Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 23
neytendur
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 23
Djúpavogshreppur er eitt af þeim
sjávarplássum sem þarf að takast á
við 30% skerðingu á þorskkvóta á
næstu vikum og mánuðum. Ætla má
hinsvegar að það muni taka tölu-
verðan tíma fyrir sveitarstjórn
Djúpavogshrepps að meta hve mikil
áhrifin munu verða vegna þessa, en
ljóst þykir að hafnarsjóður muni
m.a. verða fyrir verulegu tekjutapi.
Sumarið hefur verið íbúum Djúpa-
vogs að mörgu leyti hliðhollt, m.a.
hefur ferðaþjónustan blómstrað í
sveitarfélaginu og hefur alls staðar
mælst aukning milli ára meðal ferða-
þjónustuaðila á svæðinu. Segja má
að bærinn hafi verið iðandi af lifi í
allt sumar.
Þá komu þrjú skemmtiferðaskip
til Djúpavogs í júlí og er nú verið að
leggja drög að enn frekari markaðs-
setningu í þeim efnum m.a. með til-
liti til Vatnajökulsþjóðgarðs og hafa
sveitarfélagið Hornafjörður og
Djúpavogshreppur í því sambandi
ákveðið að hefja undirbúning að
samstarfi með það fyrir augum að
fjölga komum á skemmtiferðaskip-
um til Djúpavogs.
Samgöngumál hafa verið ofarlega á
baugi í Djúpavogshreppi á síðustu
vikum og mánuðum en mjög jákvæð-
ar ákvarðanir hafa verið teknar af
hálfu samgönguyfirvalda varðandi
vegaframkvæmdir í sveitarfélaginu.
Stærsta framkvæmdin sem
ákveðin hefur verið að ráðast í er
nýr og fullkomin vegur um Öxi, en
framkvæmdum á að ljúka þar árið
2011.
Það er ljóst að þessi mikla og
löngu tímabæra samgöngubót mun
ekki aðeins koma íbúum Djúpavogs
vel heldur mun hinn almenni vegfar-
andi einnig fagna þessari fram-
kvæmd um Öxi sem að styttir hring-
veginn um hvorki meira né minna en
61 km.
Ljóst er að ákvörðun um nýjan og
fullkomin veg um Öxi mun einnig
styrkja samskipti og vinnu milli
Fljótsdalshéraðs og Djúpavogs-
hrepps vegna sameiningaviðræðna.
Jarðhitaleit stendur nú yfir í næsta
nágrenni Djúpavogs og hafa til-
raunaboranir gefið góðar vísbend-
ingar. Búið er að finna 44 gráðu heitt
sjálfrennandi vatn á rúmlega 200 m
dýpi sem að gefur fullt tilefni til
bjartsýni um að finna megi mun
heitara vatn á svæðinu sem hægt
verði að virkja fyrir bæinn.
DJÚPIVOGUR
Andrés Skúlason fréttaritari
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
það að henda drasli út
um bílglugga sé ekki
sjálfsagt mál, heldur til
marks um að sá sem
það gerir sé sóði, sem
sýnir umhverfi sínu
enga virðingu og getur
þá ekki búizt við því að
nokkur sýni þeim hin-
um sama snefil af kurt-
eisi?
Er kannski nauðsyn-
legt að taka upp þung-
ar fjársektir til þess að
venja ungt fólk af þess-
um ósið? Þarf þetta
framferði að kosta um-
talsverða peninga til
þess að þeir, sem þetta
stunda, láti það á móti sér?
Sennilega. Þjóðfélag, sem snýst
ekki um annað en peninga, skilur lík-
lega ekkert annað en kostnað, ef því
er að skipta.
Það er æskilegt að lögreglu-
yfirvöld, umferðaryfirvöld, umhverf-
isnefndir sveitarfélaga og aðrir sem
málið varðar taki höndum saman um
herferð til þess að stöðva þennan
skrílshátt.
Eða er hugsanlegt að eina aðferð-
in sem dugi sé að birta bílnúmer
þeirra, sem umgangast umhverfi sitt
með þessum dónaskap?
Víkverji stöðvaðibifreið sína á
rauðu ljósi á Kárs-
nesbraut í Kópavogi
síðdegis í gær og varð
litið út um hliðarspegil.
Í bílnum fyrir aftan
bifreið Víkverja var
ungur snyrtilegur
maður við stýri með
dökk sólgleraugu og
var að fá sér sígarettu,
sem ekki er í frásögu
færandi en að vísu ekki
til fyrirmyndar. Svo
renndi hann bílrúðunni
niður og henti drasli
út, sennilega tómum
sígarettupakka, eins
og ekkert væri sjálfsagðara.
Um þetta athæfi fólks hefur áður
verið fjallað hér í þessum dálki.
Það er nánast hægt að ganga að
því sem vísu að þeir, sem haga sér á
þennan veg, séu innan við þrítugt.
Hvað á að gera við þetta fólk?
