Morgunblaðið - 20.09.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 256. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Skemmtilegasta sýning
allra tíma - hér! >> 40
Leikhúsin í landinu
ÚTRÁSIN MIKLA
Í́SLENSK FYRIRTÆKI GERA STRANDHÖGG MEÐAL
FRÆNDA VORRA Á ÍRLANDI >> VIÐSKIPTI
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
BÆNDUR á Suðurlandi eru farn-
ir að heyja í rúllur beinlínis í þeim
tilgangi að flytja heyið upp á Bisk-
upstungnaafrétt til uppgræðslu.
Þessi aðferð við uppgræðslu þykir
hafa gefið afar góða raun og eru
bændur farnir að nota sérstaka tæt-
ara til að blása heyinu í rofabörð.
Mörg hundruð rúllur eru notaðar í
þessi verkefni á hverju ári.
Á hverju ári skemmist talsvert af
heyrúllum hjá bændum. Margeir
Ingólfsson, stjórnarmaður í Land-
græðslufélagi Biskupstungna, segir
að þegar bændur hófu þessa upp-
græðsluaðferð hafi þeir bæði hugsað
þetta sem hreinsun og landgræðslu.
Eftir að riðuveiki kom upp á svæð-
inu hafi hins vegar verið bannað að
nota rúllur til landgræðslu nema frá
fjárlausum bæjum. Nú séu bændur í
Biskupstungum farnir að heyja
beinlínis til að nota heyið til land-
græðslu.
Styrkur frá pokasjóði
Pokasjóður verslunarinnar hefur
stutt þetta verkefni undanfarin ár og
í ár fékk Landgræðslufélag Bisk-
upstungna hæsta einstaka styrkinn
eða 7,5 milljónir. Í ár fara fé-
lagsmenn með um 300 rúllur upp á
Biskupstungnaafrétt og á svæði inn
af Hvítá. Landgræðslan hefur einnig
stutt verkefnið með ráðum og dáð.
Margeir segir að þessi upp-
græðsluaðferð skili langbestum ár-
angri þegar reynt er að stöðva fok úr
rofabörðum. Ekki síst ef notaður sé
áburður og fræ með.
Dreifingu á áburði og fræi með
flugvél hefur verið hætt en bændur
hafa í auknum mæli tekið að sér
áburðar- og frædreifingu með drátt-
arvélum. Reynslan hefur kennt
mönnum að oftast nær dugar ekki að
dreifa fræi einu sinni. Nauðsynlegt
er að bera oftar á. Heyrúllur þykja
því vera góð viðbót við þær aðferðir
sem notaðar hafa verið við að berjast
gegn landeyðingu.
Ljósmynd/Margeir Ingólfsson
Uppgræðsla Tætari blæs heyinu í
rofabörð og heftir uppblástur.
Græða
með
rúllum
Heyja í rúllur til
uppgræðslu
hann hefði verið að nota bátinn fyrir
stuttu í Veiðivötnum og því hefði
hann verið tilbúinn á kerru heima
við og fljótlegt að grípa hann með
sér.
Hann sagði einnig að áin væri
varasöm á þessum slóðum. Þannig
hefði bróðir hans bjargað veiðimanni
úr ánni á sama stað fyrir nokkrum
árum og þá hefði einnig þessi sami
bátur komið að góðum notum.
Tilkynning um slysið barst lög-
reglunni á Selfossi upp úr klukkan
fimm í gærdag og voru þá þegar
björgunarsveitir, lögregla og sjúkra-
lið send á vettvang. Leit stóð í allt
gærkvöld beggja vegna árinnar og
voru bakkar hennar gengnir frá
Þrastarlundi. Leitin hafði ekki borið
árangur þegar síðast fréttist en
halda átti áfram að leita eins og
hægt var vegna myrkurs og hafa
vakt á brúnni yfir Sogið.
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
KARLMANNS á sextugsaldri er
saknað eftir að hann féll í Sogið
seinnipartinn í gær, en öðrum manni
var naumlega bjargað um borð í bát
sem settur var á flot í því skyni. 150
björgunarsveitarmenn frá björgun-
arsveitum alls staðar að af Suður-
landi og höfuðborgarsvæðinu leituðu
mannsins í gærkvöldi og nutu til
þess aðstoðar þyrlu, kafara og leit-
arhunda, auk einkaflugvélar, en leit-
in hafði ekki borið árangur um mið-
nætti þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Mennirnir, sem eru feðgar, voru
að veiðum í Soginu austanverðu í
landi Ásgarðs, miðja vegu milli Úlf-
ljótsvatns og Álftavatns, þegar slys-
ið varð, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, en þarna er fljótið
nokkur hundruð metrar á breidd.
