Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 21
ÁRBORG
Eftir Sigurð Jónsson
Selfoss | „Það er tekið mjög vel á
móti nýliðum sem koma til starfa í
skólanum og það er gott að byrja
þar sem nýr starfsmaður. Maður
finnur vel að starfsfólk skólans læt-
ur sig varða um mann og ég held
að það skipti miklu máli,“ sagði
Anna Þóra Einarsdóttir, sérkennari
við Fjölbrautaskóla Suðurlands, þar
sem hún hefur starfað í fjögur ár
en hún starfaði áður um árabil í
grunnskólanum á Selfossi.
Anna Þóra er formaður starfs-
mannafélags skólans en starfsemi
þess er þekkt fyrir fjölbreytni og
mikla þátttöku starfsmanna og
maka þeirra en innan skólans starf-
ar einnig sérstakt kennarafélag
sem fjallar meira um faglega þætti.
Anna segir það ekki hafa komið á
óvart þegar niðurstöður bárust í
lok júní úr könnun á starfsumhverfi
ríkisstarfsmanna. Henni finnst nið-
urstaðan passa vel við sína upplifun
á þeim tíma sem hún hefur starfað
við skólann. Svarhlutfall í FSu var
70,7% í könnuninni en meðalsvar-
hlutfall var 59,5%. Í niðurstöðum
könnunarinnar segir meðal annars
um lykilviðhorf starfsmanna FSu:
„Niðurstöður fyrir FSu gefa til
kynna að starfsánægja fyrir stofn-
unina í heild er hærri en hjá öðrum
sambærilegum stofnunum (fram-
halds- og háskólum), framhalds-
skólum og ríkistofnunum óháð við-
fangsefni. Það sama er uppi á
teningnum varðandi starfsanda og
hollustu, FSu mælist hærri en allir
viðmiðunarhópar. Niðurstöðurnar
eru því mjög jákvæðar fyrir stofn-
unina í heild og mikið styrk-
leikamerki.“
„Mér finnst andrúmsloftið í skól-
anum mjög vinsamlegt og jákvætt
sem birtist í því að starfsmenn tala
vel um skólann og starfið sem unn-
ið er. Einnig finnur maður að
starfsfólkið talar vel um stjórn-
endur skólans og stjórnunina. Mað-
ur finnur fljótt að starfsmenn eru
hollir skólanum láta sig varða mál-
efni hans og þeir standa með hon-
um í því sem gert er. Þetta viðhorf
er auðvitað mikill styrkur fyrir
starfið og fyrir stjórnendur skólans.
Það hefur líka sitt að hefur segja
fyrir skólann að innan hans er þétt-
ur hópur sem starfað hefur frá
stofnun hans og haft mikil áhrif á
mótun starfseminnar. Auðvitað eru
skiptar skoðanir innanhúss og fund-
ir þar eru engar halelújasamkomur.
Fólk er gagnrýnið og ræðir málin
en það er allt á jákvæðum nótum
og skoðanir koma skýrt fram. Svo
næst niðurstaða og fólk virðir
hana,“ sagði Anna Þóra sem lætur
vel af því hlutverki að hafa verið
formaður starfsmannafélagsins í
eitt ár.
Sterkt starfsmannafélag
„Það er einkennandi að það er
ekkert vandamál að fá fólk til að
starfa með stjórn félagsins. Þetta
er sterkt félag sem hefur verið
virkt nánast frá stofnun skólans.
Við erum með ríkar hefðir sem
haldið er í og ekki er unnt að hnika
til enda tekur fólk þátt í því sem er
á dagskrá og mætir vel, bæði
starfsmenn og makar þeirra. Félag-
ið er mjög makavænt sem hefur sitt
að segja og breikkar félagslegar
víddir og skapar meiri tengingar
enda eru sterk vináttubönd innan
þessa hóps,“ sagði Anna Þóra um
einkennandi þætti félagsins en það
er þekkt í samfélaginu á Selfossi
fyrir mikla virkni.
