Morgunblaðið - 18.08.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 29
vikum vantar enn upp á að verkaskipting á
milli ríkis og sveitarfélaga sé skýr. Margt sé
óljóst hvað snertir fjármál, ábyrgð og hvernig
samvinnu er háttað. „Þetta stuðlar að skörun
á þjónustunni,“ segir Helga. Hún nefnir einn-
ig að í sumum sveitarfélögum sé almenningi
jafnvel ekki ljóst hvert þeir eigi að leita til að
fá bót meina sinna.
Ennfremur kom bersýnilega í ljós á ráð-
stefnunni að það er ólíkt unnið á milli lands-
horna, hvort sem er á Suðurnesjum, Egils-
stöðum eða Akureyri, svo nokkrir staðir séu
nefndir.
Staða Achenbach-prófsins rædd
Á ráðstefnunni ræddu Thomas Achenbach
prófessor við Vermont-háskóla og Leslie Res-
corla prófessor við Bryn Mawr-háskóla um
nýlegar niðurstöður úr svokölluðu Achen-
bach-prófi. Það próf hefur verið notað sem
mælitæki um áratugaskeið hér á landi og ann-
ars staðar í heiminum.
Fram kom að fagaðilar geti nýtt slík próf til
að koma upplýsingum á milli stofnanna og
skóla. Achenbach var jafnframt að kynna það
hversu langt rannsóknir hans væru komnar,
en nú er hægt að nota prófið sem hann hefur
þróað sem verkfæri í vinnu með foreldrum úr
ólíkum menningarheimum, eða fjölmenning-
arsamfélögum.
Ráðstefnugestir virtust á heildina litið
ánægðir með hvernig til tókst og það upplýs-
ingaflæði sem kom fram. Ekki liggur enn fyr-
ir hvort slík ráðstefna verður endurtekin, en
án efa er brýnt að menn hafi slíkan samráðs-
vettvang ætli menn sér að auka samvinnu í
framtíðinni.
mtæka íhlutun og frumgreiningu, að
Helgu.
ð sem fékk hvað mesta athygli var það
em unnið hefur verið í Reykjanesbæ,“
Helga. „Þar hefur mikil áhersla verið
forvarnir innan forskólans, fyrir for-
örn. Foreldrar á svæðinu fá mikinn og
kan stuðning innan leikskólans. Á veg-
æjarins eru tvö sérstök verkefni sem
t Björkin og SOS – uppeldisfræðsla
oreldra. Öllum foreldrum tveggja ára
er boðið upp á slíkt námskeið. Þar á bæ
menn verið útsjónarsamir og þar virðast
r vindar blása.“ Helga nefnir einnig að á
starfsstéttanna sem veiti geðheilbrigð-
ustu í Reykjanesbæ séu engir eldvegg-
áhersla lögð á samvinnu. Þetta minnki
aust á milli starfsstéttanna.
áðstefnunni kom fram að í sumum til-
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Stuðla, Gyða Haraldsdóttir, sviðsstjóri Miðstöðvar heilsuverndar barna, Pétur Pét-
æknir BUGL.
meiri samvinnu
NOTSKURN
13 fyrirlesarar hvaðanæva að á
landinu héldu erindi á ráðstefn-
i, auk prófessoranna Achenbach og
corla.
áðstefnunni kom fram að enn á eftir
brúa bil á milli ólíkra starfsstétta,
enn vantar upp á meiri samvinnu
i heilbrigðisstofnana.
Ráðstefnan virkaði sem samráðs-
vettvangur að sögn Helgu Hann-
óttur sem skipulagði ráðstefnuna,
enn er ekki útséð með hvort hún
ði endurtekin að ári.
Fyrir um tuttugu árum urðumikil tímamót í versl-unarsögu Íslendinga þeg-ar Pálmi Jónsson, jafnan
kenndur við Hagkaup, opnaði versl-
unarmiðstöðina Kringluna fyrir al-
menningi. Opnun Kringlunnar
markaði einnig tímamót fyrir Pálma
sem hafði unnið sleitulaust frá 1959
að því að bæta verslunarhætti Ís-
lendinga og setja þarfir og kröfur
viðskiptavinarins í forgang. Þessi
sjónarmið höfðu því miður ekki ver-
ið höfð að leiðarljósi, þar sem vöru-
úrval, verðlag og afgreiðslutími
verslana var iðulega ekki við-
skiptavinum í hag, heldur gróða- og
einokunarsjónarmið margra kaup-
manna, heildsala og samvinnuhreyf-
ingarinnar.
