Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Lykill að fortíðinni
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍSU FINNST ÉG
VERA FALLEGUR!
EN HVAÐ FINNST
BLINDRAHUNDINUM HENNAR?
Í ÁR VIL
ÉG HAFA
MEIRI
HRAÐA!
ÉG GET ÞETTA EKKIVIÐ VERÐUM MEÐ LIÐ
SEM HLEYPUR EINS OG
VINDURINN! VIÐ MUNUM
STELA HÖFNUM! HLAUPIÐ!
VIÐ VERÐUM MESTA
HLAUPALIÐ Í SÖGU
HAFNABOLTA! ÉG Á EFTIR AÐ
ÖSKRA, HLAUPTU! HLAUPTU!
SKÓLABÍLLINN ER AÐ
KOMA! ÚT MEÐ ÞIG!
SPIFF HAFÐI VERIÐ
KLÓFESTUR AF
GEIMVERUM SEM
ÆTLUÐU AÐ SENDA
HANN BEINT Í
ÞRÆLKUNARBÚÐIR
EN Á RÉTTU AUGNABLIKI
NÆR SPIFF AÐ STINGA AF.
HANN NÝTIR SÉR LÍTIÐ
ÞYNGDARAFL PLÁNETUNNAR
TIL AÐ ÞJÓTA BURT!
ÞARNA ER SKÓLABÍLLINN...
EN HVAR ER KALVIN?
Á FERÐALAGINU
Í GEGNUM LÍFIÐ...
VERÐUR MAÐUR AÐ HAFA
AUGA MEÐ ÞEIM SEM
MAÐUR HEFUR SNÚIÐ BAKI
VIÐ Á LEIÐINNI Á TOPPINN
ÞEIR GÆTU HALDIÐ
Á BOGA OG ÖR
VARÚÐ! VIÐ
VERÐUM AÐ KOMA
Í VEG FYRIR
BREYTINGAR! ÞAÐ
Á AÐ BYGGJA
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
Á TORGINU!
ÆTLAR
LEIGUSALINN
AÐ HÆKKA
LEIGUNA!
EN SÁ
FANTUR!
VIÐ FÁUM
EKKI ÞAÐ
SEM VIÐ
BORGUM
FYRIR EINS
OG ER
ÉG HEF VERIÐ AÐ
HUGSA UM ÞAÐ HVORT
VIÐ ÆTTUM EKKI BARA AÐ
VINNA HEIMA HJÁ OKKUR
VIÐ
ÞYRFTUM
EKKI AÐ
BORGA LEIGU
OG VÆRUM
MEIRA MEÐ
KRÖKKUNUM
JÁ, ÞAÐ
ER EITT-
HVAÐ TIL
AÐ HUGSA
UM...
ÞÚ MÁTT TAKA ÞESSA
SKRIFSTOFU OG TROÐA
HENNI! ÉG ER FARIN!
LÍTUR ÚT
FYRIR AÐ HÚN
SÉ FLJÓT AÐ
HUGSA
ÞÚ HEFUR
RÉTT FYRIR
ÞÉR. ÉG ER EKKI
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN
ÉG HEITI
TED
CHAMBERS
ÉG VAR EINU SINNI
SLÖKKVILIÐSMAÐUR...
OG ÉG KANN ENNÞÁ
ÝMISLEGT
dagbók|velvakandi
Löng leið eftir lyfinu
LYFIÐ Tambocoor skal einungis
ávísað af hjartalæknum. Til þess
að komast til hjartalæknis án þess
að greiða fyrir það fullu verði þarf
tilvísun frá heimilislækni og greiða
fyrst fyrir hana 700 krónur. Til
þessa þurfti tvo tíma frí úr vinn-
unni. Síðan var farið til hjarta-
læknisins og fenginn lyfseðill og
skoðun og greitt fyrir það 6.840
krónur. Þrátt fyrir tilvísunina þarf
að greiða þar fullt verð. Þar fóru
aðrir tveir tímar úr vinnunni. Þrátt
fyrir að vera með tilvísun þarf að
greiða fullt verð hjá hjartalækn-
inum en fara svo þriðju ferðina
niður í Tryggingastofnun með til-
vísunina og reikninginn frá hjarta-
lækninum til þess að fá endur-
greitt að hluta kostnaðinn við að
endurnýja lyfseðilinn. Enn fóru
tveir tímar úr vinnunni en það
tókst að fá lyfseðilinn fyrir lyfj-
unum sem ekki má vanta hálfan
dag þá gera óþægindi strax vart
við sig. Er þetta boðleg þjónusta ?