„Sem dæmi um fasta liði á dag-
skrá eru haustganga og vorganga
sem eru ómissandi og líka Alviðr-
udagurinn. Auk þessa er sérstök
nefnd, Abbalabbanefndin, sem sér
um sumargönguna,“ sagði Anna
Þóra sem sjálf er nýkomin úr
gönguferð í Alpafjöllunum og
kvaðst hafa skroppið upp á Hest-
fjall fyrir tveimur dögum svona til
að halda sér í þjálfun.
„Einnig eru utanlandsferðir sem
eru bæði fræðslu- og skemmtiferð-
ir. Árshátíð starfsmannafélagsins
er alltaf haldin í þessum ferðum
sem farnar eru annað hvert ár og
auðvitað eru makar velkomnir. Það
hafa mætt í þessar ferðir allt að 100
manns og þetta þéttir líka hópinn.
Árið sem ekki er formleg árshátíð
gerum við okkur dagamun í vor-
göngunni. Öll skemmtiatriði eru
heimagerð og þá verða oft til stór-
kostlegir skemmtiþættir. Svo er
það líka einkennandi hér við skól-
ann að stjórnendur hafa alltaf verið
mjög jákvæðir og hvetjandi í öllu
sem gert er í félagsstarfi skólans.
Það skiptir allt starf miklu máli að
yfirmenn sýni því áhuga sem gert
er. Áhugi þeirra og metnaður smit-
ar út frá sér og gefur aukinn kraft
til allra að vera með og taka enn
frekar á í starfi og leik.
Gefandi starf
Það er virkilega skemmtilegt
starf að vera sérkennari í fram-
haldsskóla, við erum að vinna með
fólki á aldrinum 16 – 20 ára og
þessu sinna sex kennarar auk
tveggja stuðningsfulltrúa. Það eru
30 – 40 nemendur á starfsbrautinni
þar sem við störfum og við teljum
okkur sjá mikinn árangur af starf-
inu. Þessa nemendahóps biði nán-
ast ekkert ef þessi starfsbraut væri
ekki til staðar. Allt nám er ein-
staklingsmiðað, bæði bóklegt og
verklegt, síðan fara krakkarnir á
vinnustaði en fyrirtæki á Selfossi
og nágrenni hafa tekið vel á móti
krökkunum sem er gífurlega þýð-
ingarmikið og jákvætt.
Kennarastarfið er lifandi og
frjótt og manni leiðist aldrei. Þetta
er gefandi, ögrandi og ánægjulegt
að finna þegar krakkarnir taka
framförum. Ögrunin felst í því að
takast á við aðstæður einstakling-
anna og hjálpa þeim sem eiga erfitt
með að ná tökum á ákveðnum þátt-
um í lífinu. Þegar þetta gengur vel
þá er gaman,“ sagði Anna Þóra
Einarsdóttir, sérkennari í Fjöl-
brautaskóla Suðurlands og formað-
ur starfsmannafélags skólans.
Ríkar hefðir og góður andi
skapa starfsánægju í skólanum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Félagsmál Anna Þóra er formaður starfsmannafélags skólans en starf-
semi þess er þekkt fyrir fjölbreytni og mikla þátttöku starfsmanna.
Anna Þóra Einarsdóttir er formaður Starfsmannafélags Fjölbrautaskóla Suðurlands
FORNÁMSDEILD - 39 eininga heildstætt nám
Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á æðra skólastigi. Námið er skipulagt með
hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og tæknilegur undirbúningur
fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar, hönnunar og arkitektúrs. Umsóknarfrestur til 30. ágúst.
Myndlistaskólinn á Akureyri er fagmiðaður einkaskóli - www.myndak.is - Sími: 462 4958
MYNDLIST - HÖNNUN - ARKITEKTÚR
Skóli með sterkan prófíl