Drýgið lág laun! Kaupið
góða vöru ódýrt!
Pálmi stofnaði póstverslunina
Hagkaup árið 1959 í litlu fjósi við
Miklatorg og gafst landsmönnum
kostur á því að panta ódýra vöru og
fá hana senda heim. Ein fyrstu kjör-
orð Hagkaups voru „Drýgið lág
laun! – kaupið góða vöru ódýrt!“ og
voru landsmenn þessu sammála því
oft á tíðum var mikill handagangur í
öskjunni – svo mikill að vörur kom-
ust ekki í hús á tíðum vegna mikillar
eftirspurnar. Aðrir kaupmenn
kunnu illa við þessa stefnu Hag-
kaups, sem leiddi til þess að hagn-
aður þeirra minnkaði en Pálmi hélt
ótrauður áfram þrátt fyrir þetta
mótlæti.
- - -
Árið 1967 hóf Hagkaup innflutn-
ing á matvörum eftir að Pálmi fann
ódýrar appelsínur frá Flórída í
Bandaríkjunum. Bauð hann kílóið til
sölu á 17,5 krónur í
verslun sinni þegar
aðrir kaupmenn seldu
þær á 30-35 krónur
kílóið. Gekk þessi inn-
flutningur svo vel að
Pálmi ákvað að setja á
fót matvörudeild í Hag-
kaup þar sem hann
seldi matvörur sem
hann keypti ýmist frá
heildsölum eða flutti
sjálfur inn. Tóku lands-
menn þessu fagnandi
þar sem með-
alvöruverð var töluvert
lægra en í öðrum versl-
unum.
En keppinautar hans reyndu allt
sem þeir gátu til að stöðva sam-
keppnina og stuttu eftir opnun mat-
vörudeildarinnar tilkynntu nokkrir
heildsalar að þeir myndu hætta við-
skiptum við Hagkaup, þar sem aðrir
kaupmenn hefðu hótað að hætta við-
skiptum við þá ef þeir héldu áfram
að selja Hagkaup vörur. Varð þessi
deila hávær og boðaði forsætisráð-
herra kaupmenn á sinn fund til að
ræða deiluna en með litlum árangri.
Pálmi sagðist í viðtölum ekki ætla
að gefa sig undan þrýstingi kaup-
manna og heildsala og hélt rekstri
sínum áfram með fullum stuðningi
viðskiptavina sinna. Hann boðaði
aukningu á eigin innflutningi og
opnun vörumarkaðar.
Skeifan og sykurinn
Í september 1970 tók Pálmi á
leigu vöruskemmu í Skeifunni 15 og
opnaði þar fyrsta stórmarkað lands-
ins þar sem aðaláherslan var lögð á
ódýrar vörur. Þarna gafst Pálma
tækifæri til að kaupa inn í miklu
magni og selja ódýrt þar sem eng-
inn milliliður lagði á vörurnar. Með-
al tækifæra sem hann sá í magn-
innkaupum var í sykurinnkaupum.
Samvinnuhreyfingin hafði ásamt
heildsölum gert mjög óhagstæð inn-
kaup á sykri og selt landsmönnum á
okurverði um árabil. 1974 var gott
uppskeruár á sykurplantekrum er-
lendis og lækkaði heimsverð á sykri
töluvert en þessi lækkun skilaði sér
ekki til landsmanna þar sem ofan-
greindir aðilar áttu miklar birgðir af
dýrum sykri. Pálmi tók sig því til í
samstarfi við annan kaupmann og
flutti inn mikið af sykri og flykktust
húsmæður í Hagkaup til að kaupa
þennan ódýra sykur. Sam-
bandsmenn og heildsalar sátu því
eftir með miklar og dýrar birgðir á
lager – en dó ekki ráðalaust því
ákveðið var að selja landsbyggð-
arfólki, sem ekki komst í Hagkaup,
sykurinn á okurverði í kaupfélög-
unum um land allt. Almenningur
mótmælti þessu hástöfum og eftir
þetta var sykurverð í samræmi við
heimsmarkaðsverð.