Ég segi nei og aftur nei.
Þar að auki er sjúklingum gróf-
lega mismunað með þjónustu þar
sem ekki þarf tilvísun til annarra
sérfræðinga.
Dagrún Sigurðardóttir,
Fífuseli 18.
Kanadaferðir
Í VELVAKANDA 14. ágúst sl. er
bréf frá „Fyrrverandi ferðafélaga í
Bændaferðum“ sem segir Agnar
Guðmundsson landbúnaðarráðu-
naut hafa verið upphafsmann
Kanadaferða og hafið ferðirnar
1978 og finnst hans hafa verið að
litlu getið fyrir það afrek.
Sannleikurinn er sá að Þjóð-
ræknisfélag Íslendinga undir for-
ystu Gísla Guðmundssonar kenn-
ara sem er eini Íslendingurinn,
sem orðið „guide“ hefur fest við,
enda frábær leiðsögumaður, hóf
ferðir til Kanada 1975 í tilefni af
100 ára afmæli landnáms Íslend-
inga vestanhafs. Ég hafði útskrif-
ast úr Leiðsögumannaskóla Ís-
lands veturinn áður og Gísli bauð
mér starf aðstoðarleiðsögumanns í
Kanadaferðunum. Ég man ekki
hve margar ferðir við fórum þetta
sumar, en þær voru allar skipu-
lagðar og undirbúnar af Gísla og
félögum í Þjóðræknisfélaginu og
tókust svo vel. Allt gekk eins og
smurt og að minnsta kosti 500 Ís-
lendingar voru alsælir með þessar
ferðir. Virðingarfyllst,
Unnur Konráðs.
Skemmtilegur geisladiskur
ÉG ÆTLAÐI alltaf eftir sumarfrí
okkar fjölskyldunnar í fyrra að
senda inn þakkir fyrir ótrúlega
skemmtilegan geisladisk sem var
spilaður viðstöðulaust á ferð okkar
um landið. Svo var einnig í sumar
og hann var alveg jafn skemmti-
legur. Það var alveg sama hvort
það var sá sem var í fyrra 4 ára
eða sá sem var 47 ára það mátti
ekki í milli sjá hver söng hærra og
hafði meira gaman af. Geisladisk-
urinn heitir Villikettirnir og inni-
heldur lög við vísur eftir Davíð Þór
Jónsson.
Takk Davíð Þór, þú ert snill-
ingur.
Söngelskur ferðalangur.
Týnd vekjaraklukka
Á FERÐALAGI mínu milli Hvera-
gerðis og Hafnar í Hornafirði 10-
18. ágúst sl. týndi ég lítilli hvítri
ferkantaðri vekjaraklukku. Finn-
andi vinsamlegast hafi samband
við Ólöfu í síma 568 3115.
Gleraugu í óskilum
GLERAUGU fundust í Fossvogs-
dal fyrir hálfum mánuði síðan.
Upplýsingar í síma 867 1008.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
GUÐRÚN og Íris sem eru 9 ára leika sér í Nauthólsvíkinni í hitanum og
góða veðrinu. Nú fer hver að verða síðastur að sóla sig þetta árið og því er
um að gera að nýta hvert tækifæri sem gefst.
Morgunblaðið/Ómar
Í boltaleik á ströndinni