Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.08.2007, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bílar Jeep árg. '06 ek. 36 þús. km. Glæsilegur Jeep Grand Cherokee Limited með 5,7 Hemi vél til sölu. Einn með öllu. Ásett verð 4250 þús. fæst á 3950 þús stgr. Uppl. í síma 8990568 Ford Mustang, árg. ’98 Vél 4,6. V8. Ekinn 63.000 mílur. Auka- felgur. Verð 850.000 þ. Upplýsingar í síma 866 0532 og 567 1231. VW Polo, árg. ‘99, til sölu Volkswagen Polo 1400, árg. ’99, ek. 104 þ. Beinsk., sk. ‘08. Verð 380 þús. Upplýsingar í síma 699 6952. Toyota Yaris, árg. ‘99. Verð 550. Toyota Yaris 1000.vvti, árg. ‘99, ek. 101 þús. 2 dyra í toppstandi. Verð 550 þús. Uppl. í síma 694 8448, Óli. Toyota Avensis. Reyklaus og fallegur. Beinskipting, árg. ‘02. Ek. 90 þús. km. Nýyfirfarinn af Toyota. Ný dekk fylgja. Verð 990 þús. Upplýsingar í síma 698 9808. Til sölu Pajero Sport GLS diesel árg. 2000, ek. 152 þús. km. Breyttur f. 35" dekk, er á 33" nýlegum dekkjum, dráttarkúla. Skoðaður ´08. Verð 1.590 þús. Uppl. í síma 694 8710. Til sölu Dodge Durango, árg. ’05. Góður bíll. Lán u.þ.b. 2,2. Verð 3,3. Ath. skipti. Uppl. í síma 693 6274. Skoda Felicia, árg ‘98, ek. 88 þ., sk. ‘08. Skoda Felicia, árg. ‘98, ek. 88 þ., sk. ‘08. Vetrardekk fylgja. Verð 190.000 þús. Nánari upplýsingar í síma 893 5944 Skoda, árg. '03, ek. 73 þús. km. Til sölu Skoda Octavia Ambiente 1600i. Góður bíll, sumardekk á felgum, vetrardekk fylgja með. Ný tímareim, vatnsdæla og vatnslás. Eyðir litlu. Sími: 849 6047. Range Rover, nýskr. 10/2003, ek. 95 þús. Glæsilegur dísel Range Rover. Fluttur inn af B&L og full- þjónustaður hjá þeim. Ekinn 95 þús. Með öllu. Skráður: 10/2003. Verð- tilboð. Upplýsingar í síma 694 4388. Golf Gti, árg. '96. Verð 230.000 kr. Stgr! Golf GTI, ´96, 2,0 L, ek.147 þ. Topplúga, leðurinnr. Mjög fallegur bíll! Sími 864 9296. Jeppar Toppeintak á toppverði. Terrano 2001, 2.4 L, ek. 107, ný kúpling. 1.290 þús., gott lán. Upplýsingar í síma 897 7705. Nissan Navara ´06. Navara SE, árg. 2006, ekinn 35 þús., skoðaður ´09, dísel, sjálfsk., 35" breyttur af Artic Trucks. Verð 3.850 þús. Mjög fallegt eintak. Upplýsingar í síma 865 0713. Cherokee Ltd '92, sjálfsk., í mjög góðu standi, ek. 194 þús. Aðeins 2 eigendur. Staðgreiðslu- verð 200 þús. Uppl. í s. 456 3107, e. kl. 19. Ökukennsla Ökukennsla www.okuvis.is - Síminn 663 3456. Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Kristófer Kristófersson BMW. 861 3790. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i. 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Mótorhjól Yamaha DragStar 1100 Custom. Til sölu glæsilegt DragStar 1100, árg. '04, ekið 6.500 km. V&H púst, mikið aukakróm, einn eigandi, innflutt af Yamaha umboðinu. Verð 990.000. Upplýsingar í síma 898 4334. Til sölu Yamaha R-6 í toppstandi, árg. '05, fæst gegn yfirtöku láns. Uppl. í síma 692 6406. Til sölu vegna mikillar fjölgunar barna… Eitt fallegasta hjól landsins. Hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi! Árið 2003, Ducati 749S. Einn eigandi frá upphafi. Einn þjónustuaðili frá upphafi. Ekið rúma 20.000 km. Tárfellandi eigandi veitir nánari upplýsingar í síma 660 1022. Til sölu Suzuki GSX - R 600. 