Morgunblaðið - 18.08.2007, Side 56
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Rússar í háloftunum
Rússar hafa á nýlega tekið upp
eftirlitsflug eins og st unduð voru á
kaldastríðstímanum. Rússneskar
flugvélar voru nærri Íslandi í gær án
þess að tilkynna um komu sína. » 16
Kuml fannst í Arnarfirði
Kuml frá níundu eða tíundu öld
fannst í uppgreftri í Hringsdal í Arn-
arfirði í gær. » Forsíða
Hlutabréf hækka
Verð á hlutabréfum hækkaði í
Evrópu og Bandaríkjunum í kjölfar
þess að Seðlabanki Bandaríkjanna
lækkaði vexti til fjármálastofnana
um 0,5%. » 14
Vegur eða
lagnaframkvæmdir?
Varmársamtökin telja veg hafa
verið lagðan að Helgafellslandi í
Mosfellsbæ þó að það hafi ekki verið
samþykkt með deiliskipulagi. Bæj-
arráð segir veginn ekki vera veg,
heldur lagnaframkvæmdir. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Er verklagið
viðurkennt?
Forystugreinar: Biðlistar á BUGL
Rússar á flugi
UMRÆÐAN»
Kennslustund í kvikmyndahúsi
Atvinnuleg endurhæfing
Innistæðulaus umræða
Sjöstjarna skáldanna
Lesbók: Glymjandi einvera
Úttekt á Harry Potter
Börn: Hlauparadulmál
Verðlaunaleikur vikunnar
LESBÓK | BÖRN »
3
#(4
, '(
5
1 2
2 2 2 2
2
2 2
2
2 2 2 2
*6%/
2 2 2 2 2
2
2
7899:;<
=>;9<?5 @A?7
6:?:7:7899:;<
7B? 66;C?:
?8; 66;C?:
D? 66;C?:
0< ?1E;:?6<
F:@:? 6=F>?
7;
>0;:
5>?5< 0' <=:9:
Heitast 15°C | Kaldast 8°C
Hægviðri og skýj-
að með köflum en
skúrir á Austurlandi.
Hlýjast á Suðvest-
urlandi. » 10
Menningarnótt
brestur á í dag. Dag-
skráin er fjölbreytt
og allir ættu að finna
eitthvað við sitt
hæfi. » 49
MENNING»
Fjölbreytt
dagskrá
FÓLK»
Slater er skotinn
í Winonu Ryder. » 51
Nýjasta plata Vil-
helms Antons er ró-
lyndisleg enda var
hún tekin upp í
svefnherberginu
hans. » 48
TÓNLIST»
Nýtt frá
naglbítnum
KVIKMYND»
Líkamsbreytingar og kyn-
ferðislegar tilraunir » 52
KVIKMYND»
Goya’s Ghost ekki besta
mynd Formans. » 50
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ostaskeri eyðilagði Íslandsför
2. Viktoría fær 350 milljóna …
3. Mikið brotin eftir bílveltu
4.Vill vínbúðina burt
REYKJAVÍKURMARAÞON fer í
dag fram í 24. sinn og aldrei hafa
fleiri tekið þátt í hlaupinu. Þegar
skráningu lauk klukkan níu í gær-
kvöldi höfðu 11.408 manns skráð sig
til þátttöku. 574 hlauparar ætla að
spreyta sig á maraþoni. Þá ætla
1.628 að hlaupa hálfa þá vegalengd
og 2.971 mun hlaupa tíu kílómetra.
Skemmtiskokkarar verða 2.196 og
4.039 krakkar yngri en tíu ára taka
þátt í Latabæjarhlaupinu. Frímann
Ari Ferdinandsson, framkvæmda-
stjóri hlaupsins, segir að þátttak-
endum hafi fjölgað um nálægt þús-
und miðað við í fyrra. Fjöldi þeirra
útlendinga sem kemur til þess að
taka þátt í hlaupinu eykst stöðugt og
í ár eru þeir hátt í þúsund talsins. Ól-
ympíumeistarinn í maraþonhlaupi,
Stefano Baldini, er einn þeirra.