Fyrir nokkrum áratugum tókst að
venja þjóðina af þessum ósóma og
um skeið sást framferði af þessu tagi
nánast aldrei. Núna liggur við að
sóðaskapur sem þessi sé daglegt
brauð.
Hvernig á að koma hinni upprenn-
andi íslenzku æsku í skilning um, að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
NÚ FARA skólarnir bráð-
um að byrja og munu þá
börn og foreldrar flykkjast í
verslanir til að kaupa nýjar
skólatöskur handa unga
fólkinu sem er að hefja
skólagöngu sína og eins til
þess að endurnýja úr sér
gengnar skólatöskur eldri
námshesta.
Skólagangan getur hins
vegar í versta falli orðið hinn
versti þrældómur ef valið á
nýju töskunni er ekki vand-
að. Bakverkir og aumar
herðar eru dæmigerðir fylgi-
fiskar tösku sem ekki hentar
barninu.
Hin virta bandaríska
rannsóknar- og sjúkrastofn-
un Mayo Clinic hefur nokkur
góð ráð til þess að ráða bót á
þessum vanda.
Spurning um
almenna skynsemi
Það færist í aukana að
börn beri talsverðar byrðar
á leiðinni í skólann, flestir
vilja jú hafa pennaveski,
skólabækurnar þurfa að
vera til staðar, ýmis áhöld,
tónhlöður og jafnvel nest-
isbox.
Það safnast þegar saman kemur
og því eru ólarnar á bakpokunum
eitt það fyrsta sem foreldrar ættu að
skoða – eitthvað annað en bakpokar
ætti helst ekki að koma til greina
hvort eð er þar sem þá er líklegt að
börnin fái slagsíðu á leiðinni í skól-
ann.
Bakpokinn ætti þannig að hafa vel
bólstraðar ólar sem sitja vel á herð-
unum. Bólstrað bak er líka gott þar
sem síður finnst fyrir innihaldi bak-
pokans ef bólstrunin er góð.
Það er gott að hafa nokkur
smærri hólf í bakpokanum í stað
þess að hafa bara eitt stórt hólf.
Þannig er hægt að jafna þyngdinni á
pokann og hann situr betur – svo er
auðvitað auðveldara að finna hvar
allt er þegar það hefur vísan stað.
Ekki kaupa of stóran bakpoka.
Þetta eru algeng mistök sem felast í
þeirri tilhneigingu að vilja hafa nóg
pláss. Bakpokinn má þó helst ekki
vera breiðari en bak barnsins og
hann ætti heldur ekki að ná meira en
10 cm niður fyrir mitti barnsins.
Efnið sem bakpokinn er gerður úr
skiptir ekki síður miklu máli. Þannig
er almennt betra að hafa bakpokann
sem léttastan og því eru t.d. leð-
urbakpokar heldur óhentugri þó
þeir séu flottir því þeir eru oftast
þungir miðað við nylon eða bakpoka
úr gallaefni.
Það er heldur ekki nóg að
hafa valið réttan bakpoka.
Þannig verður líka að sjá til
þess að hann sé rétt notaður.
Ólarnar ættu að vera þann-
ig stilltar að bakpokinn sitji
þétt að baki barnsins.
Gætið þess að barnið gangi
ávallt með báðar ólar bakpok-
ans á herðunum í stað þess að
sveifla honum einfaldlega yfir
aðra öxlina.
Setjið það sem er þyngst í
bakpokann fyrst og sem næst
bakinu.
Ekki láta barnið burðast
með óþarfa. Það ætti að setja
það sem á að nota í bakpok-
ann á hverjum degi og þannig
má komast hjá því að burðast
sé með bækur sem ekki eru
notaðar.
Þyngd bakpokans með öllu
sem í honum er ætti ekki að
vera meiri en sem nemur 10-
20% af líkamsþyngd barnsins.
Þannig ætti barn sem er 30
kíló að þyngd ekki að burðast
með meira en þrjú til sex kíló í
bakpokanum.
Það getur allt eins gerst að
bakpokinn sé samt of þungur
þótt áðurnefndum ráðstöf-
unum sé fylgt. Það má þá nota höf-
uðið og reyna að finna aðrar leiðir til
að létta bakpokann. Þannig mætti til
dæmis hafa tvö sett af skólabókum,
eitt í skólanum og annað heima við
og þar með sleppa við burðinn á bók-
unum. Hluti sem eru mjög stórir eða
þungir mætti svo jafnvel bera í hönd
í stað þess að setja í bakpokann.
Á vef Mayo Clinic kemur fram að
meira en helmingur allra barna á
aldrinum 9-20 ára þjáist af lang-
vinnum bakverkjum sem rekja má
til slæmra bakpoka. Það er því full
ástæða að hafa þetta í huga þegar
bakpoki er valinn og leita sér ráð-
gjafar ef barn kvartar undan verkj-
um í baki eða dofa í höndum.
Rétt val á skólatösku get-
ur skipt börnin miklu máli
Morgunblaðið/Eyþór
Rangt Of langt er í axlarólum. Barnið spennir sig á
móti vogaraflinu sem togar í og verður þreytt í
baki. Hún situr líka of neðarlega.