2002 árg. Ekið aðeins 11.000 þ. Í toppstandi. Verð 600.000. Upplýsingar í síma 669 1487. Kawasaki Vulcan 2000. Til sölu Kawasaki VN 2000, nýskráð '06. Öflugt hjól á fínu verði. Aukahl. Kawasaki vindhlíf og Roadhouse púst. Gott lán getur fylgt hjólinu. Upplýsingar í síma 898 4334. Hjólhýsi Til sölu hjólhýsi, mjög vel með farið með vaski, ísskáp, gaseldavél, klósetti og fortjaldi. Verð 450 þús. Upplýsingar í síma 893 1183. Húsbílar Mercedes Benz, árg. 1982. Ek. 218 þús. km. Benz 307D. Vaskur, helluborð og svefnpláss fyrir 3-4. Ný topplúga, rafgeymir, demparar, gjald- laus, skoðaður o.fl. Verðhugmynd 400 þús. Nánari uppl. í síma 661 0222, 844 0741 eða 483 3909, Ármann. Elliot 55 p. Fiat 2.3 L, 130 hest. 6,7 m, 35 km, árgerð 2007, 6 gíra. Gott verð: 5.990.000 kr ,upplýsingar í síma 517 9350 Dethleffs húsbíll (Fiat Ducato 18 2,8 JTDundirvagn) 7,0 m langur. 6 manna. Árg. ‘01. Ek. 54 þús., með 2x50 W sólarsellun, loftneti o.fl. Verð 3.500 þús. Uppl. í síma 893 1265 . Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl FRIÐRIK Ólafsson tapaði fyrir Nonu Gaprinddhasvili í fyrstu um- ferð Hvatningarmóts Max Euwe sem hófst í gær í bænum Arnhem í Hol- landi. Friðrik hefur ekki teflt kapp- skák opinberlega síðan á minningar- móti um Jóhann Þóri Jónsson haustið árið 2001 og virkaði dálítið ryðgaður í gær. Hann lenti í erfiðleikum í byrjun tafls og mátti játa sig sigraðan í 25 leikjum. Friðrik teflir í lokuðum flokki ásamt ýmsum þekktum skák- stjörnum fyrri tíma auk yngri skák- manna en mótshaldarinn, sem með- fram mótinu stendur fyrir viðamikilli sýningu á ýmsum listmunum tengd- um skáklistinni, virðist hafa lagt áherslu á bjóða keppendum frá öllum heimshornum. Max Euwe hefur löngum verið tal- inn merkasti skákmaður Hollendinga og var forseti FIDE frá 1970 til 1978. Friðrik varð arftaki hans á þingi FIDE í Buenos Aires 1978. Euwe varð óvænt heimsmeistari árið 1935 er hann lagði Alexander Aljékín að velli í 30 skáka einvígi sem fram fór á 13 stöðum í Hollandi, 15 ½ : 14 ½. Aljékín náði fram hefndum tveim árum síðar með því að vinna 15 ½ : 9 ½. Þó skáksagan skýri tap Aljekíns með því að hann hafi farið mjög halloka í baráttunni við Bakkus konung, þá er sumir þeirrar skoðun- ar að á þessum punkti árið 3́5 hafi Euwe verið besti skákmaður heims. Hann var alla tíð dáður og virtur í heimalandi sínu og sýndur margvís- legur sómi á langri ævi. Hann lést 1981. Keppendur samkvæmt töfluröð eru þessir: 1. Friðrik Ólafsson 2. Bianca Muhren (Holland) 3. Helgi Dam Ziska (Færeyjar) 4. Dibyendu Barua (Indland) 5. Puchen Wwang (Nýja Sjáland) 6. Amon Zimutowe (Zambía) 7. Wincent Rothuis (Holland) 8. Willy