Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 25
Morgunblaðið/Sverrir um. „Svo þarf maður bara að muna hvernig bókin er á litinn þegar leitað er,“ segir hún og hlær. Litrík málverk setja líka svip sinn á íbúðina sem og dönsk hús- gagnahönnun og gamlir munir, m.a. klukka sem kemur úr ætt húsbóndans og fornfálegt skrif- borð. „Ég gæti ekki hugsað mér þetta öðru vísi en að blanda saman gömlu og nýju,“ segir húsmóðirin sem var með annan fótinn á byggðasafni í æsku og viðurkennir að hún hafi alltaf vissa tilhneigingu til að falla fyrir gömlum munum. „Hann er svo meira í naumhyggj- unni,“ segir hún um húsbóndann og bætir svo við, „en það þýðir ekki að hafa innbúið of hlaðið. Við viljum að íbúðin sé hrein og ein- föld og þá gengur ekki að tapa sér í skreytingunum, enda felst miklu meiri hvíld í þessu. annaei@mbl.is Kúrt í sófanum Ljósir litir skapa róandi stemningu. „Ég gæti ekki hugsað mér þetta öðru vísi en að blanda saman gömlu og nýju,“ Ljóst og létt Með því að sleppa gardínunum og láta eldhúsáhöldin skyggja í þeirra stað á hluta gluggans viðhelst skemmtileg birta í eldhúsinu. Opið Mahoníviður og þröng hurðarop gerði eldhúsið áður langt og mjótt. Með ljósri eld- húsinnréttingu og víðari inn- gangi stækkar það til muna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 25 Hallmundur Kristinsson yrkirum ákveðna áráttu ráðherra: Við höfum til stjórnunar harða jaxla, sem hafa þó lent í brýnum. Þeim finnst nú svo sem óþarft að axla ábyrgð á gerðum sínum. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir út af Grímseyjarferjuklúðri: Eyðsla, glópska, skandall, skömm, skýrslur dusilmenna, hæpin ráðgjöf, heimska og vömm hinum var að kenna. Þegar frétt birtist með fyrirsögn- inni: „Sturla þvær hendur sínar í Grímseyjarferjumálinu“ orti Davíð Hjálmar: Kurteisi ráðherrann kastar ei skít þótt komi undir neglur hans rendurnar. Standandi hissa og stikkfrían lít Sturlu að þvo sér um hendurnar. Hallmundur Kristinsson bætti við: Sturla hefur hendur tvær. Hreinar bráðum verða þær. Hendur sínar þvær og þvær og þvær og þvær og þvær og þvær. Og Hjálmar Freysteinsson um handaþvottaráráttu: Áráttan þó á sér leyni orðið getur þér að meini. Nú er Sturla handahreini með hendur þvegnar inn að beini. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Af ferju til Grímseyjar Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Heilsárshús á bökkum Brúarár í Bláskógabyggð á ca. 0,8 ha fallegu eignarlandi Glæsilegt og afar vandað 140 fm nýtt hús sem er með steyptum undirstöðum og gólfplötu með hitakerfi í gólfi. Teiknað af teiknistofu A. V. J. 120fm timburver- önd. Rafmagn, hitaveita og kaltvatn komið. Stutt í golf, sund og aðra þjón- ustu. Afh. án innréttinga og gólfefna. Áhvílandi lán um 17 millj. Verð 39,9 millj. Sumarhús í landi Kárastaða, Blá- skógabyggð - innan þjóðgarðs. 70fm eldri bústaður á fallegum stað við Þingvallavatn. Stórkostlegt útsýni yfir sjálft vatnið og fjöllin. Landið er 6.200 fm kjarri vaxið. Miklir möguleikar. Á nær- liggjandi lóðum hafa verið byggð allt að 90 fm glæsileg heilsárshús. Verð 27,5 millj. Sumarbústaður í Úthlíð - Góð kaup Fallegur bústaður í fallegu umhverfi. Þrjú svefnherbergi. Timburverönd með heit- um potti. Hitaveita og rafmagn. Stutt í vinsæla áningastaði, hvort heldur er Geysir, Gullfoss, Reykholt, (Slakki með börnin!),golfvöllur, Skálholt, Laugarvatn o.fl. Góð kaup á sumarhúsi á einu vin- sælasta svæði suðvesturhornsins. Verð 14,9 millj. Sumarbústaður í Vatnsendahlíð í Skorradal 52 fm sumarbústaður við Vatnsendahlíð í Skorradal, rétt við golfvöll. 40 fm verönd, að hluta yfirbyggð. Rúmgóð stofa með arinofni og 3 herb. Frábært útsýni yfir vatn og fjöll. Nýr leigusamningur til 20 ára. Verð 18,9 millj. Sumarbústaðir við Svínavatn Til sölu þrjú heilsárshús við Svínavatn í Öldubyggð. Húsin afhendast fullbúin með verönd, skjólveggjum og heitum potti. Allur frágangur er mjög vandaður. Eignarlóð. Möguleg skipti á íbúð. Verð 26 millj. Nánari uppl. á skrifstofu. Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Sumarútsala Hágæða postulínvasar og blómapottar Feng-Shui vörur í úrvali Útsölulok eingöngu laugarda g og sunnu dag 30-80% afsláttur • Vasar • Diskar • Lampar • Pottar • Myndir • Gosbrunnar o.m.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.