250 lítrar af pastasósu
Keppnisgögn voru afhent í Laug-
ardalshöll í gær og var þátttak-
endum boðið í pastaveislu við það til-
efni, enda nauðsynlegt að birgja sig
upp af orku fyrir langhlaupin í dag.
Um 4.000 manns mættu til veisl-
unnar og tóku hraustlega til matar
síns. Allt matarkyns kláraðist og
reikna aðstandendur hlaupsins með
því að meira en hálfu tonni af pasta
hafi verið gerð skil í höllinni í gær.
250 lítrar af pastasósu og 2.500 smá-
brauð hurfu sömuleiðis ofan í
hlaupafólkið.
Skipuleggjendur hlaupsins voru í
gærkvöld bjartsýnir á að hlaupið
gengi vel fyrir sig, enda veðurspáin
góð. Þar munar mestu að ekki er
gert ráð fyrir neinum vindi að ráði,
en það getur blásið hressilega á Sæ-
brautinni þar sem leið hlauparanna
liggur meðal annars.
11.408 hlaupa í dag
Metþátttaka í Reykjavíkurmaraþoni Keppendum fjölgar um þúsund milli ára
ÞAÐ var handagangur í öskjunni í Laugardalshöll í
gærkvöldi þegar fjöldi manns var að skrá sig til þátt-
töku í Reykjavíkurmaraþoninu.
Guðmundur Hannesson og Bjartur sonur hans voru
meðal þeirra sem fengu sér „kolvetnabombu“ hjá Guð-
rúnu Ólafsdóttur. Guðmundur ætlar að taka þátt í
skemmtiskokkinu en Bjartur ætlar að skella sér í Lata-
bæjarskokkið ásamt fjölda annarra barna.
Feðgar í pastaveislu
Morgunblaðið/Kristinn
„Á SAMA hátt og Bernhöftstorfuhúsin voru gerð
upp, eftir að hafa verið vanrækt í meira en hálfa
öld, er eins hægt að gera upp húsin Laugaveg 2
og 4 í samræmi við upphaflega gerð þessara
húsa og koma þeim í góðan rekstur. Það væri hið
eina skynsamlega í stöðunni,“ segir Guðjón Frið-
riksson sagnfræðingur.
Guðjón varar við því að sömu mistök kunni að
vera í uppsiglingu nú og þegar baráttan um
Bernhöftstorfuhúsin stóð sem hæst í byrjun átt-
unda áratugarins.
Teikningar að nýju húsi hafa verið afgreiddar
frá Skipulagsráði og bíða þess að bygginga-
fulltrúi setji stimpilinn á þær. | Lesbók
Skynsamlegast
að gera upp
Laugaveg 2 og 4 HLJÓMSVEITIN Jakobínarína hefur verið feng-in til að hita upp fyrir bresku rokksveitina Kaiser
Chiefs á tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu í
október og nóvember.
Um er að ræða níu tónleika en áður en af því
verður ætlar sveitin að halda fjórtán tónleika í
Bretlandi til að kynna fyrstu breiðskífu sína, sem
kemur út 24. september næstkomandi.
Kaiser Chiefs léku hér á landi í fyrra á Iceland
Airwaves. Þeir hafa gefið út tvær breiðskífur á
undanförnum tveimur árum, Employment og Yo-
urs Truly, Angry Mob.
Íslendingum gefst kostur á að sjá piltana í Jak-
obínurínu spila tvívegis á næstunni, fyrst sem
upphitun fyrir Franz Ferdinand í Nasa 14. sept.
og svo kemur Jakobínarína einnig fram á Air wav-
es 19. október. | 48
Í tónleikaferð með Kaiser Chiefs
Jakobínarína heldur fjórtán tónleika í Bretlandi
Í útrás Hljómsveitin Jakobínarína í stuði.