Pálmi háði fleiri stríð við sam-
vinnuhreyfinguna,
heildsala og einka-
söluhafa. Hagkaup
hóf meðal annars sölu
á lesgleraugum, sem
áður hafði eingöngu
verið í höndum sjón-
tækjafræðinga, bók-
um, sem bóksalar
töldu að þeir hefðu
einkaleyfi á, græn-
meti sem keypt var
beint inn frá bændum
í stað þess að fara í
gegnum miðstýrða
grænmetisverslun
ríkisins og jógúrt frá
Húsavík, sem ekki var leyfilegt að
selja í Reykjavík vegna fram-
leiðslusvæða í mjólkuriðnaðinum.
Allt voru þetta vörur sem seldar
voru á mun lægra verði en annars
staðar þekktist.
Íslensk verslun
færð í nútímann
Örlögin reyndu að skerast í leik-
inn í byrjun níunda áratugarins þeg-
ar Pálmi fékk kransæðastíflu þar
sem hann var í sumarfríi á Flórída
ásamt fjölskyldu sinni. Mátti litlu
muna að veikindin drægju Pálma til
dauða en hann hafði betur og í kjöl-
farið mæltu læknar hans eindregið
með því að hann drægi úr vinnu
sinni og reyndi að hvíla sig og
minnka streitu. Þau ráð höfðu engin
áhrif á Pálma því stuttu síðar hóf
hann undirbúning að byggingu
fyrstu verslunarmiðstöðvar Íslend-
inga, sem rísa átti í Kringlumýrinni.
Átti þessi miðstöð að vera að banda-
rískri fyrirmynd þar sem Íslend-
ingar áttu að geta gengið um yf-
irbyggð stræti þar sem tugir
verslana voru staðsettir og næg
bílastæði að fá.
Voru margir svartsýnir á að þessi
framkvæmd myndi vera arðbær og
m.a. samþykktu Kaupmanna-
samtökin að senda tilmæli til borg-
arstjóra Reykjavíkur þar sem farið
var fram á það að fresta úthlutun
lóðar í Kringlumýrinni og athuga
hvort þörf væri á svo miklu versl-
unarhúsnæði. Líkt og áður lét Pálmi
allar hrakspár og mótlæti sem vind
um eyru þjóta og hélt ótrauður
áfram og tók fyrstu skóflustunguna
árið 1984. Tæpum þremur árum síð-
ar, hinn 13. ágúst 1987 klippti hann
á borða á sama stað og hleypti
fyrstu gestum Kringlunnar inn. Þá
strax var það ljóst að Kringlan var
komin til að vera og fyrstu árin voru
gestir um 75 þúsund í viku hverri og
hefur gestafjöldinn aukist ár frá ári
ásamt því að húsnæðið hefur stækk-
að og verslunum fjölgað, en þær eru
orðnar 124 talsins, nánast tvöföld
aukning frá 1987 þegar verslanir
voru 64.
Um 98 milljónir gesta hafa heim-
sótt Kringluna frá upphafi.
Einstaklingurinn í fyrirrúmi
Pálmi var mikið góðmenni og
mátti ekkert aumt sjá. Undirritaður
eyddi mörgum stundum með Pálma
við útkeyrslu á matvörum til þeirra
sem þurftu og taldi Pálmi það vera
skyldu sína að hjálpa þeim sem
minna máttu sín. Þrátt fyrir að hafa
heiminn á herðum sér gaf hann sér
ætíð tíma fyrir samverustundir með
fjölskyldu sinni og sótti Pálmi und-
irritaðan iðulega í skólann og leyfði
honum að vera með sér þegar hann
gekk um ganga Hagkaups og fylgd-
ist með rekstrinum. Þrátt fyrir að
hafa sigrast á öllu því mótlæti sem
hann hafði mætt og komið sínum
stærstu draumum í framkvæmd var
Pálmi ekki ósigrandi. Bygging
Kringlunnar hafði tekið mikinn toll
af heilsu hans og um vorið 1991 fór
heilsu hans að hraka fljótt. Hann
var lagður inn á spítala með krans-
æðastíflu og lést hinn 4. apríl eftir
stutta sjúkralegu. Pálmi var ein-
ungis 67 ára þegar hann lést.
