Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 49

Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 49 Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Óstöðugir ærast og val-kvíðnir þjást sem aldreifyrr þegar litið er yfir fjöl-breytta dagskrá Menning- arnætur. Flestir fagna þó trúlega fjölbreytninni og setja sig í stellingar til að geta innbyrt sem mest af menn- ingarviðburðum á einum sólarhring. Af nógu er allavega að taka og klisj- an „allir finna eitthvað við sitt hæfi“ hefur sjaldan átt betur við. Til hægð- arauka má benda fólki á að fólk getur búið til sína eigin dagskrá og prentað út á vef Menningarnætur. Hér verður stiklað á stóru yfir dagskrá hátíðarinnar í dag. Formleg setning Menningarnætur fer fram klukkan 13 í Norræna hús- inu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri setur nóttina og þær Ei- vör Pálsdóttir og Lay Low flytja nokkur lög. Hraustmenni og -konur hafa trú- lega hitað upp fyrir Reykjavík- urmaraþon Glitnis og í dag er komið að stóru stundinni. Vilhjálmur borg- arstjóri hleypir (eða hleypur?) af stað skemmtiskokki frá Lækjargötu í há- deginu. Fyrir þá sem þyrstir í fróðleik um Reykjavík og nágrenni má benda á annars vegar siglingar til Viðeyjar þar sem Viðeyingurinn Örlygur Hálfdánarson segir frá því sem augu ber. Hins vegar ætlar Guðjón Frið- riksson að standa fyrir menningar- sögugöngu að sjóminjasafninu Vík- inni. Bókmenntir teljast vissulega til menningar, jafnvel þó þær séu óhefð- bundnar. Landsamband æskulýðs- félaga stendur fyrir lifandi bókasafni á Austurvelli þar sem fólk getur fengið að láni lifandi bækur og kynnt sér í leið fjölbreytileika mannlífsins. Um kvöldið fer svo fram opnun á verki Elínar Hansdóttur í Borg- arbókasafninu við Tryggvagötu. Verkið samanstendur af 1.000 bók- um með auðum síðum. Gestir geta fengið bækurnar að láni, teiknað í þær, skrifað eða límt og skilað þeim svo aftur á bókasafnið fyrir næstu notendur. Þá verður hægt að gera góð kaup á barnafatabasar á Laugavegi 67. All- ur ágóði sölunnar rennur til Barna- spítala Hringsins og BUGL. Jólaöl og sprengingar Heilsuverndarstöðin við Bar- ónsstíg öðlast endurnýjun lífdaga á í dag og kemur til með að hýsa æv- intýraheim fyrir unga sem aldna. Þar gefur að líta fjöldann allan af leik- brúðum, meðan annars úr Latabæ og frá Sjónvarpinu. Tónlistarmyndbönd með Þóri, Maus, Benna Hemm Hemm og fleir- um verða til sýnis í Iðu-húsinu við Lækjargötu og lífrænn útimarkaður verður við verslun Yggdrasils á Skólavörðustíg. Þar mæta bændur með afurðir sínar til sölu. Uppskera grænmetis er mjög í takt við árstímann en þeim sem eru þegar komnir í jólaskap skal bent á að jólaöl og piparkökur verða í boði í Jólahúsinu. Sprengingar og ljósadýrð verða í algleymingi á efnafræðisýningu í húsakynnum Íslenskrar Erfðagrein- ingar þar sem helstu sérfræðingar landsins í efnafræðibrellum leika lausum hala. Ævintýraþyrstir geta svo fengið far á Harley Davidson mótorhjóli umhverfis Tjörnina gegn greiðslu en greiðslan rennur óskipt til lang- veikra barna á Íslandi. Vöfflur í boði Gestrisnir íbúar í Þingholtunum ætla að sjá til þess að gestir og gang- andi þurfi ekki að njóta dagskrár- innar á fastandi maga en þau Sveinn og