 15 í
dag. Fyrri hluti málþingsins fjallar
um hugmyndaheim íslenskra hönn-
uða, sérstöðu og hvaða brunn
þeir sækja innblástur sinn í. En
hver er þessi brunnur? „Núna er
það sagnahefð og rómantík sem
hentar vel því það er inni í dag og
það hentar okkur ósköp vel til að
gera íslenska hönnun,“ segir El-
ísabet V. Ingvarsdóttir, hönn-
unarsagnfræðingur og einn frum-
mælenda.
„Íslensk hönnun hefur verið að
reyna að finna sér sérstöðu en það
sem hefur staðið því fyrir þrifum
er að við höfum ekki unnið að nein-
um rannsóknum. Þá erum við alltaf
að markaðssetja okkur fyrir aðra
en okkur sjálf en þurfum að fara
að snúa okkur að okkur sjálfum.“
Útlit skiptir
sífellt meira máli
Seinni hluti þingsins fjallar um
gildi íslenskrar hönnunar fyrir ís-
lenskan iðnað og stöðu á alþjóð-
legum markaði auk þess sem
fjallað verður um kosti og galla
þess að starfa á litlum markaði.
Einn mælenda þar er Guðbjörg
Gissurardóttir, framkvæmdastjóri
Hönnunarvettvangs. Hún segir að
hérlendis hafi menn of mikið ein-
beitt sér að hönnun sem útliti,
óhagkvæmu skrauti, og margir
gleyma hve mikinn efnahagslegan
ávinning við getum haft af henni.
„Fyrirtæki nýta sér hönnun í
ímyndaruppbyggingu og í vöruþró-
un og nýsköpun er hönnun gríð-
arlega mikilvæg og getur gefið
vöru tækifæri á markaði sem hún
hefði ekki annars. Það sem er að
gerast á heimsmarkaði í dag er að
við getum varla keppt á lág-
vörumarkaði lengur heldur erum
við farin að keppa um sérstöðu og
útlit skiptir sífellt meira máli.“
Sagnahefð og rómantík
Magma/Kvika Málþingið er haldið í sambandi við Magma/Kvika sýn-
inguna í Árbæjarsafni sem stendur til 28. ágúst.
Málþing um íslenska hönnun á Kjarvalsstöðum