Engan hafði órað fyrir því hversu
langt Pálmi myndi ná þegar hann
var lítill drengur í Skagafirðinum en
ævistarf hans er enn eitt dæmið um
hvers einstaklingurinn er megn-
ugur. Ævistarf hans snerist ekki
eingöngu um að bjóða góðu vöru til
sölu á lágu verði heldur einnig að
brjóta niður höft og reglur sem
skikkuðu almenning til að haga sér
eftir þörfum þeirra sem réðu. Sá ár-
angur sem hann náði í því hefur haft
mikil áhrif í því að opna markaðs-
kerfið á Íslandi og búa til frjóan
jarðveg fyrir þann fjölda íslenskra
athafnamanna og fyrirtækja sem
blómstra ekki einungis á Íslandi
heldur um allan heim.
Pálmi Jónsson í Hagkaup
Eftir Sigurð Pálma
Sigurbjörnsson
» Opnun Kringlunnarmarkaði tímamót
fyrir Pálma sem hafði
unnið sleitulaust frá
1959 að því að bæta
verslunarhætti Íslend-
inga og setja þarfir og
kröfur viðskiptavin-
arins í forgang.
Sigurður Pálmi
Sigurbjörnsson
Höfundur er dóttursonur
Pálma Jónssonar.
Pálmi Jónsson var aldrei með skrifstofu þótt hann ræki eitt stærsta fyr-
irtæki landsins. Hans vinnustaður var á göngum Hagkaups og er þessi
mynd tekin af honum í Skeifunni þar sem hann virðir fyrir sér vörurnar.
göngu átt við hlut Akureyrarbæjar og ekki tekinn með
kostnaður Heilsugæslunnar og Barna- og unglingageðdeild-
ar við ráðgjöf og handleiðslu. Kostnaður bæjarins við Hlíð-
arskóla, án tillits til Skjaldar, er um 86 milljónir króna.
Að sögn Gunnars er kostnaður vegna kennslu um helm-
ingur þessarar fjárhæðar en hinn helmingurinn kemur til
vegna meðferðar. Akureyrarbær ber þó kostnaðinn einn og
óskiptan, þrátt fyrir umleitanir við heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra og menntamálaráðherra um aðkomu rík-
isins að málinu, þar sem meðferð er að hluta til sinnt í starf-
inu.
Gunnar segir aðila á vegum ráðuneytanna sem hafa kynnt
sér málið hafa lýst yfir ánægju með framtakið, en ekkert
hafi þokast í átt til viðræðna um málið:
„Á sama tíma er verið að samþykkja aukin útgjöld vegna
þessara mála bæði af núverandi og fyrrverandi heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, en ekkert af þessu fé hefur
komið eða virðist eiga að koma norður. Er ástæðan sú að
hér er verið að sinna þessum málum þokkalega og því ekki
ástæða til frekari aðgerða? Má vera, en þá finnst mér sem
það sé nokkuð ljóst að frumkvæði eins og það sem sýnt var
hér er af einhverjum talið lítt þóknanlegt.
En hvað má læra af vinnunni við að koma á þessu úrræði
og rekstri þess? Jú, það er gerlegt að vinna þverfaglega og
þvert á stofnanir og samþætta þá þjónustu sem á þarf að
halda, óháð því hverjum sú þjónusta tilheyrir. Það sem til
þarf er góður vilji og jákvætt viðhorf.“
kildi er háð þörfum
ns og því getur skóla-
. Hver nemandi fær
narkennara sem
og heldur utan um
allan hátt. Myndað er
manda sem einn úr
jónarkennari kemur
viðtöl sinna nemenda.
tunar er hrós og fé-
ð mjög markvisst
er upp traust og vin-
g nemenda.
teinum skólastarfsins.
náttúruskoðun og
kólastarfsins.“
u foreldrasamstarfi
skólans.
að til hafa verið góða.
ki hafi verulegar
ildarinnar.
óvart sem þetta les að
s fjár. Samkvæmt upp-
naður við Skjöld á
króna, en þá er ein-
eik börn