Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 53

Morgunblaðið - 18.08.2007, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 53 sýna heimsbyggðinni hvað það var að gera,“ segir Sibilla. „Sagan var samt ekki öll sögð þegar fólk var bú- ið að samþykkja að koma fram því ég þurfti líka að ákveða hvort viðkom- andi einstaklingar væru nógu góðir til að vera fulltrúar allra annarra í heiminum sem gerðu það sama.“ Furðulegir Japanar Þeir sem koma fram í No Body Is Perfect virðast algjörlega ófeimnir við myndavélina. „Það tók auðvitað svolítinn tíma, en að lokum treysti fólkið mér algjörlega og það tók ekki eftir myndavélinni,“ segir Sibilla sem lenti þó einu sinni í því að kona bað hann að hætta þegar tökur voru hafnar því hún treysti sér ekki í þetta þegar á hólminn var komið. „Flestir sem koma fram í myndinni hafa hins vegar séð hana, og eru mjög ánægðir með hana. Að vísu hef ég ekki haft tækifæri til þess að sýna fólkinu í Japan hana, en það kemur vonandi að því. Allt það furðulegasta, fyndnasta og ruglaðasta sem ég varð vitni að var nefnilega í Japan. Þeir eru með alveg ótrúlegt ímyndunarafl þegar kemur að kynlífi.“ Sker framan af fingrum En hvað kom Sibilla mest á óvart við gerð myndarinnar? „Þetta kom mér eiginlega allt á óvart. Ég kem úr fremur hefðbundinni fjölskyldu þannig að flest sem ég sá var alveg nýtt fyrir mér. Þegar nokkuð var lið- ið á tökur hélt ég að ég hefði séð allt, en svo þegar ég hitti manninn sem stundaði aflimun var ég viss um að það var nokkuð sem ég myndi aldrei sjá aftur. Það er líka ákaflega sjald- gæft að fólk stundi aflimun,“ segir hann, en í myndinni er viðtal við mann sem sker reglulega framan af fingrum sínum. „Ég hugsa að af öllu því sem kemur fram í myndinni hafi það verið það sem er erfiðast að skilja, að nokkur maður skuli vilja gera slíkt.“ Andlega hliðin Sibilla segir að þótt það hafi á köfl- um verið erfitt að horfa upp á hvað fólk geri líkama sínum, jafnist það ekki á við andlegar öfgar sem hann varð vitni að. „Vissulega geta líkams- meiðingar hvers konar verið átak- anlegar á að horfa, en maður skilur þær upp að vissu marki. En þegar maður verður vitni að því þegar fólk gengur mjög langt til að fullnægja kynferðislegum þörfum sínum and- lega, þá fer það að hafa áhrif á mann. Til dæmis þegar maður sér fólk sem er algjörlega undirgefið einhverjum öðrum 24 tíma sólarhrings, allan árs- ins hring, þá hættir maður að skilja. Ég varð meira að segja svolítið þunglyndur af því að verða vitni að því. Þetta er svo fjarlægt manni.“ No Body Is perfect verður frum- sýnd í Regnboganum kl. 22.30 í kvöld. Myndin verður aðeins sýnd tvisvar til viðbótar; annað kvöld og á mánudagskvöld. Nánari upp- lýsingar á www.graenaljosid.is. / AKUREYRI / KEFLAVÍK eeee FGG - Fréttablaðið eeee ÓHT - Rás2 eeee Morgunblaðið 50.000 GESTIR RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 2 - 3:10 - 5:40 LEYFÐ THE TRANSFORMERS kl. 8 - 11 B.i. 10 ára THE SIMPSONS kl. 4:15 - 6 LEYFÐ BLIND DATING kl. 10:30 B.i. 10 ára VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA HLJÓÐ OG MYND WWW.SAMBIO.IS RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ THE TRANSFORMERS kl. 4 - 8 - 10:15 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ RUSH HOUR kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ THE SIMPSONS m/ensku tali kl. 2 - 4 LEYFÐ THE TRANSFORMERS kl. 8 B.i. 10 ára NANCY DREW kl. 6 B.i. 7 ára / SELFOSSI SÍMI: 482 3007 ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG eee F.G.G. - FBL V.I.J. – Blaðið SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMBÍÓUNUM ÁFABAKKA, AKUREYRI, KEFLAVÍK og SELFOSSI SHREK 3 MEÐ ÍSLENSKU TALI OG KL. 1 Í ÁLFABAKKA OG KL. 2 Á AKUREYRI www.SAMbio.isSparBíó 450krí Á EFTIRTALDAR SÝNINGAR laugardag og sunnudag RATATOUILLE- KL. 12:30 Í ÁLFABAKKA M/ ENSKU OG ÍSL TALI OG KL. 2 Í KEFLAVÍK M/ÍSL TALI 50.00 0 GES TIR HARRY POTTER 5 - KL. 2 Í ÁLFABAKKA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.