Gréta, Ólöf Arngrímsdóttir, Þóra Andrésdóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir, Guðbjörg Sigurðardóttir, Auður og Ósk, Davíð og Elísabet, Guðmundur og Jóna, Ingibjörg og Gunnar Anton ætla að opna heimili sín vegfar- endum og bjóða þeim upp á kaffi og vöfflu. Þeim með fortíðarþrá er gefinn kostur á að bregða sér í gömul föt og láta smella af sér mynd í Ljós- myndasafni Reykjavíkur og einnig má líta gamla íslenska mynt og seðla sem og erlenda gjaldmiðla frá fyrri öldum í Seðlabaka Íslands. Fjöldi manns eyddi ófáum klukku- tímanum við að reyna að koma Super Mario til baráttu við drekann óg- urlega í tölvuleiknum Super Mario Bros á tíunda áratugnum. Fingra- fimum gefst kostur á að endurtaka leikinn sem og aðra góða tölvuleiki í tjaldi við Mjóstræti. Fjöldasöngur hljómar frá Söng- skólanum í Reykjavík um miðjan dag þegar Sönghátíð verður sett við há- tíðlega athöfn en öllu hljóðlegri gjörningur fer fram í garði Lista- safns Einars Jónssonar. Þar óska systkinin Diljá og Einar eftir aðstoð almennings við að setja heimsmet í hvísluleik. Innanhúss í Listasafni Einars ætla þau Páll Óskar og Monika svo að halda þrenna tónleika, hvorki meira né minna. Öllu drungalegri stemning verð- ur í gamla Tukthúsinu við Póst- hússtræti en þar verður vegfar- endum boðið í leiðangur um húsakynninn. Leiðsögumaður út- listar í leiðinni þá hræðilegu atburði sem hafa átt sér stað innan veggja Tukthússins og leiðangurinn hentar ekki viðkvæmum sálum. Róttækir sameinist Að öllum viðburðum Menning- arhátíðar ólöstuðum er víst óhætt að fullyrða fyrirfram að stór- tónleikar á Miklatúni verða hvað mest sótti atburður hátíðarinnar. Tónleikarnir verða tvískiptir; milli klukkan 16 og 18 leika Ljótu hálfvit- arnir, Vonbrigði, Pétur Ben, Mínus og Ampop. Milli klukkan 20 og 22.30 leika svo Sprengjuhöllin, Ei- vör, Á móti sól, Megas og Senuþjóf- arnir og Mannakorn ásamt Ellen Kristjáns á Miklatúni. Á milli klukkan 18 og 20 verður gert hlé á tónleikunum. Einar Már Guðmundsson ætlar að lesa upp úr væntanlegri skáld- sögu sinni á Sjávarbarnum og í næsta húsi, í Sjóminjasafninu Vík- inni, verður til sýnis fatnaður sjó- mannskonunnar sem hönnuðurinn Hildigunnur Sigurðardóttir á heið- urinn að. Róttækum er bent á að safnast saman klukkan 16.30 við Iðnó en þar verður rásmark Róttæklingarölts, sem leggur leið sína um mótmæla- slóðir í miðborg Reykjavíkur. Sem dæmi um ólíka viðburði hátíð- arinnar má nefna að á sama tíma er hægt að horfa á nokkrar stuttmyndir listamanna úti í glugga StartArt á meðan hægt er að fylgjast með Frank Ú. Michelsen við úrsmíðar í glugga verslunar sinnar. Þeir sem vilja skapa eitthvað sjálf- ir geta mætt á Prikið þar sem tónlist- armönnum er boðið að koma og leika af fingrum fram og fá að launum ís- lenska kjötsúpu. Tveir leiklistarnemar standa fyrri uppsetningu á leikritinu Bubba kóngi eftir Alfred Jarry, en sýningin markar jafnframt endalok artFart sviðslistahátíðarinnar þetta árið. Sýningin fer fram í Smiðjunni við Sölvhólsgötu. Fjölmenning verður í hávegum höfð í Þjóðminjasafninu á laugardag- inn þar sem meðal annars verður hægt að fá leiðsögn um safnið á átta tungumálum. Allsherjardansiballi verður slegið upp í Hafnarhúsinu þar sem