Veiðimaður sem var að veiðum í
landi Bíldsfells vestanvert við ána sá
hvað verða vildi og sótti hjálp upp að
bænum. Hann náði í Guðmund Þor-
valdsson, bónda á Bíldsfelli, en svo
vel vildi til að árabátur var tilbúinn
heima við bæinn. Þeir höfðu snör
handtök, fóru með bátinn niður á ár-
bakkann, hrintu honum á flot og
sóttu manninn sem var úti í ánni.
Hann var þá orðinn þrekaður. „Það
mátti engu muna,“ sagði Guðmund-
ur í samtali við Morgunblaðið í gær-
kveldi. Hinn veiðimaðurinn var þá
horfinn.
Tilviljun að báturinn
var tilbúinn
Guðmundur sagði að vel hefði
gengið að ná manninum um borð í
bátinn og fara með hann í land.
Sjúkrabíll var kominn á staðinn þeg-
ar þeir komu að landi og hjálpar-
sveitir skömmu síðar og var mað-
urinn fluttur á sjúkrahús.
Guðmundur sagði aðspurður að
„Það mátti engu muna“
Morgunblaðið/Guðmundur Karl
Við Sogið Leit að manninum hófst síðdegis og stóð enn um miðnættið. Gengið var meðfram bökkum árinnar og leitað á ánni sjálfri og einnig úr lofti.
Karlmanns saknað eftir að hann féll í Sogið síðdegis í gær og öðrum naumlega
bjargað Manni var bjargað úr ánni á sama stað fyrir nokkrum árum
KÚABÆNDUR á Austurlandi munu leita ann-
arra leiða til að vinna mjólk á Austurlandi, ef
samþykktar verða tillögur stjórnenda Mjólkur-
samsölunnar um að leggja niður mjólkurvinnslu á
Egilsstöðum. Hefur meðal annars komið til tals í
þeirra röðum að leita til keppinautar MS, Mjólku,
um að koma að mjólkurvinnslu þar. Bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs skorar á stjórn MS og fulltrúa-
ráð að endurskoða ákvörðunina.
Tillögur um að leggja niður mjólkurvinnslu á
Egilsstöðum mælast illa fyrir á Austurlandi, með-
al annars meðal kúabænda. Gunnar Jónsson, for-
maður Austurlandsdeildar MS, telur að ákvörðun
um það yrði upphafið að endalokum mjólkur-
framleiðslu á Austurlandi.
Alvarlegar afleiðingar
Áform MS eru hörmuð í bókun sem samþykkt
var samhljóða á fundi bæjarstjórnar Fljótsdals-
héraðs í gær. Fram kemur að mjólkurframleiðsla
er mikilvæg atvinnugrein í sveitarfélaginu og
ákvörðun stjórnar MS muni hafa alvarlegar af-
leiðingar fyrir mjólkurframleiðslu og atvinnulíf
til lengri tíma. Hún geti skapað óöryggi fyrir
bændur og hætta á að mjólkurframleiðsla leggist
af á svæðinu í framtíðinni.
Gangi tillögurnar eftir verða níu til tíu af þeim
fjórtán störfum sem nú eru við mjólkursamlagið
lögð niður. Bæjarstjórn bendir á áhrif þess á fjöl-
skyldur starfsmannanna og að fleiri verði fyrir
óbeinum áhrifum. Vakin er athygli á því að fram-
undan séu óvissutímar í atvinnumálum Fljótsdals-
héraðs þar sem miklu framkvæmdatímabili vegna
bygginga virkjunar og álvers sé að ljúka. Sveitarfé-
lagið þurfi því nú sem aldrei fyrr á öllum störfum og
íbúum að halda til að byggð í sveitarfélaginu geti
áfram eflst og dafnað.
Breytingar verða | 12
Bændur og bæjarstjórn á Héraði harma áform um að leggja niður mjólkurvinnslu
Íhuga að leita til Mjólku