Hendriks (Holland) 9. Oscar Panno (Argentína) 10. Nona Gaprinshasvili (Georgía) Athyglin beinist mjög að Friðriks, Oscar Panno og Nonu Gaprindhas- vili. Þau tilheyra öll gullöld skákar- innar á seinni hluta 20. aldar. Oscar Panno er jafnaldri Friðriks Ólafssonar, fæddur 1935 og varð heimsmeistari unglinga árið 1953 í Kaupmannahöfn. Friðrik Ólafsson var meðal þátttakenda og varð í þriðja sætii. Aðalvettvangur Panno á skáksviðinu voru mót í Suður-Amer- íku jafnframt því sem hann tefldi fyr- ir Argentínumenn á ólympíumótum og millisvæðamótum. Hann tefldi síð- ast við Friðrik á Piatigorsky-mótinu í Los Angelses 1963. Panno tapaði fyr- ir Jóhanni Hjartarsyni í viðureign Ís- lendinga og Argentínu í Dubai 1986. Fræg urðu viðskipti Panno og Bobby Fischer á tveim mótum árið 1970. Fischer tók Panno bakaríið í Buenos Aires 1970 en á millisvæðamótinu í Palma nokkrum mánuðum síðar taldi Panno að Fischer nyti sérréttinda fram yfir aðra keppendur og mætti ekki við upphaf 23ju og síðustu um- ferðar þegar hann átti að tefla við Fischer sem þá var löngu búinn að tryggja sér efsta sætið og hættur að fylgjast með stöðunni á mótstöflunni. Bobby lék enska leiknum, 1. c2-c4 en ekkert bólaði á Panno. Þá stóð okkar maður upp og sótti Argentínumann- inn sem snaraðist í skáksalinn, stöðv- aði skákklukkuna og gafst upp. Nona Gaprindhasvili varð heims- meistari kvenna tvítug að aldri er hún sigraði stöllu sína Bykovu 9:2 ár- ið 1962. Hún tefldi á fyrsta Reykja- víkurmótinu í Lídó 1964. Allra augu beindust þá að Mikhael Tal sem var gríðarlega vinsæll hér á landi. Hann vann mótið og missti aðeins jafntefli gegn Guðmundi Pálmasyni. Gaprind- hasvili hélt heimsmeistaratititlinum til ársins 1978 þegar hún tapaði óvænt fyrir hinni 17 ára gömlu Maju Chiburdanidse, 6 ½ : 8 ½. Gaman verður að fylgjast með Friðrik á þessu móti en viðureign hans við Nonu Gaprindhasvili fer hér á eftir. Friðrik lendir í gildru í byrjun tafls enda 0. Bg5 og 11. Dd2 ekki nógu vandaðir leikir og tólfti leikur svarts – Rb6 erfiður viðfangs. 14. Rxe4 liggur beinast við en þá kemur 14. .. Bf5 t.d. 15. Rh4 Bxe4! 16. Bxe4 exd4 og vinnur mann. Friðrik kýs að gefa mann en Nona spyrnir við fæti með 21. .. Rxe5 og vinnur öruggan sigur. Arnhem; 1. umferð: Friðrik Ólafsson – Nona Gaprind- hasvili Kóngsindversk vörn 1. Rf3 g6 2. g3 Bg7 3. d4 d6 4. Bg2 Rd7 5. c4 e5 6. Rc3 Rh6 7. O-O O-O 8. e4 c6 9. Hb1 f5 10. Bg5 De8 11. Dd2 Rf7 12. Be3 Rb6 13. b3 fxe4 14. Rh4 d5 15. cxd5 cxd5 16. dxe5 g5 17. f4 gxh4 18. Bxb6 axb6 19. Rxd5 Bf5 20. Hbd1 Hd8 21. De2 Rxe5 22. fxe5 Dxe5 23. Hxf5 Hxf5 24. Dxe4 Kh8 25. gxh4 Hxd5 - og Friðrik gafst upp. Eftir 26. Hxd5 kemur 26. .. Da1+ og 26. dxd5 er svarað með 26. .. De3+ o. s.frv. Friðrik aftur að tafli Friðrik Ólafsson teflir við Boris Spasskí á málþingi í Landsbankanum í fyrra. Skák Hvatningarmót Max Euwe í Arnhem 17. – 26. ágúst Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.