gestir eru hvattir til að mæta og dansa við hressan undirleik tríós harmonikku- leikarans Vadim Fedorovs. Hér eru aðeins nefndir nokkrir af þeim hundruðum viðburða sem prýða dagskrá Menningarnætur en einnig geta gestir farið á örfyr- irlestra í Endurmenntun Háskóla Ís- lands, kynnst menningu frá ýmsum heimshornum á Lækjartorgi, tón- leika í garði Dillons og fleira og fleira. Dagskráin endar að vanda á glæsilegri flugeldasýningu utan við Sæbrautina klukkan 23. Stórtónleikar og Super Mario menningarnott.is Morgunblaðið/Eyþór Flott Dagskrá Menningarnætur endar jafnan á veglegri flugeldasýningu. Morgunblaðið/Ómar Namm Vöfflur verða á boðstólnum hjá nokkrum gestrisnum Reykvíkingum. » Af nógu er allavegaað taka og klisjan „allir finna eitthvað við sitt hæfi“ hefur sjaldan átt betur við. » Þeim sem eru þegarkomnir í jólaskap skal bent á að jólaöl og piparkökur verða í boði í Jólahúsinu. Fjölbreytt dagskrá Menningarnætur Tölvuleikur Áhugasamir geta rifj- að upp kunnáttu í Super Mario Bros á Menningarnótt. MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is Miðapantanir í síma: 437-1600 Menningargnægð Norræna húsið 18. – 26. ágúst 2007 Laugardagur 18. ágúst Glerskáli Norræna húsið Listsýningar alla daga á meðan á hátíðinni stendur: Hönnunarsýning frá Álandseyjum Ljósmyndasýning um arkitektúr Ljósmyndasýning Rebekku Guðleifsdóttur Global Village – Heimsþorp “Sköpun úr rusli” og ljósmyndasýning Vinnuskóla Reykjavíkur Sýning á verkum leikskólabarna kl.12:00 og 17:15 Sirkus: Hand in hand. Sirkussmiðja fyrir börn. Óvæntar uppákomur allan daginn Kl. 13:00 Menningarnótt Reykjavíkur og REYFI Menningargnægð formlega opnuð Tónleikar: Kl. 14:00 Lay Low Kl. 15:00 Tepokinn Kl. 16:15 María Winter Kl. 18:00 Democracy of jazz Kl. 18:45 Eiríkur Orri og gestir Kl. 19:30 María Winter Kl. 20:45 Democracy of jazz Kl. 21:45 Eiríkur Orri og gestir Kl. 22:30 Kl. 23:15 Djasskvartett Kára Árnasonar Kl. 13:00 – 18:00 Íslensk myndbandalist: Dieter Roth, Magnús Pálsson, Rúrí, Ásta Ólafsdóttir, The Icelandic Love Corporation, Hannes Lárusson, Sara Björnsdóttir, Anna Hallin, Arna Valsdóttir og Chooc Ly Tan Kl. 15:00 Norræn matargerð Kl. 16:00 Gjörningur: Sara Björnsdóttir ásamt listnemum úr LHÍ Kl. 16:15 Gjörningur: “Inni við beinið er hann besta skinn” Snorri Ásmundsson Kl. 17:00 og 20:00 Dorthe Höjland group Kl. 20:00 Gjörningur: “Composition 2” Hannes Lárusson FLUGELDASÝNING www.nordice.is - www.reyfi.is LÍK Í ÓSKILUM Lau 1/9 kl. 20 FRUMSÝNING upps. Mið 5/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 LADDI 6-TUGUR Fim 23/8 kl. 20 Fös 24/8 kl. 20 Lau 25/8 kl. 20 SÖNGLEIKURINN ÁST Í samstarfi við Vesturport Fös 31/8 kl. 20 Lau 1/9 kl. 20 Fös 7/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 BELGÍSKA KONGÓ Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20 Mið 26/9 kl. 20 SÖNGLEIKURINN GRETTIR Fim 30/8 kl. 20 upps. Lau 8/9 kl. 20 Sun 9/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20 KILLER JOE Í samstarfi við Skámána Fim 6/9 kl. 20 Fim 13/9 kl. 20 DAGUR VONAR Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20 Fös 21/9 kl. 20 Lau 29/9 kl. 20 Miðasala 568 8000 - www.borgarleikhús.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.